Morgunblaðið - 26.06.2006, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.06.2006, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hvolsvöllur | „Það má segja að ég sé landsfræg að tvennu leyti. Ég var ein af þeim fyrstu á landinu til að fara í mjaðmaskiptaaðgerð og að- gerðin var gerð báðum megin í einni og sömu svæfingunni. Þessi aðgerð hefur enst í 36 ár og er ég eina manneskjan á landinu með mjaðma- liði sem hafa enst svona lengi. Í dag er sett plast í fólk og mér er sagt að þær aðgerðir endist í 16 ár. Því fólki vorkenni ég.“ Svo mælir afmælisbarn dagsins, Ingibjörg Jónsdóttir frá Miðkoti í Vestur-Landeyjum, sem er 100 ára í dag, en hún hélt upp á afmælið sitt í gær í Félagsheimilinu Hvoli að við- stöddu fjölmenni. Ingibjörg er ótrú- lega ern. Hún hefur afar gott minni og fulla heyrn en sjónin hefur dapr- ast dálítið. Ingibjörg býr á Dval- arheimilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli en þangað flutti hún fyrir 16 árum. Hún sér um sig sjálf, býr um rúmið sitt og fer daglega í gönguferðir. Ingibjörg er sterkur persónuleiki, afar hávaxin af sinni kynslóð að vera og mikil myndarkona. Hún ólst upp í Miðkoti í Vestur-Landeyjum en 15 ára fór hún til Reykjavíkur. „Ég fór reyndar fyrst til Reykja- víkur 3 ára gömul. Þá fóru foreldrar mínir með mig og systur mínar því að móðurömmu mína langaði svo til að sjá okkur krakkana. Þá tók ferðalagið 3 daga, ferðast var á hestum og var gist í tjöldum á leið- inni. Ég gekk þá yfir brúna yfir læk- inn í Lækjargötu, og það eru nú ekki margir Íslendingar á lífi sem það hafa gert. Fimmtán ára veiktist ég af berklum sem ekki voru smit- andi. Ég var búin að vera með hita í heilan vetur þegar ég fór til Reykja- víkur. Þar fór ég í ljós sem kölluð voru kolbogaljós, hjá lækninum mínum sem hét Gunnlaugur Claes- sen. Ég gekk daglega í heilt ár vest- an úr bæ og niður á Lækjargötu og að endingu batnaði mér. Móð- ursystir mín, Ingibjörg Ísaksdóttir, tók mig inn á sitt heimili. Hún lét mig ekki fara á Vífilsstaði. Henni þakka ég líf mitt. Þau hjónin Ingibjörg og Jón Magnússon voru mikil myndarhjón og hjálpuðu mörgum. Á heimili þeirra, Lindarbrekku, var ég í 15 ár og mér þykir svo vænt um þennan stað að sl. fjögur vor hef ég farið og fengið að skoða hann. Þangað er ég alltaf boðin velkomin. Annars hlýt ég að hafa verið afar sterkbyggð. Ég hef farið í margar aðgerðir um ævina, ýmislegt hefur verið tekið úr mér en annað lagfært. En eftir að ég læknaðist af berklunum fór ég að vinna. Ég vann í síld og saltfiski, m.a. á Siglufirði og í Vestmanna- eyjum og einnig var ég í kaupa- vinnu. Svo lærði ég kjólasaum og vann við að sauma. Á þessum tíma var ekkert flutt inn, allt varð að búa til,“ segir Ingibjörg. Með lækningahæfileika Árið 1946 giftist hún Óskari Guð- mundssyni frá Fíflholti í Vestur- Landeyjum og fluttist Ingibjörg þangað og eignaðist tvö börn, Ró- bert sem býr í Bandaríkjunum og Guðrúnu sem býr á Hvolsvelli. „Eftir þetta bjuggum við sveitabúskap í 30 ár. Í minni móð- urætt eru miklir lækningahæfi- leikar og margir sem eru læknar, hjúkrunarfræðingar og ljósmæður. Þessa hæfileika hafði ég og notað mikið í sambandi við búskapinn, en einnig til að hjálpa fólki. Ég hef t.d tekið á móti tveimur börnum. Áður en læknar komu til starfa hér hjálp- aði afi minn, Ísak frá Miðkoti, mörgu fólki. Hann og allt mitt fólk hefur læknishendur.“ En hverju þakkar Ingibjörg lang- lífið. ,,Það er hvað ég vann mikið við erfiðisvinnu og svo íslenska sveita- fæðið. Þessi matur fór best með gamla fólkið. Þessi pastamatur sem unga fólkið borðar núna er ekki góð undirstaða. Erfiðisvinnan styrkti okkur svo mikið, þetta var ótrúleg þrælavinna miðað við það sem nú er, nú eru vélar til að vinna öll verk.“ Ingibjörgu finnst mannlífið hafa tekið miklum breytingum frá því sem áður var. „Nú hefur enginn tíma til að gera neitt, fólk er alltaf með símann við eyrað og má ekki vera að því að sinna öðrum. Í gamla daga var miklu meira talað saman, ættfræðin var það sem helst bar á góma og þá voru allir vel að sér um ættir og fólk. Þegar ég flutti á Hvolsvöll var ég alltaf í heimsókn- um enda þekkti ég svo marga og kynntist líka mörgum í gegnum fé- lagsstarf. Núna er allt mitt frænd- fólk og vinir komið í jörðina.“ Ingibjörg hefur ferðast mikið um dagana. „Eftir að við fluttum á Hvolsvöll þá fórum við hjónin að ferðast. Ég hef skoðað allt Ísland og sumt af því bæði af sjó og landi. Ég hef líka farið til Bandaríkjanna en þegar ég var 85 ára fór ég og heim- sótti son minn. Ég sá þá Niagara- fossana sem mér fannst stór- fenglegt. Flugið fannst mér langt en það tók eina sjö tíma. Þetta er nú í eina skiptið á ævinni sem ég hef far- ið til útlanda.“ Spáir ekki vel fyrir nýrri öld Að lokum var Ingibjörg spurð að því hvernig henni lítist á nýju öld- ina. „Ég spái ekki vel fyrir nýju öld- inni og ég skal segja þér að það er út af peningagræðginni. Héðan fer enginn með neitt. Þegar að þessir menn koma til Lykla-Péturs með milljarðana á bakinu þá mun hann hleypa þeim inn eins og öðrum. En hann tekur ekki við peningunum þeirra, það eina sem tekið er mark á þar eru góðverkin sem við gerum í lífinu, það er það sem skiptir máli og þessir menn hafa ekki verið mikið í því að gera góðverk.“ „Það sem skiptir máli eru góð- verkin sem við gerum í lífinu“ Morgunblaðið/Steinunn Ósk Afmælisbarn dagsins, Ingibjörg Jónsdóttir, fremst í hópi afkomenda sinna í afmælisveislunni í Hvoli í gær. Ingibjörg Jónsdóttir á Hvolsvelli fagnar 100 ára afmæli í dag Eftir Steinunni Ósk Kolbeinsdóttur VALGERÐUR Sverrisdóttir utan- ríkisráðherra ræddi símleiðis við starfssystur sína í Bandaríkjunum, Condoleezzu Rice, á laugardag. Rice hafði samband við Valgerði upp úr hádeginu og áttu þær stutt samtal. Rice óskaði Valgerði til hamingju með að vera orðin utanríkisráðherra og fullvissaði jafnframt Valgerði um að Bandaríkin mundu áfram leggja áherslu á varnarsamninginn og varn- ir Íslands. „Hún hringdi í mig fyrst og fremst til þess að óska mér til hamingju með starf utanríkisráðherra. Svo minntist hún á það að hún vissi að hér hefðu orðið miklar framfarir í íslensku efna- hagslífi. Það hefði í raun tekið stakka- skiptum á undanförnum árum, og að ég hefði átt hlut að máli,“ sagði Val- gerður í samtali við fréttavef Morg- unblaðsins. Valgerður sagðist hafa vikið að varnarviðræðunum í samtalinu við Rice. „Hún fullvissaði mig um, eins og bandarísk stjórnvöld hafa gert áður, að Bandaríkin mundu leggja áfram áherslu á varnarsamninginn og varn- ir Íslands,“ sagði Valgerður og bætti því við að þessi afstaða Rice hefði ekki komið henni á óvart. Valgerður sagði að þær hefðu ekki rætt nánar um varnarmálin utan að hún hefði minnst á það að næsti fund- ur í varnarviðræðunum yrði 7. júlí nk., og sagði Valgerður að hún von- aðist til þess að þar gætu menn tekið skref fram á við. „Hún tók undir það,“ sagði Valgerður varðandi viðbrögð Rice. Aðspurð sagði Valgerður að banda- ríski utanríkisráðherrann myndi ekki koma með beinum hætti að varnar- viðræðunum. Þær yrðu áfram í hönd- um þeirra samninganefnda sem hafa hist. Hittast í Lettlandi í haust Valgerður vék að því að hún og Rice myndu hittast á ráðherrafundi NATO í Ríga í Lettlandi í haust. „Ég nefndi það líka að hún væri mjög vel- komin til Íslands og hún tók því vel. Hún sagðist hafa áhuga á því að koma til Íslands, og sagði jafnframt að ég væri velkomin til Bandaríkjanna,“ sagði Valgerður og bætti því við að þetta hefði verið mjög þægilegt spjall. „Mér þótti mjög vænt um það að hún skyldi hringja. Ég tel að það sé ekki mjög algengt að utanríkisráð- herrar Bandaríkjanna séu að hringja í íslenska ráðamenn,“ sagði Valgerð- ur og bætti því við að það gæti haft eitthvað með það að gera að hún væri kona. Valgerður Sverrisdóttir fékk símtal frá Condoleezu Rice Bandaríkin leggja áfram áherslu á varnir Íslands Eftir Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.is Condoleezza Rice Valgerður Sverrisdóttir SLÖKKVILIÐIÐ var ræst út í fyrrinótt eftir að eiturgufur fóru að myndast á heimili í vestur- bænum. Gufurnar mynduðust þegar tveimur ólíkum gerðum af stíflueyðum var blandað saman, en við það urðu efnahvörf og fljótt fór að krauma í blöndunni. Að sögn Slökkviliðs höfuð- borgarsvæðisins sakaði engan, en í húsinu voru börn og komu húsráðendur þeim út og höfðu samband við slökkvilið sem ræsti húsið. Slökkviliðið vill benda fólki á það að vera ekki að blanda saman ólíkum efnum enda er oftast um afar kröftug og eitruð efni að ræða. Þá var slökkviliðið kallað út í morgun eftir að eldur hafði komið upp í timburhúsi í Hafn- arstræti í Reykjavík. Að sögn SHS var eldurinn ekki mikill og eldurinn var fljótt slökktur. Engan sakaði. Talið er að eld- urinn hafi myndast út frá ofni. Eiturgufur mynduðust við blöndun tveggja stíflueyða TVEIR voru fluttir á sjúkrahús í fyrrinótt eftir að bíll sem þeir voru í skall á hús á Blönduósi. Að sögn lögreglu mun bifreiðin hafa verið á miklum hraða þegar slysið varð og er ökumaður grunaður um ölvunar- akstur. Ekki er vitað hve alvarleg meiðsl mannanna eru. Er þetta í þriðja sinn sem ekið er á sama húsvegginn í bænum, en um er að ræða gamla kaupfélagshúsið sem stendur við beygju á leiðinni fyrir víkina. Ekið á hús í þriðja skipti ENN stendur yfir söfnun undir- skrifta fyrir því að aðalíþrótta- leikvangur Akureyrar verði áfram Akureyrarvöllur, en til stendur að reisa þar verslunarhúsnæði. Matthías Ó. Gestsson fer fyrir hópi fólks sem segist vilja sjá Ak- ureyrarvöll sem framtíðarsvæði fyrir íþróttahátíðir, mannfagnaði og stórleiki í knattspyrnu. Vill hóp- urinn að völlurinn verði stækkaður og gerður að frjálsíþróttavelli með átta hlaupabrautum og knatt- spyrnuvelli inni í hringnum. Myndi völlurinn uppfylla evrópska staðla. „Það er mikilvægt að Akureyr- ingar sýni að þeir geti verið já- kvæðir og stórhuga eins og það fólk sem byggði Samkomuhúsið og Menntaskólann fyrir hundrað ár- um,“ segir Matthías. Frestur til að skila inn at- hugasemdum vegna fyrirhugaðra breytinga á vallarsvæðinu rennur út þann 28. þessa mánaðar klukkan 16. Morgunblaðið/ÞÖK Matthías Ó. Gestsson fer aldrei langt án myndavélarinnar og er bif- reið hans skreytt myndum eftir hann sjálfan. Baráttunni ekki lokið hjá Matthíasi UM tugur slökkviliðs- og lögreglu- manna barðist við sinueld sem kviknaði í Fossatúni við Borgarnes í gær. Að sögn lögreglu barst til- kynning um eldinn skömmu eftir kl. þrjú og var lögregla og slökkvilið komið á staðinn um tíu mínútum síðar. Þeir beittu klöppum til þess að slökkva eldinn og tók það rúman klukkutíma að ráða niðurlögum hans. Að sögn lögreglu brann um 7.500 fermetra svæði. Grunur leikur á að eldurinn hafi kviknað út frá rafmagnslínu, en verið var að halda tónleika á svæð- inu og þar varð rafmagnslaust. Lögregla segir að hvorki fólk né hús hafi verið í hættu. Sinueldur í Borgarnesi VARAFORSETI kínverska ráðgjaf- arþingsins, Zhang Meiying, kom til landsins í gær í heimsókn er stend- ur fram á miðvikudag. Í för með henni er sjö manna sendinefnd. Zhang Meiying mun eiga fundi með forseta Íslands, forseta Alþingis og félagsmálaráðherra. Þá heimsækir hún Þingvelli og fer í skoðunarferð um Suðurland og Reykjanes. Heimsókn frá Kína

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.