Morgunblaðið - 25.06.2006, Side 34
34 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÁRIÐ 1972 kom út bók eftir mig
hjá Bókaforlagi Odds Björnssonar á
Akureyri er nefnist Ört rennur
æskublóð. Fljótlega létu bókmennta-
fræðingar í ljósi þá skoðun, að þetta
væri tímamótaverk í íslenskri ung-
lingabókagerð. Í bók Silju Að-
alsteinsdóttur, Íslenskar barnabæk-
ur 1780–1979, stendur
á bls. 338: ,,Það er
einkum með lýsingum
sínum á lífinu um borð
og þeim spurn-
ingamerkjum sem
Guðjón setur við valds-
legt uppeldi sem sagan
af Loga verður nýstár-
leg og gagnrýnin
skáldsaga sem markar
tímamót í skrifum fyr-
ir unglinga“ (let-
urbreyting mín). Þessi
ummæli tók Silja úr
prófritgerð Jóns Bald-
vins Halldórssonar stud.mag. en
Silja kenndi þá við Háskólann, að ég
hygg.
Upphaflega voru það ekki þessi
skrif sem leiddu mig að efni því er ég
ætla að fjalla um, heldur orð útgef-
andans, Geirs S. Björnssonar, sem
hann lét falla eftir lestur handritsins:
,,Þessa sögu á að kvikmynda.“ Um-
mælin hafa fylgt mér fram veginn.
Á níunda áratug síðustu aldar fékk
ég erindi frá Kvikmynd (Þorsteinn
Jónsson), Mjóuhlíð 6 í Reykjavík,
þess efnis að fá leyfi til að gera full-
komna kvikmynd eftir sögunni.
Veitti ég það fúslega. Þorsteinn sótti
um styrk, oftar en einu sinni – en
fékk ekki svar.
Eftir ,,uppgjöf“ Þorsteins fannst
mér réttast að leita til hins háa Al-
þingis. Var kominn með þá hugmynd
að kvikmyndin hefði uppeldislegt
gildi og ætti þess vegna erindi í
grunnskóla landsins, þar sem þess
væri óskað. Hugmyndin blómstraði
eftir að ég hafði lesið úr bókinni fyrir
9. og 10. bekk í nokkrum grunn-
skólum. Í einum skólanum var ég
varaður við að ekki væri víst að allir
fylgdust með. Fór það samt svo að
heyra mátti saumnál detta meðan ég
las. Á eftir spurðu nemendur ýmissa
athygliverðra spurninga. Sagði ég
þeim m.a. frá fyrirætlan Þorsteins í
Kvikmynd og leist þeim vel á.
Nokkru síðar mætti ég fáeinum á
krökkum sem hlýtt höfðu á lesturinn.
Þau spurðu hvort búið væri að kvik-
mynda söguna og voru full áhuga.
En því miður varð ég að hryggja þau
með því að segja þeim að K hefði
ekki viljað styrkja verkið. Fannst
þeim það fúlt – sem það vissulega
var.
Leitað til Alþingis
Þann 1. okt árið 2000 reit ég fjár-
laganefnd Alþingis er-
indi um þetta mál og
sótti um fjárveitingu til
að gera kvikmynd eftir
sögunni. Lét þess getið
að það sem gerði sög-
una áhugaverða til
kvikmyndagerðar væri
einkum þrennt:
a) Hún væri sígilt
bókmenntaverk
með uppeldislegt
gildi. Gerðist í
plássi úti á landi, á
sjó, að litlum hluta
í Þýskalandi og við Færeyjar.
Sagan lýsir á hvern hátt ungt
fólk (drengurinn Logi) lærir að
taka ábyrgð á því sem hann
starfar við, fær að finna fyrir
þeirri nautn að hvílast eftir erf-
iði og þreytu dagsins og þeirri
vellíðan sem fylgir í kjölfarið
eftir að hann áttar sig á að hann
er tekinn gildur í heimi hinna
fullorðnu, sbr. ,,vinnan göfgar
manninn“.
b) Sagan bregður upp átakanlegri
og sárri mynd af því hvernig fer
fyrir þeim er ánetjast fíkniefn-
um. Ekki er þó um neina pre-
dikun að ræða, heldur kemur
þessi þáttur fram sem eins kon-
ar undirtónn en verður sterk-
astur í einum kaflanum, þeim
kafla sem ég las ofast fyrir 9. og
10. bekk grunnskóla eins og
drepið hefur verið á.
c) Saga þessi kemur mjög vel inn á
samskipti fullorðinna og ung-
linga. Hún tekur vel á hvernig
þessir aldurshópar geta náð
saman, virt hvor annars skoð-
anir án þess að smækka í eigin
vitund og viðmælanda. Þetta
kemur fram í hníganda sög-
unnar án þess að nokkuð sé pre-
dikað.
Um svipað leyti hafði Alþingi gert
hitt og annað til að stemma stigu við
fíkniefnaneyslu unglinga, en árangur
ekki orðið sem vænst var. Ég er
heldur ekki að segja að kvikmynd af
sögunni myndi snúa blaðinu alger-
lega við, fjarri því. En sem myndefni
sem sýnt yrði í grunnskólum lands-
ins, sem og á alm. kvikmyndahúsum,
gæti hún orðið liður í að vekja þjóð-
ina til umhugsunar, um gildi þess að
ungt fólk, sem misst hefur fótfestu,
sjálfsvirðingu, ynni um tíma við
grunnöflun þjóðarauðsins, er gerir
Ísland að einu besta landi veraldar.
Slíkt vekti ungmenni til meðvitundar
um, hvers virði það er að axla
ábyrgð. Sem gamall sjómaður held
ég að fátt sé hollara í þeim efnum en
kynnast sjósókn, þeim atvinnuvegi
sem hefur og mun verða uppistaðan í
menningu og þjóðlífi á okkar ágæta
landi.
Í næstu grein mun ég fjalla um
viðbrögð Alþingis og stofnana við
málaleitan minni.
Tilraun til
menningarátaks
Guðjón Sveinsson skrifar
um tilraun sína til að fá sögu
sína Ört rennur æskublóð
kvikmyndaða
Guðjón Sveinsson
’… gæti hún orðið liður íað vekja þjóðina til um-
hugsunar, um gildi þess
að ungt fólk, sem misst
hefur fótfestu, sjálfsvirð-
ingu, ynni um tíma við
grunnöflun þjóðarauðs-
ins …‘
Höfundur er rithöfundur.
Hegranes - Hús á sjávarlóð á Arnarnesi
FRÁBÆR STAÐSETNING. GOTT INNRA SKIPULAG.
Húsið er á einni hæð og er innra skipulag hússins gott. Húsið er
232,6 fm og bílskúrinn er 40,3 fm, samtals 272,9 fm. Húsið
skiptist í 4 svefnherbergi, tvær samliggjandi stofur með arinstofu, eldhús, þvottahús, geymslu,
baðherbergi og gestasnyrtingu. Innangengt er út í tvöfaldan bílskúr. VERÐ: 83 MILJ.
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS - Reynimelur 43, hæð og ris
Mjög falleg 125 fm efri hæð og ris í 3-býlishúsi við Reynimel.
Auk þess fylgir 24 fm bílskúr, samtals 149 fm. Íbúðin skiptist
m.a. í tvær stórar stofur með rennihurð og 3-4 herbergi.
Tvennar svalir. Falleg lóð til suðurs. Verð 33,8 millj.
Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 15-17.
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Glæsileg og vel staðsett 350 fm húseign á tveimur hæð-
um rétt ofan við Hveragerði.
Eignin hefur verið í útleigu undanfarið til traustra aðila, en
möguleiki er að breyta því í glæsilegt einbýlishús.
Eignin er endurnýjuð bæði að utan sem innan á vandað-
an og smekklegan hátt. Alls eru vel útbúin sex tveggja
manna herbergi, öll með sérbaði, borðstofa og fundar-
salur auk forstofu, eldhúss, tveggja snyrtinga, þvottaher-
bergis og geymslu.
Teikningar liggja fyrir að 65 fm baðhúsi á lóðinni. Timb-
urverönd með heitum potti og stórt bílaplan með 10 bíla-
stæðum. Leyfi er fyrir byggingu bílskúrs.
Um er að ræða afar vel staðsetta eign á 2.000 fm rækt-
aðri leigulóð í fallegu umhverfi með víðáttumiklu útsýni til
vesturs yfir Hveragerðisbæ, Ölfusið og yfir ströndina.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Axelshús á Reykjum, Ölfusi
Fréttir í tölvupósti
smáauglýsingar
mbl.is