Morgunblaðið - 25.06.2006, Page 32

Morgunblaðið - 25.06.2006, Page 32
32 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJA Það var ánægjulegt, aðekki sé fastar að orðikveðið, að lesa velgrundaða athugasemdÁrmanns Reynissonar í Morgunblaðinu 6. júní, við ákveð- inni sjónvarpsauglýsingu Lands- banka Íslands, sem tröllriðið hafði þá skjáum í nokkurn tíma. Upp var með hana lagt í byrjun vegna heimsmeistarakeppninnar í knatt- spyrnu í Þýskalandi. Þar sagði hann m.a.: Lengi vel brýndu uppalendur á Íslandi fyrir börnum sínum að nota ekki blóts- yrði nema í algjörum undantekning- artilfellum, „aldrei opinberlega“, og gera fjölmargir ennþá. Slík orð væru sprottin af illum hugsunum og með notkun þeirra kæmi svartur blettur á tunguna. Þeir sem vendu sig á slíkan ósið féllu í áliti enda fulltrúar Svarta- Péturs í samfélaginu og það fólk hefði ekki taumhald á skapi sínu og jafnvel gjörðum. Undantekning frá þessari reglu væru þeir sem vegna starfa sinna glímdu við grimm náttúruöflin og þyrftu útrás á að halda í baráttunni við erfiðar aðstæður. Á nýrri öld milljarðavæðingar þegar flest virðist leyfilegt í skjóli peninga tekur banki allra landsmanna uppá þeim ósið að nota blótsyrði í annars vel gerðri fótboltaauglýsingu sinni svo eftir er tekið. Þessi leikur er spilaður í tíma og ótíma í fjölmiðlum. Einum þekkasta presti landsins, séra Pálmi Matthías- syni, er brugðið og ræðir hann um þetta mál í snjallri útvarpsprédikun sunnu- daginn 28. maí sl. Þar kemur klerk- urinn inná áhrifamátt auglýsingarinnar á ómótuð börnin sem telja sig mega apa allt eftir fyrirmyndinni hvenær sem þeim sýnist. Hann beinir orðum sínum til forráðamanna markaðs- og auglýs- ingamála bankans og er undrandi á andvaraleysi stjórnendanna. Í stað þess að skammast sín og biðja þjóðina afsök- unar þá er blásið í seglin og örstutt myndbrot með blótsyrðinu sýnt í sjón- varpinu daglega á eftir. Þetta er aug- ljóslega gert til þess að ögra öllum þorra fólks enn frekar og beina þannig athygli að gamalgróinni starfsemi sinni og örva þannig viðskiptin. Það er aug- ljóst mál að þeir sem eiga í hlut er órótt í sálu sinni og dapurlegt að þeir skuli draga hina ágætustu forráðamenn og eigendur bankans niður í svaðið með sér og sverta um leið virðulega ímynd bankans. Ekki veit ég hvaðan þetta er runnið. E.t.v. hafa menn talið, að bölv og ragn væri „inn“ hjá þjóð- inni, eftir skyndilegar og óvæntar vinsældir Silvíu Nætur, í kjölfar þess að hún birtist á sjónarsviðinu fullmótuð um árið. Það er ekki frá- leitari skýring en hvað annað. Því í hinni örvæntingarfullu leit að frumleikanum eru hugmyndir sumra auglýsingastofanna það ótrúlegar, að fæst kemur eig- inlega á óvart í þeim efnum. En nú ætti bankamönnunum sumsé að vera orðið ljóst, að umræddur knöttur fór hátt yfir markið. Eins og reyndar hitt „djókið“ líka, „brandarinn“ eilífi, sem flaug alla leið til Grikklands, og þaðan um gjörvallan heim, en ekki nema fáir útvaldir í þröngum hópi skilja og kalla gjörning, með lotningu í röddinni og bliki stoltsins í augum. Ekki er öll vitleysan eins. Ég fullyrði, að hinum þykir nóg komið og það fyrir löngu. Áhrifin á hinar litlu og áhrifa- gjörnu sálir eru þó verst. Á ösku- daginn síðasta var ekki þverfótað fyrir ungum stúlkum í gervi áð- urnefndrar leikkonu, sem vissu ekki um hvað málið snerist, héldu að allt væri ekta, en ekki plat, sem það jú er. Og auðvitað er þá leitast við að taka upp siði gyðjunnar alla, kosti jafnt sem lesti. Þessi aldurshópur hefur enga burði til að greina þarna á milli, hjálp- arlaust. Ég heyrði ágætt dæmi fyrir nokkru. „Þú ert hálfviti,“ sagði einn krakkinn við annan, og var skammaður fyrir, bent á, að svona mætti ekki og ætti ekki að tala. Slíkt væri ókurteisi. „Já, en Silvía Nótt gerir það,“ var svarið. Og hún er fullorðin. Í þessu liggur vandinn. Ábyrgðin er alfarið hjá þeim, sem demba ósómanum yfir alþjóð og víða jörð. En hvernig á fólk þá að bregð- ast við? Það er vafalaust einstaklings- bundið, en sjálfur geri ég mér far um að skipta ekki við þannig lið. Það er nóg af öðrum fiskum og betur þenkjandi í sjónum. Agaleysi er nú meira í röðum ungu kynslóðarinnar hér en á öðr- um tíma í Íslandssögunni, og eru orsakavaldar ýmsir. Það er m.ö.o. ærið verkefni framundan, þótt ekki bætist við þessi heimskulegu útspil tvö, og eflaust fleiri í vænd- um. Kannski þurfum við að taka höndum saman á næstunni, til að bægja þessum ófögnuði frá í eitt skipti fyrir öll. Þar er a.m.k. á ferðinni mjög öflugur þrýstihóp- ur. Taki málið að snúast um pen- inga, eða öllu heldur skort á þeim, fyrirsjáanlegt tap hluthafa, neyð- ast þeir til að sperra eyrun og leggja við hlustir. Það eru engar nýjar fréttir. Þarna er sterkasta vopn okkar, sem eigum lítil börn. Með því getum við myndað óvinn- andi skjaldborg um gimsteinana okkar, hin sönnu verðmæti. Ég lýk þessu svo með orðum Ármanns Reynissonar í áð- urnefndri grein, en þar sagði hann undir lokin: Hér með hvetur undirritaður hinn þögla meirihluta til að fylkja liði og styðja málstað séra Pálma og skera upp herör gegn öllum þeim sem valta ótæpi- lega yfir siðferðisleg takmörk sem eru arfleifð forfeðra okkar. Hendið ekki virðingu þjóðarinnar á haugana fyrir vindinn og stundargróðann. Það er kúnst að vera sveigjanlegur í siðferð- islegum efnum og ekki nema eðlilegt, að svo sé, en það er engin ástæða að líða allt og segja „þetta er bara grín“. For- eldrar, opnið augun fyrir þessari blótsvá sem ríður yfir landið því hún er augljóslega undirrót illra verka. Eng- inn vill að börnin sín né samlandar verði fótboltabullur framtíðarinnar eins og ýjað er að í áðurnefndri auglýsingu. Þökk sé Pálma Matthíassyni fyrir að varpa kastljósinu að þessu upphaflega, blótinu í auglýsing- unni, svo að eftir varð tekið í þjóð- félaginu. Og megi kvensniftin taka sér ævilangt frí. Strax. Gimsteinar sigurdur.aegisson@kirkjan.is Sérhvert foreldri á enga ósk heitari en að barn þess kynnist sem allra minnst ljótleikanum, sem þó er víða að finna í um- hverfinu. Sigurður Ægisson gerir þá hluti að umtalsefni í pistli dagsins, að gefnu tilefni. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is BJÖRT OG FALLEG 152 FM EFRI SÉRHÆÐ Í ÞRÍBÝLISHÚSI ÁSAMT 31 FM BÍLSKÚR. Forstofa. Stór stofa með suðursvölum sem eru í vinkil og snúa einnig í vestur, mjög mik- ið útsýni yfir Esjuna. Eldhús með eikarinnréttingu og borðkrók. Svefnálma/sjónvarpshol, 4 herbergi, suðursvalir út af hjónaherbergi. Þvottahús. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Eikarparket á allri íbúðinni. Innbyggður bílskúr. Fjögur sérbílastæði fylgja. Mikið út- sýni. Áhv. langtímalán 25 millj. m. hagst. vöxum. LAUS Í JÚLÍ. VERÐTILBOÐ. Málfríður og Sigurbjörn sýna íbúðina í dag, sunnudag, frá kl. 14-17. Ingibjörg Þórðardóttir lögg. fasteignasali NÝBÝLAVEGUR 74 - OPIÐ HÚS Bakkavör - Seltjarnarnesi Vorum að fá í sölu mjög fallega 5 herbergja, 129 fm neðri sérhæð í tvíbýlishúsi við Bakkavör. Auk þess til- heyrir 30 fm bílskúr. Samtals 159 fm. Sérinngangur er í íbúðina. Hæðin skiptist m.a. í stofu, borðstofu, hol, eldhús, baðherbergi, þvottahús og 3-4 svefnherbergi. Fallegar stofur með arni. Stórar svalir til suðvesturs útaf stofu. Af þeim er gengið út í garð. Glæsilegt útsýni. Verð 41,0 millj. Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali BLÁSALIR 22 - KÓP. 3JA HERB. Á 4. HÆÐ (401) OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14-16 Í einkasölu glæsileg og rúmgóð 3ja herb. útsýnisíbúð, 99,6 fm á 4. hæð í vönduðu nýl. lyftuhúsi. Stofa með sól- stofu og útsýni í 3 áttir, eldhús með mahogny-innréttingu, 2 herb. með skápum, baðherb. og þvottahús í íb. Stæði í góðu bílskýli. Húsið er klætt að utan og því viðhaldslítið næstu ár- in. Vönduð eign, glæsilegt útsýni. LAUS FLJÓTLEGA. VERIÐ VELKOMIN. Fréttir í tölvupósti smáauglýsingar mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.