Morgunblaðið - 26.06.2006, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 26.06.2006, Blaðsíða 36
36 MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA STAFRÆ NÚ ER KOMIÐ AÐ HENNI AÐ SKORA HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA. eee V.J.V.Topp5.is CARS M/ENSKU TALI kl. 6 - 8:30 - 11 BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 6 - 7:15 - 8:30 KEEPING MUM kl. 6 - 8:20 - 10:30 B.I. 12.ÁRA. THE POSEIDON ADVENTURE kl. 6:10 - 8:20 - 10:30 B.I. 14.ÁRA. MI : 3 kl. 9:30 - 11 B.I. 14.ÁRA. FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR ENDURGERÐINA AF „DAWN OF THE DEAD“ SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK BÍLAR m/ísl. tali kl. 6 - 8 CARS M/ENSKU. TALI kl. 6 - 8 - 10 SLITHER kl. 10 B.I. 16.ÁRA. BÍLAR m/ísl. tali kl. 8 SHE'S THE MAN kl. 8 KEEPING MUM kl. 10:10 B.I. 12 ÁRA 16 BLOCKS kl. 10:15 B.I. 14 ÁRA FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM" HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA. eee V.J.V.Topp5.is FRÁ J.J. ABRAMS, HÖFUNDI LOST OG ALIAS eeee VJV, Topp5.is S.U.S. XFM NÝJASTA MEISTARA- VERKIÐ FRÁ PIXAR SEM ALLIR ERU AÐ TALA UM. SÝNDI BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI S LITHER DIGITAL Bíó SAMBÍÓIN KRINGLUNNI VINSÆLASTA MYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ. eee S.V. MBL. eee L.I.B. Topp5.is eee VJV, Topp5.is eee Kvikmyndir.is eee S.V. MBL. eee L.I.B. Topp5.is eeee KVIKMYNDIR.IS HELJARINNAR hiphop-veisla verð- ur haldin á Gauki á Stöng miðvikudag- inn 12. júní næst- komandi. Þá treður upp ein heitasta „óháða“ hiphop- sveitin í heiminum í dag, Atmosphere. Samkvæmt frétta- tilkynningu frá Kronik Entertain- ment sem stendur að tónleikunum, hefur Atmosphere selt plötur sínar í hundruðum þús- unda eintaka um allan heim. Stóru útgáfufyrirtækin hafa verið á höttunum eftir þeim í nokkur ár en þeir félagar neita hins vegar að yfirgefa Epitaph-útgáfuna en hún sérhæfir sig aðallega í pönk/rokk tónlist. Þessi hljómsveit hefur verið ein söluhæsta hiphop- sveitin hér á landi. Brother Ali mun sjá um upphitun fyrir Atmosphere, en hann er hluti af Rhymesayers- genginu eins og Atmosphere. Tónlist | Hiphop-veisla á Gauknum í júlí Atmosphere er vel þekkt hiphop-sveit. Atmosphere og Brother Ali ÍSLAND tekur í fyrsta sinn þátt í Feneyjatvíæringnum um bygging- arlist og skipulagsmál sem verður haldinn í 10. sinn í Feneyjum dagana 10. september til 19. nóvember 2006. Yfirskrift tvíæringsins er Borgir, byggingarlist og samfélag. Frá þessu er greint í 19. vefriti mennta- málaráðuneytisins í ár. Íslenska framlagið verður tónlistar- og ráð- stefnuhúsið á Austurbakka í Reykja- vík ásamt tilheyrandi skipulagi og uppbyggingu í miðborginni. Jafn- framt kynningu á hönnun hússins verður lögð áhersla á að kynna Ís- land sem menningar- og ráðstefnu- land. Eignarhaldsfélaginu Portus hefur verið falið að annast undirbún- inginn í samráði við Reykjavík- urborg, menntamálaráðuneyti og Austurhöfn – TR ehf. sem styrkja verkefnið. Byggingarlist | Tónlistar- og ráðstefnu- hús á Feneyjatvíæringinn Tónlistar- og ráðstefnuhúsið eins og það mun líta út á Austurbakka. Ráðstefnulandið Ísland G ott er bíófólki að snúa aftur suður úr Frans til sumardvalar í heimabæ númer tvö og finna þar end- urreist kvikmyndahús, Selfossbíó. Tuttugu ára hlé varð á sögu þess, sem hófst aftur fyrir tæpu einu og hálfu ári. Bíófólki er sagt að aðsókn- in sé að ná sér á strik, en að það hafi tekið bæjarbúa smátíma að átta sig á því að ekki þurfti lengur að fara yfir heiðina til að fara í bíó. Undirrituð hefur aldrei á ferl- inum búið við þá indælu aðstöðu að eiga ekki nema þriggja mínútna gang í bíókvöld (bíó plús veitinga- hús) fyrr en á Selfossi núna. Enda hlýtur það að vera forréttinda- manneskja sem strunsar á sum- arjakkanum út í skjannabjart júní- kvöldið með sínum bíófélaga, framhjá kirkjunni fallegu, eftir stígnum meðfram grængolandi Ölf- usá og lendir í þægilegum stól við gluggann á Riverside veitingahús- inu. Það er nýstofnað, til húsa í hót- elbyggingunni, skemmtilega inn- réttað – og útsýnið yfir seigfljótandi fljótið og fallegustu brú á Íslandi, upp til Ingólfsfjalls, hefur dá- leiðslukennd áhrif á móttækilegt fólk. Þjónustan á Riverside varyfirlætislaus og eðlilegfrá byrjun. Það var ljóstað hingað var komið fólk sem ætlaði að fá sér að borða og horfa út um gluggann í leiðinni. Með þeim óskrifaða samningi ríkti gagnkvæm virðing milli þjóns og matargesta, án þeirra tilþrifa og leikhústilburða sem slá kvenhelm- ing bíófólks út af laginu á veitinga- húsi þótt aldrei gangi svo langt að það hafi áhrif á matarlyst, sé mat- urinn ætur á annað borð. Í boði var meðal annars þríréttaður matseðill á 3.600 krónur, með lamb sem aðal- rétt. Það hafa áreiðanlega verið góð kaup, miðað við reynslu kvöldsins, þótt aðrar leiðir væru farnar. Þrír grænmetisréttir eru í boði, og sýnir það að hér eru menn í takt við tím- ann. Einn af þeim var tekinn, steikt tófú. Mjög vel heppnaður, og teg- undin af tófu og steikingin ný fyrir þessa matargesti þótt þeir hafi margt tófúið étið í ýmsu samhengi. Enn fremur var snædd laxa- og humarsúpa með fennel. Eðalsúpa, með heilum humri og stórum laxa- bitum. Fennel og fiskur (þ.á m. þorskur) er sérlega góð samsetning og mikið notuð í matargerð hjá bíó- fólki. Glasavínið var gott, rautt frá Argentínu og hvítt frá Chile. Á eftir var borðuð heit súkkulaðikaka sem kostaði 1.100 krónur, og kannski síst peninganna virði af því sem upp hefur verið talið, en tófúrétturinn kostar 2.100 kr, súpan 1.600, og vín- glasið kr. 700, og reikni nú hver fyr- ir sig. Óreiknað til peninga er hins vegar sumarkvöldið fyrir utan gluggann og senurnar sem hafa ekki sést í neinni kvikmynd, vegfar- endur eins og úr öðrum birtuheimi sem koma gangandi undir brúna á lengsta kvöldi ársins – og svo vel vildi til í hinni áttinni að skuggarnir huldu yfirgripsmikið hermd- arverkið sem búið er að gera á fjalli Ingólfs landnámsmanns. Nú fór klukkan að nálgast tíu og fjörið að magnast á planinu við hót- elið, þar sem börnin hafa fengið sitt Tívolí – en bíófólkið dreif sig í bíó, sem er líka í hótelbyggingunni, og fékk kikkið sitt strax með ljúfri poppkornslykt. Sælgæti kvöldsins var hins vegar lakkrísdúndur fyrir bíómynd kvöldsins, The Inside Man með Denziel Washington og Jodie Foster, leikstýrt af Spike Lee. The Inside Man leiðáreynslulaust áfram í fyr-irtaks bíósal, en í Selfoss-bíói eru tveir salir. Hér er á ferð fyrirtaks afþreyingarmynd, fyrrnefndir leikarar stórskemmti- legir, handritið með frumlegu ívafi. Þá er persóna Jodie Foster athygl- isverð, ný tegund af raffíneruðum kvenskíthæl sem er sérfræðingur í að víla og díla bak við tjöldin. Það af fléttunni sem undirrituð var ekki nógu gáfuð til að skilja fékkst strax útskýrt svo ekki varð um villst hjá bíófélaganum. Ég mæli með því að menn bregði sér í bíó á íslensku sumarkvöldi, og gangi svo út í birtuna ennþá meðvit- aðri um þau ótrúlegu forréttindi sem íslenskt sumar er. Jafnvel þótt veðrið geti verið ansi mikið svona og svona þá er ljósið altént stans- laust og síbreytilegt og loftið hress- andi til innöndunar, a.m.k. fyrir austan fjall. B í ó k v ö l d á S e l f o s s i Ótrúleg forréttindi Eftir Steinunni Sigurðardóttur Gagnrýnendur virðast ætla aðtaka nýju Ofurmennismynd- inni, Superman Returns, opnum örmum nú þegar vika er í formlega frumsýningu. Gagnrýnandi Hollywood Repor- ter segir til að mynda að myndin sé einlæg og höfði til breiðs hóps og gagnrýnandi Variety heldur vart vatni yfir frammistöðu Brandons Rouths í hlutverki stálmannsins. David Ansen hjá Newsweek segir að myndin hafi haft á sig áhrif af þeim toga sem hann hafi síst átt von á. Hann væri „hamingjusamur yfir því að Ofurmennið væri komið aft- ur“ rétt eins hann hefði virkilega saknað þess. David Poland hjá Movie City News gat þó ekki tekið undir lofsöng starfsbræðra sinna og spáði því að Pirates of the Caribbean II myndi valta yfir hana í sumar. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.