Morgunblaðið - 17.07.2006, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.07.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2006 15 MENNING BLÚSHÁTÍÐIN á Ólafsfirði er ef mér mis- skilst ekki nærri því jafngömul Þjóðlagahátíð- inni á Siglufirði. Sú fyrrtalda lenti í fyrsta skipti í mínum verkahring s.l. laugardag, m.ö.o. áður en þeirri síðartöldu lauk. Hlaut mann að undra tímasetningin, þar eð hvorri hátíðinni hættir þar með til að trufla hina – a.m.k. ef gera má ráð fyrir að blúsfíklar og þjóðlagaunnendur hafi skyldan smekk, sem virðist ekki fjarri lagi. En nú eru firðirnir runnir saman í eitt sveitarfélag, og hvort sem það hefur haft eitthvað að segja eða ekki þá var mér tjáð að Blúshátíðin yrði ekki lengur höfð á sama tíma framvegis. Hvað svo sem verða vill þegar aksturstími milli staða styttist niður í 20 mín. með væntanlegum Héðinsfjarð- argöngum. Þrjár söngkonur komu fram við píanóleik á vel sóttum tónleikum í Ólafsfjarðarkirkju, þ.e. Borgardætraaltinn Berglind Björk, Andrea Gylfadóttir og loks Zora Young er ég heyrði síðast í apríl í ár í Fríkirkjunni á vegum Blúshátíðar í Reykjavík. Dagskráin var að miklu leyti svipuð og þá – að uppistöðu banda- rísk gospellög þó að veraldleg blúslög tíndust inn á milli – enda þótt athyglin beindist nú hlutfallslega meir að eina undirleikaranum en þegar heil blússveit var um hituna. Hver vókalistinn tók fyrir fjögur einsöngs- lög, og urðu áheyrendur að reiða sig á eigin þekkingu enda engin tónleikaskrá og kynn- ingar fáar. Berglind söng Walked the Fields of God, Summertime í hægvampaðri djass- valsúttekt með frumlegu píanósólói, Presleyb- allöðuna In the Ghetto og gospelinn Rescue me með ágætum tilþrifum. Andrea tók Billie Holidaylagið God Bless the Child, Motherless Child í marskenndri útfærslu (almennt virtist hægur marsrytmi eiga hér talvert upp á pall- borðið), gospelinn I know He’s Watchin’ me og Goodbye World, Goodbye; flest á frekar dramatískum nótum og við góðar undirtektir. Þá tók við Zara Young og hleypti strax öllu upp í bál og brand með eldheitri túlkun á When the Saints go Marchin’ in. Í kjölfarið fylgdu I Want you to Send me Someone to Love og This Little Lamb of Mine við taktföst undirklöpp. Saman sungu þær stöllur Oh Mary, don’t you Weep No More, og sem auka- lag This Little Light of Mine. Þó að þrírödd- unin hefði vel mátt vera upp á fleiri fiska, bentu viðtökurnar ekki til að hún færi fyrir brjóstið á mörgum. Hérna mátti heyra marga góða sveiflu, and- lega sem veraldlega, og Davíð Þór Jónson sýndi ýmis skemmtileg tilþrif, enda greinilega vaxandi píanisti með æ fjölbreyttari uppátæki úr rytmíska pokahorninu. „Hérna mátti heyra marga góða sveiflu, and- lega sem veraldlega“ segir gagnrýnandi meðal annars um tónleikana. Gosplað á Ólafsfirði TÓNLIST Ólafsfjarðarkirkja Gosplar og blúslög. Söngur: Berglind Björk, Andrea Gylfadóttir og Zora Young. Davíð Þór Jónsson píanó. Laugardaginn 8. júlí kl. 16.30. Blúshátíðin á Ólafsfirði Ríkarður Ö. Pálsson FYRIR rúmum þremur árum hóf tímaritið Reykjavik Grape- vine göngu sína og var lengi vel eina íslenska blaðið á ensku í frídreifingu. Hugmyndin á bak við stofnun þess var að veita er- lendum gestum allar helstu fréttir og upplýsingar um þjóð- og dægurmál í landinu. Í gegnum árin hefur tímarit- inu tekist að skapa nýtt og áhugavert sjónarhorn á íslenskt samfélag sem núna hefur ratað í ferðahandbókina, Inside Reykja- vík – The Grapevine Guide, sem tímaritið gefur út í samvinnu við Mál og menningu. Bart Came- ron, ritstjóri Grapevine, er sömuleiðis ritstjóri bókarinnar og auk þess skrifar hann nokkra kafla í hana ásamt Paul F. Nikolov og Sveini Birki Björns- syni. Bókin ber með sér helstu kennileiti tímaritsins í að kynna land og þjóð sem hún gerir á beinskeyttan, gagnrýnin og oft á tíðum hnyttinn máta og að því leytinu er hún töluvert ólík öðr- um ferðahandbókum um höf- uðborgina. Lítið er gert úr álfum og vík- ingum sem gjarnan er stillt upp í landkynningum og auk þess er vegið að öðrum svipuðum klisj- um. Áhersla er lögð á að lesand- inn fái tilfinningu fyrir landi og þjóð en í bókinni eru ýmsar skemmtilegar ábendingar um hvernig skal nálgast þjóðarsál- ina og innbyrða eins mikið af landinu og hægt er á skömmum tíma. Lesandanum er t.d bent á að sundlaugar landsins séu kjörinn staður til að spjalla við og kynn- ast innfæddum en þar eru þeir mun ræðnari en þeir eru venju- lega. Einnig er mælt með innliti í Kolaportið og súkkulaðisn- úðnum sem hefur heillað marg- an útlendinginn. Bæjarins bestu fær góða umfjöllun og Clinton- pylsan er að sjálfsögðu nefnd. Hið rómaða og alræmda reyk- víska næturlíf fær vissulega sitt pláss og veitir bókin ítarlegar leiðbeiningar um hvernig skal bera sig að á börum borg- arinnar. Þá er einnig að finna mjög greinargóða úttekt á ís- lenskri tónlist en þarna eru upp- lýsingar um allar helstu hljóm- sveitir og tónlistarfólk landsins. Framarlega í bókinni er mjög athyglisvert spjall ritstjórans við þá Bóas og Hauk, heimspek- ingana úr hljómsveitinni Reykjavík! þar sem þeir ræða og velta upp ýmsum hug- myndum um höfuðborgina og sérstaklega hvað hún sé í aug- um utanaðkomandi. Þeir ræða t.d. hvaða merkingu fyrirbærið „Reykjavík“ hafði fyrir þá þegar þeir bjuggu ungir út á landi og þeir tala einnig um menningar- pólitík, túrisma og „dirty week- end“. Mjög líflegt og skemmti- legt spjall sem veitir góðan inngang að efni bókarinnar. Menning | Grapevine sendir frá sér Ferðahandbók um Reykjavík Að upplifa Reykjavík Eftir Þormóð Dagsson thorri@mbl.is Inside Reykjavík. Siggi Eggertsson teiknaði myndina á forsíðunni Miðstöðvum íslenskrar menningar eru gerð góð skil í bókinni. Skyndi- bitastaðurinn Bæjarins bestu er vitaskuld þeirra á meðal. „ÉG ÁTTI engan veginn von á þessu,“ sagði Elfa Rún Kristinsdóttir fiðuleikari þegar blaðamaður náði af henni tali. Elfa vann það merka afrek að verða hlutskörpust í flokki fiðluleikara í Johan Sebastian Bach keppninni í Leipzig, eins og Morgunblaðið greindi frá á laugardag, og má nú bera nafnbótina Bachp- reisträger. Elfu Rún er efst í huga þakklæti í garð for- eldra sinna, sem dvalið hafa með henni í Leip- zig á meðan keppnin hefur staðið yfir: „Ég er þakklát þeim kennurum sem ég hef lært hjá og öllum þeim sem hafa hugsað til mín og sent mér kveðjur. Sérstaklega þakka ég Helgu Ing- ólfsdóttur og eiginmanni hennar Þorkeli Helgasyni sem komið hafa að skipulagningu sumartónleika í Skálholti undanfarin 20 ár. Ég hef fengið að vera þar á hverju sumri og má segja að áhugi minn á barrokktónlist hafi kviknað þar og held ég að tilfinning mín fyrir tónlistinni sé að miklu leyti komin frá Skál- holti.“ Keppnin spannaði tvær vikur og lék Elfa Rún tvö verk í fyrstu umferð keppninnar, þrjár sónötur í annarri umferð og sólósónötu og konsert í þriðju umferð. Hún hefur unnið að undirbúningi fyrir keppnina síðan í apríl. Aðspurð hvaða ráð hún geti gefið ungum og upprennandi tónlistarmönnum er Elfa Rún ekki lengi að svara: „Það besta sem ég get ráð- lagt þeim sem fara í svona keppni er að hafa gaman af. Ég held að það hafi haft mikil áhrif að þegar ég komst í lokaumferð keppninnar var ég hæstánægð með það eitt að hafa komist áfram og gerði mér ekki vonir um neitt meira. Ég ákvað því að njóta þess bara að spila og var alveg sama um framhaldið.“ Eins og Morgunblaðið hefur áður greint frá mun Elfa Rún halda tónleika hér á landi seinni hluta ágústmánaðar þegar hún leikur með kammersveitinni Ísafold. Tónlist | Elfa Rún Kristinsdóttir ber með rentu titilinn Bachpreisträger Barrokkáhuginn kviknaði í Skálholti Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is Morgunblaðið/Eggert „Það besta sem ég get ráðlagt þeim sem fara í svona keppni er að hafa gaman af“ segir Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.