Morgunblaðið - 17.07.2006, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2006 9
FRÉTTIR
Meiri afsláttur á útsölu
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Tískuverslun
Eiðistorgi 13, 2. hæð á torginu Sími 552 3970
Finnur þú ekki stærðina þína? Gerum buxur eftir pöntun.
ÚTSALA
Opið:
mán.-fös. kl. 14-18.
Stærðir 38-50
Til og með 31. júlí
ÚTSALA
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
Mánudagur 17. júlí
Karrýkorma m/nanbrauði
Þriðjudagur 18. júlí
Próteinbollur m/cashewhnetusósu
Miðvikudagur 19. júlí
Ítalskur pottur m/pastasalati
Fimmtudagur 20. júlí
Eðalbuff m/ sætri kartöflu
Föstudagur 21. júlí
Fyllt paprika m/brokkólísalati
Helgin 22.-23. júlí
Aloo-Saag spínatpottur & buff
Útsala
Viðbótarafsláttur
Ú
T
S
A
L
A
Opið virka daga frá kl. 11-18
Lokað á laugardögum
í júlí og ágúst
20%
aukaafsláttur
30% afsláttur
af undirfötum og sundfötum
50-80%
af eldri vörum
STARFSMENN Arnarfells
sprengdu sig út undir bert loft
aðfaranótt laugardags í að-
algöngum Kárahnjúkavirkjunar
við Hálslón og var þetta fyrsta
gegnumbrotið af fjórum í aðal-
göngunum sjálfum
Aðdragandinn að áfanganum í
fyrrinótt var sá að Bor 3 hafði
skilið eftir óboraðan 1 km næst
Hálslóni og til þess að komast
þangað niður voru boruð til við-
bótar aðgöng nr. 4 og opnað út að
Hálslóni úr þeim. Unnið var í báð-
ar áttir þann eina kílómetra sem
eftir var en það bíður þar til í
ágúst að rjúfa afganginn til aust-
urs í aðalgöngunum. Áfanginn í
fyrrinótt gerir það að verkum að
unnt verður að flýta frágangi við
inntaksmannvirkið við Hálslón.
Fyrsta gegnumbrotið
í aðalgöngum við Kárahnjúka
FJÖRUTÍU prósent af innlendum
fréttum og greinum, sem birtust í ís-
lenskum dagblöðum á fyrstu sex
mánuðum ársins, voru birt í Morgun-
blaðinu, samkvæmt tölum frá Fjöl-
miðlavaktinni og jók Morgunblaðið
þar með hlutdeild sína um 3% frá
2005.
Alls mældust 75.164 innlendar
fréttir og blaðagreinar í helstu fjöl-
miðlum og fréttatímum, en til þeirra
teljast öll dagblöð og aðalfréttatímar
ljósvakamiðla. Hlutdeild ljósvaka-
miðla af heildarumfjöllun er 20,4% en
dagblaða 79,6% og er það sama skipt-
ing og árið 2005.
Meðal fjölmiðla kemur Fréttablað-
ið næst á eftir Morgunblaðinu með
29% hlutdeild, sem er sama hlutdeild
og blaðið var með í fyrra. Mestu
breytingarnar í hlutdeild dagblaða er
að sjá hjá DV, sem fer úr 20% hlut-
deild árið 2005 í 14% hlutdeild á fyrri
helmingi þessa árs, en DV gerðist
helgarblað í maí. Hlutdeild Blaðsins
eykst úr 9% í 12% og Viðskiptablaðið
mælist áfram með 5% hlutdeild.
Hræringar á dagblaðamarkaði
Morgunblaðið er jafnframt það
dagblað sem er með mest aðsent efni.
Þannið mældist aðsent efni í Morg-
unblaðinu 13% af því efni sem blaðið
birtir af innlendum vettvangi, en önn-
ur blöð mælast með aðsent efni frá
0,6% til 2,9%, en tekið er fram að
minningargreinar eru ekki mældar.
Þegar aðalfréttatímar ljósvaka-
miðla voru skoðaðir kom í ljós að
fréttastofa Útvarps mældist með 40%
hlutdeild og bætti við sig tveimur pró-
sentustigum frá fyrra ári. Næst á eft-
ir kemur fréttastofa NFS með 38%
hlutdeild, en hjá þessum fréttastofum
eru þrír fréttatímar mældir á dag.
Fréttastofa Sjónvarps, með tvo
mælda fréttatíma, mældist með 22%
hlutdeild. Þegar bornar eru saman
hádegisfréttir Útvarps og NFS kem-
ur í ljós að Útvarpið flytur 37% fleiri
innlendar fréttir en NFS og þegar að-
alkvöldfréttatímar Sjónvarps og NFS
eru bornir saman er Sjónvarpið með
13% fleiri innlendar fréttir en NFS.
Á tímabilinu sem um ræðir voru
skráðar mun fleiri stjórnunarbreyt-
ingar á dagblaðamarkaði en í ljós-
vakamiðlum. Nýr framkvæmdastjóri
var ráðinn til 365 miðla, en fram-
kvæmdastjóri Morgunblaðsins til-
kynnti afsögn sína. Nýir ritstjórar
voru ráðnir á DV og Fréttablaðið og
nýr ritstjóri Blaðsins var ráðinn í
byrjun júlí. Engar sambærilegar
stjórnunarbreytingar voru tilkynntar
í ljósvakamiðlum.
Auglýsingamælingar dagblaða hóf-
ust ekki að fullu fyrr en 1. júní og
sýndu mælingar þann mánuð að
mesta magn sérauglýsinga var birt í
Fréttablaðinu. Alls birtust fimm-
hundruð þúsund dálksentímetrar af
sérauglýsingum í dagblöðum í júní, en
það samsvarar tæplega 2.600 heilum
blaðsíðum af auglýsingum. Þessu til
viðbótar bætast smáauglýsingar,
fasteignaauglýsingar, bíóauglýsingar
og dánartilkynningar.
Morgunblaðið með
mest innlent efni
Fréttir á SMS