Morgunblaðið - 20.09.2006, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F. OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
ÞRASTARHÖFÐI 13 OG 19 MOSFELLSBÆ
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 16 OG 18
Nú hafa fyrstu SUPER E húsin á Íslandi verið afhent eigendum sínum. Þau eru staðsett að
Þrastarhöfða 9-15 og Þrastarhöfða 17-21 í Mosfellsbæ. SUPER E er kanadískur byggingarstaðall
sem uppfyllir skilyrði um að vera orkusparandi, umhverfisvæn og heilsusamleg. Um er að ræða 186
fm raðhús á 2 hæðum með innbyggðum bílskúr og eru þau afhent fullbúin að utan en tilbúin til
innréttinga og grunnmáluð. Hús númer 13 og 19 eru óseld og verða þau til sýnis í dag. Einnig hægt
að sjá fullbúin hús á staðnum. Verð 37,9 millj.
ER HAUSTIÐ knýr dyra í
Reykjavík má búast við því um
leið að barátta hefjist um stjórn-
arsætin í Heimdalli, félagi ungs
sjálfstæðisfólks í Reykjavík. Hægt
er að ganga að því sem vísu að
fjöldi frambærilegra
einstaklinga bjóði þar
fram krafta sína til
þess að vinna hug-
sjón frelsis braut-
argengi meðal ungs
fólks. Þetta haust er
engin undantekning í
þessu sambandi.
Tveir öflugir hópar
hafa boðið sig fram
og gefið um leið ungu
fólki tækifæri til þess
að velja sér forystu
næsta árið.
Verkefni
komandi árs
Sá hópur sem ég
fer fyrir í þessum
kosningum hefur val-
ið sér einkunnarorðin
Háværari Heimdall-
ur. Eflaust kunna
einhverjir að spyrja
hvert inntak þeirrar
yfirlýsingar sé og því
er rétt að útskýra
það hér í örfáum orð-
um.
Í raun má segja að
hlutverk Heimdallar hafi verið og
sé tvíþætt. Annars vegar hefur
það löngum verið hlutskipti félags-
ins að veita forystu Sjálfstæð-
isflokksins aðhald þegar sjálfstæð-
isstefnunni er hrundið í
framkvæmd, jafnt á vettvangi
sveitarstjórna og Alþingis. Hins
vegar hefur hlutverk þess falist í
því að vinna sjálfstæðisstefnunni
fylgi meðal ungs fólks, með það að
markmiði að sem flestir veiti hug-
myndum einstaklingsfrelsis og
minnkandi ríkisafskipta atkvæði
sitt þegar gengið er til kosninga.
Til þess að Heimdallur geti
rækt þetta hlutverk sitt svo að
sómi sé af, þarf rödd þeirrar
stefnu sem hann stendur vörð um
að heyrast skýrt og greinilega í
þeirri umræðu sem á sér stað á
hverjum tíma. Til þess að svo megi
verða er nauðsynlegt að forystu-
sveit félagsins sé skip-
uð öflugu og djarf-
lyndu fólki sem óhrætt
berst fyrir þeirri hug-
sjón sem lengst og
best hefur gagnast ís-
lensku þjóðinni.
Dallurinn.is
Í tilefni kosninga
haustins hefur hinn
háværi hópur komið á
fót heimasíðunni dall-
urinn.is. Þar geta þeir
sem hug hafa á því að
velja málsvara ungs
sjálfstæðisfólks í höf-
uðborginni, kynnt sér
þá einstaklinga sem
telja að Heimdallur
þurfi að láta til sín
heyra í auknum mæli
og með meira afger-
andi hætti.
Aðalfundurinn
Nú hefur sitjandi
stjórn Heimdallar
boðað til aðalfundar
félagsins komandi
fimmtudag og hefst
hann klukkan 15. Er það von mín
að allt ungt sjálfstæðisfólk í
Reykjavík láti sjá sig á fundinum
og hafi með því áhrif á stjórn og
ásýnd Heimdallar. Það geri ég í
þeirri vissu að fleiri deili þeirri
skoðun með mér og þeim sem með
mér starfa, að háværari Heimdall-
ur sé til heilla fyrir allt sjálfstæð-
isfólk.
Háværari Heimdallur
Heiðrún Lind Marteinsdóttir
fjallar um hlutverk Heimdallar
og stjórnarkjör í félaginu
Heiðrún Lind
Marteinsdóttir
»Er það vonmín að allt
ungt sjálfstæð-
isfólk í Reykja-
vík láti sjá sig á
fundinum og hafi
með því áhrif á
stjórn og ásýnd
Heimdallar.
Höfundur er í framboði til
formennsku í Heimdalli.
HINN 25. ágúst síðastliðinn
birtist frétt í Morgunblaðinu um
afkomu ríkissjóðs árið 2005. Þar
sagði í fyrirsögn, að ríkissjóður
hefði verið rekinn með meiri
hagnaði en nokkru sinni fyrr og
næmi hann 113 milljörðum króna.
Í fréttinni var síðan millifyr-
irsögnin:
60 milljarðar í hreinar
skuldir
Undir henni stendur þessi texti:
„Fram kemur að lánsfjár-
afgangur samkvæmt ríkisreikn-
ingi nam 77 milljörðum króna í
fyrra. Að auki var 32 milljörðum
af söluandvirði Landssímans veitt
til Seðlabanka Íslands með sér-
stökum lánssamningi. Nýtti rík-
issjóður lánsfjárafganginn til að
greiða niður skuldir og bæta stöðu
sína hjá Seðlabanka. 50 millj-
örðum var varið til að greiða niður
erlend lán og handbært fé jókst
um 27 milljarða. Samanlagt ráð-
stafaði ríkissjóður 109 milljörðum
af bættri afkomu sinni til Seðla-
bankans og til að greiða niður er-
lendar skuldir. Staða tekinna lána
lækkaði úr 253 milljörðum í 196
milljarða í árslok 2005. Þar af voru
erlend lán 85 milljarðar sam-
anborið við 141 milljarð árið áður.
Hrein skuldastaða ríkissjóðs, þ.e.
skuldir að frádregnum veittum
lánum, var í árslok 60 milljarðar í
stað 156 milljarða króna í árs-
byrjun, að því er fram kemur.“
Ég rifja þetta upp hér í tilefni af
grein Hreins Loftssonar, stjórn-
arformanns Baugs Group, þegar
hann segir mig ljúga, þegar ég
telji 73 milljarða króna skuld
Dagsbrúnar hærri en 60 milljarða
hreina skuldastöðu ríkisins.
Hreinn gerir enga athugasemd
við töluna, sem nefnd er um skuld
Dagsbrúnar. Hann fjargviðrast
enn einu sinni yfir, að notað sé
orðið Baugsmiðlar. Kvartanir í þá
veru verða hins vegar enn innan-
tómari en áður eftir opið bréf Ro-
berts Marhalls til Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar, forstjóra Baugs,
um framtíð NFS.
Persónuleg ónot stjórnarfor-
manns Baugs í minn garð eða
Davíðs Oddssonar dæma sig sjálf.
Við verðum ekki ósannindamenn
sama hve margar greinar hann
skrifar til að reyna að koma því
orði á okkur.
Björn Bjarnason
Skuldir Dagsbrúnar
og ríkissjóðs
Höfundur er dóms- og
kirkjumálaráðherra.
NOKKURT fjaðrafok hefur verið í
fjölmiðlum undanfarið vegna álykt-
ana nýlegs aðalfundar Læknafélags
Íslands. Reyndar væri nær að segja
að fjaðrafokið hafi að mestu komið til
vegna greinargerða
sem fylgdu sumum
ályktana fundarins. Af
þessu tilefni er rétt að
taka fram að grein-
argerð sem slík er ekki
borin upp til atkvæða.
Um ályktunartillögu
gegnir öðru máli. Henni
er ýmist vísað frá, hún
samþykkt óbreytt eða
með tilteknum breyt-
ingum. Það er í þessu
ljósi sem ég tel nauð-
synlegt að árétta að
ályktun aðalfundar um
sjálfstæði læknastéttarinnar er svo-
hljóðandi: „Aðalfundur Læknafélags
Íslands haldinn að Egilsstöðum 1.–2.
september 2006 áréttar grein 2.2 í
lögum félagsins, „Að standa vörð um
sjálfstæði læknastéttarinnar og gæta
hagsmuna félagsmanna“ og hvetur
stjórn félagsins til að standa vörð um
atvinnufrelsi lækna með því að stuðla
að því að læknar geti beitt þekkingu
sinni og veitt þjónustu á fleiri en ein-
um vinnustað og verði ekki háðir ein-
um vinnuveitenda. Þá er nauðsynlegt
að stjórn LÍ vinni að því að efla hlut
lækna í stjórnun og stefnumótun heil-
brigðisstofnana.“
Í annan stað ályktuðu læknar:
„Aðalfundur Læknafélags Íslands
haldinn að Egilsstöðum 1.–2. sept-
ember 2006 varar við því alræðisvaldi
sem heilbrigðisráðherra og for-
stjórum heilbrigðisstofnana er ætlað
skv. drögum að frumvarpi til laga um
heilbrigðisþjónustu. Það leiðir til
skerðingar á frelsi fólks til að leita sér
lækninga þar sem það helst kýs ef það
vill njóta sjúkratryggingar og kemur í
veg fyrir samkeppni milli þjónustuað-
ila. Nauðsynlegt er að draga úr þeirri
einokun sem þegar ríkir og koma í
veg fyrir enn frekari einokun. Sam-
keppni veitir aðhald og stuðlar að
framförum og betri þjónustu.“
Í ljósi þessara ályktana vekur það
nokkra athygli að í ályktun stjórn-
arnefndar LSH frá 14. september sl.
skuli að finna eftirfarandi tilvitnun:
„Stjórnarnefnd Landspítala háskóla-
sjúkrahúss undrast ályktanir Lækna-
félags Íslands sem samþykktar voru á
aðalfundi þess nýlega um starfsemi
sjúkrahússins og framtíðaruppbygg-
ingu. Stóryrðum félags-
ins um stjórnendur LSH
er vísað á bug og lýst
fullum stuðningi við þá í
vandasömum verkefn-
um. Einnig vekur furðu
að Læknafélag Íslands
gangi gegn ítrekuðum
samþykktum læknaráðs,
hjúkrunarráðs og starfs-
mannaráðs LSH um
nauðsyn þess að reisa
nýtt háskólasjúkrahús.“
Með fullri virðingu fyrir
stjórnarnefnd LSH þá
veit ég ekki hvaðan á mig
stendur veðrið með þessari ályktun.
Því fer fjarri að læknar hafi nokkuð á
móti byggingu nýs háskólasjúkra-
húss. Allir sem starfa á Landspítala
eða þurfa að sækja þangað þjónustu
sína gera sér vel grein fyrir því óhag-
ræði sem fylgir því að reka sjúkrahús
á tveimur stöðum. Mikilvægt er
vegna þessa að hraða uppbyggingu
nýs sjúkrahúss á einum stað. Þó er
rétt að minna á að nýtt sjúkrahúss er
meira en húsnæðið eitt. Kjarni hvers
sjúkrahúss er auðvitað starfsfólkið
sem þar vinnur, þekking þess og
færni. Hvað sem líður byggingu há-
skólasjúkrahúss þá er það skoðun að-
alfundar Læknafélags Íslands að
nauðsynlegt sé að nýta kosti einka-
reksturs í auknum mæli í heilbrigð-
iskerfinu almenningi til hagsbóta.
Ekki er um það deilt að Íslendingar
eyða nú þegar gífurlegum fjármunum
til reksturs heilbrigðiskerfisins. Fyr-
irsjáanlegt er að sá kostnaður mun
aukast verulega á næstu árum og ára-
tugum. Þjóðin er að eldast, ný lyf og
aðferðir í læknisfræði eru dýr. Brýna
nauðsyn ber til að nýta þá hagræð-
ingu og aðhald sem samkeppni veitir
á þessu sviði líkt og á öllum öðrum
sviðum þjóðlífsins. Við höfum einfald-
lega ekki efni á öðru. Ég leyfi mér að
nefna samkeppni milli háskóla í okkar
fámenna samfélagi í þessu samhengi.
Augljóst er að sú samkeppni sem Há-
skóli Íslands hefur m.a. fengið frá Há-
skólanum í Reykjavík og Háskólanum
á Bifröst hefur eflt Háskóla Íslands.
Á sama hátt myndi samkeppni einka-
rekinna heilsugæslustöðva, lækna-
stofa og sjúkrahúsa efla íslenska heil-
brigðisþjónustu. Hvað varðar kostnað
við þjónustuna þá ætti kaupandi
hennar, þ.e. ríkið, að fagna aukinni
samkeppni og hagkvæmni. Mikilvægt
er að heilbrigðisyfirvöld setji lög og
reglur um staðla í anda heiðarlegrar
samkeppni og fagmennsku. Íslend-
ingar vilja góða heilbrigðisþjónustu.
Mikilvægt er að tryggja stoðir al-
mannatryggingakerfisins og að við
njótum þess öll óháð efnahag. Vel
kæmi til greina að endurvekja hug-
myndafræði sjúkrasamlaganna þann-
ig að hver einstaklingur sé meðvit-
aður um þann hluta skattgreiðslna
hans sem rennur til heilbrigðismála.
Kostnaðargreina þarf öll verk í heil-
brigðisþjónustunni og kaupa þjónustu
þar sem hún er ódýrust að öðru jöfnu.
Mikilvægt er að fjármagnið fylgi
sjúklingnum og fari á þann stað sem
veitir viðkomandi þjónustu. Heil-
brigðisstofnanir á föstum fjárlögum
eru tímaskekkja og til að mynda ein
af ástæðum fjárhagsvanda Landspít-
alans. Full ástæða er til að umræða
um þennan mikilvæga málaflokk sé
málefnaleg. Forðast ber persónu-
legar deilur og fljótfærnislegar upp-
hrópanir. Heilbrigð skoðanaskipti í
vinsemd munu leiða okkur fram á
veg.
Af ályktunum og greinargerðum
aðalfundar Læknafélags Íslands
Sigurður Böðvarsson fjallar um
heilbrigðismál og ályktanir að-
alfundar Læknafélags Íslands.
» Vel kæmi til greinaað endurvekja hug-
myndafræði sjúkra-
samlaganna þannig að
hver einstaklingur sé
meðvitaður um þann
hluta skattgreiðslna
hans sem rennur til
heilbrigðismála.
Sigurður Böðvarsson
Höfundur er formaður Læknafélags
Reykjavíkur.
Sagt var: Veðrið er að slota.
RÉTT VÆRI: Veðrinu er að slota.
Gætum tungunnar