Morgunblaðið - 20.09.2006, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Stuttar leðurkápur
Símar 561 1525
og 898 3536.
Upplýsingar og innritun
kl. 15-21 alla daga.
Málað með olíu, vatnslitum og akrýl. Teiknun.
Nýjar vörur frá
Gallakvartbuxur, peysur, jakkapeysur og kvartermabolir
www.belladonna.is
Hlíðasmára 11 • Kópavogi • sími 517 6460
Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15
Ásnum – Hraunbæ 119 – Sími 567 7776
Allra síðustu dagar útsölunnar!
20% auka afsláttur
af völdum vörum
Mjódd, sími 557 5900
Flottar úlpur stuttar og síðar,
flauelsbuxur og margt fleira frá Jensen
Verið velkomnar
NEFND sem falið var að gera til-
lögu um með hvaða hætti valið verði
á milli umsókna um rannsóknar- og
nýtingaleyfi á auðlindum í jörðu og
að marka framtíðarstefnu um nýt-
ingu auðlindanna, mun vonandi skila
niðurstöðum upp úr mánaðamótum
að sögn Karls Axelssonar, formanns
nefndarinnar.
Nefndin átti að ljúka störfum sl.
föstudag, 15. september, og er því
komin nokkuð fram yfir þann tíma
sem henni var gefinn. Í samtali við
Morgunblaðið sagði Karl Axelsson
að nefndinni hefði verið skammtaður
naumur tími og í sjálfu sér hefði hún
þurft enn meiri tíma til starfa.
Karl er skipaður í nefndina af iðn-
aðarráðuneyti líkt og einn nefndar-
maður til viðbótar. Auk þeirra sitja í
nefndinni þrír fulltrúar skipaðir af
Samorku sem eru samtök veitufyr-
irtækja á Íslandi og einn fulltrúi frá
hverjum þingflokki, samtals 10
manns.
Nefnd um rannsóknar-
leyfi og framtíðarnýtingu
auðlinda í jörðu
Niðurstaða
væntanleg
á næstunni
UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ
lagðist í sumar gegn því að veitt yrðu
leyfi til rannsóknarborana í Brenni-
steinsfjöllum. Samkvæmt upplýsing-
um frá umhverfisráðuneytinu er
stutt í að það veiti álit vegna um-
sókna um rannsóknarleyfi í Grændal
og Krísuvík.
Iðnaðarráðuneytið óskaði eftir
umsögn umhverfisráðuneytisins í
febrúar 2005. Umhverfisráðuneytið
sendi erindið áfram til Umhverfis-
stofnunar og Náttúrufræðistofnunar
Íslands og lögðust báðar stofnanirn-
ar gegn því að leyfi yrði veitt. Bent
er á að Brennisteinsfjöll eru innan
Herdísavíkurfriðlands, Reykjanes-
fólkvangs og Bláfjallafólkvangs og
því þurfi leyfi Umhverfisstofnunar
til framkvæmda á svæðinu.
Í umsögninni kemur fram að það
er mat ráðuneytisins að Brenni-
steinsfjöll hafi mikið verndargildi
sem ósnortið víðerni enda sé svæðið
talið einstakt á heimsvísu og að með
því að veita rannsóknarleyfi yrði
þeim hagsmunum fórnað. Ráðuneyt-
ið gæti því ekki mælt með tilrauna-
borunum í Brennisteinsfjöllum. Þess
í stað er bent á möguleika sem kunna
að finnast á Reykjanesskaganum s.s.
í Krísuvík og Trölladyngju.
Að lokum kemur fram að dráttur
hafi orðið á umsögninni en hann
megi rekja til þess að vorið 2005 hafi,
í samráði við iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneytið, verið ákveðið að fara í
vettvangsferð í Brennisteinsfjöll
vorið 2005, áður en erindið yrði af-
greitt í ráðuneytinu og að iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytið myndi beita
sér fyrir slíkri ferð. „Ferðin hefur
ekki verið farin þannig að ráðuneytið
sér ekki ástæðu til að draga af-
greiðslu erindisins frekar en orðið
er,“ segir í umsögninni.
Umsögn umhverfisráðuneytisins
Andvígt borunum í
Brennisteinsfjöllum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FRAM kom í máli Vilhjálms Þ. Vil-
hjálmssonar borgarstjóra, á fundi
borgarstjórnar Reykjavíkur í gær,
að ljóst væri að fjárhagur borgarinn-
ar væri ekki viðunandi og svigrúm til
ýmissa framkvæmda þar af leiðandi
þröngt.
Spurður hvort fjárhagsstaða
borgarinnar muni hafa áhrif til frest-
unar framkvæmda sagði Vilhjálmur
að ekki hefðu verið teknar endanleg-
ar ákvarðanir þar um. Fjárfesting-
aróskir væru hins vegar mun hærri
en komið hefði fram í þriggja ára
áætlun R-listans frá því í mars sl.
Tillaga borgarfulltrúa Samfylk-
ingarinnar um að hefja undirbúning
þess að Reykjavíkurborg taki að sér
rekstur framhaldsskóla var felld á
fundi borgarstjórnar í gær. Vil-
hjálmur sagðist ekki útiloka að farið
yrði í þetta verkefni á síðari stigum.
„Það eru önnur verkefni sem mér
finnst mikilvægara að sveitarfélögin
taki yfir en þetta verður allt að ger-
ast í ákveðinni röð,“ sagði Vilhjálmur
og benti á að flutningur á málefnum
fatlaðra til ríkis hefði forgang hvað
þetta varðaði en þar á eftir kæmu
málefni aldraðra.
Fjárhagur
borgarinnar
óviðunandiFEGRUNARVIKA var nýlegahaldin í leikskólanum Regnbog-anum við Bleikjukvísl á Ártúns-
holti. Aðdragandi hennar var að
bréf barst frá borgarstjóra þar
sem skorað var á alla í Árbæjar-
og Ártúnshverfi að taka þátt í
fegrunarátaki laugardaginn 16.
september sl. Leikskólinn er lok-
aður á laugardögum en vegna
þess, fegrunarátak féll vel að
vinnunni í leikskólanum þar sem
þemað í skólanum er „að virða,
vernda og njóta náttúrunnar“, var
skipulögð fegrunarvika í leikskól-
anum í aðdraganda átaks borg-
aryfirvalda.
Börnin sendu Vilhjálmi Þ. Vil-
hjálmssyni borgarstjóra bréf og
brást hann vel við og kom og hitti
krakkana kl. 14 á föstudeginum
15. sept. og var hjálpast að við að
fegra umhverfið við Elliðaár á síð-
asta degi fegrunarviku leikskólans.
Börnin afhentu borgarstjóra rauða
regnhlíf til afnota því það rigndi
mikið þennan dag. Samkvæmt
upplýsingum frá leikskólanum
spurðu börnin borgarstjóra margs.
Meðal spurninga voru þessar: „Vil-
hjálmur, getur þú ekki látið full-
orðna fólkið hætta að henda rusli
út um bílgluggann“ og „Vil-
hjálmur, átt þú pollagalla?“
„Vilhjálmur, átt þú pollagalla?“