Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.2007, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.2007, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 7 Bandaríska rokksveitin TheWhite Stripes hóf Wireless- tónlistarhátíðina í Lundúnum í fyrrakvöld með tónleikum í Hyde Park. Á meðal áhorfenda á tón- leikunum voru Noel Gallagher og Gem Archer úr Oasis og Kyle Falconer úr The View. Þau Jack og Meg White, sem saman mynda The White Stripes, senda frá sér nýja plötu núna á mánudag- inn, en hún ber hið skemmtilega nafn Icky Thump. Þrátt fyrir að stutt sé í plötuna spiluðu þau að- eins þrjú lög af henni á tónleik- unum, sem verður að teljast harla óvenjulegt. Önnur lög sem þau tóku voru eldri slagarar á borð við „Dead Leaves And The Dirty Gro- und“ og „Hotel Yorba“ auk loka- lagsins „Seven Nation Army“. Þau ræddu lítið við áhorfendur, en þó sagðist Jack vera mjög hrifinn af rokksveitinni Queens Of The Stone Age sem hitaði upp. Wireless-tónlistarhátíðin stendur yfir til morguns og á meðal þeirra sem koma fram á hátíðinni eru Air, Kelis, Badly Drawn Boy og Daft Punk.    Skotarnir í rokksveitinni TheFratellis hafa hafnað boði um að taka upp lag sem spila á þegar knattspyrnumað- urinn David Beckham leikur sinn fyrsta leik með bandaríska liðinu LA Ga- laxy. Skotarnir voru beðnir um að taka upp sína útgáfu af Bítla- laginu „Hello Go- odbye“ fyrir leikinn sem fer fram í júlí, en þeir höfnuðu boðinu al- gjörlega. „Við höfum hafnað mörgum beiðnum um að gera alls konar heimskulega hluti á borð við þenn- an,“ segir Jon Fratelli, forsprakki sveitarinnar. „Við erum engir far- andsölumenn. Ef okkur tekst ekki að ná árangri á okkar eigin for- sendum, þá sleppum við því frek- ar.“ Fratelli bætti því við að þeir fé- lagar hefðu orðið fremur reiðir þegar óskin var borin fram. „Við sögðum að þetta væri enginn hel- vítis möguleiki. Vissulega fengjum við athygli, en við myndum al- gjörlega tapa sjálfsvirðingunni.“    Bítillinn Paul McCartney hélthjartnæma tónleika í New York síðastliðið miðvikudagskvöld. Tónleikarnir fóru fram í Highline Ballroom og þóttu minna um margt á góða tónleika sem hann hélt í Lundúnum í síð- ustu viku. Fyrr um dag- inn höfðu nokkr- ir miðar verið gefnir á tónleikana fyrir utan tónleikastaðinn og hafði mikill fjöldi aðdáenda beðið eftir þeim í fjölmarga klukkutíma. McCartney er nú að fylgja eftir sinni nýjustu plötu, Memory Al- most Full, og á tónleikunum tók hann lög af henni, en einnig eldra efni af sólóferli sínum, auk Bítla- laga. Á meðal þessara laga voru „Back In The USSR“, „Get Back“, „Hey Jude“ og „Let It Be“. Þá sungu gestir á tónleikunum afmæl- issönginn fyrir McCartney, en hann verður 65 ára gamall á mánu- daginn. Bítillinn var mjög snortinn og minntist í kjölfarið vina sinna John Lennon og George Harrison, og eiginkonu sinnar Lindu sem fæddist í New York. TÓNLIST White Stripes The Fratellis Paul McCartney Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is Eftir Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Það er sárgrætilegt til þess að hugsa hvemargir muna hljómsveitina The B-52’shelst fyrir titillagið úr hinni hroðalegukvikmynd um Steinaldarmennina, The Flintstones, frá 1994. Lagið var nefnilega í takt við myndina, handónýtt, og þessari merku sveit óverðskuldaður bautasteinn; enda lagði hún upp laupana sama ár. Dagur sveitarinnar var að kveldi kominn þegar hér var komið sögu og máski var henni bara orðið alveg sama? Það breytir því þó ekki að rúmum áratug áður var sveitin í hópi framsæknustu poppsveita Bandaríkjanna. Seinnipartur áttunda áratugar síðustu aldar var vitaskuld blómaskeið pönksins og þegar nær dró 1980 hafa sjálfsagt flestir talið að búið væri að hjakka nóg í farinu – nýir vinklar á ræflarokkinu byðust hér eftir engir. En fimmenningar frá bæn- um Athens í Georgíufylki Bandaríkjanna voru á öðru máli, meðvitað eður ei. Þau höfðu stofnað sveitina The B-52’s árið 1976, án þess að kunna neitt að ráði á hljóðfæri. En eins og okkar eigin Einar Örn orðaði það, „þetta snýst ekki um hvað þú getur heldur hvað þú gerir“. Sveitin dró nafn sitt af hinum ábúðarmiklu sprengjuflugvélum Bo- eing B-52 og nafnið er við hæfi því fyrsta platan, The B-52’s (1979), reyndist þó nokkur bomba. Al- mennt hömluleysi í anda pönksins svífur yfir vötn- um á frumburðinum, sem er samnefndur hljóm- sveitinni, en formerkin eru önnur; í stað svarta leðursins, rakvélablaða og ræflaháttar er áhersla á galsafengna gleði og partí. Útlit meðlima minnti á myndir Ed Wood, uppskrúfuð sixtís-stemning með vísindaskáldsöguívafi og tilheyrandi heysátu- hárgreiðslum, plastskóm og litagleði í hvívetna. Textarnir á plötunni eru líka ýmist um danspartí, strandpartí, rúnt á ljóshraða milli sólkerfa á Plymouth eða álíka. Eintómur galsi og ekki verið að stressa sig um of á raunsæinu. En stjórnleysi pönksins kraumar engu að síður undir. Þær stöllur Cindy Wilson og Kate Pierson syngja rétt eins og þeim sýnist og eiga tilþrifa- spretti sem Nina Hagen teldist fullsæmd af; Fred Schneider III syngur eiginlega ekki, heldur talar bara frekar hátt og misjafnlega í tón við lagið hverju sinni. Kjölfestuna lögðu svo til þeir Ricky Wilson gítarleikari og Keith Strickland trommu- leikari. Þegar framangreint er allt sagt saman hefði mátt búast við einhverri glóruleysu, geggjun sem væri hvorki fugl né fiskur. En það er öðru nær, þessi þeytingur gengur einfaldlega upp og það sem upp á vantaði í reynslu og hæfileikum hvað hljóðfæraleik varðar þétti upptökustjórinn Chris Blackwell, sá hinn sami og vélaði einatt um plötur Bobs Marley. Hljómurinn er alltént í takt við þann anda sem ríkir á þessari bráðskemmti- legu plötu. Nú þegar sumarið er loks komið er frumraun The B-52’s algerlega gráupplögð í partíið; það endist enginn með fúla grön þegar hljómar hins goðsagnakennda lags Rock Lobster taka að smita mannskapinn. Ef lag um ferð saklausra ung- menna á ströndina („allir voru með samlit hand- klæði“), sem kemst í mátulegt uppnám þegar Rokk-humarinn lætur til sín taka, hleypir ekki stuði í teitina, þá er teitinni ekki við bjargandi. Svo gerið arfleifð The B-52’s greiða, gleymið al- farið laginu um Steinaldarmennina og skellið þessari sígildu gleðiskífu á fóninn – eða undir geislann, eftir atvikum – næst þegar glatt skal á hjalla. Súrsætt Suðurríkjapopp POPPKLASSÍK Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is R owlands og Simons vöktu fyrst at- hygli þegar þeir störfuðu sem plötusnúðar á næturklúbbnum Naked Under Leather í Lund- únum árið 1992. Þeir spiluðu bæði hip-hop og elektróníska tónlist, en komust hins vegar fljótt að því að þá langaði til þess að búa til sitt eigið efni. Þeir stofnuðu því dú- ettinn Dust Brothers og í október 1992 prentuðu þeir 500 eintök af sinni fyrstu smáskífu með laginu „Song To The Siren“. Með bjartsýnina að leið- arljósi fóru þessir rúmlega tvítugu drengir af stað og dreifðu smáskífunni til sérhæfðra plötuverslana í Lundúnum. Móttökurnar voru hins vegar ekki góðar því enginn vildi spila plötuna í verslun sinni, og var ástæðan meðal annars sögð sú að lagið væri of hægt. Félagarnir gáfust þó ekki upp og sendu eitt eintak til Andrew Weatherall sem þá var orð- inn virtur plötusnúður á heitustu næturklúbbunum í Lundúnum. Weatherall hreifst mjög af laginu og spilaði það reglulega á næstu mánuðum. Í maí árið 1993 gaf Weatherall smáskífuna út hjá sínu eigin útgáfufyrirtæki og þá fóru hjólin að snúast fyrir al- vöru. Rowlands og Simons endurhljóðblönduðu lög fyrir flytjendur á borð við Leftfield, Republica og The Sandals og í janúar árið 1994 sendu þeir svo frá sér lagið „Chemical Beats“ sem kom þeim end- anlega á kortið. Nafninu breytt Dust Brothers héldu áfram að hljóðblanda lög fyrir aðra, en nöfnin urðu sífellt stærri því þeir tóku fyr- ir lög sveita á borð við Manic Street Preachers, The Charlatans, Primal Scream og Prodigy. Í mars árið 1995 fóru þeir í sína fyrstu tónleikaferð um heiminn, og spiluðu meðal annars í Bandaríkj- unum með Orbital og Underworld. Bandaríkja- ferðin vakti athygli hinna upprunalegu Dust Brot- hers, upptökustjóranna E.Z. Mike og King Gizmo, sem meðal annars hafa unnið með Beastie Boys og Beck. Þeir voru ekki par sáttir við notkun Bret- anna á nafninu og hótuðu málsókn. Rowlands og Simons voru snöggir til og breyttu nafni dúettsins í Chemical Brothers, í höfuðið á sínum fyrsta smelli, „Chemical Beats“. Það var svo loks í júlí árið 1995 að fyrsta breiðskífan leit dagsins ljós, Exit Planet Dust, og var nafn plötunnar táknrænt fyrir nafn- breytingu dúettsins. Á plötunni mátti finna smell- ina „Leave Home“ og „Life Is Sweet“, og komst hún í níunda sætið á breska breiðskífulistanum. Í janúar árið 1996 hafði platan svo náð gullsölu. Með Noel Gallagher Á næstu mánuðum höfðu Efnabræðurnir nóg að gera við tónleikahald, og spiluðu þeir meðal annars með Prodigy. Þá hituðu þeir einnig upp fyrir Oasis á tvennum 125.000 manna tónleikum í Knebworth, en Noel Gallagher, forsprakki Oasis, hreifst mjög af Exit Planet Dust. Svo fór að Gallagher söng næsta smáskífulag Chemical Brothers, lagið „Sett- ing Sun“ sem fór beint í efsta sæti smáskífulistans í Bretlandi. Í mars árið 1997 sendu þeir svo frá sér smáskífuna „Block Rockin’ Beats“ sem einnig náði efsta sætinu, en lagið var einnig að finna á annarri plötu dúettsins, Dig Your Own Hole sem kom út í apríl það sama ár. Platan fékk mjög góðar viðtökur, náði efsta sæt- inu í Bretlandi og í kjölfarið upphófst mikið tón- leikaferðalag um bæði Bandaríkin og Japan. Næstu tvö árin þar á eftir unnu Rowlands og Sim- ons mikið við endurhljóðblöndun, auk þess sem þeir rifjuðu upp gamla takta sem plötusnúðar við miklar vinsældir aðdáenda sinna. Engin uppgjöf þrátt fyrir lægð Í maí árið 1999 sendu Chemical Brothers frá sér nýtt efni í fyrsta skipti í tvö ár, en þá kom út smá- skífa með laginu „Hey Boy Hey Girl“. Lagið þótti aðgengilegra en flest af því sem þeir félagar höfðu gert, enda komst það í þriðja sæti smáskífulistans í Bretlandi. Mánuði síðar kom svo breiðskífan Sur- render út, en meðal söngvara á plötunni voru Noel Gallagher og Hope Sandoval úr Mazzy Star. Platan fór beint á toppinn í Bretlandi, fékk góða dóma gagnrýnenda og þótti meiri house-bragur yfir henni en fyrri plötum Efnabræðra. Fjórða platan kom svo út snemma árs 2002 og þrátt fyrir að fara beint á toppinn í Bretlandi þótti Come With Us slakasta plata sem Chemical Brot- hers höfðu sent frá sér. Þeir leituðu meðal annars samstarfs við Richard Ashcroft úr The Verve en gagnrýnendur voru ekki sérlega hrifnir, enda fremur fátt um fína drætti á plötunni, ef undan er skilið lagið „Galaxy Bounce“. Við erum nóttin Áður en að næstu plötu kom sendu Chemical Brot- hers frá sér safnplötu í tilefni af tíu ára afmæli sínu, en á plötunni mátti finna nánast öll smáskífu- lög dúettsins fram að því. Síðasta platan, og sú fimmta í röðinni, kom svo út árið 2005. Líkt og síðustu þrjár plötur þar á und- an fór Push The Button á toppinn í Bretlandi, en átti fremur erfitt uppdráttar í Bandaríkjunum. Lagið „Galvanize“ sló í gegn á næturklúbbum í Evrópu og Efnabræður unnu til tvennra Grammy- verðlauna, fyrir lagið annars vegar og plötuna hins vegar. Sjötta plata Chemical Brothers kemur út í Bret- landi þann 2. júlí næstkomandi, en hún ber nafnið We Are The Night. Platan er töluvert frábrugðin því sem þeir félagar hafa gert á síðustu plötum, en þótt hún sé vissulega dansvæn er platan líklega sú léttasta sem þeir hafa sent frá sér. Á meðal þeirra sem koma fram á plötunni er poppsveitin Klaxons, sem þykir bera vott um stefnubreytingu hjá Efna- bræðrum. Nú er bara að bíða og sjá hvort breyttar áherslur falla í kramið eður ei, og hvort Chemical Brothers standa undir nafni sem ein áhrifamesta og besta rafsveit heims. Endurkoma Efnabræðra BRESKI rafdúettinn Chemical Brothers var formlega stofnaður árið 1992 og síðan þá hafa þeir Tom Rowlands og Ed Simons sent frá sér fimm breiðskífur. Þeir félagar hafa aflað sér bæði vinsælda og virðingar á þessum 15 árum og er nú svo komið að Chemical Brothers er eitt stærsta nafnið í heimi raftónlistarinnar. Sjötta plata þeirra félaga, We Are The Night, kemur út í Bretlandi þann 2. júlí næstkomandi og er hún töluvert ólík því sem dúettinn hefur áður sent frá sér. Rafrænir Tom Rowlands og Ed Simons eru einhverjir virtustu raftónlistarmenn heims. www.thechemicalbrothers.com

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.