Morgunblaðið - 25.06.2006, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 25.06.2006, Blaðsíða 56
56 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA STAFRÆ SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 2 - 4 - 6 - 8 CARS M/ENSKU TALI kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 SLITHER kl. 10 B.I. 16.ÁRA. CARS M/ENSKU TALI kl. 3:30 - 6 - 8:30 - 11 BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 3:30 - 4:45 - 6 - 7:15 - 8:30 KEEPING MUM kl. 3:30 - 6 - 8:20 - 10:30 B.I. 12.ÁRA. THE POSEIDON ADVENTURE kl. 4 - 6:10 - 8:20 - 10:30 B.I. 14.ÁRA. MI : 3 kl. 9:30 - 11 B.I. 14.ÁRA. BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 1 - 3:15 - 5:30 - 8 SHE'S THE MAN kl. 1 - 3:15 - 5:30 KEEPING MUM kl. 8 - 10:10 B.I. 12 ÁRA 16 BLOCKS kl. 10:15 B.I. 14 ÁRA FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR ENDURGERÐINA AF „DAWN OF THE DEAD“ eee VJV, Topp5.is FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM" HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA. eee V.J.V.Topp5.is FRÁ J.J. ABRAMS, HÖFUNDI LOST OG ALIAS FRÁ FRAMLEIÐENDUM „THE INCREDIBLES“ & „LEITIN AÐ NEMO“ NÝJASTA MEISTARAVERKIÐ FRÁ PIXAR SEM ALLIR ERU AÐ TALA UM. VINSÆLASTA MYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ. SÝNDI BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝNDI BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI eee S.V. MBL. eee L.I.B. Topp5.is eee Kvikmyndir.is S.U.S. XFM eeee VJV, Topp5.is Menn nálgast tónlist úrýmsum áttum og út-koman er ekki alltaffyrirsjáanleg, ekki einu sinni hljómsveitarmönnum sjálfum. Þannig var því til að mynda farið með bandarísku rokksveitina Mid- lake sem byrjaði í sjóðandi fönki en tók síðan snarpa beygju í fram- úrstefnulegt dægilegt rokk í mýkri kantinum. Sú beygja var affarasæl því nýjasta plata Midlake, The Tri- als of Van Occupanther, er með því besta sem komið hefur út árinu og á örugglega eftir að lenda á árslistum víða. Fönkað af stað Midlake er ættuð frá Denton í Texas og varð til er nemendur í djasstónlist settu saman hljómsveit til að spila fönk. Nú er það einn af helstu eiginleikum fönktónlistar að alla jafna er meira gaman að spila hana en hlusta á og fer því litlum spurnum af frammistöðu Midlake- manna á fönksviðinu. (Til fróðleiks má nefna aðra fræga sveit frá Den- ton, Explosions In The Sky, og eins samdi John Darnielle (Mountain Goats) frægt lag: „The Best Ever Death Metal Band in Denton“.) Sveitin var þannig skipuð á þess- um tíma að Tim Smith blés í saxófón, söng, lék á gítar og hljómborð, McKenzie Smith lék á trommur, Paul Alexander á bassa, Eric Nic- helson á gítar og Evan Jacobs á hljómborð, en sveitina kölluðu þeir The Cornbread All-Stars framan af. Fönkið bráði af mönnum með tím- anum og svo kom að þeir félagar ákváðu að venda sínu kvæði í kross, leggja blásturshljóðfærum og fara að spila poppað rokk. Um líkt leyti hætti Evan Jacobs og Eric Nichel- son færði sig á hljómborðin en nýr gítarleikari í sveitinni var Jason Upshaw. Þannig skipuð tók sveitin til við að æfa ný lög sem Smith dældi frá sér og hljóðritaði þá til að mynda talsvert af lögum sem aldrei var gef- ið út. Þetta var árið 2000, en 2001 gekk Upshaw úr skaftinu og Eric Pulido kom í hans stað. Þannig hefur liðskipan verið síðan. Fyrsta útgáfan var stuttskífan „Milkmaid Grand Army“ sem Mid- lake-félagar gáfu út sjálfir 2001 og seldu í einhverjum þúsundum ein- taka. Þar næst kom Bamnan and Sli- vercork, fyrsta breiðskífan, sem breska fyrirtækið Bella Union gaf út, en platan var tekin upp að mestu í heimahúsi í Denton. (Eiganda Bella Union, Simon Raymonde, þekkja ef- laust margir en hann lék á bassa í Cocteau Twins.) Kíkt í koll einsetumanns Fyrir einhverjar sakir hefur Mid- lake gengið betur í Evrópu en í heimalandi sínu, en menn eru smám saman að taka við sér þar í landi líka. Önnur breiðskífa Midlake, The Trials of Van Occupanther, sem er kveikjan að þessum skrifum, kom svo út í byrjun mánaðarins, en hún var hálft annað ár í smíðum. Ekki er einfalt að lýsa tónlist Mid- lake, en þeir sem reynt hafa eru gjarnir á að líkja henni við Mercury Rev og Flaming Lips. Lögin eru áferðarfalleg, léttsýrð, þægileg og um leið innhaldsrík, raddir mikið notaðar og smekklega farið með hljómborð og ýmis áhrifshljóð. Minnir óneitanlega nokkuð á tónlist þjóðlagarokksveita áttunda áratug- arins, en það er víst með vilja gert. Inntak texta á plötunni er sérstakt svo ekki sé meira sagt, því þeir eru ortir eins og lýsing á hugarástandi einsetumanns um miðja þarsíðustu öld, Van Occupanther, sem gengur í gegnum ýmsar þrengingar án þess að átta sig á hvað sé eiginlega í gangi. Léttsýrt þjóðlagarokk Denton-hljómsveitin Midlake. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Mikið hefur verið látið með bandarísku hljóm- sveitina Midlake að undanförnu og að vonum, því ný plata hljómsveitarinnar er með því besta sem heyrst hefur á árinu. Íslandsvinurinnog fyrrver- andi leiðtogi bresku rokksveit- arinnar Pink Floyd, Roger Waters, hvatti stjórnvöld í Ísrael til þess í gær- kvöldi að rífa aðskilnaðarmúrinn, sem verið er að reisa á herteknu svæð- unum á Vesturbakkanum. Waters hélt tónleika í bænum Neveh Shalom fyrir um 50 þúsund gesti. „Við þurfum á því að halda að þessi kynslóð Ísraelsmanna rífi niður múrana og friðmælist við nágranna sína,“ sagði Waters. Waters, sem er 63 ára, nýtur mik- illa vinsælda og virðingar á þessu svæði og lag Pink Floyd, „Another Brick in the Wall“, hefur orðið eins- konar tákn andstöðu við aðskiln- aðarmúrinn á Vesturbakkanum. Ummæli Waters hafa einnig verið harðlega gagnrýnd í Ísrael og á vef- síðu ísraelska blaðsins Haaretz birt- ust nærri 300 athugasemdir lesenda við frétt um tónleikana, þar sem Wat- ers var m.a. kallaður fífl og guðlast- ari. „Ég býst við að hann vilji að herir sjálfsmorðingja ráðist á Ísrael og sprengi sjálfa sig og lítil börn í loft upp á hverjum degi,“ segir lesandi í New York. „Hann hefur aldrei verið í ísraelskum strætisvagni, það hefur aldrei verið skotið á hann, hann hefur aldrei séð Qassam (palestínska eld- flaug) stefna á sig. Bless, Roger.“ „Haltu tónleika í Sádi-Arabíu og fræddu okkur síðan um kúgun,“ segir annar. Waters skoðaði aðskilnaðarmúrinn fyrir tónleikana í gær og skrifaði hluta úr texta lagsins „Another Brick in the Wall“ á hann. Upphaflega stóð til að Waters héldi tónleika í Tel Aviv en hann flutti þá til Neveh Shalom, nálægt Jerúsalem, þar sem bæði gyðingar og arabar búa, eftir að Palestínumenn gagn- rýndu að hann ætlaði að leika í Ísrael. Fólk folk@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.