Morgunblaðið - 25.06.2006, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 25.06.2006, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 47 AUÐLESIÐ EFNI Skógarhlí› 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is E N N E M M / S IA / N M 22 3 0 3 Barcelona í allt haust frá 19.990 kr. Flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 6. og 13. nóv. Netverð á mann. Prag í okt. og nóv. frá 19.990 kr. Flugsæti með sköttum. m.v. 2 fyrir 1 tilboð 6. nóv. Netverð á mann. Búdapest allan október frá 19.990 kr. Flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 10. okt. Netverð á mann. Róm 17. nóv. frá 64.300 kr. Flug, skattar og gisting í tvíbýli á Hotel Archimede í 4 nætur. Netverð á mann. Kraká í okt. og nóv. frá 37.930 kr. Flug, skattar og gisting í tvíbýli á Hotel Eljot í 3 nætur 23. okt. með 8.000 kr. afslætti. Netverð á mann. Ljubljana 27. okt. frá 54.990 kr. Flug, skattar og gisting í tvíbýli á Hotel City í 4 nætur. Netverð á mann. Aukaflug veisla í beinu flugi í haust Borgar SJÖ menn voru hand-teknir í Miami á Flórída á fimmtudag og eru þeir grunaðir um að hafa ætlað að fremja hryðju-verk í Banda-ríkjunum. Sagt er mennirnir, sem eru rót-tækir múslímar, hafi haft í hyggju að sprengja upp Sears-turninn í Chicago, þriðju hæstu byggingu í heimi. Þeir voru þó ekki komnir langt með þá fyrir-ætlan því að ekkert sprengi-efni eða annar búnaður fannst við leit. Þeir eru þó sagðir hafa skoðað og tekið myndir af Sears-turninum og einnig af aðalstöðvum FBI, bandarísku alríkis-lögreglunnar, á Miami. Nágrannar mannanna segja þá hafa verið dálítið undarlega í háttum, mjög fáláta, oft í hermanna-búningi og með túrban á höfði. Eru fimm þeirra bandarískir borgarar en hinir tveir með erlent ríkisfang og annar þeirra frá Haiti. Vildu sprengja Sears- turninn EINN af verjendum Saddam Husseins, fyrrverandi Íraks-forseta, var myrtur síðast-liðinn miðvikudag. Er hann þriðji maðurinn í verjenda-hópnum, sem hlýtur þau örlög. Morðið á Khamis al-Obeidi þykir sýna vel lögleysuna og óöldina í Bagdad og vera mikið áfall, ekki aðeins fyrir verjendur einræðis-herrans fyrrverandi, heldur einnig fyrir dómstólinn sjálfan. Sagt er, að hann hafi ákveðið í nóvember, að þrír vopnaðir menn skyldu gæta Obeidis en aldrei ráðstafað neinu fé í því skyni. Obeidi hafði því enga verði er ruðst var inn á heimili hans í aftur-eldingu á miðvikudag og honum rænt. Þrátt fyrir að æðsti maður Al-Qaeda-hryðjuverka-- samtakanna í Írak, Abu Musab Zarqawi, hafi verið felldur og eftirlit í Bagdad stóraukið, hefur lítið dregið úr átökum og hryðju-verkum í borginni. Á föstudag neyddist stjórnin raunar til að lýsa yfir neyðar-ástandi þar vegna mikilla átaka við skæruliða. Einn verjenda Saddams myrtur LANGRI þrekraun nokkurra reyndra leikmanna Miami Heat og Pat Riley þjálfara lauk í vikunni – þegar Miami vann sinn fyrsta meistara-titil í NBA-deildinni í körfu-knattleik. Leikmenn Miami töpuðu fyrstu tveimur leikjunum gegn Dallas í úrslita-keppninni – en unnu síðan fjóra leiki í röð og fögnuðu sigri á Dallas í Texas í sjötta leiknum, 95:92. Þar með er lokið einni bestu úrslita-keppni í sögu deildarinnar og með tvö ný lið inni í loka-úrslitunum virðist framtíð NBA björt að nýju. Wade besti leikmaður úrslita-keppninnar Dwyane Wade gerði 36 stig fyrir Miami og var kosinn leikmaður úrslita-keppninnar. Skoraði um 35 stig að meðaltali í leik. Pat Riley, þjálfari Miami, fagnaði sínum fimmta meistara-titli. Hann vann fjóra titla hjá Los Angeles Lakers frá 1982 til 1988. Riley tók við liðinu fyrir keppnis-tímabilið. Miami Heat NBA-meistari í fyrsta sinn Reuters Dwyane Wade og þjálfarinn Pat Riley fagna sigri Miami Heat. Magni Ásgeirs-son, söngvari hljóm-sveitarinnar Á móti sól, hefur verið valinn til þess að taka þátt í raunveruleika-þættinum Rock Star: Supernova, sem sýndur verður út um allan heim í sumar og fram á haust. Í þættinum keppa 15 söngvarar um stöðu söngvara í hljóm-sveitinni Supernova sem var sérstaklega búin til af þessu tilefni, og er skipuð trommaranum Tommy Lee úr Mötley Crüe, bassa-leikaranum Jason Newstead sem var í Metallica og Gilby Clarke, fyrrverandi gítar-leikara Guns N’ Roses. Sá sem stendur uppi sem sigurvegari mun svo ásamt öðrum meðlimum Supernova fara í hljóð-ver og taka upp plötu. Að því loknu verður lagst í heims-reisu. Magni kominn í Rock Star Morgunblaðið/ Jim Smart Ríkis-stjórnin, ASÍ og Samtök atvinnu-lífsins (SA) ætla í sameiningu að reyna að minnka verð-bólgu í landinu. Verð-bólgan er það mikil núna að kjara-samningar voru endur-skoðaðir. ASÍ og SA hafa samið um að breyta kjara-samningunum. Gilda þeir núna út árið 2007. Allir sem samningarnir ná til fá 15 þúsund króna hækkun á launum frá 1. júlí. Lágmarks-tekjur hækka úr 108.000 kr. í 123.000 frá 1. júlí og í 125.000 frá 1. janúar 2007. Einnig eiga laun þeirra sem unnið hafa á sama vinnustað frá því í júní í fyrra og þangað til í júlí á þessu ári að hækka um 5,5% í launum. Ef launin hafa ekki hækkað svo mikið verður að laga það. Einnig hefur ríkis-stjórnin ákveðið að hækka skattleysis-mörk um 14% og að barna-bætur séu greiddar með börnum þangað til þau verða 18 ára. Geir H. Haarde fjármála-ráðherra segir að nú sé búið að tryggja vinnufrið næstu mánuði. Hann segir að því sé spáð að verð-bólgan lækki hratt á næsta ári. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir að samningurinn gangi út á að ná verðbólgunni niður. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir að kostnaður fyrirtækja hækki. Hann er samt ánægður með samninginn og vonar að allir hjálpist að við að minnka verð-bólguna. Breytingar á kjarasamningum Morgunblaðið/ÞÖK Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, og Geir H. Haarde forsætis- ráðherra ætla í sameiningu að ná verðbólgunni niður. Allir hjálpist að við að minnka verðbólguna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.