Morgunblaðið - 26.06.2006, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2006 29
HESTAR
-o
rð
sku
lu
stan
d
a!
Bókaðu
gæði
og gott
verð!
569 7200
www.isprent.is
ÁVERKASKOÐUN verður nú
gerð á keppnishestum í fyrsta
sinn á Landsmóti hestamanna í
Skagafirði. Í tilkynningu frá LH
segir: „Öll keppnishross verða
skoðuð áður en þau fara inn á
völlinn, ástand þeirra kannað og
munnur skoðaður með tilliti til
áverka. Skoðunin fer fram við
fótaskoðun og er sérstaklega litið
til þess hvort hross eru með sár,
mar eða áverka í og við munn.
Þeir hestar sem komast í úrslit
verða svo skoðaðir ítarlegar fyrir
úrslitakeppnina.“
Starfsmenn yfirdýralæknisemb-
ættisins annast skoðunina. Með
henni fæst yfirsýn yfir ástand
keppnishrossa almennt með til-
liti til dýraverndar en sam-
kvæmt 6. grein dýraverndarlaga
mega eingöngu heilbrigð hross
taka þátt í keppni. Reynist ein-
hver hross með alvarlega áverka
verða þau mál tekin fyrir.
„Markmið skoðunarinnar er
að huga að hagsmunum
hrossanna og um leið að fá
áþreifanlegar niðurstöður um
útbreiðslu áverka á keppn-
ishrossum. Það er von LH að
með þessu megi enn frekar auka
velferð og góða meðferð keppn-
ishrossa og um leið vekja kepp-
endur til umhugsunar um þessa
þætti.“
Áverkaskoðun keppnishesta
ÍSLENSKI hesturinn er óþrjótandi
uppspretta og eilíft yrkisefni lista-
manna. Pabbi, gefðu mér íslenskan
hest er nýtt lag í flutningi hinnar
ástsælu söngkonu Ragnheiðar
Gröndal og verður hægt að fá end-
urgjaldslaust á tónlist.is næstu
daga. Lagið er óður til íslenska
hestsins og er eftir Magnús Guð-
mundsson, fyrrverandi söngvara
hljómsveitarinnar Þeyr, en Friðrik
Erlingsson rithöfundur samdi
texta.
Árni Gunnarsson hefur auk þess
sent frá sér lag tileinkað lands-
mótinu við kvæði Einars Benedikts-
sonar, Fáka, og er hægt að nálgast
það á slóðinni skagafjordur.com.
Lagið er í kántrístíl og er sungið af
Söndru Dögg Þorsteinsdóttur og
Ægi Ásbjörnssyni.
Hestamenn eru kunnir að söng-
gleði og munu án efa fagna þessari
viðbót við lagalistann á lands-
mótinu.
Óður til
íslenska
hestsins
um og Daníel Jónsson og List frá
Vakursstöðum og Hulda Gústafs-
dóttir verða án efa hörð í horn að
taka.
Spenna frá fyrsta degi
Landsmótsgestir sem tínast jafnt
og þétt inn á svæðið á Vindheima-
A- og B-flokkar gæðinga á landsmóti
er í huga margra hápunktur hesta-
mennskunnar á Íslandi og hverjum
sigri í gæðingakeppni fylgir óum-
deild vegsemd.
Þegar litið er yfir hópinn í A-flokki
sem hefur unnið sér þátttökurétt
vekur athygli sterk staða stóðhesta.
Geisli frá Sælukoti og Steingrímur
Sigurðsson eru efstir inn eftir úr-
tökumót hjá hestamannafélögunum
og sem meira er eiga þeir titil að
verja því þeir stóðu efstir fyrir
tveimur árum á Hellu. Annar
A-flokkssigurvegari, Ormur frá Dal-
landi, frá árinu 2000, mætir einnig til
leiks aftur ásamt Atla Guðmunds-
syni. Þokki frá Kýrholti er annar inn
en þátttaka hans í A-flokknum hefur
verið dregin til baka. Aðrir sem lík-
legir eru til að blanda sér í toppbar-
áttuna eru t.a.m. Kolskeggur frá
Oddhóli og Sigurbjörn Bárðarson,
Þóroddur frá Þóroddsstöðum og
Daníel Jónsson og Gári frá Auðs-
holtshjáleigu og Gunnar Arnarson.
Sama staða er uppi í B-flokknum
því þar keppa sigurvegarar frá síð-
asta landsmóti, Rökkvi frá Hár-
laugsstöðum og Þorvaldur Árni Þor-
valdsson. Ísleifur Jónasson kemur
sterkur inn en hann er með tvo af
fimm efstu hestum, Röðul frá Kálf-
holti, sem er efstur, og Gná frá Ytri-
Skógum. Bruni frá Hafsteinsstöðum
og Jón Olsen, Töfri frá Kjartansstöð-
melum eiga skemmtilega tíma fram-
undan, alveg frá kl. 8 í dag til móts-
loka eftir viku. Spennan og
styrkurinn í flokkum barna, ung-
linga og ungmenna svíkur engan,
kynbótahrossin eru feiknasterk,
skeiðgreinar hafa eflst og töltkeppn-
in nýtur einnig mikilla vinsælda.
Staða fimm efstu keppenda inn í
töltið er eftirfarandi: Þórarinn Ey-
mundsson – Kraftur frá Bringu,
Hulda Gústafsdóttir – List frá Vak-
ursstöðum, Þorvaldur Árni Þor-
valdsson – Blíða frá Flögu, Baldvin
Ari Guðlaugsson – Örn frá Gríms-
húsum og Árni Björn Pálsson – Tign
frá Teigi II.
Þrettán ræktunarbú koma fram
nú en ræktunarbússýningar eru eitt
vinsælasta atriði landsmóta. Þau eru
Fet, Fornusandar, Hafsteinsstaðir,
Holtsmúli, Hvítárholt, Litlaland,
ræktun fjölskyldu Ágústs V. Odds-
sonar í Hafnarfirði, Sauðárkróks-
hestar, Varmilækur, Vatnsleysa,
Vestra-Fíflholt, Þingeyrar og Þúfur
(áður Stangarholt).
Síðast en ekki síst skal minnst á
afkvæmasýningarnar. Tveir stóð-
hestar verða sýndir til heiðursverð-
launa fyrir afkvæmi, Hugi frá Haf-
steinsstöðum og Keilir frá Miðsitju,
og sex verða sýndir til fyrstu verð-
launa, Adam frá Ásmundarstöðum,
Glampi frá Vatnsleysu, Hróður frá
Refsstöðum, Markús frá Lang-
holtsparti, Sveinn-Hervar frá Þúfu
og Sær frá Bakkakoti. Hryssur
sýndar til heiðursverðlauna eru
Askja frá Miðsitju, Dúkkulísa frá
Dallandi, Hnota frá Stóra-Hofi, Ís-
old frá Keldudal, Katla frá Miðsitju,
Lukka frá Víðidal, Vaka frá Arnar-
hóli og Vigdís frá Feti.
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Kraftur frá Bringu og Þórarinn Eymundsson láta líklega til sín taka á
landsmótinu en þeir eru efstir inn í tölti og með góða stöðu í A-flokknum.
Nýjar landsmótskempur og
eldri á Vindheimamelum
Fréttir á SMS
Morgunblaðið/Kristinn