Morgunblaðið - 25.06.2006, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 17
FJÁRMÖGNUN
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
2
1
6
VIÐSKIPTAVINURINN
Í FYRSTA SÆTI
Glitnir Fjármögnun býður fjölbreytta
kosti við fjármögnun bíla og atvinnutækja.
Eigð’ann
Eignastu bílinn
með hjálp Glitnis
• Bílalán
• Bílasamningur
Leigð’ann
Greiddu aðeins
fyrir afnot af bílnum
• Einkaleiga
• Rekstrarleiga
Hafðu samband í síma 440 4400 eða
kynntu þér málið á www.glitnirfjarmognun.is
Útsalan hefst
á morgun
Opið frá kl. 12-21
Laugavegi 1 • sími 561 7760
Frá því ég man fyrst eftir mér í bíósal og sá hinnþekkilega Roy Rogers berjast gegn alls kynsilla vöxnum og órökuðum bófalýð hef ég þekkthina hefðbundnu hlutverkaskipan í góðum sög-um: Aðal, Vondi kallinn, Kærastan og Besti
vinur aðal.
Í leikjum bernskunnar var auðvitað mesta fjörið að
vera aðal, einstaka leikfélagar fengu eitthvað út úr því að
vera skúrkurinn, ástkonuhlutverkið gekk yfirleitt af, en
ef átök urðu um hlutverkaskipan var alveg hægt að sætta
sig við að vera besti vinur aðal. Ef maður getur ekki verið
„Aðal“, hvað er þá betra en að vera besti vinur hans? Í
sögunum af Roy er það auðvitað gæðahrossið Trigger
sem er besti vinur aðal og annað dæmi
er Dr. Watson í bókunum um Sherlock
Holmes. Í íslenska sagnaarfinum hefur
þetta hlutverk ekki endilega verið
áberandi, enda íslenskar hetjur gjarn-
an hvumpin heljarmenni, sem nánast
enginn nema mamma þeirra getur um-
gengist til lengdar, hvað þá elskað. Ég nefni bara Egil
Skallagrímsson og Gretti Ásmundarson sem dæmi. En í
íslenskum stjórnmálum hefur hlutur Besta vinar aðal
hins vegar verið afar stór um áratuga skeið og hann hef-
ur boðið fram undir fyrsta stafnum í nafninu sínu.
Sú var tíð að X-B táknaði stuðning við samvinnu-
hugsjónina og hagsmuni bænda og jórturdýra, en eftir að
búaliðið hvarf að mestu á mölina með atkvæði sín og af-
kvæmi og bændur urðu einir eftir til sveita með dýrum
sínum og tækjum tóku stefnumál og markmið Fram-
sóknar líka að hærast og einangrast. Svo fór einnig að
lokum að móðir allra eignarhaldsfélaga, Samband ís-
lenskra samvinnufélaga, glataði hæfileikanum til að
ávaxta auð sinn og dó, en hinn digri sjóður týndist ein-
hvern veginn í hafi af blómum og krönsum í útförinni.
Eftir stóðu svo nokkrir atvinnulausir líkburðarmenn á
besta aldri með alla þessa fokdýru blómvendi og kransa
og ákváðu að halda áfram að hittast. Þeir breyttu gamla
dreifbýlisflokknum sínum í félag áhugamanna um eigin
velgengni og skilgreindu pólitískt hlutverk sitt sem
„Besti vinur aðal“.
Síðan hafa þeir boðið kjósendum beinharða peninga
fyrir fjöll og firnindi, náttúru og umhverfi og hlotið slæð-
ing af fylgi, sem þeir hafa svo falboðið Aðal, þ.e. aðal-
persónu íslenskra stjórnmála, í skiptum fyrir embætti.
Síðustu áratugi hefur „Aðal“ í íslenskum stjórnmálum
verið Sjálfstæðisflokkurinn, sem Matthildingar kölluðu
Sjálfgræðisflokkinn og komu þar með orðum að því
hvers vegna hann höfðar svo mjög til þjóðar sem á djúp-
ar rætur í bæði örbirgð og einangrun.
Hinn þekkilegi Sjálfstæðisflokkur hefur keypt liðsinni
Besta vinar aðal á uppsettu verði og þannig tryggt sér
meirihlutastöðu, sem er jú alfa og ómega stjórnmálanna.
Besti vinur aðal unir alsæll í vistinni enda fylgir henni
vald langt umfram umboð. Félag áhugamanna um eigin
velgengni er því í sérlega góðum málum.
Nú virðist aftur komið að einhvers konar uppgjöri hjá
Framsókn, eða Besta vini aðal, líkt og þegar samvinnu-
hugsjónin var borin til grafar. Einn af forsvarsmönn-
unum er orðinn leiður á umstanginu og vill fara að kom-
ast í skjól, en finnst það ekki líta vel út að labba bara
aleinn út úr eigin valdaveislu. En þá ber svo við að eng-
inn vill fylgja honum. Þeir vita líka af reynslunni að þótt
hann hverfi á brott verða veisluföngin eftir og synd að
láta þau skemmast. Svo verður líka eflaust áfram þörf
fyrir Besta vin aðal, hvort sem hann er hestur, læknir
eða framsóknarmaður.
Ris og hnig hjá besta vini aðal
Roy Rogers og besti vinur aðal.
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Sveinbjörn I.
Baldvinsson