Lesbók Morgunblaðsins - 19.05.2007, Síða 1
Laugardagur 19. 5. 2007
81. árg.
lesbók
ÍSLENSK HÖNNUN
ER ÍSLENSK HÖNNUN VILLT, FRUMLEG OG AFSKIPT?
HVAÐA MÖGULEIKA Á HÚN Í ALÞJÓÐLEGU UMHVERFI? >> 8
Hvernig væri saga Jesú Krists ef hún væri sögð frá sjónarhóli Júdasar » 11
Skírnir er aftur kominn á ról eftir þónokk-urn slappleika undanfarin ár. Það vareins og þetta gamla og virðulega tímaritfyndi sig ekki í samtímanum, þessari
stríðhærðu, svipljótu, andstuttu, kenjóttu og
önugu skepnu. Það var engu líkara en það forð-
aðist að horfast í augu við hana, þreifa á henni,
hvað þá takast á við hana. Skírnir var svo að segja
í andarslitrunum þegar hann allt í einu reis upp
við dogg og sagði: Þetta gengur ekki!
Halldór Guðmundsson tók
við ritstjórn Skírnis á síðasta
ári og hefur á skömmum tíma
blásið nýju lífi í hann. Hann
hefur tekið upp þráðinn þar
sem Jón Karl Helgason og Ró-
bert H. Haraldsson skildu við
hann seint á síðasta áratug en
það voru Ástráður Eysteinsson
og Vilhjálmur Árnason sem
höfðu hafið nútímagervingu
tímaritsins á níunda áratugnum. Samtímamenn-
ing, samfélag okkar og samtímaleg fræði fengu
þá aukið vægi í því. Nokkurt bakslag kom í þessa
ágætu þróun í ritstjórnartíð Sveins Yngva Egils-
sonar og Svavars Hrafns Svavarssonar en Hall-
dór hefur náð að snúa aftur á sömu braut á
skömmum tíma.
Áherslur Halldórs eru þó ekki að öllu leyti hin-
ar sömu og fyrrnefndra fjórmenninga. Halldór
hefur – að minnsta kosti í fyrstu heftunum sínum
– lagt meiri áherslu á að fá fleiri skáld til þess að
skrifa í tímaritið, ekki bara skáldskap heldur
einnig greinar um skáldskap og fleira. Í vorheft-
inu 2007, sem kom út í gær, er til dæmis að finna
sérstakan bókmenntaþátt þar sem ungir höf-
undar eru kynntir og Einar Már Guðmundsson
rithöfundur skrifar grein um Halldór Laxness.
Af öðru forvitnilegu efni má nefna grein Þor-
valdar Gylfasonar um fylgni líkamshæðar, vel-
ferðar og jafnaðar og ber hann þar saman Am-
eríku og Evrópu. Hannes Hólmsteinn
Gissurarson skrifar um réttlæti, jöfnuð og öfund.
Helga Kress skrifar um Matthías Jochumsson og
skáldkonurnar og Alda Valdimarsdóttir skrifar
um Veru Hertzsch og Halldór Laxness.
Skírnir
kominn á ról
MENNINGARVITINN
Eftir Þröst Helgason
vitinn.blog.is
Morgunblaðið/Kristinn
Kjartan og María Huld Þau hafa verið áberandi í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár með hljóm-
sveitum sínum Sigur Rós og amiinu. Nú eru þau útskrifuð úr tónskáldanámi. » 4-5
Í Sögustríði berst hópur hug-rakkra einsögufræðinga viðilla sögustofnun, að því ervirðist undir forystu Gunn-
ars Karlssonar. Þeir sem ekki eru í
liði með Sigurði geimgengli í þeirri
orrustu eru svikarar við málstað-
inn.“
Þannig kemst Jón Yngvi Jó-
hannsson að orði í harðorðri grein
um nýja bók Sigurðar Gylfa Magn-
ússonar sagnfræðings, Sögustríð,
sem kom út fyrir rúmri viku.
Jón Yngvi gagnrýnir það að Sig-
urður Gylfi skuli draga fræðimenn í
íslenskum hugvísindum í fyrirfram-
skilgreindar kvíar. Hann segir að
það sem Sigurður Gylfi kallar „ís-
lenska sögustofnun“ sé „furðueins-
leitur hópur sagnfræðinga sem allir
eru ósammála Sigurði Gylfa og þar
með gamaldags og íhaldssamir“ en
það er einkum gegn þessari svo-
kölluðu stofnun og því sem hann
segir meginaðferð hennar, yfirlits-
ritið, sem Sigurður Gylfi skrifar í
riti sínu. » 12
Morgunblaðið/Ásdís
Sigurður Gylfi Magnússon Er
„sögustofnunin“ á móti honum?
Hin illa
sögu-
stofnun
Sögustríð Sigurðar Gylfa
Magnússonar hafið?
„Boltamenn“
Velkomin á málverkasýningu Sigurþórs Jakobssonar
Sýningin er í Kirkjuhvoli, Akranesi
Opið kl. 15 – 18 alla daga nema mánudaga til 28. maí Heilagir KR-ingar 2007 Olía á striga (50 x 100 sm)