Morgunblaðið - 25.06.2006, Side 4

Morgunblaðið - 25.06.2006, Side 4
4 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Rimini 28. júní frá kr. 29.990 m.v. 2 Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr.29.990 Netverð á mann, m.v. að lágmarki 2 ferðist saman. Stökktu tilboð í viku 28. júní. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Aukavika kr. 10.000. Allra síðustu sætin Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Rimini í júní. Njóttu lífsins í sumar á þessum vinsælasta sumarleyfisstað Ítalíu. Rimini er ekki aðeins frábær áfangastaður út af fyrir sig heldur eru ótrúlega spennandi valkostir í næsta nágrenni, vilji menn kynnast mörgum andlitum Ítalíu í einni ferð. Bókaðu flugsæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Sunnudaginn 25. júní verð- ur vélbún- aður mbl.is fluttur í nýtt húsnæði Morgunblaðs- ins að Hádegismóum. Flutningarnir hefjast kl. sjö að morgni og lýkur síðdegis sama dag. Meðan á flutn- ingunum stendur eru vefir mbl.is óvirkir. Lesendur og notendur vefja mbl.is eru beðnir velvirðingar á því ónæði sem þessir flutningar valda. Mbl.is óvirkur vegna flutninga LAXVEIÐIMENN bíða víða spenntir eftir fregnum af laxagöngum nú á stórstreyminu í dag en þá má búast við öflugum göngum smálaxa. Úr Norðurá berast fréttir af smálaxagöngum; veiði- menn sem veiddu gilið frá Laugarkvörn niður í Hræ- svelg síðdegisvaktina á fimmtudag, voru með tíu laxa á stöngina. Þá komu á land átján laxar auk þess sem margir töpuðust. Hollið, sem var hálfnað, var þá komið með 32. Veiði hófst í mörgum ám í vikunni. Enginn lax kom á land í Grímsá fyrstu vaktina en þá næstu, á föstudags- morgninum, veiddust sjö. Sá stærsti kom úr Svarta- stokki og vó 11 pund. Fyrstu laxarnir eru einnig komn- ir á land úr Hítará og Straumfjarðará. Í þeirri síðarnefndu var fyrsti laxinn 13 punda hængur sem veiddist í hylnum President. Þá var Ytri-Rangá opnuð í fyrradag og veiddi Þorgils Torfi Jónsson, oddviti á Hellu, fyrsta laxinn, níu punda hrygnu, á klöppinni fyr- ir neðan Ægissíðufoss. Stórlaxaganga í Miðfirði Nær tuttugu laxar hafa veiðst í Miðfjarðará. Að vanda hefur veiðin verið mest í Vesturá fyrstu dagana. Hafa veiðimenn verið að sjá einn og tvo fiska í helstu hyljunum en á föstudag var blaðamaður við Hlíðarfoss og sá að torfa stórlaxa var mætt í hylinn, um tuttugu fiskar, og var ferð á þeim. Á sama tíma veiddust lús- ugir fiskar í Kistufossi og einn ofarlega í ánni, í hinum rómaða Túnhyl. Þá veiddist einnig á föstudag fyrsti laxinn í Núpsá, 11 punda hængur, en enginn fiskur hef- ur enn veiðst í Austurá. Smálaxagöngur í Norðurá Morgunblaðið/Atli Vigfússon Systkinin Jón Helgi, Sveinbjörg og Halla Björnsbörn með fyrsta laxinn úr Aðaldal, 16 punda hæng. ÍSLENDINGAR hafa ekki haldið í við aðrar þjóðir á undanförnum árum þegar litið er til kennaramenntunar og hefur Kennaraháskólinn reynt að vekja athygli stjórnvalda, almennings og fjölmiðla á þessari staðreynd í meira en ald- arfjórðung. Þetta kom fram í máli Ólafs Proppé, rektors Kennaraháskóla Íslands, við brautskráningu kandídata úr skólanum í gær, en þar gerði hann meðal annars lengingu kenn- aranáms að umræðuefni. Alls voru 565 nem- endur útskrifaðir úr skólanum í gær, bæði úr grunn- og framhaldsdeild, en aldrei hafa jafn margir verið brautskráðir í einu frá KHÍ. Ólafur sagði í ræðu sinni að fyrir nær tuttugu árum hefði Alþingi ákveðið að lengja kenn- aranám í fjögur ár úr þremur og hefði ákvæði um slíkt verið í lögum í um áratug. Aldrei hefði hins vegar fengist stuðningur eða fjármagn frá stjórnvöldum til að koma lengingunni á. KHÍ hefði lagt mikla vinnu í að endurskipuleggja lengra nám og auglýst það vorið 1991. Meira en nægjanlegur hópur fólks hefði sótt um, en 10 dögum áður en námið átti að hefjast hefði menntamálaráðuneytið sent bréf til skólans. Þar hefði KHÍ verið „beinlínis bannað að hefja kennslu á grundvelli nýrrar kennsluskrár og fyr- irskipað að halda sig við eldri kennsluskrá fyrir þriggja ára kennaranám. Þetta sögulega inngrip menntamálaráðuneyt- isins á sínum tíma olli miklum vonbrigðum hjá starfsfólki Kennaraháskóla Íslands, svo miklum að varla er um heilt gróið enn eftir rúm fimmtán ár,“ sagði Ólafur í ræðu sinni. Skammsýni og „skortur á skilningi stjórn- valda, almennings og jafnvel annarra háskóla- menntaðra starfsstétta á störfum kennara í nú- tímasamfélagi“ hefði verið ástæða þess að lenging kennaranámsins var stöðvuð fyrir 15 árum. Ólafur sagði að það hefði tekið KHÍ meira en áratug eftir þessa atburði að ná eyrum almenn- ings og stjórnvalda varðandi þörfina fyrir lengt kennaranám. Skólinn hefði nú markað sér stefnu til ársins 2010. Hann stefndi að því að bjóða frá og með haustinu 2007 upp á endur- skoðað samfellt fimm ára nám til meistaraprófs á öllum námsbrautum og væri undirbúningur kominn vel á veg. Stefnt væri að því að sem flestir nemendur skólans lykju fimm ára há- skólanámi og starfstengdri meistaragráðu áður en þeir hæfu störf. Náminu ekki dreift of víða Þá varaði Ólafur í ræðu sinni við því að kenn- aranámi yrði dreift of víða á Íslandi. „Það getur orðið til þess að tvennt gerist sem hvorutveggja er afleitt fyrir framtíðarþróun skólastarfs í landinu,“ sagði hann. Annars vegar væri hætta á að námið þróaðist meira á breidd en dýpt, þar sem ekki yrðu nægilega margir nemendur til að standa undir kennslu á öllum þeim sérsviðum sem þörf væri fyrir. Hins vegar að fjármagni til kennaramenntunar yrði ráðstafað til afmark- aðra sviða sem „einhverra hluta vegna fá tíma- bundna athygli á kostnað annarra“. Ekki haldið í við aðrar þjóðir í kennaramenntun Ólafur Proppé FORNUM bretónskum granítkrossi var skipað um borð í franska gólettu í útgerðarbænum Paimpol á Bret- aníuskaga í Frakklandi í gær. Skút- an mun sigla með krossinn til Grundarfjarðar þar sem honum er ætlað að minna um ókomna tíð á sókn franskra sjómanna á Íslands- mið á tveimur síðustu öldum. Krossinn, sem er keltneskur að gerð, hefur um ómunatíð verið varð- veittur í Paimpol, einum helsta út- gerðarstað skúta sem sóttu á Ís- landsmið á 19. öld og í byrjun þeirrar tuttugustu. Sókn Paimpola á Íslandsmið hef- ur verið gerð ódauðleg í Frakklandi með hinni frægu sögu Pierre Loti um Íslandssjómennina, eins og skútukarlar frá Paimpol voru kall- aðir. Útgerðarmenn þar höfðu að- stöðu til fiskverkunar í Grundarfirði og milli bæjanna ríkir vináttu- samband. Er granítkrossinn, sem vegur um 600 kíló, gjöf Paimpola til Grundfirðinga. Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri í Grundarfirði, var viðstödd er kross- inn var hífður um borð í gólettuna Belle Poule í Paimpol í gær. Til Íslands seglum þöndum Gólettan, sem siglir með krossinn til Grundarfjarðar, var smíðuð fyrir rúmum 70 árum og er skólaskip franska flotans. Hún er nákvæmlega eins og gólettur sem gerðar voru út frá Paimpol til Íslandsmiða og er notuð til þjálfunar liðsforingjaefna franska flotans. Skipið siglir til Ís- lands seglum þöndum í kjölfar öllu nútímalegri og mun hraðskreiðari fleyja sem ræst voru af stað í Paim- pol í fyrrakvöld í skútukeppninni „Skippers d’Islande“. Nítján skútur, fleiri en nokkru sinni fyrr, taka þátt í siglingakeppni þessari sem haldin er þriðja sinni. Hún fór fyrst fram árið 2000 og aft- ur 2003 og líða því þrjú ár milli móta. Siglt er til Reykjavíkur í fyrsta áfanga, síðan þaðan til Grundarfjarðar. Lokaáfanginn er síðan frá Grundarfirði aftur til Pa- impol en það er 1.300 sjómílna sigl- ing. Morgunblaðið/Ágúst Ásgeirsson Krossinn forni hífður um borð í gólettuna Belle Poule í Paimpol. Á plötunni sem fest hefur verið við hann stendur Pecheurs d’Islande eða Íslandssjó- mennirnir, eins og franskir fiskimenn á Íslandsmiðum voru kallaðir. Forn bretónskur granítkross gefinn til Grundarfjarðar Eftir Ágúst Ásgeirsson í Frakklandi Erfitt að manna stöður hjá Strætó bs. VANDRÆÐI eru með að fá bílstjóra í sumarafleysingar hjá Strætó bs. og komið hefur til greina að leggja niður akstur á ákveðnum leiðum í sumar af þeim sökum. „Við erum í vandræðum með að manna stöður í sumarafleys- ingum. Við höfum verið að horfa til þess með hvaða hætti við getum mætt þessari staðreynd og brugðist við,“ segir Ásgeir Eiríksson, fram- kvæmdastjóri Strætó bs. Skoðað hafi verið að leggja niður tímabundið akst- ur á leiðum 4 og 5. Á föstudag hafi þó tekist að tryggja akstur á leið 4. Vonir standi til þess að einnig takist að koma í veg fyrir að leggja þurfi niður leið 5, en það skýrist á mánudag. „Það er afleitt og auðvitað ömurlegt í þjón- ustufyrirtæki að geta ekki haldið úti þjónustunni. Þess vegna hafa allir sem hér vinna unnið hörðum höndum að því að leysa þessi mál með ein- hverjum hætti,“ segir hann. Tókst aðeins að ráða fjóra Ásgeir segir þensluna í þjóðfélag- inu skýra hversu erfitt er að fá bíl- stjóra til afleysinga. „Í vetur var ákveðið að taka í fyrsta skipti í gildi sumaráætlun. Hún er þannig að á tímabilinu frá byrjun júní til 20. ágúst er ekki ekið á 10 mínútna tíðni á stofn- leiðum. Við þessa breytingu minnkaði mannskapsþörfin. Þar að auki lengd- um við orlofstímann hjá okkar starfs- fólki þannig að hann nær yfir lengra tímabil. Þegar við fórum inn í sumarið þurftum við að ráða 15 manns, en til samanburðar höfum við undanfarin sumur þurft að ráða 50 manns og það- an af fleiri,“ segir Ásgeir. Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is ♦♦♦ STANGVEIÐI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.