Morgunblaðið - 25.06.2006, Síða 24

Morgunblaðið - 25.06.2006, Síða 24
24 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Ég er fæddur á Ísafirði 22.marz 1922. Foreldrar mín-ir voru Páll Hannesson fráHnífsdal og Ásta Ingveld-ur Eyja Kristjánsdóttir úr Bolungarvík. Föðurafi minn var Hannes Jóns- son, hann var Vatnsfirðingur, og amma mín hét Guðbjörg Pálsdóttir úr Arnarfirði. Þau bjuggu í Hnífsdal. Foreldrar móður minnar voru Vil- helmína Hjaltadóttir úr Álftafirði, hún var alsystir Magnúsar Hjaltason- ar, Skáldsins á Þröm, og Kristján Gíslason kaupmaður á Sauðárkróki. Vilhelmína giftist svo Birni Helga Kristjánssyni, sem var Álftfirðingur eins og hún. Þau bjuggu líka í Hnífs- dal. Þegar Vilhelmína hafði misst Björn Helga giftist hún séra Runólfi Magnúsi Jónssyni, presti á Stað í Að- alvík. Amma Vilhelmína átti sitt fyrsta barn með skagfirzkum sjómanni; Þorvaldi Sveinssyni, og varð barnið eftir á heimili hans í Svartárdal. Þeg- ar Vestra strandaði 1912 á Völlunum í Skutulsfirði, utan við Ísafjarðarkaup- stað, var Lárus Halldór Þorvaldsson farþegi með skipinu. Skipbrotsmönn- um var skipt niður á heimili og lenti Lárus hjá Vilhelmínu og Birni Helga Kristjánssyni. Þetta var í eina skiptið, sem þau mæðgin Lárus Halldór og Vilhelmína hittust eftir að hún fór úr Svartárdalnum. Mig langar til þess, fyrst við höfum ýtt þessu samtali úr vör, að minnast á hlut Björns afa míns í Eimskipafélagi Íslands, sem hann átti stóran þátt í, en er þó að engu getið í nýlegri sögu Eimaskipafélagsins. Þó ber höfundur hennar sagnfræðingsnafnbót. Hann hefur haft slæma hvíslara við sögu- skráninguna. Árið 1917 keypti afi minn hlutabréf í Eimskipafélagi Íslands fyrir 7.000 krónur og má geta þess, að allir Ís- firðingar keyptu hlutabréf fyrir 5.250 krónur. Þegar til aðalfundar kom 1920 var afi annar stærsti hluthafinn; aðeins Sigurjón Jónasson, banka- stjóri Landsbankans á Ísafirði og verzlunarmaður í Reykjavík, átti stærri hlut; 8.725 krónur. Afi stóð ekki í neinum flokkadráttum í félag- inu og hafði ekki aðstöðu til að sækja fundi þess. Það eitt var honum hjart- ans mál að styðja félagið til þess að eignast skip og stunda siglingar. Það er sannast sagna afskaplega sárt að horfa upp á það að hann skuli hvergi nefndur á nafn í sögu félags, sem hann þó studdi svo dyggilega. Þessi afi minn drukknaði, þegar ég var sex ára. Hann hafði legufæri við Norðurtangabryggjuna og þegar þeir voru að taka þau upp hvolfdi bátnum og afi drukknaði fyrir augunum á mér og fleirum.“ – Hvað varð um bréfin í Eimskipa- félaginu? „Fjölskyldan á einhver bréf ennþá.“ Þrettán ára til sjós – Víkjum þá sögunni að Garðari Pálssyni. „Við bjuggum á Ísafirði og eins og við var að búast varð sjórinn minn vettvangur.“ – Kom aldrei annað til greina? „Nei. Það var atvinnuleysi og krat- arnir réðu öllu. Foreldrar mínir voru sjálfstæðismenn og þótt ég þætti duglegur strákur fékk ég enga vinnu í landi. Því var engin önnur leið fyrir mig en að komast til sjós með pabba og ég var þrettán ára gamall, þegar hann tók mig með sér á Hugann III, þar sem hann var stýrimaður. Pabbi byrjaði líka 13 ára til sjós. Hann út- skrifaðist úr Skipstjóra- og stýri- mannaskólanum sautján ára; sá yngsti þá og er svo kannski enn. Hann var stýrimaður á Afla-Birnin- um úr Hafnarfirði, en tók svo þátt í að kaupa Hugana þrjá til Ísafjarðar. Þá urðu menn að borga með sér til að fá pláss á bátunum. Pabbi var sjóveikur alla sína sjó- mennsku. Það var ég líka.“ – Dugði sjóveikin ekki til að reka þig í land? „Nei. Það var ekki um neitt annað að ræða til þess að halda lífi. Ég man enn hvað fyrstu dagarnir til sjós voru erfiðir. Ég ældi galli dag eftir dag. En svo lærði maður að lifa með sjóveikinni. Það var auðvitað gaman til sjós, þegar vel veiddist. Árið 1942 vorum við með hæstu skipum á síldinni, þótt báturinn væri ekki stór. Það var síð- asta árið mitt á Huganum.“ – Hvað tók þá við? „Veturinn 1943 kom strandferða- skipið Súðin til Ísafjarðar. Og það vantaði mann. Ingvar Kjaran skip- herra og pabbi voru gamlir skóla- bræður og ég fékk plássið. Þar með má segja að ég hafi hleypt heimdraganum.“ Í kúlnahríð á Súðinni – Og um sumarið dundu ósköpin yf- ir? „Heldur betur! Það var um miðjan júní, að við vorum á leiðinni frá Rauf- arhöfn til Eyjafjarðar og utarlega á Skjálfandanum réðst þýzk orrustu- flugvél á okkur. Hún skaut íkveikju- kúlum, sprengikúlum og fallbyssu- kúlum og lét vélbyssuskothríðina dynja á okkur. Þetta var fjögurra hreyfla flugvél, með stærstu árásar- vélum, sem Þjóðverjar áttu. Í þessari árás særðust tveir skipverja til ólífis og sjö særðust alvarlega.“ – Hvar varst þú, þegar árásin var gerð? „Ég var nýhættur á vakt og kom- inn aftur í hásetaklefann, þegar skip- ið kastaðist til og fór á hliðina. Ég fór upp í stigaganginn og sá þá flugvélina koma aftur yfir okkur og hún gataði þilið fyrir ofan hausinn á mér með vél- byssuskothríð. Ég var einn af þeim heppnu. Ég slapp heill á húfi. Súðin var illa löskuð eftir árásina og við settum út aftari björgunarbát- ana og fórum allir í þá. Einn var þá látinn af sárum sínum og annar; Guð- jón Kristinsson, æskuvinur minn, var lífshættulega særður, hafði fengið kúlu í gegnum brjóstið, og sá þriðji var með 143 sár og skrámur. Þarna var fullt af enskum togurum að veið- um og við rerum að þeim næsta. Skip- stjórinn þar reyndist vera kunningi minn, við strákarnir vorum alltaf um borð í öllum skipum og eignuðumst þar marga kunningja. Hann og áhöfn hans tóku fjarska vel á móti okkur og það varð úr, að ég fór með þeim særðu inn til Húsavíkur, en aðrir urðu eftir í öðrum brezkum togara til að fylgjast með Súðinni. Hún var svo dregin logandi til hafnar á Húsavík. Á leiðinni í land dó Guðjón í hönd- unum á mér. Þegar við komum til Húsavíkur voru Bandaríkjamenn þar fyrir með lækna, sem tóku þá særðu að sér og tókst að bjarga þeim öllum; líka þeim sem flest sárin fékk. Ég hef oft hugsað um það síðan, að ef ég hefði þá kunnað það sem ég síð- ar lærði í slysahjálp hefði ég ef til vill getað gert eitthvað fyrir Guðjón. Og ég hugsa líka til þess að það var ég sem útvegaði honum plássið á Súð- inni. Ég veit vel, að þessir þankar eru ekki til neins, en þeir sækja nú samt að mér. Svona reynsla skilur sitt eftir í sálinni.“ – Hún hefur ekki leitt þig í land? „Nei. Auðvitað var þetta hrikalegt og ég ekki nema 21 árs. En það er nú svo að ungir menn upplifa hlutina oft á sinn hátt og eru óragari við þá.“ En þetta var ekki í eina skiptið, sem skotið var að Súðinni meðan Garðar var þar skipverji. „Það var skotið að okkur í tvö skipti, þegar við vorum að koma í höfn; það voru enskir og bandarískir hermenn sem það gerðu. Reyndar var skotið á mig einum tíu sinnum á stríðsárunum, en aðeins í þetta eina skipti um borð í Súðinni hlutu menn sár af. Tvö fyrstu skiptin voru á Ísafirði. Þar sinnaðist hermönnum eitthvað við okkur strákana og hleyptu af byssum sínum, en við sluppum með skrekkinn. Hin skiptin var ég á sjó. Þannig var á stríðsárunum, að þegar skip komu til hafnar átti loftskeyta- maðurinn að morsa í land hvaða fána skipið bæri. Stundum skolaðist þetta eitthvað til og þá var umsvifalaust hleypt af byssunum í landi; ég man sérstaklega eftir slíkum atvikum á Hjalteyri, Borðeyri og oftar en einu sinni í Reykjavík og tvisvar þegar okkur lá á að komast í land á ball; í Siglufirði og Keflavík, var tekið á móti okkur með byssukúlum. En allt fór þetta nú vel og við komumst á böllin!“ Árin hjá Gæzlunni Garðar Pálsson lauk farmanna- prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1947 og varðskipaprófi 1953. Á þessum árum er hann á Súð- inni, Óðni, Arnarfelli, Sæbjörgu, Blá- tindi og Þór, oftast fyrsti stýrimaður eða skipherra; á Sæbjörgu fyrst og svo Blátindi. – Hvernig lá leið þín til Landhelg- isgæzlunnar? „Á þessum tíma voru Landhelgis- gæzlan og Skipaútgerð ríkisins eitt og sama fyrirtækið og menn fóru þar milli skipa, eins og hjá einni og sömu útgerðinni. Árið 1952 var svo skipt í milli gæzlunnar og strandferðanna. Og einhverra hluta vegna lenti ég hjá gæzlunni.“ – Sóttist þú ekkert eftir því? „Mig minnir nú að ég hafi lítið gert til þess. En ég var ákaflega sáttur við minn hlut!“ Leið Garðars lá svo um borð í varð- skipin; Óðin, Maríu Júlíu, Ægi og Þór, þar sem hann var fyrsti stýri- maður, en einnig skipherra á Maríu Júlíu og Ægi. Í millitíðinni lauk hann sjóliðsforingjaprófi í Bandaríkjunum og björgunar- og hernaðarprófum í Danmörku. Frá varðskipunum lá leiðin í loftið, þar sem Garðar var skipherra á ýmsum leiguflugvélum og síðar á Rán og Sif. Hann var eftir- litsmaður Landhelgisgæzlunnar með öllu ofanþilja 1964 og ennfremur öll- um vélbúnaði varðskipanna frá 1970. Hann hafði yfirumsjón með smíði Ægis í Álaborg og Týs í Árósum og viðamiklum breytingum á Þór og Óðni á sömu stöðum. Garðar Pálsson „kom í land“ 1989. Fimm rússar í beit Þegar ég spyr Garðar, hvort ekki hafi margt á dagana drifið við gæzlu- störfin, svarar hann: „Elskan mín góða. Þetta voru svo viðburðaríkir tímar, sérstaklega þorskastríðin, að þú myndir ekki end- ast til að skrá það allt saman, hvað þá Morgunblaðið að birta það!“ En þegar ég læt pennann hvergi síga, heldur horfi spurnaraugum á Garðar, þá hnikar hann sér til í stóln- um og segist svo sem geta sagt mér frá eins og einu atviki: „Það var sumarið 1949 að við tók- um svo til í einni beit rússneskt móð- urskip og fjögur veiðiskip og fórum með veiðiskipin í halarófu inn á Seyð- isfjörð! Ég var þá fyrsti stýrimaður á Faxaborg, sem ríkið hafði tekið á leigu til landhelgisgæzlu. Skipherra Verðlaunaljósmyndin af Surtsey. Ljósmynd/Garðar Pálsson Garðar Pálsson „kominn í land“ 1989, ásamt eiginkona sinni, Lilju Jónsdóttur. Komust á böllin þrátt fyrir byssukúlurnar Kötturinn er sagður hafa níu líf. En Garðar Pálsson slær honum við, því tíu sinnum varð hann fyrir skotárás á stríðsárunum og slapp heill í öll skiptin. Og enn er hann til frásagnar, eins og fram kemur í samtali hans og Freysteins Jóhannssonar. Návígi í þorskastríði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.