Morgunblaðið - 25.06.2006, Side 8
8 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rannsóknamiðstöð Íslands • Laugavegi 13 • 101 Reykjavík • Sími 515 5800 • Bréfsími 552 9814 • www.rannis.is
Að því tilefni standa RANNÍS, Rannsóknaþjónusta Háskólans í Reykjavík, Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands og IMPRA fyrir námskeiði
um hvernig vísindamenn, fyrirtæki og stofnanir geta undirbúið þátttöku í áætluninni. Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Dr. Sean
McCarthy frá Hyperion Ltd., eftirsóttur ráðgjafi sem unnið hefur fyrir marga af helstu háskólum Evrópu, rannsóknastofnanir og
ráðuneyti sem fara með stefnumörkun í vísindum og tækni.
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Þátttökugjald er kr. 25.000.
Innifalið eru námskeiðsgögn og veitingar.
Frestur til að skrá sig er 30. júní 2006.
Skráning fer fram hjá Ásu Hreggviðsdóttur, RANNÍS í síma 515 5811
eða með tölvupósti á: asa@rannis.is
Rammaáætlun Evrópusambandsins um rannsóknir og þróun er stærsta
rannsóknaáætlun sem Ísland á aðild að. Í janúar 2007 opna fyrstu
umsóknarfrestir en áætlunin hefur yfir 54 milljarða evra
til ráðstöfunar í rannsókna- og þróunarverkefni til ársins 2013
N Á M S K E I Ð
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Ertu tilbúin(n) fyrir sjöundu rannsóknaáætlunina?
Námskeið fyrir væntanlega þátttakendur
í 7. rannsóknaáætlun Evrópusambandsins 2007-2013
Þriðjudaginn 4. júlí, kl. 9:00-15:00, Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, Stofu 101
Dagskrá:
1. Yfirlit yfir 7. rannsóknaáætlun ESB
2. Markmið áætlunarinnar og bakgrunnur
3. Undirsvið 7. rannsóknaáætlunar ESB
4. Tegundir verkefnastyrkja
5. Hlutverk evrópskra tæknivettvanga
(Technology Platforms)
6. Grunnrannsóknir í 7. rannsóknaáætlun ESB
7. Samkeppnis- og nýsköpunaráætlun ESB
8. Þín stefnumörkun fyrir 7. rannsóknaáætlun ESB
Það er betra að þú haldir á honum, Bjössi minn, hann sýnist þá stærri.
Fregnir af gangiframkvæmda viðKárahnjúkavirkj-
un hafa ekki farið hátt í
fjölmiðlum undanfarnar
vikur, nema þá er óhöpp
hafa komið upp eins og
eldurinn á vinnupalli í öðr-
um fallgöngunum niður í
stöðvarhúsið í Fljótsdal,
en verið er að stálfóðra
göngin við erfiðar aðstæð-
ur. Þar er vinna farin í
gang á nýjan leik.
„Á heildina litið er stað-
an á verkinu góð, þó að
tímaramminn sé vissulega
orðinn þröngur,“ segir Sigurður
Arnalds, talsmaður Landsvirkj-
unar, spurður um gang fram-
kvæmda við Kárahnjúka um þess-
ar mundir.
Sigurður reiknar með að full af-
hending á raforku til álvers Alcoa
í Reyðarfirði verði í október 2007,
en áhöld séu um gangsetningu á
fyrstu vélum. Þær verði tilbúnar á
tilsettum tíma en stóra spurningin
sé hvenær þær fái vatn úr jarð-
göngunum.
Varaáætlun Landsvirkjunar,
sem Alcoa hefur samþykkt, er í
undirbúningi en hún miðar við að
fyrstu ker álversins fái raforku af
landsnetinu, með stuðningi frá
stækkaðri Lagarfossvirkjun. Mið-
ast þessi áætlun við að seinkun
verði á gangsetningu fyrstu vélar
um einn til tvo mánuði.
Sé staða einstakra verkhluta
skoðuð þá hefur vinna við að
steypa kápuna vatnsmegin á
Kárahnjúkastíflu gengið vel, en
hún hófst að nýju í apríl sl. eftir
vetrarhlé. Þar er steypt með svo-
nefndum skriðmótum á alls ríf-
lega 92 þúsund fermetra flöt. Búið
er að steypa um 41 þúsund fer-
metra, eða um 44% alls verksins.
Hægir á stíflufyllingunni
Síðustu daga hefur hægt á
vinnu við að fylla í sjálfa Kára-
hnjúkastíflu. Starfsmenn Impreg-
ilo þurfa að athafna sig á stífluk-
antinum til að steypa kápuna og
er ekki meira rými í bili fyrir fyll-
ingarefni. Þröngt er orðið á þingi
efst á stíflunni og því fyllt eftir að-
stæðum. Um 95% fyllingarinnar
eru komin í stífluna, sem í fara um
8,5 milljónir rúmmetrar.
Vinna við hliðarstíflurnar hjá
Suðurverki er á áætlun og stíflu-
gerðinni í heild sinni á að vera lok-
ið í september nk. þegar vonir
standa til að byrjað verði að fylla í
Hálslónið. Fer það eftir rennsli í
Jökulsánni, ekki verður skrúfað
fyrir fyrr en vatnsrennsli í henni
hefur minnkað.
Margs konar önnur vinna er í
gangi kringum stíflurnar, t.d. er
verið að steypa yfirfallsrennu á
vesturbakka Hafrahvammagljúf-
urs, þaðan sem vatnið mun renna í
foss niður í gljúfrið. Einnig er
unnið áfram í bergþéttingu undir
aðalstíflunni, þar sem m.a. hafa
verið notaðir títtnefndir hefils-
pænir til að halda steypugrautn-
um á sínum stað meðan hann er að
harðna. Þá eru starfsmenn Imp-
regilo að störfum við botnrás und-
ir stíflunni, þar sem áður voru efri
hjáveitugöngin.
Nú þegar langt er liðið af júní-
mánuði eiga risaborarnir þrír í að-
rennslisgöngum virkjunarinnar,
frá Kárahnjúkastíflu að stöðvar-
húsinu í Fljótsdal, eftir að bora
ríflega 15 kílómetra leið. Þar af
eru 9,5 kílómetrar um Jökulsár-
göng, í átt að Ufsarlóni.
Slá í gegn í ágúst
Bor eitt hefur lokið við að bora
ríflega 15 kílómetra og á eingöngu
eftir tæpan kílómetra. Að sögn
Sigurðar er vonast til að bor eitt
„slái í gegn“ í byrjun ágústmán-
aðar. Verður borinn þá tekinn í
sundur og fjarlægður.
Bor tvö hefur átt í mestum
vanda vegna misgengja í jarðlög-
um. Margsinnis hefur orðið að
stöðva borinn á meðan sprungur
hafa verið fylltar af steypu og síð-
an beðið eftir því að hún harðnaði
til að hefja borun á nýjan leik. Á
hann eftir að fara í gegnum eitt
misgengi. Bor tvö hefur frá upp-
hafi komist ríflega 10 kílómetra og
á eftir tæpa tvo km af sinni leið,
þar til hann verður stöðvaður í
september og bakkað inn í göngin
átt að Jökulsárlóni.
Bor þrjú hefur lokið við rúma
12 kílómetra og á eftir tæpa þrjá
kílómetra á móts við bor tvö. Sig-
urður segir að bor þrjú eigi að
hafa komist í gegn um mánaða-
mótin nóvember/desember nk. Er
það heldur seinna en áætlað var
en til að vinna þær tafir upp hefur
frágangsvinnu í þeim hluta gang-
anna, sem búið er að bora, verið
flýtt. Efst í göngunum, næst Háls-
lóni er svo verið að sprengja með
„gamla laginu“ tæpan kílómetra
sem þar er eftir.
Fosskraft, sem er aðalverktaki
við stöðvarhúsbyggingu í Fljóts-
dal, á að skila allri steypuvinnu
inni í stöðvarhúsinu um miðjan
ágúst. VA Tech er að setja niður
fyrstu þrjár vélarnar og flytur sig
á næstu þrjár er steypuvinnunni
lýkur.
Arnarfell er með stórt verk í
innsta hluta Jökulsárganga, á eft-
ir einn kílómetra af 3,5 km og
byrjað er að undirbúa stíflurnar,
bæði í Jökulsá í Fljótsdal og
Kelduá. Vatn frá þessum hluta á
að koma inn í virkjunina vorið
2008.
Fréttaskýring | Kárahnjúkavirkjun
Hálslónið fyllt
í september
Tímaramminn orðinn þröngur og áfram
unnið að undirbúningi á varaáætlun
Steypuvinna í stöðvarhússhellinum.
Líklegt að loka þurfi vinnu-
brúnni yfir Jökulsá á Dal
Vinnubrúnni yfir Jökulsá á
Dal, sem sett var upp sunnan við
stíflustæðið og hefur verið opin
ferðafólki, verður lokað þegar
hækka fer í ánni í sumar. Flutn-
ingsgeta undir stífluna er minni
en verið hefur og því líklegt að
vatnsborðið fari vel upp fyrir
brúarstæðið. Ekki verður hleypt
á umferð yfir stífluna í sumar og
því þurfa menn m.a. að taka á sig
krók um Kárahnjúkaveg niður í
Hrafnkelsdal til að komast yfir
ána.
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
BÆJARRÁÐ Kópavogs úthlutaði á
fundi sínum síðasta þriðjudag 100
lóðum til einstaklinga og fyrirtækja
á Hnoðraholti, Smalaholti, Rjúpna-
hæð og Hvörfum.
Að sögn Gunnars I. Birgissonar,
bæjarstjóra, bárust 783 umsóknir
um lóðir og var þeim úthlutað sam-
kvæmt reglum bæjarráðs um úthlut-
un á byggingarétti fyrir íbúðarhús-
næði.
Aðspurður um hvort að reglum um
úthlutun hafi verið breytt á einhvern
hátt eftir ábendingu frá félagsmála-
ráðuneytinu um úthlutun lóða í
Kópavogstúni, sagði Gunnar Kópa-
vogsbæ vera mjög ósáttan við þann
úrskurð. Hann sagði að farið yrði
með þennan úrskurð fyrir dómstóla
og reglum yrði ekki breytt.
Hægt er að nálgast lista yfir þá
sem fengu úthlutað lóðum á vef
Kópavogsbæjar, http://www.kopa-
vogur.is.
100 lóðum úthlutað í Kópavogi