Morgunblaðið - 06.03.2006, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 06.03.2006, Qupperneq 48
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alladaga í Lágmúla og Smáratorgi Sími 568 6625 ALTERNATORAR FYRIR BÁTA OG BÍLA FORSTJÓRI BYKO leggur til að lóð í landi Úlfarsfells sem rætt hefur verið um að út- hluta undir verslun þýsku byggingarvöru- verslunarkeðjunnar Bauhaus, en BYKO hefur ítrekað sótt um frá árinu 1998, verði boðin út svo fyrirtæki geti keppt á jafnrétt- isgrundvelli um lóðina. „Reykjavíkurborg verður að fylgja stjórnsýslulögum, en miðað við hvernig um- ræðan hefur þróast, og miðað við það hvað hefur verið mikill ágreiningur um þetta mál í langan tíma, og pólitískar forsendur virð- ast því miður spila inn í, er eðlilegt að gefa fyrirtækjum jöfn tækifæri til að sækjast eftir þessari lóð,“ segir Ásdís Halla Braga- dóttir, forstjóri BYKO. „Ef lóðin er skilgreind sem lóð fyrir byggingarvöruverslun er langeðlilegast að bjóða slíka lóð út þannig að menn geti keppt um hana á jafnréttisgrundvelli og sam- keppnisforsendum.“ Ásdís Halla segir að BYKO myndi sætta sig við slíka niðurstöðu. „Alveg klárlega, þessi þrautaganga BYKO síðastliðinn áratug hefur kennt okkur að það er miklu heilbrigðara að standa svoleið- is að málunum.“ Með bréfi frá Smáragarði, fasteigna- félagi sem sér um fasteignir BYKO, sem sent var til borgarráðs 22. febrúar sl. fylgdi lögfræðiálit þar sem fram kemur að fái Bauhaus lóðina geti Reykjavíkurborg verið að brjóta gegn jafnræðisreglu stjórnsýslu- laga. Vill útboð á lóð undir byggingar- vöruverslun  Úthlutun til Bauhaus | 24 MIKILL fjöldi ökumanna tók í gærkvöldi þátt í hópakstri í Reykjavík, sem nokkur bifreiða- og vélhjólasamtök stóðu að. Að sögn Vilhelmínu Evu Vilhjálms- dóttur, eins stofnanda bílaklúbbs- ins Live2Cruize, var ákveðið að efna til akstursins í minningu þeirra sem látið hafa lífið í um- ferðarslysum síðastliðin ár og til að minna á þörf fyrir betri að- stæður til aksturs og bætta öku- kennslu á landinu. Haldið var af stað úr mið- bænum klukkan 20 í gærkvöldi og Sæbrautin ekin í lög- reglufylgd. Ekið var allt að brúnni við Ártúnsbrekkuna og svo aftur niður í bæ. Haldið var í Borgartún þar sem fólk gat lagt bílum sínum allt frá plani Heim- ilistækja niður að bílastæðum Ný- herja og hjá fyrirtækjum þar í kring. Bílanaust útveguðu kerti sem dreift var og kveikt var á kertunum á Sæbrautinni. Vilhelmína Eva benti í samtali við Morgunblaðið í gær á að und- anfarnar vikur hefðu orðið þrjú dauðaslys í umferðinni. Tíma- bært væri að auka ökukennslu ungs fólks og tryggja að það kynni að bregðast við mismun- andi aðstæðum í veðri og á veg- um. Þær upplýsingar fengust hjá lögreglunni að hópaksturinn hefði gengið vel fyrir sig. Nokkr- ar umferðartafir hefðu myndast við miðbæinn vegna akstursins. Morgunblaðið/Sverrir Tendrað var á kertum við Sæbraut að loknum hópakstrinum. Morgunblaðið/Sverrir Bílalestin ekur um gatnamót Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar þar sem ung stúlka lét lífið í umferðarslysi í síðustu viku. Hópakstur í minn- ingu fólks sem látist hefur í umferðinni ÍSLENSKI frystitogarinn Venus fór ekki frá Tromsö í Noregi í gærkvöldi, en þar var skipið kyrrsett af norskum yfirvöldum eftir að norska varðskipið KV Harstad færði togarann til hafnar vegna gruns um brot á norskum fiskveiðilögum. Venus kom til hafnar í Tromsö í gærmorgun, en togarinn var á þorskveiðum á Malangsgrunni þegar eftirlitsmenn fóru um borð á laugardags- kvöld og komust að þeirri niðurstöðu að meðafli væri of mikill. Eggert B. Guðmundsson, forstjóri HB Granda, segir skipverjana á Venusi telja að þeir hafi engar reglur brotið. Þeir hafi stundað veiðar í mörg ár, þekki vel til að- stæðna og hafi ekki ætlað sér að brjóta nein- ar reglur. Í gær fóru fram yfirheyrslur yfir skip- stjóra Venusar og lauk þeim í gærkvöldi. Þá unnu lögmenn norsku lögreglunnar að því fram á kvöld að fara yfir málið ásamt lög- fræðingi HB Granda. Ekki tókst að ljúka því í gærkvöldi og hélt Venus því kyrru fyrir í Tromsö. Þaðan fer togarinn umsvifalaust þegar botn kemst í málið, að sögn Eggerts. Frystitogarinn Venus færður til hafnar í Tromsö Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Meðafli sagð- ur of mikill VINNA við undirbúning að mögulegri bygg- ingu álvers Norðuráls í Helguvík er í fullum gangi og gengur undirbúningurinn mjög vel að sögn Ragnars Guðmundssonar, framkvæmda- stjóra fjármála- og stjórnunarsviðs Norðuráls. Talið er að jarðhitalindir á Reykjanessvæðinu séu meira en nægar til að sjá 250 þúsund tonna álveri fyrir orku en viðræður hafa einnig farið fram við önnur orkusölufyrirtæki en Hitaveitu Suðurnesja, skv. upplýsingum Norðuráls. Bygging álvers gæti hafist 2008 Að mati forsvarsmanna Norðuráls er raun- hæft að ætla að uppbygging álvers í Helguvík gæti hafist á árunum 2008 til 2009 en það er forsenda þess að gangsetja megi fyrsta áfanga árið 2010. Gert er ráð fyrir stigskiptri upp- byggingu í Helguvík þannig að álverið fari í fullan rekstur fram til ársins 2015 en þá muni árleg framleiðsla geta náð 250.000 tonnum. Ekki verða þó teknar endanlegar ákvarðanir um uppbygginguna og einstakar tímasetningar fyrr en mati á umhverfisáhrifum álvers og virkjana er lokið. „Við höfum verið að vinna að undirbúningi að mati á umhverfisáhrifum. Búið er að auglýsa matsáætlun fyrir mat á umhverfisáhrifum og við erum að ganga frá henni endanlega þessa dagana. Næsta skref er þá að fara í sjálft mat- ið. Ef byrjað verður á því fljótlega má gera ráð fyrir að það geti legið fyrir öðru hvorum megin við næstu áramót,“ segir Ragnar. Vænta undirritunar lóðar- og hafnarsamnings fyrir vorið „Við erum einnig að skoða mögulega fram- leiðslutækni fyrir álverið og nánari útfærslu með tilliti til staðsetningar mannvirkja á svæð- inu,“ segir hann. Meðal næstu skrefa í undirbúningi verkefn- isins er undirritun lóðarsamnings og hafnar- samnings sem vænta má fyrir vorið, skv. upp- lýsingum Norðuráls. Þá er viðræðum Norðuráls og Hitaveitu Suðurnesja sagt miða vel. „Við finnum fyrir mjög góðum stuðningi móðurfélagsins, Century Aluminum Company,“ segir Ragnar. „Þeir hafa líka stutt mjög mynd- arlega við bakið á okkur við uppbygginguna á Grundartanga og komið þar inn með verulega aukið eigið fé og gert aðrar ráðstafanir sem hafa auðveldað okkur mjög þá uppbyggingu,“ segir hann. Norðurál telur næga orkuöflunarkosti til á Reykjanesi fyrir 250 þúsund tonna álver Fullur gangur er í undirbúningi álvers í Helguvík Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is  Uppbygging | 10 „ÞAÐ er vaxandi vandamál hversu margir bera hnífa á sér þegar þeir fara út að skemmta sér,“ segir Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu- þjónn í Reykjavík, og bendir á að það gerist oft að menn mundi hnífa á veitingahúsum eða í nágrenni þeirra. Karlmaður var stunginn í bakið með hnífi í miðborginni á sjötta tímanum á sunnudags- morgun, en atvikið átti sér stað fyrir utan veit- ingahúsið Glaumbar í Tryggvagötu. Maðurinn var fluttur á slysadeild. Hann særðist ekki lífshættulega, en hann var lagður inn á Land- spítala eftir að meiðsl hans höfðu verið skoð- uð. Úrskurðaður í gæsluvarðhald Skömmu eftir atburðinn náði lögregla manni sem grunaður er um hnífstunguna og var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald í gær. Tveir aðrir menn voru handteknir vegna máls- ins en þeim hefur verið sleppt, að sögn lög- reglunnar í Reykjavík. Aðfaranótt laugardags var karlmaður stunginn tvisvar í bakið í miðbæ Reykjavíkur og særðist alvarlega. Þær upplýsingar fengust í gær hjá lækni á lungna- og hjartaskurðdeild Landspítala – háskólasjúkrahúss að maðurinn væri ekki lengur í gjörgæslu og því úr lífs- hættu. Læknirinn sagði líðan mannsins eftir atvikum ágæta. Einn maður er grunaður um verknaðinn en hann situr í gæsluvarðhaldi fram á föstudag vegna málsins. Hann var handtekinn á laug- ardag ásamt öðrum manni, sem svo var sleppt. Tveir í gæsluvarðhaldi eftir hnífstungumál í miðborginni Hnífaburður vaxandi vandamál ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.