Morgunblaðið - 20.09.2006, Síða 20
Langholtsskóli stendurnærri útivistarparadís-inni Laugardalnum og því
er ekki að undra að í skólanum sé
lögð mikil áhersla á útivist nem-
enda.
„Við stækkum skólastofuna með
því að nota nánasta umhverfi í
kennslu,“ segir Vilhelmína Þ. Þorvarð-
ardóttir, deildarstjóri yfir 1.–7. bekk í
Langholtsskóla. „Á haustin og vorin er sérstaklega mikið
lagt upp úr útiveru og eitt af því sem við gerum er að hafa
leikjadag a.m.k. tvisvar á vetri fyrir hvert stig þar sem krakkarnir eru
í útileikjum hálfan daginn. Þá eru tólf stöðvar sem þau fara á milli og á hverri
þeirra er alltaf einhver leikur í gangi sem tveir fullorðnir stjórna.
Markmiðið með þessu er að kenna þeim að fara í útileiki svo þau geti nýtt þá
áfram í frímínútum. Það er lögð áhersla á boltaleiki, snúsnú, þrautir, boðhlaup,
fallna spýtu, eina krónu og fleiri leiki. Þau hafa mjög gaman af þessu.“
Vilhelmína segir leikfimitíma mikið fara fram úti í nærri öllum veðrum og
krakkarnir taki það sem sjálfsagðan hlut enda hefð fyrir því í skólanum. Á
haustin og vorin fara allir nemendur í gönguferðir. Í ár fór 1.–4. bekkur í
Elliðaárdalinn, 5.–7. bekkur í Heiðmörk og unglingastigið í fjallgöngu.
Hún segir útivistaráherslurnar hafa verið í skólanum í mörg ár en þær
aukist með hverju árinu. „Nú í haust var líka farið af stað með eitthvað
heilsutengt í öllum bekkjum, t.d. tekur 2. bekkur þátt í verkefninu Lífsstíll
7–9 ára barna í samvinnu við Lýðheilsustöð, í 3. bekk er útikennsla einu
sinni í viku og svo framvegis. Þetta er gert yfir allan veturinn,“ segir
Vilhelmína og bætir við að í Langholtsskóla stundi tæplega 600
nemendur nám frá 1. upp í 10. bekk.
Að sögn Vilhelmínu ætla þau að halda ótrauð áfram
með heilsueflingu í skólanum og útikennslu. Þannig
að krakkarnir í Langholtsskóla fá nægt
súrefni í skrokkinn í vetur.
|miðvikudagur|20. 9. 2006| mbl.is
daglegtlíf
Verið er að skoða
nýja tækni gegn
sveppasýkingum í
tánöglum. » 22
tilraun
Ég hef keyrt traktor frá því égvar smá gutti og var farinnað vinna á dráttarvélum hér
um alla sveit þegar ég var mjög ung-
ur. Ætli ég hafi ekki verið sjö ára
þegar ég keyrði fyrst traktor heima
á Grafarbakka, þar sem ég er fædd-
ur og uppalinn,“ segir Ölver Karl
Emilsson nýkrýndur heimsmeistari
í traktorstorfæru. Ölver býr á Flúð-
um í Hrunamannahreppi, en þar fór
þessi merka heimsmeistarakeppni
fram um verslunarmannahelgina.
„Þetta hefur verið árviss viðburður
frá því Iðandi dagar fóru af stað hér
á Flúðum og það hefur skapast mikil
stemning í kringum þessa keppni og
þetta er rosalega gaman. Bróðir
minn og frændi minn tóku líka þátt
núna og við þrír vorum teknir og
málaðir í framan áður en við lögðum
út í Litlu-Laxá, en keppnin gengur
út á það að komast ákveðna keppn-
isbraut sem liggur ofan í ánni, á sem
bestum tíma.“ Ölver segist hafa lagt
sig sérstaklega fram því hann hafi
misst titilinn í fyrra, þegar
hann varð í öðru sæti. „Ég hef
unnið þessa keppni þrisvar og
vil auðvitað halda fyrsta sæt-
inu, þá er meira fjör.“
Munaði ekki nema
sekúndu eða tveimur
Reglurnar eru þær að
traktorarnir mega ekki
vera meira en fimmtíu
hestöfl og þeir mega ekki
vera fjórhjóladrifnir, heldur
aðeins með afturhjóladrifi. „Við
sem keppum í þessu höfum eytt
ómældum tíma í að undirbúa
keppnistraktorana, setja í þá
túrbínur af bílum og breyta þeim
þannig að þeir drepi ekki á sér í
vatninu og fleira í þeim dúr,“ seg-
ir Ölver sem varð gegndrepa og
ískalt í keppninni því traktorarnir
nánast hurfu á kaf í ána þar sem
djúpur pyttur var í brautinni. „Þó
svo að keppnisbrautin liggi aðeins
upp á árbakkann þá er hún að
mestu ofan í ánni og á vissum stað í
brautinni stóð ekkert nema hausinn
á mér upp úr vatninu. Þetta hefur
aldrei verið
eins djúpt og
núna og
keppnin
mjög hörð.
Þetta tók
svolítið á,“
segir Öl-
ver sem er
mikill
áhugamaður
um vélar enda
er hann vélvirki
og segist hafa ver-
ið að gera við vélar
frá því hann var tíu
ára gamall. Hann
segist hiklaust ætla
að freista þess að
verja titilinn að ári,
en eitthvað þurfi
hann þó að fikta við
traktorinn því
keppnin sé hörð.
„Það munaði ekki
nema einni eða
tveimur sekúndum
á mér og þeim sem
var í öðru sæti.“
Gegndrepa og ískaldur heimsmeistari
Morgunblaðið/ Sigurður Sigmundsson
Á bólakafi Stundum sá ekki nema rétt í höfuð ökumanna þar sem brautin í
Litlu Laxá var dýpst. En brautin var óvenju djúp núna og keppnin hörð.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Kampakátur
Ölver alsæll
með heims-
meistaratitilinn
Börkur Emilsson er líklega
einn aðalvertinn á Húsavík.
» 24
matur
Traust og öryggi milli heimilis og
skóla jókst þegar kennarar í
Oddeyrarskóla heimsóttu nem-
endur og fjölskyldur þeirra. » 24
menntun
Fjör Í boltaleikjum
er oft gaman.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
K
ri
st
in
n
Leikjadagur
tvisvar á ári
Í Evrópu deyr kona af völdum
brjóstakrabba á sex mínútna
fresti. » 23
heilsa