Morgunblaðið - 25.06.2006, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 25.06.2006, Qupperneq 27
Thoroddsen fór um Súgandafjörð, voru þau ummæli höfð eftir honum, að Botnsdalur væri með fegurstu dölum Vestfjarða. Við leggjum í göngin, mætum engum bíl á leiðinni að vegamótum ganganna, beygjum til vinstri í átt að Ísafjarðarkaupstað. Við kveðjum Rúnar bílstjóra við Hótel Ísafjörð og þökkum honum fyrir frábæra ökuferð og mikinn fróðleik. VI. Er við hjónin komum til Suður- eyrar á Lagarfossi fyrir margt löngu, hittum við Pál Friðbertsson (19l6–1989), en hann veitti forstöðu frystihúsinu á staðnum ásamt Óskari Kristjánssyni (1921–2005). Var okk- ur sýnt hið nýja frystihús, 110 metra langt með flæðilínu á l. hæð, teiknað af sundlaugarfélaga mínum Úlriki Arthúrssyni (f. 1936). Einn eftir- minnilegasti Súgfirðingur, sem ég hefi kynnst, var þó Gunnar Kr. Markússon (19l1–1983), sem lengi var starfsmaður Tv. Völundar hf., allra manna duglegastur og sam- viskusamastur og reit ég minning- argrein um hann í Mbl. hinn 20. maí 1983. Í bernsku minni voru meðal leikfélaga okkar bræðra, þrír bræð- ur, sem nefndir voru hinum undar- legustu gælunöfnum, Nabbi, Bósi og Gumbur. Þeir áttu heima á Hring- braut 24, synir Hans Kristjánssonar (1891–1952), en Hans var Súgfirð- ingur og stofnaði Sjóklæðagerð þar vestra, sem síðan varð að Sjóklæða- gerð Íslands, er hann gekk í félag við þá Sigurð Runólfsson (l885–1955) og Jón Thordarson (l893–1967). Rétt nöfn sona Hans voru Hans (1928– 1962), Kristján (1926–1958) og Guð- mundur (1920–1989). Annar frændi konu minnar var Þorvaldur Krist- jánsson (19l8–2001) stýrimaður, nefndur Valdi Kitti að vestfirskum sið. Hann var heimilisvinur hjá okk- ur hjónum og hafði frá mörgu að segja, hafði siglt um öll heimsins höf með íslensku skipafélögunum. Þor- lákur Jónsson (1907–1998) rafvirkja- meistari og synir hans Páll (l934– 1986) og Jón (1939–1983) unnu mikið fyrir mig við húsbyggingar og við- hald húsnæðis og eru þeir meðal bestu iðnaðarmanna, sem ég hefi skipt við. Það er reynsla mín, að Súg- firðingar séu traust og gott fólk og óska ég þeim til hamingju með göng- in, einangrunin er rofin. VII. Hvergi er betra fyrir eldra fólk að fara í gönguferðir en á Ísafirði. Vegalengdir innanbæjar eins og hannaðar fyrir okkur gamlingjana. Á hvítasunnudag göngum við inn að Sundahöfn, því þar liggur hið mynd- arlegasta skemmtiferðaskip, „Func- hal“, skráð í Madeira, sem tilheyrir Portúgal. Blæjalogn er í höfninni og speglast skaflarnir í Kirkjubólshlíð- inni í sjávarfletinum. Ég hefi áður birt mynd af gamla bílnum og Gamla bakaríinu á Ísafirði, sem eins konar táknmynd bæjarins, en nú er sá bíll búinn að eignast tvíburabróður, ÍS-1, Ford Model A 1930. Mun það vera Árni Aðalbjarnarson, bakara- meistari, (f. 1953) sem á heiðurinn af þessu bílaframtaki, en hann rekur bakaríið ásamt móður sinni Ruth Tryggvason (f. 1921). Á laugardag- inn fyrir hvítasunnu fórum við í kirkjugarðinn, en þar bárum við kennsl á mörg nöfn látinna Ísfirð- inga. Að lokum heimsóttum við frænku mína Sigríði Steinunni Ax- elsdóttur (f. 1946) og mann hennar Jóhann Hinriksson, safnvörð (f. 1945), en þau búa í hinu forna húsi „Krambúðinni“ í Neðstakaupstað, en það er byggt 1757. Var það hin ánægjulegasta heimsókn, enda við Sigríður Steinunn þremenningar og Jóhann reyndist mér afar vel með upplýsingar frá Safnahúsinu, ef eftir var leitað. Vel heppnaðri heimsókn er lokið, Fokkerinn bíður á Ísafjarð- arflugvelli, alskýjað er á leiðinni til Reykjavíkur, gott flug og lent á Reykjavíkurflugvelli eftir röskar 40 mínútur. Höfundur er lögfræðingur í Reykjavík. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 27 Nýbýlavegi 6 Kópavogur Sími 570 5400 www.lexus.is The pursuit of perfection Þegar þú sérð Lexus GS kemstu að raun um að honum verður ekki jafnað við neitt nema spegilmynd sína. Formfegurð og fágun bera vitni um glæsileik og einfalda fullkomnun í útliti og innri gerð. Vönduð innrétting og háþróaður tæknibúnaður gefa fyrirheit um munaðarþægindi og fjörmikinn kraft, ferð í átt að settu marki sem þú upplifir hvergi nema í Lexus GS. Komdu og gefðu Lexus GS færi á að uppfylla ýtrustu kröfur sem þú gerir til lúxusbíla. Við vitum hver niðurstaðan verður. Hún kemur þér ef til vill á óvart en okkur ekki. Lexus GS er smíðaður í þeim tilgangi að uppfylla óskir þeirra sem gera kröfur til sjálfs sín og kröfur til annarra. Þess vegna verður niðurstaðan gagnkvæm virðing milli þín og Lexus GS. Verð frá 5.590.000 kr. FORMFEGURÐ ÞÚ SKYNJAR ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L EX 3 32 24 06 /2 00 6 Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Mallorka í júlí. Bjóðum nokkrar íbúðir á hinum vinsæla gististað Cala D'or Park í Cala D'or á frábæru verði. Góðar íbúðir stutt frá ströndinni og hringiðunni í þessum skemmtilega bæ með verslunum, ótal veitingastöðum og fjörugu mannlífi. Skelltu þér til Cala D'or og njóttu lífsins á Mallorka. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Góðar íbúðir á besta stað Verð kr. 53.990 Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð á Cala D'or Park í viku, 13. eða 20. júlí. Munið Mastercard ferðaávísunina Viðbótargisting! Aðeins 12 íbúðir í boði Verð kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð á Cala D'or Park í viku, 13. eða 20. júlí. Stökktu til Mallorka 13. og 20. júlí frá kr. 39.990 Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.