Morgunblaðið - 25.06.2006, Síða 50

Morgunblaðið - 25.06.2006, Síða 50
50 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 mótgengur, 8 hörfar, 9 þyngdarein- ingar, 10 tala, 11 jarði, 13 sefaði, 15 þráðar, 18 dreng, 21 afkvæmi, 22 detta, 23 smáaldan, 24 miskunnarleysið. Lóðrétt | 2 hráslagi, 3 dimmviðri, 4 yfirhafnir, 5 systir, 6 torveld, 7 fífl, 12 smáger, 14 títt, 15 Freyjuheiti, 16 kvabba um, 17 vik, 18 lítil saur- kúla, 19 þvættingi, 20 þekkt. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 blíða, 4 sígur, 7 asann, 8 náðug, 9 agn, 11 alda, 13 uggs, 14 umber, 15 sálm, 17 traf, 20 kal, 22 eyrun, 23 jaðar, 24 lúrir, 25 narra. Lóðrétt: 1 blaka, 2 íhald, 3 Anna, 4 senn, 5 geðug, 6 regns, 10 gubba, 12 aum, 13 urt, 15 spell, 16 lærir, 18 riðar, 19 forna, 20 knár, 21 ljón.  Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Ef þú hrósar einhverjum ertu að brúa bil. Hrós dagsins gæti virst hrokafullt, viðeigandi, til marks um virðingu eða óvirðingu, allt eftir því hvernig skipu- ritið er. Naut (20. apríl - 20. maí)  Röddin innra með þér sem segir, gerðu þetta ekki gera hitt, ýtir þér inn á brautir sem virðast ekki ýkja hag- nýtar. En framtak sem þér þykir ómaksins vert er ekki endilega háð góðu áliti þeirra sem þú berð þig sam- an við. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Tvíburinn getur hreinlega ekki stillt sig um að halda upp á árangur dagsins og gerir það ekki. Ef þú fagnar oft, hefurðu oft ástæðu til að fagna. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Að gera sitt besta veltur á smáatrið- unum í augnablikinu. Ef þú hugsar um að gera eitthvað skaltu framkvæma það þegar í stað. Þú áttt ekki eftir að sjá eftir því að taka af skarið og vanda þig. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Sýndu þeim fáfróðu biðlund, þeim sem eldri eru samúð og ungu kynslóðinni þolinmæði. Þú átt eftir að falla í sér- hvern þessara flokka á einhverjum tímapunkti, kannski alla áður en sól hnígur til viðar. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Meyjan er tilbúin til að taka fram- förum en veit kannski ekki í hvaða átt hún á að stefna eða með hverjum. Það er yndislegt og hættulegt að vera op- inn, enda getur allt gerst í báðum til- vikum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vogin er yfirleitt rólyndið uppmálað. Í dag lætur hún freistast til að fá útrás fyrir streitu á óviðeigandi hátt og kalla það ástríðu, illskukast væri réttnefni. Losaðu þig við gremju með líkams- rækt. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Sjálfstjáning er verkefni dagsins. Því líflegri sem þú ert, því betur gengur þér að miðla því sem þú vilt miðla. Flestir eru reyndar á höttunum eftir sviðsljósinu. Láttu ljós þitt skína og leyfðu rödd þinni að berast. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Ekkert samband er fullkomið og sum þeirra sem þú ert í eru langt frá því að vera það. Flækjurnar sem við greiðum úr gera okkur að betri mönnum, sátt- fúsa, ástríka og ósérhlífna. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Ákvarðanir blasa við, taktu þær hratt og af festu. Að vera á báðum áttum er líkast því að fjarlægja plástur hægt og rólega. Þegar þú sýnir hvað þú getur færðu líka að velja. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberinn vill allan pakkann og er nógu hugaður til þess að biðja um meira en hann hafði hugsað sér. Þú gefur gjöf innan tíðar. Upphæðin er ekki aðalatriðið, heldur umhyggjan sem þú sýnir með valinu. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Fæðing af einhverju tagi er þemað. Einhverjir eru að hrinda af stað nýrri herferð eða að byrja nýja framleiðslu, aðrir að hefja nýtt samband. Byrjunin er skrykkjótt en þú átt eftir að finna jafnvægið sem þú leggur svo mikið upp úr. Stjörnuspá Holiday Mathis Tungl í tvíbura er í að- draganda nýs tungls í krabba. Ef maður eyðir öll- um deginum í að búa sig undir framtíð- ina er honum vel varið. Á morgun er upplagt að byrja á verkefnum sem tengj- ast heimilinu. Bestu ráðagerðirnar fela í sér samræður og enn meiri samræður. Nokkur orð við einhvern sem býr yfir vitneskju gæti sparað nokkra daga, ef ekki vikur af tilgangslausu framtaki. Sportköfun á Íslandi nýtur sívaxandi vin-sælda. Á dögunum var keypt hingað tillands sérhæfð nítrox-loftpressa sem veitirnýja möguleika til köfunar hér á landi. Héðinn Ólafsson er sportköfunarkennari og starfrækir Köfunarskólann Kafarann.is: „Köfurum á Íslandi má gróflega skipta í þrjá hópa; atvinnu- kafara, köfunarsveitir landhelgisgæslu og björg- unarsveita, og sportkafara,“ útskýrir Héðinn. „Jafnt og þétt hefur fjölgað í hópi frístundakafara og má í dag áætla að milli 100 til 200 manns stundi köfun að staðaldri.“ Köfun hefur verið stunduð um nokkurt skeið á Íslandi, en á undanförnum árum og áratugum hafa orðið miklar framfarir á sviði köfunar: „Það er út- breiddur misskilningur að köfun sé hættuleg og ekki á færi nema hraustustu manna. Réttara er að hver sem er getur stundað köfun, og þekkist víða erlendis að fólk með ýmsa fötlun sé liðtækir kaf- arar og vonandi að sama þróun sjáist hérlendis líka. Köfun sem stunduð er af skynsemi og fagmennsku lágmarkar líkur á óhöppum.“ Að sögn Héðins er köfun stunduð allan ársins hring hér á landi, ekki síst um vor og haust. „Þetta er ekki dýrt sport miðað við margt annað sem í boði er. Byrjendanámskeið kostar rösklega 50 þús. kr. með öllu inniföldu og heilt köfunarsett má í dag fá hér á landi fyrir 180 þús. kr. og bætist lítill kostn- aður við eftir það.“ Nítrox-loftpressan sem nýlega var keypt til landsins er mikil bylting fyrir kafara hérlendis: „Það er útbreiddur misskilningur að kafarar hafi hreint súrefni í kútum sínum. Raunin er sú að al- gengast er að í kútunum sé þjappað sama lofti og er í kringum okkur, þar sem hlutfall súrefnis er um 21% á móti 79% köfnunarnefni. Með nýju press- unni má breyta hlutfalli súrefnis í því lofti sem þjappað er á kútana, allt upp í 40% súrefnishlut- fall,“ útskýrir Héðinn. „Við köfun safnast köfnunar- efnið sem kafarinn andar að sér í líkamanum og getur valdið hættu á köfunarveiki ef kafað er djúpt og kafað lengi. Með minna hlutfalli köfnunarefnis dregur úr þessari uppsöfnun og gerir það köfurum kleift að vera lengur í kafi og á meiri dýpt. Að auki veldur uppsafnað köfnunarefni þreytu í kjölfar köf- unar, sérstaklega eftir ítrekaðar kafanir, en með nítrox-blöndu á kútunum dregur stórlega úr slíku.“ Til að nota nítrox-þjappað loft við köfun þarf við- bótarþjálfun, en hún er í boði hjá Köfunarskólanum Kafarinn.is auk allrar almennrar köfunarþjálfunar og framhaldsnámskeiða: „Með grunnþjálfun gefast réttindi til köfunar niður á 18 metra dýpi og með framhaldsnámskeiði köfunarréttindi niður á 30 metra. Skólinn býður einnig upp á námskeið í næturköfun, björgunarköfun, og það sem kallað er „Dive Master“-námskeið, sem veitir leiðbeiningar- réttindi. Þá er enn ótalið námskeið í köfun með nítrox,“ segir Héðinn. Nánari upplýsingar má finna á www.kafarinn.is Útivist | „Nítrox“-loftpressa býður upp á nýja möguleika í köfun hérlendis Framfarir í sportköfun á Íslandi  Héðinn Ólafsson fæddist í Hafnarfirði 1965. Hann stundaði ungur maður fjölbreytt sjómannsstörf, starfaði hjá Álverinu í Straums- vík í þrjú ár og við raf- geymasmíði í Noregi. Frá árunum 1997 til 2005 starfaði Héðinn sem sendibílstjóri og var um nokkurt skeið stjórnarformaður Sendibílastöðvar Hafnar- fjarðar. Héðinn setti á laggirnar Köfunarskól- ann Kafarann.is árið 2001. Héðinn er kvæntur Sigrúnu Helgu Hreins- dóttur ræstitækni og eiga þau þrjár dætur og tvö barnabörn. Félagsstarf Dalbraut 18–20 | Brids mánud. kl. 14. Félagsvist þriðjud. kl. 14. Bónus miðvikud. kl. 14. Hádegisverður og síðdegiskaffi. Heitt á könnunni. Félag eldri borgara Kópavogi, ferða- nefnd | Júlíferðir FEBK. Uppl. og skráningarlistar eru í félagsheimil- unum Gullsmára og Gjábakka í júl- íferðir FEBK. A) 14.–15. júlí: Fjalla- baksleið nyrðri / Eldgjá / Lakagígar. B) 25.–28. júlí: Sprengisandur / Norðurland / Flateyjardalur Skráning í síma 560 4255 og 554 0999. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansleikur kl. 20. hljómsveitin Klass- ík leikur. Haukadalsskógur dagsferð 28. júní. Ekið er til Þingvalla og þaðan um Gjábakkaveg til Laugarvatns og Geysis. Gengið um Haukadalsskóg. Kaffihlaðborð í Brattholti. Uppl. og skráning í síma 588 2111. Félagsstarf Gerðubergs | Opið kl. 9– 16.30, m.a. vinnustofur, spilasalur o.fl. Veitingar í Kaffi Bergi. Vegna sumar- leyfa er lokað frá mánud. 3. júlí, opn- að þriðjud. 15. ágúst. Hæðargarður 31 | Listasmiðjan opin. Félagsvist mánud. kl. 13.30. Ganga leikfimihóps á þriðjud. og fimmtud. kl. 10. Gönuhlaup á föstud. kl. 9.30. Út í bláinn laugard. kl. 10. Bónus þriðjud. kl. 12.40. Frjáls spilahópur miðvikud. kl. 13.30. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.