Morgunblaðið - 20.09.2006, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006 17
SAGA sem höf-
undi Hringa-
dróttinssögu,
J.R.R. Tolkien,
láðist að klára í
lifanda lífi hefur
nú verið kláruð af
syni hans og
kemur hún út
næsta vor.
Sonurinn,
Christopher Tolkien, hefur nú eytt
þrjátíu árum af ævi sinni í að vinna
að þessari sögu, sem kallast á frum-
málinu The Children of Hurin. Þetta
er epísk saga sem faðir hans hóf að
rita árið 1918 en skildi svo við.
Tolkien yngri sagðist bjartsýnn á
að sagan ætti erindi við lesendur og
sagði hún fyllilega standa undir því
að vera sjálfstætt verk þó svo að
partar úr sögunni hafi komið fyrir
sjónir almennings áður. Í henni
koma meðal annarra fyrir dvergar
og álfar úr þríleiknum Hringadrótt-
inssögu.
50 milljónir eintaka seld
Hringadróttinssaga skiptist í
þrjár bækur, Föruneyti hringsins,
Tveggja turna tal og Hilmir snýr
heim, hefur selst í yfir 50 milljónum
eintaka um heim allan. Ekki hafa
vinsældir bókanna dvínað eftir að
leikstjórinn Peter Jackson færði
þær uppá hvíta tjaldið í einhverjum
vinsælustu kvikmyndum síðari ára.
Þriðja myndin fékk meðal annars
verðlaun sem besta myndin á Ósk-
arsverðlaunaafhendingunni árið
2004.
Tolkien lést árið 1973, þá 81 árs að
aldri.
Ný bók
eftir
Tolkien
Sonurinn eyddi 30 árum
í að klára sögu föður síns
J.R.R. Tolkien
LEIKLISTARGAGNRÝNANDI
The Guardian, Michael Billington,
gefur nýrri uppfærslu á leikriti
Peter Shaffers í London, Amadeus,
þrjár stjörnur. Sama verk verður
sett upp í Borgarleikhúsinu í októ-
ber undir leikstjórn Stefáns Bald-
urssonar, þar sem Víðir Guðmunds-
son fer með titilhlutverkið.
Verkið er sýnt í Wilton’s Music
Hall í London um þessar mundir,
við lifandi hljóðfæraleik 17 manna
hljómsveitar. Segir Billington hluta
af ánægjunni sem af sýningunni
hlýst ekki síst vera þá að sjá verkið
sjálft á sviði enn á ný, en verkið var
samið árið 1979 og hefur verið sett
upp margsinnis víða um heim.
Þekktust er þó án efa samnefnd
kvikmynd Milos Forman frá árinu
1984.
Amadeus fær
þrjár stjörnur
OPIN sýning og umræður fara fram í Öskju Háskóla Íslands í dag þar sem
fjallað verður um stöðu íranskra kvenna.
Atburðurinn er á vegum stjórnmálafræðiskorar HÍ og er hluti af nám-
skeiði dr. Magnúsar Þorkels Bernharðssonar í alþjóðasamskiptum.
Myndin sem sýnd verður nefnist Divorce Iranian Style og er frá árinu
1998. Þar er fylgst með konum í Íran sem sækjast eftir lögskilnaði við eig-
inmenn sína.
Frá árinu 1979, eða þegar íslamska byltingin átti sér stað í Íran, hafa
ákvæði sjaría-laganna um hjúskaparrétt verið í gildi í Íran. Í því kerfi er kon-
um gert erfitt fyrir að losna úr hjónabandi.
Við gerð myndarinnar komu kvikmyndagerðarmennirnir Ziba Meir-
Hosseini og Kim Longinotto myndavélum sínum fyrir í réttarsal dómara í
Teheran.
Sýning myndarinnar hefst klukkan 20 í kvöld. Nemendur á áðurnefndu
námskeiði hafa forgang að sýningunni sem stendur annars almenningi opin
meðan húsrúm leyfir.
Staða íranskra kvenna rædd
Úr myndinni Divorce Iranian Style. Þar er fylgst er með konum í Íran sem
sækjast eftir lögskilnaði.
NÆSTA smáskífa Nylon-flokksins í
Bretlandi með laginu „Closer“
kemur út hinn 23. október. Á smá-
skífunni er einnig að finna tökulag
frá Eurythmics, „Sweet Dreams“
en því var dreift á klúbba í Bret-
landi fyrr í þessum mánuði. Það
kom svo í ljós í fyrradag að lagið
fór beint í níunda sæti „Club Brea-
kers“-vinsældalistans, sem plötu-
snúðar á mörgum af vinsælustu
dansstöðum Bretlands velja, að því
er segir í fréttatilkynningu.
Nylon er á leiðinni í enn eina tón-
leikaferðina um Bretlandseyjar þar
sem þær slást í för með bresku
sveitinni McFly. Þær koma meðal
annars tvisvar sinnum fram á Wem-
bley sem er einn stærsti tónleika-
staður í Bretlandi.
Nylon í 9. sæti
danslistans
♦♦♦
♦♦♦