Morgunblaðið - 17.07.2006, Síða 8

Morgunblaðið - 17.07.2006, Síða 8
Þú getur nú bara farið að tína á þig spjarirnar „for ever“. Ræktun sæðis úr stofnfrumum músa. 8 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NÝTT! Söluaðilar um land allt Þróunarsamvinnu-stofnun Íslands ísamstarfi við Sjáv- arútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, sem rekinn er á Íslandi, stend- ur fyrir alþjóðlegri ráð- stefnu um fiskimál í Nami- bíu dagana 21.–24. ágúst næstkomandi. Sjö Afríkuríki senda fulltrúa á ráðstefnuna: Kenýa, Úganda, Tansanía, Mósambík, Malaví, Suður- Afríka og Namibía. Ræðir hér annars vegar um lönd, þar sem ÞSSÍ hefur verið með þróunarsamstarfsverkefni (Mósambík, Malaví, Namibía og Úganda), og hins vegar ríki sem sent hafa fólk til náms í Sjávarút- vegsskólanum hér á Íslandi. Vilhjálmur Wiium, verkefnis- stjóri á umdæmisskrifstofu ÞSSÍ í Namibíu, hefur haft veg og vanda af skipulagningu ráðstefnunnar úti. Hann segir að forsvarsmenn Sjávarútvegsskólans á Íslandi hafi viljað halda upp á það, ef svo má að orði komast, hversu vel hefði gengið með rekstur skólans og að sú ákvörðun hefði verið tek- in að framlengja rekstur hans; en Sjávarútvegsskólinn var upphaf- lega verkefni til fimm ára. „Þá kom upp sú hugmynd að halda einhvers konar málþing þar sem fólk sem sótt hefur skólann og er frá Afríku kæmi saman og ræddi um nám sitt í skólanum og hvernig það hefði nýst því er heim var komið. Í framhaldi fórum við að hugsa frekar um hverju öðru mætti ná út úr ráðstefnu sem þessari, þannig að það gagnaðist þeim þjóðum sem hér um ræðir á æðri stigum stjórnsýslunnar,“ segir Vilhjálmur. Alþjóðabankinn tekur þátt Þegar menn hafi farið að skoða þau mál betur hafi rifjast upp að Alþjóðabankinn ákvað nýverið að byrja að styrkja fiskveiðiverkefni í þróunarsamvinnu í Afríku á ný, eftir að hafa ekki sinnt þeim í rúman áratug. „Þá datt okkur í hug að þarna gæti verið komið gott tækifæri til þess að fá ein- hvern fulltrúa bankans til að út- skýra fyrir embættismönnunum í Afríkuríkjunum hvað nákvæm- lega mun felast í þessari aðstoð sem Alþjóðabankinn ætlar að veita og hvað þjóðir þurfi að gera til að eiga aðild að verkefnum á hans vegum.“ ÞSSÍ kostar ráðstefnuna í Namibíu að mestu leyti en Vil- hjálmur segir að þegar málið hafi verið kynnt fyrir ráðamönnum í Namibíu hafi reynst vera mikill áhugi fyrir hendi hjá þeim. Til marks um þetta er sú staðreynd að forseti landsins, H.E. Hifikep- unye Pohamba, mun setja ráð- stefnuna formlega, þriðjudaginn 22. ágúst, og sjávarútvegsráð- herra Namibíu, dr. A. Iyambo, ávarpar hana í upphafi. Einar K. Guðfinnsson sjávarút- vegsráðherra mun síðan slíta ráð- stefnunni á fimmtudeginum, 24. ágúst, en hann sækir hana í boði namibískra stjórnvalda. Alls taka á bilinu fimmtíu til sextíu manns þátt í ráðstefnunni, að sögn Þórs Ásgeirssonar, að- stoðarforstöðumanns Sjávarút- vegsskólans, þ.m.t. fimmtán fyrr- um nemendur skólans. Munu þrír þeirra flytja erindi á ráðstefnunni en hinir verða með kynningar. „Við höfum tekið mikið af nem- endum frá Afríku og höfum kynnst þessum fiskigeira vel og séð hvaða þræðir eru sameigin- legir í því sem þessi lönd eru að glíma við,“ segir Þór. „ Með þess- ari ráðstefnu erum við því að styrkja okkur og þá nemendur sem hafa verið hér á Íslandi.“ Sjávarútvegsskólinn tók til starfa 1998, en í ágúst það ár hófu fyrstu 6 nemendurnir nám – allir frá Afríku. Nú tekur skólinn inn ríflega 20 manns á ári en nemend- ur hafa komið frá hátt í 25 lönd- um; bæði frá Asíu og Mið-Amer- íku, en meginþorri þeirra er þó frá Afríku. Um 130 manns hafa út- skrifast frá skólanum. Þór segir að í haust muni skólinn taka inn sinn níunda árgang, en um er að ræða sex mánaða prógramm sem keyrt er einu sinni á ári, frá sept- ember og fram í mars. ÞSSÍ hefur mjög einbeitt sér að stuðningi og þróun í fiskimálum í þeim ríkjum þar sem stofnunin rekur þróunarverkefni; sem eðli- legt má telja í ljósi sérþekkingar Íslendinga í þeim geira. Vilhjálm- ur segir sjávarútveg vera töluvert stóran atvinnuveg í Namibíu og áherslur ÞSSÍ hafi skilað góðum árangri. „Stærsta verkefnið okkar hérna alveg frá upphafi hefur ver- ið að koma á rekstri sjómanna- skóla. Það hefur tekist mjög vel og nú erum við næstum alveg hættir að aðstoða þann skóla því hann er hreinlega orðinn svo öflugur að þess þarf ekki lengur. Við höfum sent mikið af kennurum hingað niðureftir, sendum líka namibíska kennara heim til Íslands og reyndar til annarra landa einnig. Þetta hefur skilað sér í því að nú er þessi stofnun vel búin, bæði af tækjakosti og mannskap. Við telj- um því að óhætt sé fyrir okkur að draga okkur út úr þessu verkefni. En það er auðvitað grundvallar- markmið í allri þróunarsamvinnu, að veita aðstoð sem orðið getur til þess að hlutirnir verði sjálfbærir.“ Fréttaskýring | Ísland og þróunarlöndin Afríkuþjóðum veitt aðstoð ÞSSÍ og Sjávarútvegsskóli Háskóla SÞ halda ráðstefnu um fiskimál í Namibíu Afríka er fátækasta álfa jarðar. Þróunarsamvinnustofnun Íslands í sex löndum  ÞSSÍ er sjálfstæð ríkisstofnun sem heyrir undir utanríkisráðu- neytið. Henni er ætlað að vinna að tvíhliða samstarfi Íslands við þróunarlönd. Áhersla er lögð á samvinnu við þau lönd þar sem lífskjör eru lökust og er aðstoðin einkum veitt á þeim sviðum þar sem Íslendingar búa yfir sér- stakri þekkingu og reynslu. ÞSSÍ rekur nú umdæmisskrifstofur í Malaví, Mósambík, Namibíu, Úg- anda og á Sri Lanka og undirbýr jafnframt verkefni í Níkaragva. Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is VERÐ á áskriftarstöðvum 365 mun hækka frá og með 20. júlí nk. Hækk- un verðs á áskrift að Stöð 2 nemur 8% og hlutfallslega sama hækkun verður á áskriftarverði svokallaðra erlendra pakka. Hækkun áskrift- arverðs að sjónvarpsstöðinni Sýn verður 12% hjá M12 áskrifendum og 13% hjá almennum áskrifendum. Samkvæmt upplýsingum frá 365 er verið að bregðast við hækkun á vísitölu neysluverðs og auknum kostnaði við erlent efni sökum veik- ari stöðu krónunnar gagnvart er- lendum gjaldmiðlum. Einnig megi rekja hækkunina að einhverju leyti til harðnandi samkeppni um sjón- varpsefni, sérstaklega íþróttaefni, sem hafi leitt til þess að efnið hafi hækkað í verði. Fyrst og fremst sé þó um að ræða leiðréttingu til sam- ræmis við verðbólguna. Áskriftarverð hækkar hjá 365 NÁTTÚRUVAKTIN hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem drög að matsáætlun vegna lagn- ingar 2. áfanga Sundabrautar eru harðlega gagnrýnd. Segir í til- kynningunni að aðeins einn val- kostur, og tilbrigði við hann, sé lagður fram til mats á umhverf- isáætlun sem nú liggi fyrir til kynningar. „Það er brýnt að vel takist til við lagningu 2. áfanga Sundabraut- ar um einu samfelldu óspilltu ströndina og grunnsævið í Reykja- vík við Leiruvog/Blikastaðakró,“ segir í tilkynningunni. Þar er lögð áhersla á umhverfis- og náttúru- verndargildi Leiruvogs og Blikastaðakróar auk þess sem bent er á að staðirnir eru báðir, ásamt Varmá og Úlfarsá, á nátt- úruminjaskrá og náttúruverndar- áætlun 2004 til 2008. Vilja brú og göng Segir í tilkynningunni að láglend ströndin sé fjölbreytt, þar sé að finna margar strandgerðir svo sem klettaströnd, malarkamb, sand- fjöru og lífríkar leirur. Dýralíf sé mikið og fjölbreytt auk þess sem mikilvægi svæðisins fyrir íbúa þess sé ótvírætt sem útivistar- svæði. „Sá valkostur sem kynntur er í drögum að matsáætlun kemur hvorki til móts við hagsmuni nátt- úruverndar né lífsgæði íbúa, þvert á móti mun þverun Eiðsvíkur og Leiruvogs á uppfyllingum valda óafturkræfum náttúruspjöllum þar sem gjörbreytt virkni sjávarfalla mun til muna auka setmyndun inn- an mannvirkjanna,“ segir í til- kynningu Náttúruvaktarinnar, sem beinir þeim tilmælum til framkvæmdaaðila að í matsáætlun verði kannaðir til hlítar kostir þess að þvera Eiðsvík með brú, en Leiruvog með jarð- eða botnlæg- um göngum. Matsáætlun Sundabrautar gagnrýnd SJÚKRABÍLL í forgangsakstri lenti í því óhappi í Langadal í gær að rek- ast utan í spegil bifreiðar sem kom á móti honum. Við þetta sprakk rúða í sjúkrabílnum og þurfti að skipta um sjúkrabíl sökum þess. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Blönduósi ók lögreglubíll á undan sjúkrabílnum og segir varðstjóri at- vikið til marks um það hversu lítið megi út af bregða til að óhöpp verði. Skipta þurfti um sjúkrabíl eftir smá árekstur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.