Morgunblaðið - 26.06.2006, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2006 33
MENNING
! " #
$$$
%
!"#$ !%
&'( )( * + ,( ) - . /
+.
. 0 + 1 ,*2+, 3
&4(5
( * + ,( ) - . /
Á ÞAKINU
29. júní – Frumsýning Uppselt
30. júní – Uppselt
1.júlí – Uppselt
6.júlí – laus sæti
7.júlí – laus sæti
8.júlí – laus sæti
Miðasalan er í síma 568 8000
www.borgarleikhus.is
www.minnsirkus.is/footloose
VIÐ opnun á sumarsýningu í Lista-
safni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum
á laugardag fór fram afhending úr
Listasjóði Guðmundu S. Krist-
insdóttur á sviði myndlistar. Við-
urkenningu fyrir framlag sitt hlaut
að þessu sinni Hekla Dögg Jóns-
dóttir. Sjóðinn stofnaði myndlist-
armaðurinn Erró til minningar um
frænku sína Guðmundu og er sjóðn-
um ætlað að efla og styrkja list-
sköpun kvenna. Veitt hefur verið úr
sjóðnum árlega ef frá er talið árið í
fyrra og fer framlagið til listakonu
sem þykir skara fram úr. Er þetta í
áttunda sinn sem styrkur er veittur
úr sjóðnum.
Það var Hafþór Yngvason, safn-
stjóri Listasafns Reykjavíkur og for-
maður sjóðsstjórnar, sem afhenti
Heklu Dögg viðurkenninguna. Aðrir
sem skipa sæti í stjórn sjóðsins eru
Ólafur Kvaran, safnstjóri Listasafns
Íslands, og Hannes Sigurðsson, for-
stöðumaður Listasafnsins á Ak-
ureyri.
Listsköpun kvenna efld
Listasjóður Guðmundu S. Krist-
insdóttur frá Miðengi var stofnaður í
tilefni af gjöf Erró á andvirði íbúðar
að Freyjugötu 34, er Guðmunda
hafði arfleitt hann að. Markmið
sjóðsins er að styrkja listakonur með
því að veita árlega framlag til við-
urkenningar og eflingar á listsköpun
kvenna. Sjóðurinn er sjálfseign-
arstofnun í vörslu borgarsjóðs
Reykjavíkur og umsjón með honum
hafa Reykjavíkurborg og Errósafn.
Víðförul listakona
Hekla Dögg útskrifaðist frá Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands árið
1994. Hún var tvö ár sem gistinemi í
Þýskalandi, eitt ár í Kiel og eitt ár í
Frankfurt am Main. Síðan lá leiðin til
Bandaríkjanna þar sem hún lauk
BFA og meistaragráðu (MFA) frá
einum virtasta listaskóla Bandaríkj-
anna, California Institute of the Ar-
sts (Cal Arts).
Síðan 1999 hafa verk Heklu verið
sýnd víða, bæði hérlendis og erlendis.
Hún hefur tekið þátt í samsýningum
í Danmörku, Noregi, Írlandi, Þýska-
landi, Spáni, Kanada, og á bæði aust-
ur- og vesturströnd Bandaríkjanna.
Hekla er einn af stofnendum Kling
og Bang gallerísins, þar sem hún hef-
ur unnið sem sýningarstjóri. Þá hef-
ur hún flutt fyrirlestra og kennt við
Listaháskólann.
Myndlist | Hekla Dögg Jónsdóttir hlýtur Guðmundustyrk
Vel að styrknum komin
Morgunblaðið/ÞÖK
Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur og formaður sjóðs-
stjórnar, afhenti Heklu Dögg viðurkenninguna.
„LÍFIÐ er ekki bara saltfiskur,“
sagði Jón Ásbergsson, fram-
kvæmdastjóri Útflutningsráðs Ís-
lands, í opnunarræðu umræðufundar
um útflutning á íslenskri tónlist sem
fór fram síðastliðinn fimmtudag á
Hótel Sögu. Var hann þá að vísa til
fyrri ummæla sinna þar sem hann
minntist á að gjaldeyristekjur þjóð-
arbúsins af þjónustuliðum, þ.e.a.s. af
ferðaþjónustu, bankastarfsemi,
skipa- og flugstarfsemi og þess hátt-
ar, væri orðnar hærri en af sjáv-
arföngum. Útflutningsráð, sem stóð
fyrir fundinum, hefur með ein-
hverjum hætti reynt að mæta þess-
ari þróun, að sögn Jóns, með því að
ýta undir viðskiptalega þætti skap-
andi starfsemi hvort heldur er hönn-
un, tónlist, myndlist eða hugbún-
aðariðnaður.
Tilgangur fundarins var að fara
yfir þær aðferðir sem nágrannalönd-
in nota til að efla dægurtónlist og út-
flutning hennar, gera grein fyrir því
markaðsátaki sem Útflutningsráð
hefur staðið fyrir í tvö ár í London og
síðan að skoða hugmyndir að sér-
stakri kynningarskrifstofu mennta-
málaráðuneytis fyrir íslenska lista-
menn.
Sem fyrr segir var meginviðfangs-
efnið útflutningur íslenskrar dæg-
urtónlistar en á fundinum voru sam-
an komnir fulltrúar frá íslensku
plötuútgáfufyrirtækjunum og Ice-
land Airwaves ásamt fulltrúum frá
fyrirtækjum og stofnunum sem
koma á einhvern hátt að kynning-
armálum íslenskrar dægurtónlistar.
Mismunandi aðferðir
Fyrst á dagskrá fundarins var
kynning Önnu Hildar Hildibrands-
dóttur á niðurstöðum árangurs af
tveggja ára starfi hennar sem ráð-
gjafa í sérverkefnum á vegum Út-
flutningsráðs. Hún gerði meðal ann-
ars grein fyrir starfi sínu í tengslum
við Iceland Airwaves hátíðina. Auk
þess sagði hún frá samstarfi sínu við
Smekkleysu sem fól í sér að setja á
laggirnar skrifstofu Smekkleysu í
London með sterkt alþjóðlegt dreif-
ingarnet. Tíu útgáfur Smekkleysu
hafa farið í gegnum dreifingarnetið
en söluhæsta platan þar er Von með
Sigur Rós. Jafnframt eru um tíu pró-
sent af 2.500 lögum, sem Smekkleysa
heldur utan um, þegar komin í virka
sölu á vefnum.
Næst á dagskrá fundarins var
Inger Dirdal, framkvæmdastjóri
Music Export Norway í Noregi. Hún
hóf ræðu sína á því að segja að Nor-
egur og Ísland ætti það sameiginlegt
að vera bæði lítil lönd á jaðri Evrópu
og benti hún á að þótt vissir ókostir
fylgdu því þá væri vissulega hægt að
nýta þessa sérstöðu til góðs. MEN
(Music Export Norway) var stofnað
árið 2000 í þeim tilgangi að efla stöðu
norskrar tónlistar utan Noregs en
starfsemin er í eigu sex norskra fyr-
irtækja sem öll gegna lykilhlut-
verkum í norska tónlistariðnaðinum.
Starfsemin felst einkum í að skipu-
leggja kynningu á og koma á fram-
færi norskri tónlist á alþjóðlegum
tónlistarlegum ráðstefnum og hátíð-
um. Einnig vinnur MEN að því að
efla bein tengsl við fyrirtæki sem
snúa að tónlistariðnaðinum í öðrum
löndum.
Gunnar Madsen, yfirmaður Rosa
Rock Counsil, tók næstur til máls og
kynnti þá leið sem farin er í Dan-
mörku við útflutning danskrar dæg-
urtónlistar. Ólíkt MEN þá er Rosa
Rock Counsil rekið með ríkisfé. Upp-
haflegt markmið verkefnisins var að
endurnýja menningarlegar áherslur
ríkisins sem að hans dómi voru orðn-
ar mjög gamaldags. Ljóst var að ef
ríkið ætti að sinna dægurtónlist af
sama kappi og klassískri tónlist
þyrfti að útbúa nýtt og aðskilið
styrktarkerfi fyrir ráðuneytið til að
nota. Það tók Madsen og samstarfs-
fólk hans alls fjórtán ár að ná hug-
myndum sínum í gegn og segir hann
að mikil vatnaskil hafi orðið í útflutn-
ingi danskrar tónlistar eftir að
breytingarnar áttu sér stað.
Kynningarskrifstofa
Madsen hvatti til þess að fyrirtæki
og stofnanir, sem sjá um útflutnings-
og kynningarmál tónlistar á Norð-
urlöndum, tækju höndum saman
bæði með kynningarmál innan Norð-
urlanda og auk þess að samnýta
krafta sína á alþjóðlegum vettvangi.
Að lokum kynnti Þorgeir Ólafsson
frá menntamálaráðuneytinu tillögu
um sérstaka kynningarskrifstofu
menntamálaráðuneytis sem sér um
kynningarstarfsemi á íslenskri list
og listafólki í útlöndum. Eitthvað er
líkt með tillögunni og því sem MEN
og Rosa Rock Counsil eru að gera
hvað varðar dægurtónlist en að sama
skapi er margt ólíkt. Þorgeir sagði
að höfundar tillögunnar hefðu sett
sér það markmið að einfalda kerfið
og gera það skilvirkara. Hinu nýja
skipulagi er ætlað að hafa umsjón
með listamannalaunum og auk þess
fjórum verkefnasjóðum; bókmennta-
sjóði, myndlistasjóði, tónlistarsjóði
og sviðslistasjóði. Annar hluti skrif-
stofunnar hefur síðan umsjón með
og heldur utan um alþjóðlegt menn-
ingarsamstarf sem ríkið kemur með
einhverjum hætti að. Þriðja hlutverk
skrifstofunnar felst í alþjóðlegri
kynningu íslenskrar listar með
markvissum hætti í útlöndum. Hægt
verður að skoða tillöguna á vef
menntamálráðuneytisins innan fárra
daga.
Morgunblaðið/Sverrir
Tónlistarhátíðir hafa reynst hljómsveitinni Jakobínarínu afar vel en sveitin hlaut samning við Rough Trade eftir
að hafa spilað á Southbysouthwest-hátíðinni í Texas.
Tónlist | Tillaga kynnt um kynningarskrifstofu lista á Hótel Sögu
Útflutningur íslenskrar tónlistar
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
Dönsk
strengja-
sveit heim-
sækir Ísland
STRENGJASVEITIN KYS, en
skammstöfunin stendur fyrir Kø-
benhavns Yngre Strygere, heldur
tónleika í Reykholti, Siglufirði, Ak-
ureyri og Reykjavík í byrjun júlí-
mánaðar. Sveitin flytur verk eftir
Nielsen, Langgaard, Jón Ásgeirsson
og Sjostakovits, en í ár eru liðin 100
ár frá fæðingu hins síðastnefnda.
Í KYS koma saman ungir áhuga-
menn og nemendur frá Konunglegu
tónlistarakademíunni í Kaupmanna-
höfn á aldrinum 18–30 ára. Sveitin
hefur gefið út talsvert af geisla-
diskum og fer í tónleikaferðir þrisv-
ar á ári. KYS hefur því komið víða
við, m.a. í Noregi, Svíþjóð, Portúgal,
Ítalíu, Þýskalandi, Tékklandi svo
dæmi séu nefnd. Í Danmörku eru fá-
ir staðir sem sveitin hefur ekki
heimsótt en sveitin hefur einnig far-
ið í ótal grunnskóla í Danmörku og
frætt nemendur um klassíska tónlist
og strengjahljóðfæri. Stjórnandi
með sveitinni að þessu sinni er Jes-
per Ryskin, einn af efnilegri stjórn-
endum yngri kynslóðarinnar í Dan-
mörku í dag.
Tónleikar sveitarinnar á Íslandi
verða sem hér segir:
Reykholtskirkju, Reykholti,
þriðjudaginn 4. júlí kl. 20.30.
Kirkjunni, Siglufirði, fimmtudag-
inn 6. júlí kl. 20.
Ketilhúsinu, Akureyri, föstudag-
inn 7. júlí kl. 12.
Neskirkju við Hagatorg, Reykja-
vík, laugardaginn 8. júlí kl. 13.30.
www.k-y-s.dk
KYS skipa ungir áhugamenn og
nemendur frá Konunglegu tónlist-
arakademíunni í Kaupmannahöfn á
aldrinum 18–30 ára.