Morgunblaðið - 17.07.2006, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.07.2006, Blaðsíða 36
36 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON TAKTU AFSTÖÐU. GRÁTBROSLEGASTA GAMANMYND SUMARSINS ÞAR SEM JENNIFER ANISTON OG VINCE VAUGHN VAR HREINLEGA Á KOSTUM. FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM" HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA. VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON TAKTU AFSTÖÐU. GRÁTBROSLEGASTA GAMANMYND SUMARSINS ÞAR SEM JENNIFER ANISTON OG VINCE VAUGHN VAR HREINLEGA Á KOSTUM. EINA LEIÐIN TIL AÐ VINNA ER AÐ MISSA STJÓRNINA SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK SUPERMAN kl. 5:50 - 9 - 10:40 B.I. 10.ÁRA. THE BREAK UP kl. 6 - 8:15 - 10:40 THE LAKE HOUSE kl. 6 - 8:15 - 10:30 BÍLAR M/- ÍSL TAL. kl. 5:50 CARS M/- ENSKU TAL. kl. 8:15 KEEPING MUM kl. 6 - 8:15 B.I. 12.ÁRA. THE POSEIDON ADVENTURE kl. 10:30 B.I. 14.ÁRA. EIN ALLRA BESTA MYND ÁRSINS. BRYAN SINGER KOMIN Í HÓP ÞEIRRA FREMSTU MESTA OFURMENNI HEIMS HEFUR SNÚIÐ AFTUR. OFURMÖGNUÐ STÓRMYND OG SÚPERSKEMMTUN FYRIR ALLA. S.U.S. XFM 91,9 „...EINHVER BESTA AFÞREYING SUMARSINS...“ TOMMI KVIKMYNDIR.IS SÚPERMAN ER SANNARLEGA KOMINN AFTUR. M.M.J. KVIKMYNDIR.COM SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA FERSK, HUGLJÚF OG RÓMANTÍSK ÞAR SEM STÓRSTJÖRNURNAR KEANU REEVES OG SANDRA BULLOCK FARA Á KOSTUM.EKKI MISSA AF ÞESSARI PERLU. ALGJÖRT AUGNAKONFEKT. eeee V.J.V, Topp5.is SUPERMAN kl. 6 - 9 THE BREAK UP kl. 8 - 10.10 BÍLAR ÍSL TAL. kl. 5:40 SUPERMAN RETURNS kl. 7 - 10 B.I. 10 ÁRA THE LAKE HOUSE kl. 8 - 10:10 B.I. 12 ÁRA eeee SUPERMAN RETURNS SKAPAR SÉR SESS MEÐAL BESTU MYNDASÖGU-KVIKMYNDUM SEM GERÐAR HAFA VERIÐ V.J.V. Topp5.is H.J. MBL. eee FRÁBÆR SUMARMYND HLAÐIN SPENNU OG MÖGNUÐUM ATRIÐUM. Þ.Þ. FRÉTTABLAÐIÐ ÞAÐ FYRSTA sem maður tekur eftir við að hlusta á tónlist Sólstafa er hve „lífræn“ rokktónlist þeirra er. Vissulega er hún rafmögnuð og í engu til sparað í notkun á effekt- um í gíturum og bassa, og því er hún ekki lífræn í merkingunni órafmögnuð. Hún er meira lífræn í þeim skilningi að hafa eigið líf. Trommuleikurinn á sinn þátt í því, en hann er oft með mjög ófyr- irsjáanlega nálgun við lögin og takt- urinn er hægur og hraður eftir því hvort um er að ræða hægan og dreymandi kafla eða skyndilegan og ofsafenginn stuðkafla í lagi. Sólstafir eru mikið fyrir kaflaskipt lög, svo mikið er óhætt að segja. Þeir líta út fyrir að fá svolítið „kikk“ út úr því að taka hugmynd og fara með hana yfir mörk velsæmis, ef svo mætti að orði komast. Gott dæmi um það er „I myself the visionary head“, fyrsta lag plötunnar. Grunn- hugmyndin að því lagi er mjög góð og úr henni hefðu venjulegar hljóm- sveitir gert ca 5–6 mínútna fyrirtaks lag. Svo hefðu leiðinlegar hljóm- sveitir farið með lagið í eitthvert runk og endurtekningar og gert lag- ið að 12 mínútna löngum af- spyrnuleiðindum. Sólstafir sýna snilligáfu sína með því að þora að hafa lagið 19.55 mín- útna langt. Þeir ýkja hæga fram- vinduna og gera sér mat úr end- urtekningunum þangað til lagið hættir bara að vera lag og verður miklu frekar saga. Það er nógu langt til að hægt sé að hjóla út í búð og kaupa mjólk í kaffið og hjóla til baka og það er enn í gangi. Það er líka nógu langt til að hægt sé að leggjast endilangur í sófann og komast í hug- leiðsluástand í þessar tæpar tuttugu mínútur sem það spannar. Þeir spara kraftinn eins lengi og þeir geta og springa svo að lokum út í kringum 17 mínútna mörkin. Svavar bassaleikari raddar gítarlínurnar skemmtilega undir lok lagsins og gefur það endalokunum aukið vægi, sem og kraftinum í gítardrón- kaflanum. Þetta langa upphafslag fangar at- hygli hlustenda, öfugt við það sem maður myndi halda. Spennan hefur magnast í fyrsta laginu, því maður hefur upplifað eitthvað, gengið í gegn um einhverja sögu með hljóm- sveitinni Sólstöfum. Það eru miklar tilfinningar í rödd söngvarans, og hans helsti styrkur hve röddin er brothætt, því við það verður mjög sérstakur hljómur til. Slíkur hljómur lærist ekki nema að takmörkuðu leyti, en viðkvæm túlk- un hans virkar einmitt mjög vel með sterkum og þungum bassanum og gíturunum. Þarna eru andstæðurnar að vinna vel saman: Lífrænar trommur, gítarveggur, þéttur bassi og tilfinningarík rödd, og úr verður eitthvað alveg sérstakt: Sólstafir. Sólstafir hljóma, þótt undarlegt megi virðast, ekki eins og neitt ann- að sem ég hef heyrt og verður það að teljast vel heppnað afrek í dag. Plat- an Masterpiece of bitterness inni- heldur blöndu af krafti og gít- arveggjum, og sorglegri, dramatískri tónlist sem lætur manni renna kalt vatn milli skinns og hör- unds á stundum. Tónlistin er í senn drungaleg og kraftmikil, draugaleg og hressandi, draumkennd og rokkuð. Í næstsíð- asta laginu, Ritual of fire, eru þessar andstæður eins mikið sameinaðar og möguleiki er á. Þá hljóma Sólstafir eins og stóri bróðir Sigur Rósar, en klæddur í svart leður frá toppi til tá- ar, á leiðinni á þungarokkstónleika. Líklega er þetta eina lagið á plöt- unni sem skartar dúrkafla, og því verður það aðeins glaðlegra fyrir vikið, og þá dettur manni í hug Sigur Rós, en það er eins og flest annað við Sólstafi; tímabundin tálsýn og blekking. Sólstafir eru eins og aft- urganga: Þegar henda á reiður á henni smýgur hún manni úr greip- um og reynist að lokum vera eitt- hvað allt annað en í upphafi var talið. Sólstafir eru band öfga og and- stæðna og ná því sem marga sam- ferðamenn þeirra skortir: Að hlusta á sína eigin rödd og fylgja henni eft- ir. Vel gert, strákar. Band öfga og andstæðna TÓNLIST Geisladiskur 7 lög, heildartími 70.24 mínútur. Sól- stafir eru: Aðalbjörn Tryggvason gítar og rödd, Guðmundur Óli Pálmason, tromm- ur, Svavar Austman, bassi og Sæþór M. Sæþórsson, gítar. Lög og textar eru eftir Sólstafi.Tekið upp í Stúdíó Helvíti af Sigurgrími Jónssyni. Upptökustjórn Sigurgrímur Jónsson og Aðalbjörn Tryggvason. Hljóðblöndun Sig- urgrímur Jónsson. Masterað í Finvox í Helsinki af Mika Jussila. Myndverk og hönnun er í höndum Söndru Maríu Sigurðardóttur/SMS. Söngkona í „I myself the visionary head“ er Hlín Pét- ursdóttir. Spikefarm records gefur út 2005. Sólstafir – Masterpiece of bitterness  Heiða Eiríksdóttir „Þá hljóma Sólstafir eins og stóri bróðir Sigur rósar, en klæddur í svart leður frá toppi til táar, á leiðinni á þungarokkstónleika,“ segir meðal annars í umsögn gagnrýnanda. Þrátt fyrir rigningu og rok sungu krakk- arnir sólarsöngva og brostu breitt. Morgunblaðið/Eggert Litskrúðugur hópur gekk í halarófu og söng hástöfum alla leið frá Útvarpshúsinu til grillveislunnar í Tónabæ. Brosað í rigningunni KÁTT VAR á hjalla hjá börnunum á karnivali sumarstarfs Frístundamiðstöðv- arinnar Tónabæjar sem haldið var á föstudag. Haldin var sameiginleg skemmti- dagskrá fyrir þau tæplega 130 börn sem sækja leikjanámskeið í nágrenni Tóna- bæjar. Hófst dagskráin á veglegri skrúð- göngu frá Útvarpshúsinu við Efstaleiti þar sem hvert leikjanámskeið skartaði sínum einkennislit í göngunni. Skrúðgangan kom að Tónabæ með lúðraþyt og bumbuslætti. Þar var haldið pylsupartí og boðið upp á skemmtiatriði þar sem meðal annars kom fram Idol- stjarnan Nana. Hopp-kastalarnir voru á sínum stað, alls kyns leikir og andlits- málun. Þótt veður hafi ekki verið með besta móti voru allir í hátíðarskapi og krakk- arnir létu sig ekki muna um að syngja „Sól, sól, skín á mig“ fyrir ljósmyndara Morgunblaðsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.