Morgunblaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÁSTSÆLL konungur Tongaeyja, Taufa’ahau
Tupou IV, var borinn til grafar í grafreit kon-
ungsfjölskyldu eyjanna í höfuðborginni Nuku’a-
lofa í gær.
Um 20.000 eyjarskeggjar og tignir gestir frá
30 löndum voru viðstaddir útförina sem stóð í
þrjár klukkustundir og var blanda af fornum
hefðum Tongabúa og kristnum athöfnum og
bænum. Um 1.000 líkmenn fylgdu kistunni og
skiptust á um að bera hana um 500 metra leið frá
konungshöllinni að grafreitnum.
Tupou IV lést 88 ára að aldri á sjúkrahúsi í ný-
sjálensku borginni Auckland 11. þessa mánaðar
eftir langvarandi veikindi. Hann ríkti í 41 ár.
Á meðal gestanna voru Naruhito, krónprins
Japans, hertoginn af Gloucester, sem var fulltrúi
Bretadrottningar, forsætisráðherrar Nýja-
Sjálands og Fídjíeyja og forseti Frönsku Pólýne-
síu.
Tongaeyjar eru sjálfstætt konungdæmi í suð-
vesturhluta Kyrrahafs. Íbúarnir eru um 114.000.
AP
Konungur Tongaeyja borinn til grafar
Majdal Sellem. AP, AFP. | Yfirmaður
hjálparstarfs Sameinuðu þjóðanna í
Líbanon, David Shearer, sagði í gær
að mikill hluti þeirra 350.000 klasa-
sprengna sem Ísraelar komu fyrir í
suðurhluta Líbanons í sumar sé enn
virkur. Flestum sprengnanna hefði
verið beitt eða komið fyrir á síðustu
dögum stríðsins þegar ályktun ör-
yggisráðsins um vopnahlé lá fyrir.
„Það er hneykslanleg staðreynd
að nær öllum þessum sprengjum var
varpað á síðustu þremur, fjórum
dögum stríðsins,“ sagði yfirmaður-
inn David Shearer.
Samkvæmt upplýsingum Samein-
uðu þjóðanna byggist talan 350.000 á
skýrslum ísraelskra hermanna sem
komu fyrir jarðsprengjum á svæðinu
og eru sprengjur sem skotið var úr
fallbyssum og flugvélum ekki með í
þeirri talningu.
Gagnslaus sprengjukort
frá Ísraelum
Ísraelar hafa afhent SÞ kort yfir
þá staði sem vitað er að sprengjum
hafi verið komið fyrir en Chris
Clark, yfirmaður sprengjuhreinsun-
ardeildar stofnunarinnar í suður-
hluta Líbanons, segir þau algerlega
gagnslaus við hreinsunarstörf á vett-
vangi. „Við höfum leitað margra
leiða til að koma þeim boðum áleiðis
til höfuðstöðvanna að við þurfum ná-
kvæmari upplýsingar,“ segir hann.
„Við höfum ekki enn fengið þær.“
Þrír Líbanar hafa að jafnaði látið
lífið eða slasast alvarlega í spreng-
ingum á degi hverjum í suðurhluta
Líbanons frá því að stríði Ísraela
gegn Hizbollah lauk.
Vara við
klasa-
sprengjum
Talsmenn SÞ segja að
minnst 350.000
sprengjur séu enn
ósprungnar í Líbanon
FREDRIK Reinfeldt, leiðtogi
sænskra hægrimanna, fékk í gær
umboð til að mynda nýja ríkisstjórn.
Þetta kom fram á blaðamannafundi
Reinfeldts og Björns von Sydows,
forseta sænska þingsins.
Reinfeldt sagði að hann væri tilbú-
inn að mynda fyrstu meirihluta-
stjórnina í 25 ár, eða frá samsteypu-
stjórn mið- og hægriflokka á árunum
1979–1981.
Fyrr í gær ræddi Reinfeldt við
leiðtoga þriggja mið- og hægriflokka
– Kristilegra demókrata, Þjóðar-
flokksins og Miðflokksins – um
myndun meirihlutastjórnar. Hann
sagði að ekki yrði skýrt frá skiptingu
ráðuneyta fyrr en í lok mánaðarins.
Maud Olofsson, leiðtogi Mið-
flokksins, krafðist þess að konur
fengju helming ráðherraembætt-
anna. Búist er við að Hægriflokkur-
inn, stærsti flokkurinn, fái mikilvæg-
ustu ráðuneytin eins og
fjármálaráðuneytið. Sænskir fjöl-
miðlar hafa spáð því að Olofsson
verði viðskipta- og iðnaðaráðherra.
Ljúka þarf stjórnarmynduninni áður
en sænska þingið kemur saman 3.
október.
Reinfeldt fær umboð
til að mynda stjórn
AP
Forsætisráðherraefnið Fredrik Reinfeldt (til vinstri) með forseta sænska
þingsins, Björn von Sydow, sem fól honum að mynda nýja ríkisstjórn.
Fyrsta meirihluta-
stjórn Svía í 25 ár
Harare. AFP. | Verslanir í Simbabve
eru að verða uppiskroppa með brauð
eftir að bakarar drógu úr framleiðslu
sinni vegna óánægju með opinberu
verðstýringuna.
Stjórnvöld í Simbabve ákveða
verð á brauði og öðrum mikilvægum
matvörum og bakararnir segja að
verðið sé undir framleiðslukostnaði.
Fregnir herma að lögreglan hafi
handtekið bakara og kaupmenn fyrir
að hækka brauðverðið án samþykkis
ríkisins. Þrátt fyrir brauðskortinn
kvaðst lögreglan ætla að halda áfram
að framfylgja lögum um verðstýr-
inguna.
Um 1.200% verðbólga
Verðbólgan í Simbabve er nú um
1.200% á ári og meiri en í nokkru
öðru landi. Samtök bakara hafa sagt
að brauðið þurfi að hækka um helm-
ing til að þeir geti staðið undir aukn-
um framleiðslukostnaði.
„Verðhækkunin er nauðsynleg til
að bakaríin haldi velli og til að halda
um 20.000 störfum í þessari atvinnu-
grein,“ sögðu samtökin.
Skortur á
brauði í
Simbabve
♦♦♦
London. AFP. | Donald Payne var í
gær fyrsti breski hermaðurinn í sög-
unni til að viðurkenna stríðsglæpi er
hann játaði hafa gerst sekur um
ómannúðlega meðferð á föngum í
Írak. Hann sagðist hins vegar sak-
laus af ákærum um morð og fyrir að
hindra framgang réttvísinnar með
því að segja vitni að ræða ekki við
rannsakendur.
Snýst morðákæran um dauða
Írakans Baha Musa, sem lést í haldi
breskra hermanna í september árið
2003. Sögðu vitni Musa haft haft 93
áverka á líkama sínum er hann lést.
Réttarhöldin fara fram í Salisbury á
Suður-Englandi en auk Payne eru
sex aðrir hermenn sakaðir um að
hafa gerst brotlegir í starfi.
Viðurkennir
stríðsglæpi
Kaffistjóri Davíð Þór Jónsson, þýðandi Allir velkomnir!
Dr. Þorvarður Árnason, forstöðumaður Háskólaseturs á Hornafirði og
dr. Einar Mäntylä, plöntusameindaerfðafræðingur - kafa ofan í umræðuna
um erfðabreytt matvæli – mjög spennandi!
Þriðja Vísindakaffið í KVÖLD 20.sept.
- vísindamenn segja frá rannsóknum sem koma öllum við – á mannamáli
Kaffistofa Listasafns Reykjavíkur – Hafnarhúsi frá kl. 20.00 – 21.30
Má bjóða þér sjálflýsandi svín?