Morgunblaðið - 26.06.2006, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 26.06.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2006 37 SMÁSTIRNIÐ Lindsay Lohan er ung fríðleiksstúlka og hefur að auki staðið sig ljómandi vel í telpu- og táningshlutverkum (The Parent Trap, Mean Girls, Freaky Friday). Hún eldist eins og aðrir dauðlegir og nálgast nú tvítugsaldurinn óð- fluga. Í samræmi við þau tímamót hefur Hollywood ákveðið að velja stúlkunni nýtt hlutverk, Disn- eyheimurinn er greinilega að hverfa í baksýnisspeglinum. Mein- ingin hefur verið að framkvæma gjörninginn á sómasamlega hátt; Lohan fær til liðs við sig ágætan fagmann úr stétt gamanleikstjóra og kvikmyndatakan er í öruggum höndum hins margverðlaunaða Deans Semlers. Allt kemur fyrir ekki, útkoman er miðlungsmynd fyrir þröngan hóp ungra stúlkna sem láta sér nægja að lifa í draumheimum. Vandinn er sá að Just My Luck er illa skrifuð og þá fyrst og síðast brandararnir, slagkraftur mynd- arinnar. Allt of margir ganga yfir velsæmismörkin, eru hálfvitalega subbulegir (Lohan að fá upp í sig útjaplaðar tyggigúmmíklessur, treður linsu sem hefur fallið í katt- arskít í augað á sér, lendir sýknt og heilagt í of smekklausum uppá- komum til að þær geti talist fyndn- ar). Lohan leikur Ashley, unga og stálheppna framapíu á hraðri upp- leið í New York þegar ólánið ger- ist, spákona (Feldshuh) sér slæma hluti í spilunum, sem rætast á næsta augnabliki. Lohan kyssir mesta hrakfallabálk borgarinnar og þau hafa hlutverkaskipti eins og hendi sé veifað. Ástandið varir ekki að eilífu, því myndir á borð við Just My Luck eru jafnan álíka fyrirsjáanlegar og síðasta lag fyrir fréttir. Miðað við aðstæður stendur Lohan sig vonum framar og ég ætla að halda áfram að veðja á leikkonuna sem þá lík- legustu úr hennar aldurshópi til að halda velli á svellbunka frægð- arinnar. Aðrir leikarar eru lítt eft- irminnilegir, sóttir á lagerinn, þar sem ekki verður þverfótað fyrir snoppufríðum vonarstjörnum. Hundheppnir hrakfallabálkar KVIKMYNDIR Smárabíó, Regnboginn, Borgarbíó Akureyri Leikstjóri: Donald Petrie. Aðalleikarar: Lindsay Lohan, Chris Pine, Faizon Love, Missi Pyle, Bree Turner, Samaire Arms- trong, Tovah Feldshuh. 105 mín. Banda- ríkin 2006. Just My Luck  Sæbjörn Valdimarsson Barry Wetcher „Myndir á borð við Just My Luck eru álíka fyrirsjáanlegar og síðasta lag fyrir fréttir,“ segir m.a. í umsögn Sæbjörns Valdimarssonar. ÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 1:30 - 3 - 5:30 - 8 CARS M/ENSKU TALI kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 CARS M/ENSKU TALI LÚXUS VIP kl. 4:15 - 8 - 10:30 SLITHER kl. 8 - 10:30 B.i. 16.ára. KEEPING MUM kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 B.i. 12.ára. SHE´S THE MAN kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 THE POSEIDON ADVENTURE kl. 5:30 - 10:30 B.i. 14.ára. BAMBI 2 M/ÍSL. TALI kl. 1:30 BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 4 - 6:30 CARS M/ENSKU TALI kl. 4 - 5:30 - 8 - 9 - 10:30 - 11:15 DIGITAL SÝN. SLITHER kl. 10:30 B.I. 16.ÁRA. THE POSEIDON ADVENTURE kl. 6:10 B.I. 14.ÁRA. DIGITAL SÝN. MI : 3 kl. 8 B.I. 14.ÁRA. DIGITAL SÝN. FRÁ FRAMLEIÐENDUM „THE INCREDIBLES“ & „LEITIN AÐ NEMO“ SÝNDI BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI NÝJASTA MEISTARAVERKIÐ FRÁ PIXAR SEM ALLIR ERU AÐ TALA UM. VINSÆLASTA MYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ. DIGITAL Bíó SAMBÍÓIN KRINGLUNNI SNIGLABANDIÐ stóð fyrir bifhjólaballi á skemmti- staðnum NASA á laugardagskvöld í tilefni að því að í ár fagnar sveitin 21. starfsári sínu. Reggísveitin Five-4- vibes hitaði tónleikagesti upp en síðan tók Sniglabandið við og hélt uppi góðri stemningu það sem eftir leið kvölds. Sniglabandið sendir innan tíðar frá sér tvöfaldan geisladisk sem mun heita RÚV-tops en á disknum má heyra brot úr útvarpsþáttunum „Sniglabandið í beinni“ á Rás 2, auk 17 nýlegra íslenskra dægurlaga sem samin voru í samstarfi við hlustendur á þessu tímabili. Morgunblaðið/Eggert Sniglabandið lék við hvurn sinn fingur á NASA, enda í afmælisskapi. Jóna, Inda og Anna stigu sporin á dansgólfinu.Hollenska reggísveitin Five-4-vibes hitaði upp. Sniglaband á þrítugsaldri Fegursta kona heims Unnur BirnaVilhjálmsdóttir heldur eins og allir vita úti dagbók á Fólksvef mbl.is. Þar er hægt að lesa um allt sem dríf- ur á daga fegurðardrottningar en um daginn var hún til að mynda stödd á fjáröflunarsamkomu í Manchester í Englandi. „Þetta voru ansi þægilegir tveir dagar ... Gistum á gömlu sveitahóteli og á fimmtudeginum fékk ég að fara í heimsókn í hesthús í nágrenninu og keyra um í hestvagni. Reyndar allt gert fyrir blaðamenn og ljósmyndara en ég naut þess engu að síður og þið trúið því ekki hvað það var gott að finna hestalykt aftur!! Áttaði mig engan veginn á því hvað ég saknaði hennar mikið … Svo voru líka tveir svartir labrador-hundar þarna sem ég knúsaði út í eitt, ásamt hestunum auðvitað og tókst mér að gera mig grútskítuga fyrir mynda- tökuna. Mér gat að sjálfsögðu ekki verið meira sama, en það voru ekki al- veg allir á sama máli … úps, he, he! Föstudagurinn fór svo í viðtöl og stúss og fjáröflunin í gærkvöldi tókst með eindæmum vel. Yfir hundrað þúsund pund söfnuðust en við vorum bæði með uppboð og happdrætti. Gestirnir voru bjóðandi þarna hverja milljónina á fætur annarri í skemmti- siglingar og utanlandsferðir. En það er nokkuð ljóst að peningarnir vaxa á trjánum í görðunum hjá þessu fólki, enda hvergi annars staðar í Englandi, og þó víða væri leitað, að finna jafn- marga Ferrari og Bentley-a sam- ankomna á einum stað. En nú er ég farin að telja niður … 6 dagar þangað til ég fæ að loksins að koma heim smá stund.. Get bara ekki beðið …! Búin að vera ansi löng törn og mikil vinna og ég bara verð að komast aðeins heim að anda og sjá kunnugleg andlit. Var að hugsa til þess í morgun. Skondið hvaða aðferð maður notar stundum til að telja niður í eitthvað ákveðið. Eins og t.d. ég og bræður mínir þegar við vorum yngri … við töldum ekki niður í útlandaferðir eða annað slíkt í dögum heldur í hversu oft við þyrftum að borða fisk áður en við færum sem þýðir að við töldum niður mánudagana í tiltekinn at- burð … Núna stóð ég mig hins vegar að því að telja hversu oft ég þyrfti að krulla á mér hárið áður en ég kæmist heim og komst að því að það er sirka 4–5 sinnum. Nokkuð gott! […]. Þessa færslu í heild sinni og fleiri er hægt að finna á Fólksvef mbl.is eða á slóðinni: unnurbirna.blog.is Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.