Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.2007, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.2007, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 3 BRANDARAKARLARNIR! Fyrir krakkana, mömmurnar, pabbana og öll hin Sumardiskurinn í ár. Stútfullur af bröndurum. Hentar hvar og hvenær sem er, ekki síst í ferðalagið. FÆST Í BÓKABÚÐUM Eftir Maríu Kristjánsdóttur majak@simnet.is A ð gleðjast yfir því að ákveðnu tímabili sé lokið. Rifja það upp og gefa hvert öðru einkunnir fyrir árangur í beinni útsendingu í sjónvarpi. Fagna ákaflega einsog íþróttamenn yfir að komast á verð- launapallinn. Þetta gera menn ár hvert á Eddunni og Grímunni. Það kostulega er að leikhúsmönnum hef- ur tekist að standa fyrir þessari ör- eftirlíkingu af Óskarsverðlaunum af sýnu meiri atvinnumennsku en kvik- myndagerðarmönnum undanfarin ár. Fyrirfram er því engin ástæða til að óttast það að setjast fyrir framan sjónvarpið og horfa á Grímuna. Það má gera ráð fyrir tæknilega áferð- arfallegri framvindu, glæsilegum búningum, glaðværum söng og dansi, andlitum þekktum úr Séð og heyrt og auglýsingum – ef ekki úr leikhúsinu og aulabrandarar verða sennilega ekki margir. Þar mun hins vegar sjálfsmynd leikhússins endurspegl- ast sem meinlaus, kærleiksrík af- þreying og glamúr kostaður af rausn- arlegum auðmönnum og pólitíkusum. En glamúr skemmtunarinnar blekkir. Löngu er liðinn sá tími að ráðamenn telji menningu leikhússins þýðingarmikinn þátt í sjálfsmynd þjóðarinnar og láti fjármagnið streyma úr vösunum þangað. Nú sytrar það einungis eins og lítill læk- ur og eitthvað kemur líka úr vösum auðmanna. Örlög leikhússins hin sömu og forsetaembættisins – í léns- skipulagi heimsþorpsins er oftast reynt að réttlæta tilvistina með heild- arframlagi þess til þjóðarframleiðsl- unnar og strandhögga erlendis. Til- gangurinn annars orðaður í úreltum klisjum. Það væri þó fjarri lagi að halda því fram að íslenskt leikhús sé upp til hópa konformistískt eða réttara sagt fylgi gagnrýnislaust ríkjandi and- rúmslofti samfélagsins þó það líti þannig út í sjónvarpinu. Nægir þar að minna á sýningar Hafnarfjarð- arleikhússins á Draumalandi Andra Snæs og Gunnlaðarsögu Svövu Jak- obsdóttur. Draumalandið var ein af áhugaverðari sýningum vetrarins í innihaldi, formi og leikstíl þeim sem Hilmar Jónsson og leikhópurinn sköpuðu; og stúlkurnar í Garpi og Þórhildur Þorleifsdóttir hugsuðu einnig stórt í Gunnlaðarsögu þó ég gæti ekki alltaf fylgt því eftir. Tilraunir til að brjótast út úr leik- húskassanum, skapa leiklistinni ný rými, var mikilvægt framlag sjálf- stæðu leikhópanna á liðnu leikári og sennilega eitt það merkilegasta sem þar átti sér stað. Það byrjaði reyndar allt með því að frú Emilía ( Hafliði Arngrímsson) tjaldaði til nokkurra nátta í Nauthólsvík vorið 2006 með sýningu á verki Jóns Atla Jónassonar um ellina: Hundrað ára hús. Þar á eftir sat maður um sumarið á pakk- húslofti í Borgarnesi og var allt í einu aftur hluti af þessu landi, sögu þess fyrir tilstilli Benedikts Erlingssonar í Mr. Skallagrímsson. Einleikhúsið setti svo upp sýningu á Þjóðarsálinni í Reiðhöll Garps, vissulega smátt verk en hestar og falleg leikmynd opnuðu augu mín fyrir því að einmitt þarna væri gaman að sjá kon- ungadrömu Shakespeares til dæmis. Vatnadansmeyjafélagið Hrafnhildur leiddi okkur á ævintýralegan hátt á listahátíð inn í hugarheim kvenna sem lokaðar voru inni í einni af tákn- myndum sannra Íslendinga: Varð- skipinu Óðni. Og leikárið endaði með því að Sigtryggur Magnason bauð fólki heim í stofu til sín til að sjá Yf- irvofandi og nýtti sér þá miklu ná- lægð til að smjúga undir skinnið á áhorfendum. Hjá sjálfstæðu leikhópunum var reyndar líka nýr efnilegur leikstjóri, Þorleifur Arnarsson, sem setti á svið í Borgarleikhúsinu, og í samvinnu við það, verk sitt og Andra Snæs Magna- sonar: Eilíf hamingja – þar fór saman bæði góð leikaraleikstjórn og fallega útunnin heildarsýn á verkið. En ekki var hann tilnefndur til Grímunnar fyrir leikstjórn. Reyndar hefði átt að skylda þá leikara sem ráða lögum og lofum í íslensku leikhúsi og Grímunni til að sjá allar sýningar enska leik- flokksins Cheek by Jowl á Cymbeline eftir Shakespeare og velta svo fyrir sér á eftir hvers leikarar eru eig- inlega megnugir og hvernig leikstjóri og leikarar geta unnið sjálfstætt úr efniviði, sagt sína sögu. Ekki hefði sakað að sami hátturinn hefði verið hafður á þegar Pina Bausch sýndi Brazil hjá Borgarleikhúsinu. Borgarleikhúsið sýndi einnig þann manndóm að kalla til liðs við sig Stef- án Baldursson, þann góða leik- araleikstjóra (einsog sannaðist í Kill- er Joe og fyrir það er hann tilnefndur til Grímunnar) sem sjaldnast vinnur samt út sjálfstæða sögu sem var aðal Akkilesarhæll sýningar hans á Ama- deusi. Engin tengsl sköpuðust þar milli skemmtilegrar leikmyndar, búninga, framvindu sögu og sögu- mannsins sem Hilmir Snær Guðna- son lék. Og það er eftir öðru að allir leikarar þessarar sýningar sýndu ákaflega góðan leik nema Hilmir Snær en hann einn er tilnefndur til Grímunnar. Það er reyndar mjög al- varlegt mál ef íslenskt leikhús af al- þekktum ótta við umræðu og gagn- rýni ætlar að drekkja þessum góða leikara í innihaldslausu lofi, sama hvernig hann stendur sig. Þeir sem þegar hafa sannað ágæti sitt þurfa allra síst á því að halda, þeir þurfa gagnrýni svo þeim miði áleiðis. Berg Þór Ingólfsson er hins vegar sjálfsagt að lofa í hlutverki Hitlers í Mein Kampf í Borgarleikhúsinu og hann er tilnefndur. Leikfélag Akureyrar sem áfram er á blússandi byr undir stjórn Magn- úsar Geirs Þórðarsonar, fær einnig hrós fyrir að kalla til liðs við sig leik- stjóra af elstu kynslóðinni Kjartan Ragnarsson. Íslenskt leik- hús hefur ekki enn efni á að setja þá kynslóð út á gaddinn, ekki einungis vegna þess að kynslóðir þurfa að etja kappi saman svo út komi eitthvað nýtt, heldur einnig vegna þess að það tekur langan tíma að verða góður leikstjóri og flestir þeirra sem hafa haslað sér völl á undanförnum árum eiga því eðlilega langt í land. Þjóðleikhúsið hefur verið ákaflega djarft í að veðja á nýja leikstjóra og ég tek hatt minn ofan fyrir Tinnu Gunnlaugsdóttur að gefa öllum þess- um ungu konum tækifæri, þar sýnir hún áfram meðvitaða stefnu í að rétta af kynjamisréttið í leikhúsinu. Val á listrænum stjórnendum og við hvað þeir hafa verið látnir glíma og í hvaða rými, hefur samt verið helsti veikleiki Þjóðleikhússins í ár, en margt hefur þar líka verið ágætlega gert. Sú sýn- ing er mér þótti einna best unnin og hreifst mest af á árinu fyrir utan Mr. Skallagrímsson, áðurnefnd Cymbel- ine, var til dæmis gestaleikur í Þjóð- leikhúsinu. Þó er vert að spyrja hvert er verið að stefna þegar gestaleik- irnir eru sextán alls? Engin kona fær tilnefningu sem leikstjóri ársins á Grímunni, og að- eins ein sem leikmyndateiknari. Kvennasýningin Gyðjan í vélinni er hvergi tilnefnd nema í búningum og það er eini flokkurinn þar sem konur eru í meirihluta enda þeirra við- urkennda sérsvið! Það er líka fátt sem menn finna bitastætt í Gunnlað- arsögu í leikstjórn Þórhildar Þor- leifsdóttur og Best í heimi í leikstjórn Maríu Reyndal. Frábær leikur Sól- eyjar Elísdóttur til dæmis í Gunnlað- arsögu virðist alveg hafa farið fram hjá fólki. Þá er líka merkilegt að eng- inn leikari sé tilnefndur úr sýning- unni á Bakkynjum. Eða Drauma- landið komist hvergi á blað. Og svo gæti ég haldið lengi áfram. Ég efast ekki um að allir sem sitja í þeirri akademíu er tilnefnir til Grím- unnar vinni út frá sinni bestu sann- færingu en það er ýmislegt sem kem- ur einkennilega fyrir sjónir í niðurstöðum hennar, einkum ást hennar á natúralisma. Spurning hvort akademían sé rétt samansett og hvort ekki eigi að velja einhvern veginn öðruvísi í flokka þegar árang- ur hvers árs er metinn. Það mætti til dæmis hugsa sér að hafa sérstakan flokk fyrir hinn elskaða natúralisma. Þegar þetta er skrifað er Gríman ekki skollin á en þegar þetta er birt hefur hún farið fram. Undir öllum herlegheitunum á föstudagskvöld mun mér áreiðanlega, eins og oft áð- ur, verða hugsað til kynningarviðtals sem sjónvarpið hafði eitt sinn við Bríeti Héðinsdóttur nokkrum dögum fyrir frumsýningu á Aidu í óperunni. Hún var þreytt, hún óttaðist eins og flestir leikstjórar gera, rétt fyrir frumsýningu, að allt starfið hefði ver- ið til einskis og kom því rækilega til skila til áhorfenda að þeir gætu vænst þess að sjá verstu sýningu í manna minnum. Sú varð auðvitað ekki raunin. En Bríet var alvöru manneskja sem lítið var gefin fyrir að búa til mynd af sér sem hentaði ákveðnum aðstæðum. Mér þætti gaman að vita hvað hún segði um fyr- irbærið Grímuna. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Cymbeline Sú sýning er Maríu þótti einna best unnin og hreifst mest af á árinu fyrir utan Mr. Skallagrímsson, var Cymbeline. Horft yfir leikárið með Grímunni Gríman var veitt í gærkvöld með pomp og prakt. Þar segir grein- arhöfundur að sjálfsmynd leikhúss- ins hafi endurspeglast sem mein- laus, kærleiksrík afþreying og glamúr kostaður af rausnarlegum auðmönnum og pólitíkusum. Hún veltir fyrir sér leikárinu og hefur tilnefningar til verðlaunanna til hliðsjónar. Höfundur er leiklistargagnrýnandi við Morgunblaðið.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.