Morgunblaðið - 25.06.2006, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 55
Sími - 551 9000
eee
S.V. MBL.
eee
VJV - TOPP5.is
eee
D.Ö.J KVIKMYNDIR.COM
LEITIÐ SANNLEIKANS - HVERJU TRÚIR ÞÚ?
YFIR 47.000 GESTIR!
Just My Luck kl. 3, 5.40, 8 og 10.20
RV kl. 3 og 5.50
The Omen kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára
Take The Lead kl. 8 og 10.30
Da Vinci Code kl. 3, 6 og 9 B.i. 14 ára
Rauðhetta/Hoodwinked m. ísl. tali kl. 3 og 6
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
Á 6. degi 6. mánaðar árið 2006
mun dagur hans koma. Þorir þú í bíó?
eee
S.V. MBL.
Mögnuð endurgerð af hinni
klassísku The Omen !
Yfir 51.000
gestir! SIGURVEGARINN RÆÐUR
ÖRLÖGUM MANNKYNS.
MEÐ HVERJUM
HELDUR ÞÚ?
Sýnd kl. 2 og 4
B.i. 12 ára
Sýnd kl. 3:40, 5:45, 8 og 10:20
Sýnd kl. 2 ÍSLENSKT TAL
Sýnd kl. 4 ÍSLENSKT TAL
Skrolla og Skelfir
Á SALTKRÁKU
Sýnd kl. 2 ÍSLENSKT TAL
SVAKALEG HROLLVEKJA SEM
FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA!
HVAÐ GERIST
EF LEIKURINN
SEM ÞÚ ERT AÐ
SPILA FER AÐ
SPILA MEÐ ÞIG.
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
-bara lúxus
eee
L.I.B.Topp5.is
eee
H.J. Mbl.
eee
DÖJ, Kvikmyndir.com
400 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
Sýnd kl. 6, 8 og 10:10 B.i. 14 ára
HÖRKUGÓÐUR
SPENNUTRYLLIR MEÐ
BRUCE WILLIS
FRÁ LEIKSTJÓRA
LETHAL WEAPON
MYNDANNA.
RÁS 2 verður í dag með beina útsendingu frá Fossatúni í
Borgarfirði. Margrét Blöndal mætir í Fossatún með Helg-
arútgáfuna og verður með skemmtilega Borgfirðinga í
morgunkaffi frá klukkan níu og fram yfir hádegi á veit-
ingahúsinu Tímanum og vatninu þar sem Steinar Berg Ís-
leifsson ræður ríkjum. Síðar um daginn, nánar tiltekið
klukkan 16.05, verður aftur skipt yfir til Margrétar Blön-
dal og útvarpað frá tónleikum sem haldnir verða á sama
stað. Tónleikadagskráin samanstendur af lögum sem er
að finna á plötunum „Íslensk ástarljóð“ sem kom út sum-
arið 2004 og „Íslensk ástarlög“ sem var útgefin fyrr í
sumar. Þetta eru útgáfutónleikar síðarnefndu plötunnar
sem er nú í efsta sæti Tónlistans yfir mest seldu plötur
landsins. Er tónleikunum ætlað að marka upphaf tón-
leikaraðar íslenskra ástarlaga sem verða haldnir árlega á
Fossatúni í kringum Jónsmessuna.
Það eru söngkonurnar Ragnheiður Gröndal, Ellen
Kristjánsdóttir, Hildur Vala og Sigríður Eyþórsdóttir
sem flytja íslensk ástarlög og -ljóð á tónleikunum í Fossa-
túni ásamt hljómsveit undir stjórn Jóns Ólafssonar. Að-
gangseyrir á tónleikana er enginn en þeir eru í boði Orku-
veitu Reykjavíkur.
Íslensk ástarlög í útvarpinu
Margrét Blöndal útvarpskona verður í Borgarnesi í dag.
Fólk | Bein útsending úr Fossatúni í Borgarfirði
FRUMKVÖÐULL tölvuteikni-
myndanna, Pixar, heldur upp á tví-
tugsafmælið með Bílum – Cars, sem
jafnframt er fyrsta verk leikstjórans
Lassieers eftir nokkurt hlé, en hann
á nokkrar bestu myndirnar í geir-
anum (Toy Story I og II; A Bug’s
Life). Að þessu sinni sækir hann
efniviðinn út á þjóðvegina, hér eru
bílar af ölum stærðum og gerðum í
aðalhlutverkum, með eigin sál og
sérstæðan persónuleika. Til að gæða
þessar óvenjulegu sögupersónur
nauðsynlegu lífi og sem mestum trú-
verðugleika hafa Pixarmenn kembt
kvikmyndaborgina í leit að réttum
röddum við bílategundirnar. Bragðið
virkar í sumum tilfellum en síður í
öðrum. Bestum árangri nær Paul
Newman með sína rosknu, hrjúfu og
gráu rödd sem flísfellur að Doc Hud-
son, eða Hudson Hornet, u.þ.b. 1948;
Larry the Cable Guy, sem raddsetur
Mater, og þeir Marin (sem Ramone –
Chevrolet Bel Air ’59) og Shaloub
(Guido – Fiat 850) komast vel frá
sínu hlutskipti.
Íslenskir leikarar eru orðnir
þrælsjóaðir í kúnstinni að talsetja er-
lendar teiknimyndir og gera það vel
ásamt sínu samverkafólki. Þó var ég
banginn við að erfitt reyndist að
finna rödd sem hæfði Hudsoninum
og stæðist samanburð við Newman,
en Harald G. hefur sjaldan gert bet-
ur síðan í Þórscafé í den, og á hrós
skilið. Sömuleiðis Laddi, hann bregst
ekki frekar en fyrri daginn og kemur
með ómissandi skemmtun inn í Bíla
sem Krókur. En of mikil lengd og of
margir ófyndnir karakterar eru gall-
ar við annars vandaða fjölskyldu-
mynd.
Bakgrunnur Bíla er kappakstur,
þar sem verðlaunin eru hinn eft-
irsótti Pistonbikar. Myndin hefst á
að þrír bílar koma jafnt í markið, ein-
hvers staðar á austurströndinni.
Einn þeirra er aðalsöguhetjan, Leift-
ur McQueen, og heldur hann ásamt
öðrum keppendum vestur yfir meg-
inlandið til að útkljá keppnina í nýj-
um kappakstri. Leiftri er stungið inn
í flutningabílinn Makka, sem brennir
með kappann yfir slétturnar miklu
og allt í sómanum uns Leiftur skopp-
ar út úr flutningabílnum á miðri leið,
lendir á þjóðvegi 66 og hafnar í vond-
um málum í smábænum Vatns-
kassavin – Radiator Springs.
Þjóðvegur 66 var á sínum tíma að-
alumferðaræðin þvert yfir Bandarík-
in, og fyrsti sem var malbikaður. Síð-
an komu nýrri og beinni hraðbrautir
og margir bæir við 66 gleymdust og
urðu að e.k. draugaplássum, og eru
fyrirmynd Vatnskassavinjar. Bak-
grunnurinn hentar vel háamerísku
umfjöllunarefninu og hvað sem ýmsu
öðru líður eru flestir karakterar
myndarinnar harla nýstárlegir. Sú
hugmynd að nota gamalfræga
Chevrolet-, Pontiac-, Dodge-, Mack-,
Peterbuilt-, Fiat-, Hudson- og
Porschebíla, svo nokkrar tegundir
séu tíndar til, er afbragðsgóð. Á hinn
bóginn hefði Lasseter mátt gæða
handritið betri bröndurum og stytta
nokkur langdregin atriði.
Útlitslega stendur Bílar hvergi að
baki öðrum verkum leikstjórans,
sem er byrjaður á Leikfangasögu 3.
Hins vegar er ólíklegt að fleiri mynd-
ir verði gerðar um bíla, og alveg
örugglega ekki um þann einsleita
flota sem nú flæðir um göturnar og
fær mann til að trega gömlu amer-
ísku kaggana og tryllitæki bernsk-
unnar, sem setja svo skemmtilegan
svip á Bíla.
Ób
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Háskólabíó
Teiknimynd. Leikstjóri: John Lasseter.
Bandarísk talsetning: Aðalraddir: Owen
Wilson, Paul Newman, Bonnie Hunt, Larry
the Cable Guy, Cheech Marin, Tony
Shalhoub, Jenifer Lewis, Paul Dooley,
George Carlin, o.fl. Íslensk talsetning:
Leikstjóri: Júlíus Agnarsson. Þýðandi:
Kristrún Hauksdóttir. Tónlistarstjórnun:
Björn Thorarensen. Aðalraddir: Atli Rafn
Sigurðarson, Harald G. Haralds, Katla
María Þorgeirsdóttir, Þórhallur Sigurðs-
son, Hjálmar Hjálmarsson, Bergur Ingólfs-
son, Hanna Karlsdóttir, Pétur Einarsson,
Valdimar Flygenring, Guðmundur Ólafs-
son, o.fl. 115 mín. Bandaríkin 2006.
Bílar (Cars) Sæbjörn Valdimarsson
Í dómi segir að Harald G. hafi sjaldan gert betur síðan í Þórscafé í den.