Morgunblaðið - 26.06.2006, Page 15

Morgunblaðið - 26.06.2006, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2006 15 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Kynntu þér stóru, sterku og fallegu tjaldvagnana frá Camp-let, uppáhalds ferðafélaga Íslendinga um áratuga skeið! ... og fríið verður frábært með Camp-let Kletthálsi 13 // s. 587 6644 // www.gisli.isUmboðsmaður á Akureyri: Bílasalinn.is // Hjalteyrargötu 2 Savanne er nýr og spennandi kostur frá Camp-let Áfast fortjald Gott rými Pottþéttur tjalddúkur Áföst eldhúseiningLéttur en nýðsterkur Hár tjaldvagn á 13" dekkjum ÞRÍHLIÐA samningur ASÍ, SA og ríkisins um breytingar á kjarasamn- ingum mun að öllum líkindum leiða til aukinnar verðbólgu, að minnsta kosti tímabundið ef ekki til lengri tíma. Er þetta mat greiningardeilda viðskipta- bankanna þriggja. „Hins vegar er vert að hafa í huga að samkomulagið felur í sér umtalsverðar launahækk- anir strax í næsta mánuði sem gæti aukið enn á verðbólguþrýsting í hag- kerfinu sem er mjög mikill um þessar mundir. Í samkomulaginu eru tals- vert ströng skilyrði sett um þróun verðlags sem gæti reynst erfitt að viðhalda,“ segir í Hálffimmfréttum greiningardeildar KB banka, og segir þar að talsverð hætta sé á því að auknar launahækkanir á næstu mán- uðum leiði tímabundið til aukins verðbólguþrýstings í kjölfar fyrr- greinds samkomulags. Til langs tíma litið ætti samkomulagið hins vegar að tryggja aukinn stöðugleika og draga úr óvissu enda ljóst að uppsögn kjarasamninga hefði verið mjög óheppileg fyrir íslenskt efnahagslíf. Segja merki um minna aðhald Í Vegvísi Landsbankans kveður hins vegar við annan og öllu svart- sýnni tón. Segir þar að samkomulag- ið eitt og sér dugi engan veginn til að endurheimta stöðugleikann. Verð- bólga hjaðni ekki nema verulega dragi úr innlendri eftirspurn, sem þýði að útgjöld hins opinbera verði að dragast saman. Er þar bent á að verðbólguálag á fjármálamarkaði sýni vantraust markaðarins á að verðbólgan veðri hamin í bráð. Þetta þarf ekki að koma á óvart í ljósi þess að samkvæmt áætlunum fjármálaráðuneytisins sjálfs, sem sett var fram á þriðjudag- inn, stendur til að minnka tekjuaf- gang hins opinbera úr 3,2% af lands- framleiðslu í fyrra í 1,9% í ár og -1,4% á næsta ári. Þetta eru skilaboð um minna hagstjórnaraðhald, en ekki meira,“ segir í Vegvísi Landsbank- ans. Í Morgunkorni greiningardeildar Íslandsbanka segir að við núverandi aðstæður séu miklar líkur á því að hækkanirnar endi í aukinni verð- bólgu og skili þar með litlu sem engu í auknum kaupmætti. „Segja má að gjaldið sem greitt er fyrir frið á vinnumarkaði sé því að líkindum meiri verðbólga og hraðari launa- hækkanir,“ segir í Morgunkorninu. Samningur leiðir til aukins verð- bólguþrýstings mætir úr hópi varamanna,“ segir í grein 3.3 í starfsreglunum. Áslaug segir að reglan í starfs- reglunum endurspegli hins vegar þá sérstöku og óvenjulegu reglu ís- lensku hlutafélagalaganna sem tryggir minnihluta hluthafa rétt á að velja mann í stjórn ólíkt því sem gildir í nágrannalöndum okkar þar sem meirihlutinn ræður öllum stjórnarmönnum. „Í ljósi þess að stjórnir íslenskra hlutafélaga eru iðulega skipaðar bæði fulltrúum meiri og minni hluta er eðlilegt að í framkvæmd eða starfsreglum stjórnar sé þess gætt að sá sem tekur sæti í forföllum stjórnar- manns hafi verið valinn af sama hópi hluthafa og aðalmaðurinn sem MÁL stjórnarfundar Straums- Burðaráss, sem haldinn var í síð- ustu viku, getur oltið á því hvort talið verður að venja hafi skapast innan félagsins um að varamenn séu fulltrúar ákveðinna stjórnar- manna eða ekki, að því er Áslaug Björgvinsdóttir, dósent við laga- deild Háskólans í Reykjavík, seg- ir. Tveir stjórnarmenn, Kristinn Björnsson og Magnús Kristinsson, telja fundinn hafa verið ólöglegan vegna þess að Páll Magnússon, sem einnig situr í stjórninni, til- nefndi annan varamann til setu fyrir sig á fundinum en hann hafði áður gert. Áslaug segir ákvæði laga ekki taka á álitaefninu með skýrum hætti. „Hvorki lög um fjármálafyrir- tæki né hlutafélagalögin hafa að geyma reglur um að tiltekinn varamaður skuli valinn fyrir hvern og einn stjórnarmann, og ríkir því samningsfrelsi um þessa skipan. Skýrlega er þó kveðið á um það í 71. gr. hlutafélagalaga að ef stjórnarmaður forfallast og valinn hafi verið varamaður skuli honum veittur kostur á þátttöku á stjórn- arfundum meðan forföllin vara.“ Viðmið, ekki regla Af hálfu Björgólfs Thors hefur því verið haldið fram að þar sem Páll Magnússon hafi með bréfi til formanns stjórnar sérstaklega til- nefnt Birgi sem sinn varamann hafi hann þar með falið Birgi at- kvæði sitt. Það að tilteknir vara- menn ættu að leysa tiltekna stjórnarmenn af hólmi hafi verið viðmið en með því hefði ekki verið ákveðið í eitt skipti fyrir öll hvaða varamaður kæmi inn. Stjórnarmenn hafi samkvæmt starfsreglum stjórnar heimild til að tilnefna varamenn og aldrei hafi verið litið svo á að þeir væru að afsala sér þeim rétti, þótt ákveðin viðmið væru sett varðandi varamenn. Í starfsreglum stjórnar segir um þetta atriði að varamenn skuli taka sæti aðalmanna í forföllum þeirra. „Stjórnarmenn ákveða hvaða varamenn taki sæti í sínum forföllum. Hver stjórnarmaður skal tilnefna einn varamann úr hópi varamanna sem taka skal sæti í fjarveru hans. Forfallist til- nefndur varamaður ákveður for- maður stjórnar hvort og þá hver er forfallaður,“ segir Áslaug. Bendir hún hins vegar á að stjórnarmaður er ekki bundinn af fyrirmælum hluthafans sem valdi hann í stjórn, heldur ber honum að taka ákvarðanir með hagsmuni fé- lagsins að leiðarljósi. Morgunblaðið/Kristinn Aðalfundur Björgólfur Thor Guðmundsson, Þórður Már Jóhannesson og Magnús Kristinsson á aðalfundi straums í vor. Þórði Má var svo sagt upp störfum á hinum umdeilda stjórnarfundi og hafa þeir Magnús og Björg- ólfur tekist á um lögmæti þess. Straumsmál getur snúist um venjurétt Eftir Árna Helgason og Bjarna Ólafsson FINNUR Geirsson, varamaður í stjórn Straums-Burðaráss, var ekki boðaður á stjórnarfund fé- lagsins á miðvikudag þar sem Þórði Má Jóhannessyni var sagt upp störfum. Finnur hefur verið varamaður Páls Magnússonar, sem komst ekki á fundinn, en ekki var leitað til Finns heldur Birgis Más Ragnarssonar, framkvæmdastjóra Samson, sem sótti fundinn. Birgir er einnig í hópi varamanna en hef- ur vanalega leyst Björgólf Thor Björgólfsson af hólmi á fundum. Hann var hins vegar boðaður á stjórnarfundinn án þess að leitað væri til Finns fyrst. Páll Magn- ússon sendi Björgólfi Thor bréf þar sem hann óskaði sérstaklega eftir því að Birgir myndi sækja fundinn fyrir sína hönd. Í samtali við Morgunblaðið stað- festi Finnur að hann hefði ekki verið boðaður og að hann vissi ekki annað en hann ætti að vera varamaður Páls Magnússonar. Spurður hvort honum þætti ekki undarlegt að hann væri ekki boð- aður, sagðist Finnur ekki vilja tjá sig um það. Finnur var ekki boðaður á stjórnarfund BANDARÍSKA vefleitarfyrirtækið Google hefur selt hlut sinn í kín- versku leitarvélinni Baidu, sem einn- ig er helsti keppinautur Google á Kínamarkaði. Google hafði keypt 2,6% hlut í kín- verska fyrirtækinu áður en Google var skráð á markað árið 2005. Baidu er leiðandi á kínverska vefleitar- markaðnum og hefur Google átt á brattann að sækja þar, en segir að salan á bréfunum sé til merkis um að fyrirtækið ætli að einbeita sér enn frekar að eigin verkefnum í Kína. Kína er það land sem er með næst- flesta netnotendur á eftir Bandaríkj- unum, eða yfir eitt hundrað milljónir manna. Google, sem og önnur erlend fyrirtæki, sér mikil vaxtartækifæri í Kína, en undirgefni þeirra við kín- versk yfirvöld þegar kemur að rit- skoðun og eftirliti með netnotendum hefur skaðað ímynd fyrirtækjanna. Google virðist hafa grætt dálag- lega á kaupunum í Baidu, en hlutur sem Google keypti á fimm milljónir bandaríkjadala í fyrra var á miðviku- dag seldur fyrir ríflega sextíu millj- ónir dala. Google selur hlut sinn í kínverskum samkeppnisaðila Reuters EINS og flestir vita stendur heims- meistarakeppnin í knattspyrnu nú yfir og hafa verið leiknir 46 leikir af 64. Keppnin hefur haft áhrif á marga geira atvinnulífsins og haft er eftir Angelu Merkel, kanslara Þýska- lands, að heimurinn hafi ekki veitt Þýskalandi svo mikla athygli síðan Berlínarmúrinn féll fyrir 16 árum, að því er segir í Vegvísi Landsbankans. Þjóðverjar vona að keppnin hjálpi til við að koma hagkerfinu af stað en atvinnuleysi þar í landi er mjög mik- ið (mældist 10,8% í maí) og hagvöxt- ur lítill (0,9% í fyrra). Keppnin mun skapa 60.000 störf í Þýskalandi og er þriðjungur þeirra talinn varanlegur. Þá hafa sérfræðingar áætlað að keppnin gæti aukið hagvöxt um 0,2% sem er talsvert miðað við áætlaðan heildarhagvöxt upp á 1,8%. Einnig hafa ráðamenn hrint af stað stórri markaðsherferð þar sem tilgangur- inn er að auglýsa landið sem góðan stað til fjárfesta. Ráðgert er að um ein milljón ferðamanna leggi leið sína til Þýska- lands meðan á keppni stendur og bú- ast þýskir verslunarmenn við að aukning einkaneyslu vegna keppn- innar muni nema um 2,6 milljörðum Bandaríkjadala. Þegar keppnin var haldin í Japan og Suður-Kóreu fyrir fjórum árum var beinn efnahagsleg- ur ávinningur S-Kóreu af keppninni metinn á 4,1 milljarð dala. Hagnast á HM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.