Morgunblaðið - 17.07.2006, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.07.2006, Blaðsíða 30
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ...OG TVÖFALDAN SKAMMT AF PEPPER- ONI, AUKA OST, LAUK OG ÞREFALDAN SKAMMT AF ÓLÍVUM. NÁÐIRÐU ÞESSU? FLOTT, ÞÁ ER ÞAÐ NÆSTA SÍÐA HANN ER FARINN AÐ SKÆLA HANN ER ÓVANUR KALVIN, ÞAÐ ER KOMINN TÍMI Á BAÐ! SVONA NÚ, DRÍFUM BARA Í ÞESSU! ÞETTA TEKUR ENGA STUND! SVONA NÚ, HVAR ERTU! HÚN LEITAR EKKI HÉRNA! ÞÚ VERÐUR AÐ SLAKA Á EDDI! ÞAÐ ERU EKKI ALLIR AÐ REYNA AÐ MEIÐA ÞIG! KANNSKI ALLIR Í ÞESSUM BÆ... ...EN SAMT EKKI ALLIR Í HEIMINUM ÚFF, SKUNKURINN MEIG Á MIG OG NÚ LYKTA ÉG ALLUR! HEYRÐU, EKKI ÁTTU ÞESSA LYKT TIL Í FLÖSKU? ÉG HEF EKKI ENN VERIÐ BEÐIN AÐ HALDA ÞENNAN FYRIRLESTUR HEFURÐU Í ALVÖRU SVONA MIKLA TRÚ Á ÞESSUM SPÁMANNI? HANN SAGÐI AÐ ÉG YRÐI BEÐIN AÐ HALDA FYRIR- LESTUR OG ÉG HELD AÐ ÞAÐ SÉ RÉTT HJÁ HONUM ÁTTI ÞAÐ AÐ VERA Í ÁR? HANN SAGÐI REYNDAR EKKERT UM ÞAÐ TÖKUVÉLARNAR NÁÐU ÞVÍ SEM GERÐIST ÞARNA UPPI ÞÁ ÆTTI AÐ VERA ÚTI UM KVIKMYNDAFERIL KRAVENS OG LÍKA MINN, ÞVÍ MIÐUR ÉG HELD NÚ SÍÐUR! ÞAÐ ER ERFITT AÐ VERA FYRIRLIÐI FYRSTI LEIKURINN OKKAR ER Í NÆSTU VIKU OG VIÐ ERUM ENGAN VEGINN Í NÓGU GÓÐU FORMI AND- VARP! LIÐIÐ MITT SAMAN- STENDUR AF KRÖKKUM SEM KOMUST EKKI INN Í NEITT ANNAÐ LIÐ Dagbók Í dag er mánudagur 17. júlí, 198. dagur ársins 2006 Stundum hefur veriðtalað um að nöldur sé einskonar þjóðar- íþrótt Íslendinga og getur Víkverji reyndar líklega talist meistari í þeirri íþrótt. Stundum verður kvartið í fólki samt svo yfirgengilegt að það verður fyndið. Til dæmis gat Vík- verji ekki annað en brosað þegar hann fór í sund á dögunum og heyrði eldri konu kvarta yfir því að gólfið í búningsklefunum væri blautt. Við hverju býst hún í búningsklefa í sundi?! Endalaust röfl misviturra vitringa yfir slæmri málnotkun í íslensku hér og þar er svo oft með því fyndnasta sem Víkverji heyrir. x x x Víkverji er orðinn voðalega jákvæð-ur þessa dagana og rembist við að hlæja að fýlunni í sjálfum sér og öðrum. Hann forframaðist nefnilega gríðarlega á dögunum þegar hann fór til Bandaríkjanna og fékk þar vægast sagt menningarsjokk. Nánast alls staðar, hvort sem var úti á götu, í búðum eða veitingastöðum, var fólk vingjarnlegt og jákvæðnin skein af mönnum. Jú, þetta er kannski mikið til á yf- irborðinu en hvað með það? Jákvæðnin gerir öll dagleg samskipti miklu þægilegri en nei- kvæðnin og fýlan sem stundum lekur af okkur hér. x x x Nei, hvern er Víkverjiað reyna að gabba! Hann er bara fýlupúki út í gegn og hreinlega verður nú að fá að nöldra yfir þeirri óþol- andi tísku sem virðist tröllríða öllum vinsælustu sjónvarps- þáttunum sem koma frá Bandaríkj- unum, að enda aldrei. Víkverji er til dæmis svo pirraður út í lokaþátt Aðþrengdra eiginkvenna sem var á fimmtudaginn að hann íhugar að sleppa því að horfa á næstu þáttaröð. Þá er hann löngu búinn að gefast upp á Lífsháska eftir fyrstu seríuna en að sögn vina gaf lokaþátturinn í annarri þáttaröð, engin svör, heldur vakti bara fleiri spurningar. Víkverji vonar að þessi tilhneiging handritshöfunda gangi fljótt yfir og þeir fari aftur að fá nýjar góðar hugmyndir í staðinn fyrir að teygja endalaust lopann í góðu gömlu hugmyndunum. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is       Leiklist | Ferðaleikhúsið sýnir The Best of Light Nights í Iðnó mánudags- og þriðjudagskvöld kl. 20.30 í júlí og ágúst. Á efnisskrá eru 18 atriði byggð á íslensku efni flutt á ensku (að undanskildum þjóðlagatextum, rímum og smáum hópatriðum). Þjóðsögur og atriði úr Íslendingasögum eru sviðsett, færð í leikbúning og á milli leikatriða er fræðsluefni sýnt með skyggnum sem eru tengdar tónlist, leikhljóðum og tali. Miðapantanir eru í síma 551 9181. Ferðaleikhúsið sýnir í Iðnó MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Ég mun biðja föðurinn, og hann mun gefa yður annan hjálpara, að hann sé hjá yður að eilífu. (Jóh. 14, 16.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.