Morgunblaðið - 25.06.2006, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 25.06.2006, Qupperneq 38
38 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Smáraflöt - Garðabæ Frábær staðsetning við hraunið Glæsilegt 251 fm einbýlishús auk 37 fm bílskúrs, afar vel staðsett á besta stað í enda götu við opna svæðið, hraunið og lækinn neðst á Flötunum. Eignin skipt- ist í forstofu, eldhús, samliggjandi stofur með arni, 4 svefnherbergi, tvö baðher- bergi, annað innaf hjónaherbergi, sjónvarpsstofu, rúmgott þvottaherbergi auk geymslna. 990 fm lóð, ræktuð og frágengin með verönd. Hiti í stétt fyrir framan hús og í innkeyrslu að bílskúr. Hraunás - Garðabæ Stórglæsilegt parhús á útsýnisstað Stórglæsilegt 268 fm parhús á tveimur hæðum með 25 fm innb. bílskúr innst í botnlanga á frábærum útsýnisstað við óbyggt svæði. Eignin er innréttuð á glæsilegan og smekklegan hátt með vönduðum innréttingum og tækjum og skiptist m.a. í stórar og bjartar stofur með allt að 6 metra lofthæð og gólfsíðum gluggum, eldhús með eyju, 4 herb. og 2 baðherb. auk gesta w.c. Arinn í stofu og svalir til suðurs og vesturs. Parket og flísar á gólfum. Hiti í gólfum hússins að stór- um hluta og innfelld lýsing í nánast öllum loftum. Glæsileg lóð með steyptum veggjum og þremur stórum veröndum. Hiti í innkeyrslu og stéttum. Verð 79,0 millj. Nesbali - Seltjarnarnesi Fallegt og vel skipulagt um 290 fm einbýlishús á einni hæð með um 80 fm tvöf. bílskúr á sunnanverðu Seltjarnarnesi. Eldhús með hvítri ALNO innréttingu og vönduðum tækjum, gengið í sólskála úr eldhúsi sem býður upp á mikla mögu- leika, stofa og borðstofa með miklum gluggum, 4 svefnherb. auk sjónvarpsrým- is/skrifstofu og rúmgott baðherb. auk gestasnyrtingar. Stórt yfirbyggt anddyri og 20 fm herb. undir bílskúr. Parket og flísar á gólfum. Ræktuð lóð með timbur- verönd til suðurs. Hellulögð upphituð innkeyrsla. Einstök eign á eftirsóttum stað í grónu og rólegu hverfi. Grenimelur Efri sérhæð með bílskúr Glæsileg 151 fm 5 herb. efri sérhæð á þessum eftirsótta stað auk 30 fm sérstæðs bílskúrs. Stórt og bjart hol, 3 herbergi, samliggjandi stofur með fallegum arni og rúmgott eldhús með nýlegum innréttingum og vönduðum tækjum. Útgangur úr stofum á stórar og skjólgóðar svalir til suðurs. Ræktuð lóð. Verð 46,9 millj. Fellahvarf –Kópavogi Vönduð efri sérhæð Glæsileg 120 fm 4ra-5 herb. efri sérhæð á frábærum útsýnisstað við Elliðavatn. Eignin er innréttuð á mjög vandaðan og smekklegan hátt. Stórar og bjartar stof- ur með miklum gluggum og útgangi á flísal. svalir, glæsilegt eldhús með innrétt. úr beyki og vönd. tækjum, stórt hol, 2 herb., annað með miklu skápaplássi og baðherb. sem er flísalagt í hólf og gólf. Parket og flísar á gólfum. Húsið stendur framarlega við vatnið við óbyggt svæði og nýtur óhindraðs útsýnis. Verð 36,9 millj. Sumarbústaður í Snæfoksstaðalandi við Vaðnes Glæsilegt útsýni – mikill gróður Þessi fallegi sumarbústaður er til sölu. Bústaðurinn stendur í landi Skógræktarfélags Árnessýslu við Vaðnes í um 45 mín. akstursfjarlægð frá Reykjavík. Hann er að mestu leyti á einni hæð en auk þess er steyptur kjallari undir hluta bústaðarins. Á 1. hæð er m.a. stór stofa, eldhús, bað, 3 herbergi, forstofa o.fl. Í kjallara er inntak fyrir hitaveitu, geymslurými o.fl. Við bústaðinn er sólpallur (sólpallar) um 150 fm að stærð og þar er heitur pottur og dúkkuhús. Öll húsgögn í bústaðnum fylgja. Bústaðurinn stendur á 11.000 fm gróinni lóð sem er vaxin miklum birkigróðri, grenitrjám, öspum, furu, lerki o.fl. Glæsilegt útsýni m.a. yfir Hvítá og land Skógræktarinnar. Bústaðurinn stendur milli 2ja golfvalla í um 5-15 mín. akstursfjarlægð. Stjörnuskoðunarturn við bústaðinn getur fylgt. Þessi sumarbústaður stendur á einu eftirsóttasta sumarbústaðasvæði sunnanlands. 5913 Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Höfum til sölu eða til leigu 606 fm góða skrifstofuhæð, efri hæð. Tveir inngangar eru á hæðina og er jafnvel hægt að skipta eigninni í tvær einingar. Hæðin er stúkuð niður í rúm- góð herbergi, stóran sal, af- greiðslu og móttöku. Dúklögð gólf. Lóð malbikuð og frágengin með fjölda bílastæða. Hæðin er laus til afhendingar 1. nóv. nk. Nánari uppl. á skrifstofu. Síðumúli Skrifstofuhæð til sölu eða leigu MIKLAR umræður um mat- vælaverð hafa verið nú í vor meðal veitingamanna en það er einn mik- ilvægasti grunnþáttur í ferðaþjón- ustu að veita ferðamönnum mat og drykk og hafa veitingamenn mátt búa við ýmis heimsmet í verðlagi að- fanga sinna, bæði matvæla og áfeng- is. Ástæða þessara miklu umræðna er starf það sem unnið er í mat- vælaverðsnefnd forsætisráðuneyt- isins en niðurstaðna hennar er að vænta á næstunni. Skýrslur sem gefnar hafa verið út um mat- vælaverð síðustu árin sýna ljóslega að matarverð á Íslandi er mun hærra en í löndum Evrópusambandsins. Sérstaklega hefur ver- ið litið til skýrslu Hag- fræðistofnunar sem gefin var út árið 2004 þar sem fram kom að verð í flestum mat- arflokkum væri 30– 70% hærra en í ESB og var þá miðað við ár- ið 2001. Margir urðu til þess að gagnrýna hversu gamlar þessar upplýsingar væru en benda má á skýrslu norrænna sam- keppniseftirlita frá því í desember 2005 þar sem kemur fram að verð á matvörum í verslunum á Íslandi sé 42% hærra en í 15 lönd- um ESB. Ótal fleiri skýrslum er til að dreifa og því er öllum ljós staða okkar í þessu máli. Í upphafi þessa árs setti forsætisráðu- neytið fyrrgreinda nefnd á laggirnar en hún á að semja tillögur sem miða að því að færa matvælaverð nær því sem gengur og gerist í helstu nágrannaríkjum. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar stjórnvalda, atvinnulífs og bænda og treysta menn því að þar sé verið að vinna raunhæfar tillögur til úrbóta. Veitingamenn hafa lagt mikla áherslu á að vörugjöld á matvöru verði afnumin þegar í stað, að að- flutningshindranir verði afnumdar í skrefum og að öll sala matvara sé í sama virðisaukaskattsþrepi, jafnt hrá sem soðin. Matur er í dag seldur með svo fjölbreyttum hætti og á svo margbreytilegum sölustöðum að það er orðin brýn nauðsyn að jafna og einfalda skattkerfið. Veitingamenn hafa lengi bent á slæma stöðu sína en þeir eru ásamt öðrum fyr- irtækjum í ferðaþjónustu í mikilli samkeppni á alþjóðavettvangi. Nú mega veitingamenn og kaup- menn búa við skort á ákveðnum landbúnaðarvörum og þá eru toll- kvótar boðnir út sem stórhækka vör- una í verði. Þar að auki duga toll- kvótarnir ekki og þá þurfa fyrirtækin að flytja vörurnar inn á ofurtollum. Þetta er ekki boðlegt. Íslenskir neytendur, þ.m.t. veit- ingamenn, hafa í áraraðir spurt hvort stjórnvöldum á hverjum tíma þyki það eitthvert lögmál að Íslend- Matvælaverð á Íslandi – skortur veldur hækkandi verðlagi Erna Hauksdóttir skrifar um matvælaverð Erna Hauksdóttir Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.