Morgunblaðið - 25.06.2006, Side 1

Morgunblaðið - 25.06.2006, Side 1
STOFNAÐ 1913 170. TBL. 94. ÁRG. SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Reynslan skilur sitt eftir í sálinni Garðar Pálsson varð tíu sinnum fyrir skotárás á stríðsárunum | 24 Tímarit og Atvinna í dag Tímarit | Björn Brynjólfur og Sigurjón Björnssynir hafa alla tíð verið samrýndir  Af hverju varð kaffivélin til?  Sumarið er tíminn Atvinna | Laus störf í boði alls staðar á landinu 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350 Vetrarævintýri Heimsferða - leiðrétting Vetrarævintýrum Heimsferða er dreift með blaðinu í dag. Því miður eru villur í verðskrá fyrir Kúbuferðir þar sem dagsetningar hafa færst til á milli dálka í verðskránni. Verð í einbýli á Villa Tortuga er einnig rangt. Jafnframt er villa í lýsingu gististaðar „án nafns“ í Austurríki, en þar er aðeins morgunverður innifalinn. Beðist er velvirðingar á þessu. Rétta verðskrá má nálgast á www.heimsferdir.is og á skrifstofu Heimsferða. JÁKVÆTT svar hefur fengist frá bygging- arfulltrúanum í Reykjavík um að byggja hæð ofan á Skeifuna 6 í Reykjavík, þar sem verslunin Epal er til húsa. Að sögn Eyjólfs Pálssonar, eiganda verslunarinnar, stend- ur til að opna viðbygginguna hinn 1. apríl á næsta ári. „Mín fyrsta hugmynd var að þetta yrði eins og geimskip sem hefði lent ofan á hús- inu og arkitektarnir, Erum Arkitektar, unnu svo út frá því,“ segir hann um tilurð byggingarinnar en nýlega festi fyrirtæki hans kaup á auknum hlut í verslunarhús- næðinu. „Ég fæ það reyndar ekki afhent fyrr en eftir fjögur, fimm ár en við kaupin fékk ég byggingarrétt ofan á húsið. Hug- myndin er að hafa tvöfalda lofthæð í miðju rýmisins en allan hringinn umhverfis það verði svalir innanhúss,“ segir Eyjólfur. Í Tímariti Morgunblaðsins í dag segir Eyjólfur frá æsku sinni, námsárunum í Danmörku og ýmislegt fleira kemur til tals. Morgunblaðið/Golli Geimskip lendir í Skeifunni JÓN Gerald Sullenberger, upphafsmaður Baugsmálsins, segir að í maí 2002 hafi Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, enn getað samið við sig um óuppgerð ágreinings- mál. „Jón Ásgeir hefði svo léttilega getað sagt við Tryggva Jónsson að hann yrði bara að fara til Flórída og klára þessi mál með mér, en þeir kusu að fara aðra leið,“ segir Jón Gerald m.a. í ítarlegu viðtali við Morgunblað- ið, sem birtist í dag og á morgun. Jón Gerald segir að í sínum huga hafi aldr- ei komið til álita að hætta við að leggja fram ákæru, eftir að hann hafði gert upp hug sinn í þeim efnum í júní 2002. „Þegar ég var á leiðinni út á flugvöll, í byrj- un september 2002, eftir að hafa lagt fram kæru, fékk ég upphringingu, þar sem sagt var við mig, að ef ég hætti við allt saman, drægi kæruna til baka og segði að þetta hefði allt verið á misskilningi byggt, þá biði mín feitur tékki upp á tvær milljónir dollara. Ég sagði að þótt tilboðið hefði hljóðað upp á tíu milljónir dollara, þá hefði það engu breytt,“ segir Jón Gerald. Pósti markvisst eytt Í viðtalinu greinir Jón Gerald frá því að hann hafi haft áhyggjur af því haustið 2002 að Baugsmenn væru búnir að taka til í bókhald- inu hjá sér, því hann hafði sagt þeim að hann ætlaði í mál við þá. Hann lýsir því hvernig hann telur að tölvupósti þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva Jónssonar hafi markvisst verið eytt haustið 2002: „Vinur minn hafði sem sagt varið deginum í að eyða öllum tölvupóstum Jóns Ásgeirs og Tryggva. Það kom nefnilega í ljós í lögreglurann- sókninni, að allur tölvupóstur starfsmanna Baugs var geymdur í höfuðstöðvum Baugs, nema tölvupóstur forstjórans, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, og aðstoðarforstjórans, Tryggva Jónssonar. Hann var vistaður hjá lítilli tölvunetþjónustu í Síðumúlanum … Ef menn eru með hreint borð og hafa ekkert að fela, hvers vegna þurfti þá að verja heilum degi í að eyða póstum þessara manna?“ spyr Jón Gerald. Jón Gerald lýsir því einnig hvernig þeir feðgar Jón Ásgeir og Jóhannes Jónsson reyndu, með aðstoð Tryggva Jónssonar, að fá hann til þess að samþykkja að flytja skrá- setningu bátsins Thee Viking yfir á félag feðganna, Miramar, skrásett á Bahamaeyj- um, en því hafi hann alfarið hafnað. Jón Gerald Sullenberger í ítarlegu viðtali um Baugsmálið Varði deginum í að eyða tölvupóstum Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is  Eru með kverkatak | 10–13 ÞEIR sýna harðfiskbitanum meiri áhuga en eigendunum, hundarnir á þessari mynd, en nú um helgina stendur yfir sumarsýning Hunda- ræktarfélags Íslands í Reiðhöll- inni í Víðidal. Harðfiskur kemur mikið við sögu á slíkum sýningum og er notaður til að verðlauna hundana og halda þeim á beinu brautinni. Á sýningunni verða sýndir um sex hundruð hundar af 63 mis- munandi tegundum og verða fal- legustu hundar sýningarinnar valdir af hópi dómara sem eru frá Svíþjóð, Danmörku og Ír- landi. Þá setur ungviðið svip sinn á sýninguna, en sérstök keppni ungra sýnenda er haldin auk þess sem hvolpar og ungir hundar koma við sögu. Þá er starfsemi Hundarækt- arfélagsins kynnt, sem og starf unglingadeildar þess.Morgunblaðið/ÞÖK Harð- fiskurinn heillar París. AFP. | Löngu áður en fyrsta spyrnan var tekin á Heimsmeist- aramótinu í knattspyrnu höfðu öfgafullir múslímar fordæmt keppnina sem hættulega, vestræna spillingu. Sögðu sumir, að hún væri miklu verri en hernaðarárás vegna þess, að hún „mengaði hug og hjarta múslíma“. Íslamistar hafa fjallað mikið um keppnina á netinu og einn þeirra varaði trúbræður sína við þessu „samsæri“, sem ætlað væri að leiða huga þeirra frá „hinu heilaga stríði“. Þá hafa sumir, vopnaðir trúarlegum tilskipunum, hvatt til, að múslímar sniðgangi „Vændisbik- arinn“ eins og þeir kalla keppnina vegna frétta um, að þúsundir vændiskvenna hafi flykkst til Þýskalands. „Á sama tíma og bræður okkar eru kvistaðir niður í Írak, Palestínu og Afganistan af krossferðariddur- um og gyðingum, getur unga fólkið ekki slitið augun af skjánum og fót- boltaeitrinu,“ sagði einn harðlínu- maður og tíndi til 12 „dauðasyndir“ tengdar HM. Ein sú mesta var „að- dáun á guðlausum leikmönnum“. Ekki eru allir sammála þessu og einn, sem kallaði sig heittrúaðan, kvaðst ekki sjá neitt athugavert við að horfa á fótboltann. Allar tilraun- ir til að banna það, væru líka dæmdar til að mistakast. HM og heilagt stríð Manila. AP. | Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, skrifaði í gær undir lög um afnám dauðarefsingar í landinu. Dauðarefsing var afnumin í landinu árið 1987 en aftur tekin upp árið 1993 og mátti beita henni ef um var að ræða glæpi á borð við barnaníðingshátt, morð og mannrán. Sjö manns hafa verið teknir af lífi síðan þá. Með nýju lögunum verður lífi 1.200 fanga, sem bíða á dauðadeild, þyrmt, þar á meðal 11 al- Qaeda-liða. Arroyo tók fram við undirrit- unina að þetta þýddi ekki að hryðjuverka- mönnum yrði á nokkurn hátt sýnd meiri lin- kind en áður. Dauðarefsing afnumin Gloria Arroyo ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.