Morgunblaðið - 25.06.2006, Side 18

Morgunblaðið - 25.06.2006, Side 18
18 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Það er sérstæð og í aðra röndina ævin-týraleg lífsreynsla að fylgjast með þvísem er að gerast í Þýskalandi þessadagana. Þjóðverjar, sem löngum hafa með réttu verið álitnir fremur formfastir og settlegir, virðast á örfáum vikum hafa tekið al- gjörum hamskiptum. Í stað hins stífa og á stundum þurra viðmóts ganga menn nú bros- andi og með glettni í augum um stræti og torg. Og þegar svitastorknum tyrkneskum verka- manni verður það á að reka olnbogann í jakka- fataklæddan þýskan skrifstofumann sem stendur við hliðina á honum í lestarvagni upp- sker hann ekki andúðarfullt og allt að því fjand- samlegt hornauga, heldur einungis alúðlegt bros og jafnvel létta athugasemd á borð við „kein Problem“. Á ölstofum þar sem til skamms tíma sátu ekki aðrir en þybbnir og rauðnefjaðir þýskir bjórvinir sitja nú innan um og saman við gestir af ólíku þjóðerni og litarhætti og kneyfa ölið af miklum móð í kapp við innfædda. Endrum og sinnum ber það svo við að allir viðstaddir rísa úr sætum, æpa hástöfum hver upp í annan, skála með miklum tilþrifum og fallast jafnvel í faðma, þegar best lætur. Ástæðan fyrir öllum þessum leikrænu og áhrifamiklu uppákomum í daglega lífinu er að sjálfsögðu heimsmeistarakeppnin í fótbolta sem nú er haldin víðs vegar um Þýskaland. Það er ekki ofsögum sagt að þessi mikli íþróttaviðburður hafi á undraskömmum tíma gjörbreytt hinu þjóðfélagslega andrúmslofti í Þýskalandi. Fyrir fáeinum vikum voru fréttatímar þýskra fjölmiðla undirlagðir af þrúgandi fregn- um af vaxandi atvinnuleysi, vanhæfni þýskra stjórnvalda til að koma laskaðri og hálfsokkinni þjóðarskútunni aftur á réttan kjöl, auk þess sem kastljósinu var endrum og sinnum beint að litlum öfgahópum og ofbeldissinnuðum kyn- þáttahöturum sem létu töluvert að sér kveða, einkum í austurhéruðum Þýskalands, þar sem vofa atvinnuleysisins leikur lausum hala og menn búa við bágust kjör. En nú er tónninn allur annar. Eftir að bolt- inn fór að rúlla í heimsmeistarakeppninni var eins og þjóðfélagsástandið færðist sjálfkrafa í betra horf. Fáar sem engar fréttir bárust leng- ur af slæmu atvinnuástandi, hefðbundinn bar- lómur fjölmiðla og almennings yfir öllu því sem miður fer í þjóðlífinu var allt í einu á bak og burt. Það var eins og Þýskaland breyttist í einu vetfangi úr gróðrarstíu öngþveitis og óleysan- legra vandamála á öllum sviðum – í sannkall- aðan paradísarreit. Með fánann á lofti Þessi óvæntu hamskipti lýstu sér m.a. í því að menn fóru nú skyndilega að flagga því tákni á almannafæri sem til þessa hafði varla sést nema á fáeinum opinberum byggingum: þýska þjóðfánanum. Og Þjóðverjar létu sér ekki nægja að arka um götur og torg, veifandi þýska fánanum, heldur tóku fjölmargir ökumenn líka upp á því að skreyta bílana sína með þessu þrílita þjóð- artákni. Þegar hér var komið sögu tóku hug- vitssamir fatahönnuðir við sér og fóru að sauma alls kyns flíkur í þýsku fánalitunum. Þannig fór maður allt í einu að rekast á fólk á götum úti í bolum og skyrtum með svörtum, rauðum og gulum röndum. Konur fóru að klæða sig í fánapils, bæði stutt og síð, auk þess sem sokkar í þýsku fánalitunum slógu í gegn. Og þá má ekki gleyma nærskornum undirföt- um kvenna sem jafnframt komu á markaðinn í svörtu, gulu og rauðu. Það hefði fyrir fáeinum vikum þótt saga til næsta bæjar í Þýskalandi, ef einhver hefði haldið því fram í alvöru að nærföt í þýsku fána- litunum væru líkleg til að hafa örvandi áhrif á samlíf kynjanna. Slíkur maður hefði að líkind- um verið álitinn hreinræktaður öfuguggi. En nú er öldin önnur. Þýski fáninn er ekki lengur tákn sem menn eru að pukrast með á lögboðnum hátíðarstundum, heldur er hann þvert á móti talinn vera „sexý“. Og kannski er þessi staðreynd einmitt dæmi- gerð fyrir þær hræringar sem hafa verið að eiga sér stað í þýskri þjóðarsál. Kemur róti á sjálfsmyndina Heimsmeistarakeppnin hefur á örskömmum tíma náð að koma miklu róti á sjálfsskilning og sjálfsmynd Þjóðverja. Það þekkja allir sem hafa alið manninn í Þýskalandi að Þjóðverjar eru oftar en ekki of- urgagnrýnir á sjálfa sig og eigið þjóðerni. Þessi sjálfsgagnrýni gengur á köflum jafnvel svo langt að það er eins og þeir fyrirverði sig bein- línis fyrir þjóðerni sitt. Og þó að sá sem þetta skrifar hafi hlýjar taugar til Þjóðverja eftir að hafa eytt um fjórð- ungi ævinnar í Þýskalandi fer ekki hjá því að manni þyki á stundum nóg um barlóm þeirra, kvíða og vantrú á eigið ágæti. Þessi þáttur í fari Þjóðverja er okkur Íslend- ingum býsna framandi. Og þá ekki síður hin víðfræga skipulagsárátta þeirra, samfara (óhóflegri) nákvæmni og mikilli stundvísi. Án þess að unnt sé að alhæfa nokkuð í þess- um efnum hefur það löngum loðað við okkur Ís- lendinga að við séum oftar en ekki óskipulagð- ir, ónákvæmir og hóflega stundvísir. Það er í.þ.m. sá dómur sem maður hefur oft heyrt af munni Þjóðverja sem hafa kynnst Íslendingum nánar. Í ljósi alls þessa hlýtur það því að sæta tíð- indum að Þjóðverjar skuli nú skyndilega sleppa fram af sér beislinu og dansa og syngja á götum úti, vafðir inn í þjóðfánann sinn. Og þessi mikla „þjóðarkæti“ nær ekki aðeins til alþýðunnar, heldur hefur hún jafnframt náð að grafa um sig í efri lögum samfélagsins. Þannig er til þess tekið að sjálfur Þýska- landskanslari, Angela Merkel, hafi upp á síð- kastið verið mun glaðlegri og brosmildari en kjósendur hafa áður átt að venjast. Og þá benda menn líka á að „Angie“ – eins og kansl- arinn er oftast nefndur í daglegu tali – hafi sýnt meiri tilfinningahita og ríkari geðbrigði en nokkru sinni fyrr á almannafæri, þegar hún þaut upp úr sæti sínu í heiðursstúkunni á íþróttaleikvanginum í Frankfurt fyrir skömmu til að fagna sigurmarki Þjóðverja í leiknum gegn Pólverjum. Og heimsmeistarakeppnin hefur haft fleiri áhrif á stjórnmálin en þau að hleypa nýju lífi í kanslarann. Til þess að þingmenn geti fylgst með afrek- um landa sinna í fótboltanum hefur dagskrá þingfunda verið breytt og umræðum um fjár- lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, sem nú standa sem hæst, jafnvel verið slegið á frest. Síðast en ekki síst má svo nefna að velgengni þýska landsliðsins í heimsmeistarakeppninni hefur orðið til þess að létta ríkisstjórninni róð- urinn í erfiðum ágreiningsmálum. Þannig nýtti Angela Merkel kanslari sér vaska framgöngu landsliðsins og sigurvímu landa sinna eftir sigur Þjóðverja í viðureign þeirra við Ekvadorbúa á dögunum til þess að bauna því á stjórnarandstöðuna í þinginu að hún væri miklu neikvæðari í afstöðu sinni til þjóðmála en allur þorri þýsku þjóðarinnar. Kanslarinn lét það fylgja með að sú þjóð- arvakning sem orðið hefði í Þýskalandi að und- anförnu hefði fyllt þjóðina af bjartsýni sem aft- ur gæti haft jákvæð áhrif á efnahagsástandið í landinu. Þetta sjónarmið er um margt athyglisvert. Þannig hafa sérfræðingar í efnahagsmálum haldið því fram að ástandið í þeim efnum ráðist að nokkru af því almenna hugarfari sem ríkjandi er í landinu hverju sinni. Og það gefur augaleið að þjóð sem hefur ekki nægilegt sjálfstraust og ekki nógu heillega sjálfsmynd er ekki vel í stakk búin til að lyfta grettistökum í efnahags- og viðskiptalífi. Þó að það sé auðvit- að barnaleg einföldun að rekja ástand efna- hagsmála til þess „andlega“ andrúmslofts sem ríkir hjá einstökum þjóðum, þá eru flestir á því að trú hverrar þjóðar á eigin ágæti sé á þessu sviði sem öðrum mikilvæg lyftistöng. Það er ekki vafamál að heimsmeistara- keppnin hefur þjappað þýsku þjóðinni saman og gert hana samstilltari en áður, þótt auðvitað sé um það deilt hvort þetta nýja einingarband eigi eftir að halda þegar keppninni lýkur. Bætt ímynd erlendis Og það er ekki einungis að þýska landsliðið hafi með framgöngu sinni og árangri á fótbolta- vellinum stappað stálinu í þjóðina og eflt þýska þjóðerniskennd, heldur hefur keppnin líka haft jákvæð áhrif á ímynd Þjóðverja í öðrum lönd- um. Í frásögnum erlendra fjölmiðla af heims- meistarakeppninni hefur Þjóðverjum verið lýst sem vingjarnlegum og glaðsinna gestgjöfum. Það er áætlað að um ein milljón erlendra gesta heimsæki Þýskaland meðan á keppninni stend- ur. Í viðtölum við hina erlendu gesti sem birst hafa í þýskum fjölmiðlum hafa þeir yfirleitt lokið upp einum munni um að Þjóðverjar séu lausir við hvers kyns hleypidóma og taki fólki af öllu þjóðerni fagnandi. Þessu til stuðnings hafa verið sýndar myndir af þýskum fótbolta- unnendum sem stíga villtan dans á götum stór- borganna, ásamt leikbræðrum sínum frá fjar- lægum heimsálfum, bæði svörtum og gulum. Þessi vinsemd í garð hinna erlendu gesta er mjög jákvæð fyrir ímynd Þjóðverja út á við og hjálpar þeim sjálfum líka til að gleyma hátterni einstakra landa sinna og ofbeldi í garð útlend- inga sem nokkur brögð voru að í landinu fyrr á þessu ári. Þýskir fræðimenn hafa að sjálfsögðu sýnt þessari nýju þjóðernisvakningu mikinn áhuga, enda eðlilegt í landi sem forðum ól af sér ýmsa merkustu hugsuði sögunnar að menn vilji „brjóta til mergjar“ fyrirbæri af þessu tagi – og skoða slíkar hræringar frá ólíkum sjónarhorn- um. Þannig hafa raunvísindamenn komist að því að sú almenna kæti sem hefur gagntekið Þjóð- verja vegna heimsmeistarakeppninnar sé lík- leg til að hafa jákvæð áhrif bæði á andlegt og líkamlegt heilsufar þjóðarinnar. Þessi tíðindi eru í augum hagspekinga mjög ánægjuleg, því þeir benda á að batnandi heilsufar hljóti að leiða til sparnaðar í heilbrigðiskerfinu, en fjár- hagsvandi heilbrigðiskerfisins hefur einmitt verið mikið áhyggjuefni í Þýskalandi að und- anförnu. Þá telja fræðimenn líka einsýnt að mikil úti- vera þjóðarinnar í blíðviðrinu síðustu vikurnar leysi úr læðingi ákveðin hormón sem hafi m.a. örvandi áhrif á kynhvötina. Þetta telja hags- pekingar sömuleiðis góð tíðindi, enda hefur barneignum Þjóðverja fækkað svo mjög á síð- ustu árum að ýmsir óttast beinlínis að þjóðin sé að deyja út. Fari svo að heimsmeistarakeppnin leiði til þess að barneignum fjölgi hefur það ótvírætt jákvæð áhrif á þjóðarhag á komandi tímum. Í ætt við íslenska þjóðernishyggju? Það sem er þó kannski einna ánægjulegast við hina nýju þjóðernisvakningu í Þýskalandi er sú staðreynd að hún er sprottin af allt ann- arri rót en sú þjóðernishreyfing sem setti svartan blett á sögu þjóðarinnar á síðustu öld. Blaðamaðurinn og Íslandsvinurinn Henryk M. Broder segir í grein sem birtist í glæsilegu Íslandshefti tímaritsins MERIANs á síðasta ári að það hafi löngum loðað við þýska þjóðern- ishyggju að hún hafi verið „frávísandi“ og bein- línis stefnt til höfuðs öðrum þjóðflokkum. Þjóðernishyggja Íslendinga – sem séu miklir þjóðernissinnar – einkennist á hinn bóginn að dómi Broders af því að hún sé „aðlaðandi“, þ.e.a.s. opin, eða vinsamleg, gagnvart öðrum þjóðflokkum. Hin nýja þjóðarvakning í Þýskalandi sver sig í þessu tilliti alfarið í ætt við íslenska þjóðern- ishyggju og á ekkert skylt við hina sem veitti þjóðum heimsins þungar búsifjar á síðustu öld. Ný þjóðernisvakning í Þýskalandi Reuters Þjóðverjar ærast af fögnuði undir berum himni í Berlín yfir marki þýska landsliðsins í leiknum gegn Ekvador. Angela Merkel þykir hafa verið venju fremur broshýr og sýnt á sér nýja hlið eftir að HM hófst í Þýskalandi. Gáskinn leynir sér í ekki í fasi henn- ar fyrir leik Þýskalands gegn Ekvador 20. júní. Í Þýskalandi stendur yfir samkvæmi. Þjóðverjar ganga um götur brosandi út að eyrum og það er eins og þjóðin hafi tekið stakkaskiptum. Getur verið að það eitt að halda fótboltamót geti leyst heila þjóð úr viðjum for- tíðar? Arthúr Björgvin Bollason fjallar um nýja þjóðernisvakningu í Þýskalandi. Höfundur fæst við ritstörf og almannatengsl í Þýskalandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.