Morgunblaðið - 25.06.2006, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 25.06.2006, Blaðsíða 42
42 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Örn Ólafssonfæddist í Reykjavík 2. apríl 1951. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 13. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Arnþrúður Jónsdóttir húsmóð- ir, f. 21. október 1916 í Saltvík í Reykjahreppi, S- Þing., d. 16. sept- ember 1996 í Reykjavík, og Ólaf- ur Jónsson stórkaupmaður, f. 3. mars 1908 á Kambi, Reykhóla- sveit, A-Barð., d. 16. október 1978 í Reykjavík. Systkini Arnar eru Snjólaug Guðrún Ólafsdótt- ir, f. 21. ágúst 1945, og Jón Hjal- talín Ólafsson, f. 12. júlí 1949. Snjólaug er gift Haraldi Briem og þau eiga soninn Ólaf Andra. Jón Hjaltalín er kvæntur Þór- unni Þórhallsdóttur og þau eiga dæturnar Arnþrúði og Þórhöllu Sólveigu. Arnþrúður er gift Gunnari Hauki Stefánssyni og þau eiga dótturina Þór- unni Snjólaugu. Þórhalla Sólveig er í sambúð með Ár- manni Einarssyni og eiga þau soninn Jón Hjaltalín. Einkasonur Arn- ar er Ívar Jóhann, f. 15. apríl 1982. Móðir hans er Gunnhildur Jó- hannsdóttir, f. 5. febrúar 1952. Örn ólst upp í foreldrahúsum í Reykjavík. Hann gekk í Mela- skóla, Hagaskóla, Menntaskól- ann í Reykjavík og Háskóla Ís- lands. Þaðan útskrifaðist hann 1980, með BA-gráðu í sálfræði. Hann stundaði framhaldsnám við háskólann í Árósum 1981– 1982 og fékkst síðan við kennslu og ýmis störf. Útför Arnar verður gerð frá Áskirkju í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Fallinn er frá Örn Ólafsson, minn ástkæri faðir og góður vinur. Ég var staddur úti í Danmörku, ásamt Sindra vini mínum, þegar móðir mín hringdi og sagði mér þessar voðalegu fréttir. Hann hafði orðið bráðkvaddur, fengið krans- æðastíflu. Það var eins og heim- urinn hefði hrunið, það sem eftir var ferðarinnar fór í að hugsa um þennan mikla missi. Ég tjáði pabba aldrei almenni- lega hversu mikils virði hann var mér en ég er þess samt fullviss að hann hafi vitað það. Pabbi var bráðgreindur maður og gat fært rök fyrir ótrúlegustu hlutum, allt frá stjörnufræði til næringargildis ýmissa matartegunda. Það var svo til ekkert sem hann hafði ekki skoðun á. En eins og hjá mörgum þá átti pabbi við sína erfiðleika að etja og það kom tímabil sem ég gat ekkert hitt hann, sem mér þótti að sjálf- sögðu mjög vont. En þegar ég byrjaði að hitta hann aftur reglu- lega eftir jólin 1992 breyttist líf mitt til hins betra því hann var til staðar. Hins vegar þarf ég núna að horfast í augu við það að sjá minn yndislega föður aldrei aftur í þessu lífi og er það þrekraun sem ég verð að komast í gegnum. Ég minnist með söknuði í hjarta allra billjardleikjanna sem við spil- uðum í Öskjuhlíð, allra skákanna sem við tefldum, allra rökræðn- anna okkar, sem mér þóttu alltaf svo áhugaverðar og skemmtilegar. Allar þessar stundir munu glat- ast í tíma eins og tár í regni. Vertu sæll, pabbi minn, og við sjáumst aftur þegar minn tími kemur. Þangað til verður þín sárt saknað. Þinn sonur, Ívar. Elskulegur mágur minn, Örn Ólafsson, lést á heimili sínu á Austurströnd á Seltjarnarnesi hinn 13. júní sl., 55 ára að aldri. Bana- mein hans var hjartaáfall. Örn var fæddur og uppalinn á Melhaga í vesturbæ Reykjavíkur og átti þar heima alla tíð ef undan eru skilin síðustu tíu árin, en þá bjó hann á Seltjarnarnesi. Minningin um daga bernskunnar á Melhaganum var Erni kær. Þar ólst hann upp við gott atlæti ást- ríkra foreldra sinna og umhyggju eldri systkinanna sem aldrei þvarr. Örn var glaðvært barn og sann- kallað augnayndi. Hann naut æsku- og uppvaxtaráranna sam- vistum við vinina, og voru þau án efa bestu árin í lífi hans. Jafnframt því að hafa hlotið í vöggugjöf góðar gáfur og ljúfa lund var Örn að eðlisfari hlédræg- ur maður og prúður og lítt gefinn fyrir að halda sjálfum sér fram. Næmur var hann og íhugull, áfelldist engan og vildi aldrei nokkrum manni mein gera. Örn tók fráfall foreldra sinna mjög nærri sér og víst er að jólin og áramót voru aldrei söm í huga hans eftir þeirra dag. Það leiðir huga minn nú að umhyggjunni sem speglaðist í jólapökkunum hans til okkar og einkum þá til frænd- systkinanna þriggja, Arnþrúðar, Þórhöllu Sólveigar og Ólafs. Í þá var ekki valið af handahófi, heldur var augljóst að miklar bollalegg- ingar lágu að baki. Svo fátt eitt sé nefnt var hér ýmist um að ræða gripi gædda þeim eiginleikum að auka öryggi, svo sem fjölnota töfratól, kom jafnvel í staðinn fyrir heilan verkfærakassa, eða þá raf- magnshitateppi og tilgangurinn að lina þjáningar. Stundum var svo hins vegar á ferðinni það sem kalla má „kúriósa“ og hefði hvergi verið hægt að komast yfir nema í jóla- pakka frá Erni. Af merkimiðunum mátti svo lesa ýmist skrítlur, heil- ræði eða gátur um innihald pakk- anna. Alltaf varð þetta tilefni kát- ínu. Fyrir rúmum 24 árum eignaðist Örn einkasoninn Ívar Jóhann og var enginn honum jafn kær og hann. Í samtali ekki alls fyrir löngu varð Erni tíðrætt um sam- vistir þeirra feðganna, en þeir höfðu unun af því að sitja saman að tafli eða að spila á spil. Hann talaði líka um bíltúrana þeirra og hollráðin sem hann vildi veita Ív- ari. Var auðfundið hversu vænt Erni þótti um hverja þá stund sem þeir feðgar gátu átt saman. Eins og sjá má hér að ofan var uppsprettan hrein og tær en ,,Margt skipast á mannsævi“ segir í Heimskringlu og sjaldan verður ósinn eins og uppsprettuna dreym- ÖRN ÓLAFSSON                  !      "# $ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓHANN SVEINSSON skipstjóri, Hjallabraut 33, Hafnarfirði, sem lést sunnudaginn 18. júní, verður jarðsung- inn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 27. júní kl. 15.00. Guðrún Bjarnadóttir, Bjarni H. Jóhannsson, Sigríður J. Jónsdóttir, Magnús Jóhannsson, Særún Garðarsdóttir, Sveinn Jóhannsson, Anna Haraldsdóttir, Jóhann Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir, bróðir, mágur og frændi, ÖRN ÓLAFSSON, Austurströnd 10, sem lést þriðjudaginn 13. júní verður jarðsunginn frá Áskirkju sunnudaginn 25. júní kl. 11.00. Ívar Jóhann Arnarson, Snjólaug Guðrún Ólafsdóttir, Haraldur Briem, Jón Hjaltalín Ólafsson, Þórunn Þórhallsdóttir, Arnþrúður Jónsdóttir, Gunnar Haukur Stefánsson, Ólafur Andri Briem, Þórhalla Sólveig Jónsdóttir, Ármann Einarsson, Þórunn Snjólaug Gunnarsdóttir, Jón Hjaltalín Ármannsson. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORLEIFUR JÓNSSON, (Bói), Vallarbarði 3, Hafnarfirði, sem lést fimmtudaginn 15. júní verður jarðsung- inn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 27. júní kl. 14.00. Jón Þorleifsson, Sigrún Pálsdóttir, Gunnar Árni Þorleifsson, Theódóra Sif Pétursdóttir, Sigurður Unnar Þorleifsson, Ingibjörg Aðalsteinsdóttir, Kolbrún Þorleifsdóttir, Harrý Samúel Herlufsen, Símon Þorleifsson, Dorthe Møller Thorleifsson, Harpa Þorleifsdóttir, Gestur Már Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar elskulegi eiginmaður, faðir okkar, afi, sonur, bróðir og frændi, EIÐUR ARNARSON, lést í Portúgal miðvikudaginn 21. júní. Útförin auglýst síðar. Hafdís Stefánsdóttir, Einar Rafn Eiðsson, Einar Örn Eiðsson, Valur Rafn Valgeirsson, Stefanía Helga Pálmarsdóttir, Eiður Rafn Valsson, Hallfríður Freysteinsdóttir, Guðbjörg Kristín Arnardóttir, Örn Bjarnar Marteinsson. Okkar ástkæri BJÖRN JÓNSSON, Stapa í Hornafirði, Frostafold 38, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 16. júní, verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju í Garðabæ þriðjudaginn 27. júní kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins í síma 543 3724. Fyrir hönd aðstandenda, Rannver S. Sveinsson. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNETTA SIGURÐSSON, hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju í Reykjavík þriðjudaginn 27. júní kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Skógarbæjar, sími 510 2100. Sigurður Kristjánsson, Laufey Aðalsteinsdóttir, Már Kristjánsson, Valborg E. Kristjánsdóttir, Guðlaugur Óttarsson, Laufey J. Kristjánsdóttir, Kristín Kristjánsdóttir, Bjarni S. Kristjánsson, Valgerður Ingvadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GARÐAR ÓLASON, er látinn. Jarðarförin hefur farið fram. Fyrir hönd aðstandenda, Helga Runólfsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.