Morgunblaðið - 25.06.2006, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 45
MINNINGAR
Húsnæði í boði
Bátar
Seglskútan Dedda 1706 er til
sölu. Traust og góð skúta sem er
ríkulega útbúin, tilbúin til langsig-
linga. Prufusiglingar um helgina.
Upplýsingar: 693 9338 og
www.hugis.com/dedda1706.pdf
Bil Bao Kayack. Til sölu nýr og
ónotaður (bik sport) Bil Bao
Kayack og ónotað björgunarvesti
fylgir. Verð 50.000. Upplýsingar
í síma 663 2131.
Vörubílar
Hjólkoppar - varahlutir
Hjólkoppar á vörubíla. Dekk ný
og sóluð. Nýjar felgur 9" og 11,75"
x 22,5". Fjaðrir nýjar og notaðar.
Allskonar notaðir
varahlutir í vörubíla. Útvegum
vinnubíla og tæki erlendis frá.
Heiði rekstrarfélag s. 696 1051.
Bílar óskast
Óska eftir beinskiptum díselbíl.
Fólksbifreið eða litlum jeppa, t.d.
Mercedes Benz, Raf 4 eða
Suzuki. Margt kemur til greina en
verður að vera í mjög góðu
ástandi. Upplýsingar í símum
896 6181 og 557 6181.
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Snorri Bjarnason
BMW 116i, bifhjól,
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat, '05
892 4449/557 2940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '06,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Suzuki Grand Vitara,
892 0002/568 9898.
Fellihýsi
Fjalla fellihýsi Palomino Must-
ang 2000 m. fortjaldi. Stór dekk,
loftfjöðrun, beislisbremsa, sér-
styrkt. Stórt hús til fjallaferða
með öllum þægindum. Uppl.
Óskar 894 5693.
Mótorhjól
Honda CRF 450R árg. '04. Nánast
ónotað. Verð 850 þús. og Honda
CRF 250R árg. '04. Verð 740 þús.
og Suzuki DRZ 400E árg. '03, ek.
2800. Verð 590 þús. Einn eig. Ein-
nig þriggja hjóla kerra og gallar
og hjálmar. Möguleiki á 100%
láni. S. 896 3677/868 8601/868
1129.
Hjólhýsi
Hobby Excelsior 540 UFE leður-
hús árg. '06. Einstakt og rúmgott
Hobby hús með leðursætum og
stórum frábærum borðkrók, bak-
arofni, sólarsellu, loftneti og
vönduðum innréttingum, gott
verð. Uppl. í s. 893 2878.
Hjólhýsi til sölu!
Hefurðu séð ódýru og glæsilegu
Delta Euroliner og Summerliner
kojuhúsin hjá okkur? Svefnpláss
fyrir 6. Verð frá 1.721. þ.
Allt að 100% lán. Fortjald á hálf-
virði
S: 587 2200, 898 4500
www.vagnasmidjan.is
Dethleffs hjólhýsi til sölu. Til
sölu Dethleffs hjólhýsi árg. '85.
Heildarlengd 6,0 m, br. 2,10 m.
Verð 470 þús. Upplýsingar í síma
897 2067.
Húsviðhald
Parketslípun - Lögn - Viðhald
- Parketsala. Við getum bætt við
okkur verkefnum á næstunni.
Vönduð og skjót þjónusta. Kom-
um hvert á land sem er. Upplýs-
ingar 847 1481 og 845 5705.
Kerrur
Brenderup 2260 A
Innanmál: 260x153x40 cm - burð-
argeta: 700 kg - dekk: 13"
Verð: 330.000.
Lyfta.is -
421 4037 - lyfta@lyfta.is
Einkamál
Þú getur það auðveldlega líka!
Skoðaðu www.Skuldlaus.com og
þú sérð hversu einfalt það er fyrir
þig að búa þér til tekjur á Netinu.
Fullkomin kennsla í boði fyrir
rétta aðila. www.Skuldlaus.com.
Viltu skuldleysi? Viltu mun
hærri laun? Ágæti lesandi: Ef þú
ert á meðal þeirra mörgu sem þrá
að losna við skuldir og fá meiri
tekjur þá verðurðu að fara núna
og kynna þér vefsíðuna
www.Milljon.com.
Viltu miklu betra og ánæguleg-
ra líf? Hjálpaðu sjálfri/sjálfum þér
með því að hjálpa öðrum. Glæsi-
legt tækifæri fyrir fólk sem vill
skapa sér betra líf. Skoðaðu
www.Betralif.com og fáðu upp-
lýsingar.
Sameinum stöndum við! - Verið
velkomin! Viltu hjálpa öðrum og
skapa þér í leiðinni skuldlaust líf
og algjört frelsi? Þá þarftu að
fara inn á www.Samtaka.com og
skoða málið í botn!
www.Samtaka.com.
Náðu lengra með www.Nadu-
langt.com ... Þetta er án nokkurs
vafa einhver glæsilegasta tekju-
leið sem nokkurn tíma hefur sést
í netviðskiptum. Skoðaðu
www.Nadulangt.com og þú sérð
strax hvað við meinum!
Komdu og vertu með í pottþéttri
áætlun! Ert þú að leita að réttu
leiðinni? Þá þarftu hvorki að leita
lengur né lengra því lausnin er
á www.Komdu.com! Kíktu núna
í heimsókn og þú sérð það líka.
Komdu!
Karlmaður, rúmlega sextur,
óskar eftir kynnum við konu á lík-
um aldri. Svör sendist til auglýs-
ingadeildar Morgunblaðsins eða
í box@mbl.is merkt: „Félagi -
18742“.
Alternatorar og startarar í
vörub., rútur, vinnuv., bátav.
á lager og hraðsendingar.
40 ára reynsla.
Valeo-umboðið,
Bílaraf, Auðbrekku 20,
sími 564 0400.
2ja herb. íbúð til leigu á Flórída-
Orlandó. Góð 2ja herb. íbúð til
leigu á Flórída. Íbúðin er staðsett
á svæði sem heitir Ventura. Þar
er 18 holu golfv., upphituð sund-
laug og stutt í alla þjónustu. Uppl.
í síma 564 0031 Sigríður eða í
síma 001-407-658-8524 Sigurður.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
FRÉTTIR
Hann sýndi mikinn áhuga á því sem
hans fólk var að gera hverju sinni og
því fannst mér alltaf gaman að segja
honum frá því sem ég var að gera
eða hugsa. Alltaf hlakkaði ég til að fá
hans álit, hann gagnrýndi aldrei
heldur leit alltaf á jákvæðu hliðarn-
ar. Þó var ein undantekning á því en
hann hafði sterka skoðun á fatnaði
og lét mann finna það ef hann var
ekki sammála fatavalinu, enda sér-
fræðingur á því sviði. Húmorinn
hafði hann svo sannarlega og var
alltaf stutt í hláturinn hjá honum
sem var mjög smitandi. Eitt sagði
afi alltaf og það var að sumarið byrj-
aði alltaf á afmælisdaginn hans, 11.
apríl. Fyrir mér mun sumarið alltaf
byrja þá.
26. október síðastliðinn áttu afi og
amma 60 ára brúðkaupsafmæli. Var
af því tilefni efnt til veislu í fjölskyld-
unni að heimili þeirra, Reynihvammi
29, og þessum merku tímamótum
fagnað. Í aðdraganda veislunnar tók
ég þau á tal og spurði hvert leynd-
armálið væri að svo farsælu sam-
bandi eins og þeirra. Í svörum
þeirra bar þar hæst sameiginleg
markmið í lífinu, gagnkvæm virðing
og góð vinátta.
Reynihvammurinn er húsið sem
þau amma reistu sér fyrir 50 árum.
Þótti afa hvergi betra að vera en þar
og var það ósk hans að eyða ævi-
kvöldinu þar. Fyrir utan síðustu
dagana er hann dvaldi á Landspít-
alanum fékk hann þá ósk uppfyllta.
Afi var mikill veiðimaður og var
hann með þeim fyrstu sem gengu í
Stangaveiðifélag Reykjavíkur.
Stundaði hann Elliðaárnar á hverju
sumri og var alltaf spennandi að
heyra hvernig veiðin hafði gengið.
Frá því ég var lítill fannst mér afi
vera alvöru veiðimaður sem fór í al-
vöru veiðitúra og þótti mér það ákaf-
lega spennandi. Það var því mikill
heiður þegar mér var boðið með
þeim Andrési frænda í Víðidalsá eitt
sumarið sem síðan var endurtekið
nokkur ár á eftir. Eru þaðan
ógleymanlegar minningar og lexíur í
veiðiskap.
Afi sagði mér fullt af sögum úr
sínu lífi og má þar nefna frá veiði,
vinnu, æsku, húsbyggingum, við-
skiptum, samferðamönnum o.fl. Með
þessu miðlaði hann lífsreynslu sinni
til mín og reyndi ég að læra eins
mikið af honum og ég gat.
Þegar ég lít yfir hans ævi og það
sem hann hefur gert í lífinu sé ég að
þarna hefur verið á ferðinni dugleg-
ur framkvæmdamaður sem eignað-
ist stóra og góða fjölskyldu. Maður
sem var vel liðinn og vegnaði vel í at-
vinnulífinu, var heiðarlegur og sinnti
fjölskyldu sinni vel. Framsýnn mað-
ur sem hafði metnað í að koma sér
áfram og mikinn lífsáhuga. Maður
sem hafði ráð undir rifi hverju og lét
engan stoppa sig í því að ná sínum
markmiðum og láta sína drauma
rætast. Ég sé að þarna hefur verið
maður sem svo sannarlega hefur
gefið gott fordæmi fyrir afkomendur
sína.
Það er sárt og erfitt að sjá á eftir
svo góðum félaga sem hann reyndist
mér. Ekki hef ég lengur félagsskap
hans en bý þess í stað að ótal minn-
ingum og vitneskju sem hann arf-
leiddi mig af. Mér finnst ég lánsam-
ur að hafa átt svo góðan afa og segi
ég stoltur frá því að hann er mín fyr-
irmynd. Takk fyrir allt, elsku afi
minn. Guð gefi ömmu styrk.
Magnús Jens Hjaltested.
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur.)
Dýrmætar minningar um afa á
Reynihvammi munum við ávallt
varðveita í hjarta okkar.
Pétur, Magga, Laufey
og Unnur.
Grænt gúmmí
á Ísafirði
GERVIGRASVÖLLURINN á Ísafirði
er fylltur með grænu gúmmíkurli, ekki
með svörtu kurli úr muldum bíldekkjum
eins og flestir aðrir slíkir knatt-
spyrnuvellir hér á landi. Í Morg-
unblaðinu á föstudag var sagt að í Ris-
anum í Hafnarfirði, húsi FH-inga, væri
eini völlurinn hér á landi sem væri með
græna gúmmíkurlinu.
LEIÐRÉTT
AFREKS- og styrktarsjóður
SPRON og Íþróttabandalags
Reykjavíkur veitti sl. fimmtu-
dag, styrki til ungs afreksfólks
til undirbúnings fyrir Ólympíu-
leikana árið 2008 og styrki til
margvíslegra annarra verkefna
á sviði íþrótta.
Ásdís Hjálmsdóttir, frjáls-
íþróttakona í Ármanni, fær
styrk til undirbúnings fyrir Ól-
ympíuleikana í Beijing árið 2008
frá Afrekssjóðnum og Jóhann
Sveinsson, sundmaður í Ægi,
fær sams konar styrk frá
Íþróttabandalagi Reykjavíkur.
Markmið samningsins er að auð-
velda þeim að ná markmiðum
sínum varðandi þátttöku á Ól-
ympíuleikunum í Beijing 2008.
Styrkirnir eru í formi fastra
mánaðargreiðslna sem ætlað er
að greiða niður þjálfunarkostnað
og útgjöld vegna undirbúnings
fyrir æfinga- og keppnisferðir.
Við sama tækifæri voru veittir
styrkir úr Afreks- og styrkt-
arsjóðnum til íþróttaverkefna í
ýmsum greinum, s.s. körfuknatt-
leik, borðtennis, handbolta,
klifri, frjálsum íþróttum, keilu,
skíðum og hjólreiðum. Þeir sem
hlutu þá styrki voru deildir eða
hópar innan ÍR, Fram, Klif-
urfélags Reykjavíkur, KR,
Keilufélags Reykjavíkur, Ár-
manns og Hjólreiðafélags
Reykjavíkur.
Íþróttabandalag Reykjavíkur
og SPRON standa sameiginlega
að Afreks- og styrktarsjóðnum
og er tilgangur hans að styrkja
ungt og efnilegt reykvískt
íþróttafólk á aldrinum 15–22 ára
sem hefur burði til að verða af-
reksfólk í íþróttum.
Styrkja afreks-
fólk í íþróttum
Íþróttafólkið í Laugardalnum ásamt fulltrúum SPRON og Íþróttabandalags Reykjavíkur sem veittu styrkina.
Sigríður
Kristjánsdóttir
VEGNA mistaka birtist
mynd í Morgunblaðinu í
gær, laugardaginn 24.
júní, af Sigríði Krist-
jánsdóttur, sem jarð-
sungin var 18. febrúar
sl., með minning-
argreinum um Sigríði
Kristjánsdóttur, sem
jarðsungin var frá Sel-
fosskirkju í gær. Beðist
er velvirðingar á þessum leiðu mistökum.