Morgunblaðið - 25.06.2006, Side 31

Morgunblaðið - 25.06.2006, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 31 og u, gi st la ni. a- ir ka gi til gi a? s, ar nn s- an og r- lt afi í á ta a- nn ar rð g- ei- af ir ga u. ð- rá ið ma að n- málum að varðveita einhvern lítinn part af einka- lífi sínu fyrir sjálft sig og fjölskyldu sína. Þótt umtalið sé illt í stjórnmálunum er það enn verra í viðskiptalífinu. Þar eru beinir fjárhagslegir hagsmunir í húfi og nú orðið gífurlega miklir. Hér eru menn ekki drepnir í bókstaflegri merkingu eins og tíðkazt hefur í Rússlandi. Þegar Sovétríkin voru og hétu varð til þar hópur andófsmanna, sem yfirleitt hrökkluðust úr landi (ef þeir voru ekki drepnir eða settir í fangelsi, þaðan, sem þeir áttu ekki afturkvæmt). Einn af þeim kom í eftirminni- lega heimsókn hingað til Íslands á áttunda ára- tugnum og hét Búkovskí. Hann sagði viðmælend- um sínum hér frá nýrri tækni, sem kommúnistar væru farnir að nota í Sovétríkjunum til þess að gera út af við fólk án þess að drepa það. Að sögn Búkovskís var búið til það sem hann kallaði á ensku „atmosphere of murder“, eins konar and- rúmsloft morðs eða dauðans. Smátt og smátt voru einstaklingar einangraðir í samfélaginu með illu umtali eða sérstökum öðrum aðgerðum KGB þar til þeir áttu sér hvorki viðmælendur né vini. Hér verður því ekki haldið fram, að íslenzkt þjóðfélag sé komið á sama stig og það sovézka að þessu leyti, en það sjást merki um tilhneigingu til sömu vinnubragða og aðferða. Og það athyglis- verða er að meðan unnið er að því með markviss- um hætti að skapa „andrúmsloft dauðans“ í kring- um einhvern einstakling sitja aðrir hjá og bíða spenntir eftir því, hvort það tekst. Beint og óbeint leggja svo fjölmiðlar þessari viðleitni lið gjarnan í nafni frjálsrar blaðamennsku. Með vísan til þess, sem hér hefur verið sagt má halda því fram, að við búum að sumu leyti í verra samfélagi en við höfum nokkru sinni gert í okkar samtíma, þótt hliðstæður megi finna eins og áður hefur verið sagt á fyrri hluta 20. aldarinnar. Hver vill búa í vondu samfélagi? Hver vill anda að sér vondu andrúmslofti? Hlutverk for- sætisráðherrans Vegna stöðu sinnar, persónuleika, viðmóts og framkomu hefur hinn nýi forsætisráð- herra hlutverki að gegna í þessum efnum. Ekki með því að tala á milli manna heldur með því að slá hinn rétta tón. Eins og allir vita er ekki alltaf auðvelt að slá hinn rétta tón. En þeir, sem til for- ystu eru kjörnir, geta haft mikil áhrif á andrúmið í samfélaginu bara með því hvernig þeir tala og hvernig þeir koma fram. Það er kominn tími til að breyta þeim samskiptaháttum, sem hér hafa orðið til á síðari tímum og þar getur Geir H. Haarde lagt þungt lóð á vogarskálarnar. Með svolitlum ýkjum má segja, að helztu leik- endur á þjóðarsviðinu, hvort sem er í stjórn- málum eða viðskiptalífi séu á bólakafi í mykju- haug og berjist þar um á hæl og hnakka að kasta skít hver í annan. Hverjir vilja lifa slíku lífi? Finnst þeim, sem eru í mykjuhaugnum það eft- irsóknarvert? Finnst þeim, sem hafa það að at- vinnu að segja frá því hvað um er að vera í mykjuhaugnum það skemmtilegt? Finnst áhorf- endum sem standa álengdar og horfa á þetta spennandi líf? Tæplega. Það er tími til kominn, að þegnar þessa litla samfélags taki höndum saman um að útrýma þessum vinnubrögðum og baráttuaðferð- um. Það verða allir fegnir ef það tekst. Líka þeir, sem hafa vaðið út í drullupollinn og láta sam- ferðamennina finna fyrir því. Kannski má segja, að hver dragi dám af öðrum í þessum efnum. Eftir því, sem grjótkastið verður harkalegra (sumir halda því fram, að Morgun- blaðið stundi grjótkast) verða viðbrögðin enn verri. Það er sennilega auðveldara að falla í þetta far en komast úr því. Stóryrðin og gífuryrðin, sem notuð eru í almennum umræðum hér, verða stöðugt mergjaðri. Sumar greinar, sem birtast hér í Morgunblaðinu eftir nafngreinda höfunda, eru samansafn stóryrða en málefnalegar rökræð- ur engar. Almenningur gerir sér enn ekki grein fyrir því, að nú þegar eru þau vinnubrögð stunduð í okkar samfélagi, að menn leita hefnda ef þeir telja að um of hafi verið að sér vegið. Hvað er það í fortíðinni, sem hægt er að nota á viðkomandi? Svona vinna mafíusamfélög, ef taka má mark á amerískum mafíumyndum. Höfum við áhuga á að búa í slíku samfélagi? Hvernig á að vinna á þessu vonda og eitraða andrúmslofti, sem við búum öll í? Ein aðferðin gæti verið sú, að taka einfaldlega lokið af öllum óþverranum, þannig að hann blasi við allra augum. Fyrir mörgum áratugum var gefið út í Reykjavík vikublað, sem hét Mánudagsblaðið. Eitt sinn hafði það blað um nokkurt skeið gengið fram með þeim hætti, að Morgunblaðið taldi sér skylt að taka til varna – en hvernig átti það að gerast? Morgun einn kom einn af þáverandi ritstjórum Morgunblaðsins, Eyjólf- ur Konráð Jónsson, til vinnu sinnar og sagðist vera með lausnina. Hann hafði klippt út mesta óþverrann úr Mánudagsblaðinu og raðaði úr- klippunum saman á eina opnu í Morgun- blaðinu. Sú opna með úrklippum úr Mánudags- blaðinu var birt í Morgunblaðinu daginn eftir. Herferð Mánudagsblaðsins lauk samstundis, því að fólki var nóg boðið. Hatursfullar hefnd- araðgerðir hitta þá að lokum fyrir, sem fyrir þeim standa. Fyrir nokkrum misserum sátu þrír menn á tali og ræddu þessi vandamál okkar samfélags. Einn þeirra sagðist verða að viðurkenna, að hann ætti erfitt með að heilsa nafngreindum manni vegna misgerða hans í garð annars. Þá sagði annar í hópi þessara þriggja: Fyrirgefningin. Gleymdu ekki fyrirgefningunni. Er það ekki þrátt fyrir allt bezta aðferðin? Að fyrirgefa náunganum, það sem þeir telja, að hann hafi á hlut sinn gert? Með því að leggja niður vopnin, hið illa umtal og annað því tengt, getum við gert þetta litla samfélag að betra samfélagi. Hvernig væri að taka höndum saman um það? Forystumenn í stjórnmálum hafa hér miklu hlutverki að gegna. Ekki bara forsætisráð- herrann. En það hafa forystumenn í viðskiptalíf- inu líka. Þeir geta átt mikinn þátt í því að bæta samskipti manna á meðal með því einu hvernig þeir tala hver um annan og aðra. Hér að framan var gripið til þeirrar líkingar að menn væru á bólakafi í mykjuhaug. Það má líka tala um lús. Hver vill vera lúsugur? Því miður eru þeir margir á Íslandi í dag. Morgunblaðið/ÞÖK Á síðustu áratugum hefur hins vegar orðið til hér vont andrúmsloft heiftar og haturs á vett- vangi stjórnmál- anna og í viðskipta- lífinu. Hvers vegna? Það er erfitt að átta sig á því. Kannski vegna þess, að nú orðið eru svo gíf- urlegir hagsmunir í húfi, þar á meðal fjárhagslegir, að engu er líkara en menn svífist einskis til þess að tryggja ákveðna hagsmuni. Stjórnmál og við- skiptalíf blandast saman með ýmsum hætti í þessu vonda andrúmslofti og það er hættuleg blanda. Ekki má á milli sjá á hvorum vígstöðv- unum ástandið er verra. Laugardagur 24. júní

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.