Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.2007, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.2007, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ lesbók Eftir Sigrúnu Sigurðardóttur sigrun@akademia.is D raumur, martröð, frásögn eða veruleiki. Þetta eru þau hug- tök sem koma fyrst upp í hug- ann þegar ég virði ljósmyndir Katrínar Elvarsdóttur fyrir mér. Ljósmyndirnar má sjá á sýningunni Af þessum heimi sem stendur yfir í Listasafni ASÍ fram til 24. júní næstkomandi. Í viðtali sem ég átti við Katrínu staðfestir hún þessa upplifun: „Með ljósmyndunum er ég að skapa ákveðna stemningu. Ég vil skapa eitt- hvað sem er fallegt og óhugnanlegt í senn. Að því leyti minna ljósmyndir Katrínar á kvik- myndir eftir leikstjóra á borð við David Lynch eða Dominik Moll þar sem við hrífumst af fram- andleikanum augnabliki áður en óttinn nær tök- um á okkur. Frá árinu 2002 hefur Katrín Elvarsdóttir verið með átta einkasýningar hér á landi, eina í New York og tekið þátt í hátt í 30 samsýningum á Íslandi, í Bandaríkjunum, Rússlandi, Þýska- landi og Frakklandi á síðasta áratug. Sýning hennar Mórar vakti töluverða athygli þegar hún var sýnd í Listasafni Akureyrar vorið 2002 en á þeirri sýningu mátti sjá svarthvítar ljós- myndir af yfirgefnum stöðum víðs vegar um landið. Sýningunni var síðan fylgt eftir með sýningunni Mórar – nærvídd í Gallerí Skugga síðar sama ár og bókverkinu Mórar sem var samstarfsverkefni Katrínar og Matthíasar M.D. Hemstock sem samdi tónlist við ljós- myndir Katrínar. Í Mórum spilar Katrín á þá svörtu og hvítu goðsögn sem hefur fylgt ljósmyndinni alla tíð og endurspeglast í orðræðunni um að ljósmyndin birti okkur veruleikann annaðhvort eins og hann raunverulega er (hvíta goðsögnin) eða að ljósmyndin sé ekki heimild um neitt annað en túlkun og sýn ljósmyndarans á veruleikann (svarta goðsögnin). Ljósmyndin endurspeglar hið flókna samband manns og náttúru, veru- leika og túlkunar. Ljósmyndarinn hefur ætíð áhrif á niðurstöðu verksins, hann velur sér sjón- arhorn, hagræðir jafnvel veruleikanum, ákvarð- ar þann tíma sem sólarljósið fær til að skilja eft- ir sig ummerki á ljósnæmum fleti og mótar að lokum niðurstöðuna í myrkraherberginu eða tölvunni. Engu að síður verður því ekki neitað að það er náttúran sjálf, sólarljósið, sem skilur eftir sig ummerki og er forsenda þess að það sé yfir höfuð hægt að taka ljósmynd. Flestir þeir sem tekið hafa myndir hafa þurft að horfast í augu við að þeir hafi ekki fulla stjórn á mynd- efninu, sjónsvið þeirra er annað en þess sem ekki horfir í gegnum linsuna, og það eitt veldur því að oft á tíðum birtast okkur á ljósmynd brot af veruleikanum sem við höfðum aldrei tekið eftir eða áttað okkur á. Allt frá upphafi hafa ljósmyndarar verið meðvitaðir um þetta. Hinn ytri veruleiki (það sem er) og hinn innri veru- leiki (það sem við sjáum) fléttast saman í ljós- myndinni svo að úr verður myndverk sem leysir upp andstæðuparið veruleiki/túlkun. Umræðan einskorðast um of við tæknileg atriði Katrín Elvarsdóttir nýtir sér flókið samband ljósmyndarinnar við veruleikann. Síðustu árin hefur hún nær eingöngu notað einfaldar plast- myndavélar sem gera þetta margslungna sam- band við veruleikann næstum áþreifanlegt. Sjálf segir Katrín að hún hafi hrifist af þeim draumkenndu áhrifum sem unnt er að kalla fram með plastmyndavélinni. „Þar fyrir utan hentar vélin mér mjög vel. Hún er mjög létt, að- eins um 100 grömm, og því auðvelt að taka hana með hvert sem er. Fast ljósop og lokunarhraði hennar krefst annars konar hugsunar við myndsköpunina – ég er ekki að leita eftir skerpu eða öðru slíku heldur er ég að fanga stemningu, miðla hugmyndum og búa til frá- sögn. Katrín bendir jafnframt á að alls ekki megi takmarka umræðuna um ljósmyndun við tæknileg atriði eins og oft vill verða. Aukinn skilningur á listrænni ljósmyndun felist í dýpri hugsun. „Það skortir skilning á ljósmyndinni sem listmiðli á Íslandi og umræðan um við- fangsefni ljósmyndara er oft einhæf. Flestir sem heyra að ég sé ljósmyndari virðast til dæm- is ganga út frá því að ég sé með stofu og taki fermingarmyndir. Að þessu leyti er erfiðara að vera ljósmyndari á Íslandi en annars staðar sem ég hef starfað, til dæmis í Bandaríkjunum og í Danmörku.“ Katrín segir að nýstofnaður félagsskapur íslenskra samtímaljósmyndara sé viðbragð við þessu. „Við viljum auka skilning og umræðu um samtímaljósmyndun. Víða erlendis er mikið að gerast á því sviði og við viljum taka beinan þátt í þeirri þróun. Ég get nefnt sem dæmi að mikil vakning hefur átt sér stað í Finn- landi á undanförnum árum. Finnska mennta- málaráðuneytið styrkir ljósmyndara ekki síður en aðra listamenn. Þetta hefur skilað miklum árangri og Finnar eru mjög framarlega á sviði ljósmyndunar. Það sama má segja um lista- heiminn í New York, þar er mikið að gerast í samtímaljósmyndun sem sést einna best á því að flest áhugaverðustu galleríin sýna ekki síður verk eftir ljósmyndara en þá sem fást við aðra miðla í myndlist.“ Tilbúinn heimur Katrín er menntuð í Bandaríkjunum. Hún lauk reyndar BA-gráðu í frönsku við Háskóla Ís- lands áður en hún hélt til Bandaríkjanna. Katr- ín lærði ljósmyndun í tvö ár við Brevard Comm- unity College í Flórída og settist síðan á skóla- bekk við The Art Institute of Boston þaðan sem hún lauk BFA-gráðu árið 1993. „Þetta gerðist allt mjög hratt,“ segir hún þegar ég spyr hvers vegna hún hafi ákveðið að leggja ljósmyndun fyrir sig. „Ég var orðin 23 ára þegar ég byrjaði að taka myndir. Ég keypti myndavél í fríhöfn- inni, fór á námskeið í Iðnskólanum þar sem far- ið var yfir grunnatriði er varða ljósop og hraða og þess háttar, og fór síðan að prófa mig áfram. Mér fannst þetta svo ótrúlega gaman og ákvað því að sækja um skólann í Bandaríkjunum. Ég kunni strax mjög vel við mig þar. Fann að þetta hentaði mér vel.“ Hún bætir því við að ef ljós- myndun hefði ekki orðið fyrir valinu þá hefði hún að öllum líkindum farið út í kvikmyndun. „Fyrir mér er ljósmyndun tengdari kvikmynda- gerð en öðrum listgreinum, bætir hún við og segist sækja innblástur og hugmyndir í heim kvikmyndanna.“ Það sem heillaði hana einna mest við ljósmyndun í upphafi var einnig mögu- leikinn á að geta skapað ímyndaðan heim, sviðs- mynd, stemningu og brotakennda frásögn. Katrín ætlaði upphaflega að leggja tísku- ljósmyndun fyrir sig og starfaði mestmegnis við tískuljósmyndun eftir að hún lauk námi. „Það sem heillaði mig við tískuheiminn var að þar sá ég fyrir mér að geta unnið með eigin hugmynd- ir, búið til eins konar leikþátt eða frásögn í myndum í samstarfi við aðra. Þetta gekk líka vel í Boston og var gaman. Tískuheimurinn þar er frekar lítill, ég var fljót að kynnast öllum sem voru í þessum bransa og gat valið með hvaða hönnuðum ég starfaði. Ég áttaði mig þó smám saman á því að listrænt frelsi tískuljósmyndara er ekki eins mikið og ég ímyndaði mér. Þegar maður er farinn að nálgast þennan „alvöru“ tískuheim og farinn að starfa með stórum hönn- uðum eða fyrir stærstu tímaritin eru önnur lög- mál sem gilda. Þá þarf að taka tillit til fjölda annarra hagsmuna, ekki síst peninga og kúnna- hóps og þá fellur ljósmyndunin sjálf í skuggann. Auðvitað eru þó einstaka tískuljósmyndarar sem ná að standa þetta allt af sér og halda sínu listræna frelsi innan tískuheimsins, ég get í því sambandi nefnt Jürgen Teller.“ Blekking og veruleiki Bakgrunnur Katrínar í tískuljósmyndun kemur ef til vill einna sterkast fram í ljósmyndaröðinni Lífsandi sem sýnd var í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og á Mokka árið 2003. Í þeirri ser- íu eru fallegar svarthvítar myndir sem virðast við fyrstu sýn vera af kvenlíkömum en eru þeg- ar betur er að gáð ljósmyndir af gínum. „Þessi ljósmyndasería er unnin undir sterkum áhrifum frá ljósmyndum súrrealistanna, ekki síst Man Ray, en einnig Hans Belmer og Cindy Sherm- an. Ég gekk um alla New York og myndaði gín- ur inn um glugga. Áhorfandinn heldur í fyrstu að hann sé að horfa á kvenmannslíkama af holdi og blóði en áttar sig smám saman á því að þetta eru allt dauðar gínur. Þrátt fyrir að það fari ekki mikið fyrir því sést í samskeyti á gínunum á flestum myndunum. Ég er því ekki að blekkja heldur að hvetja fólk til að horfa betur. Hug- myndin var að skapa ákveðið rof, að áhorfand- inn þyrfti að horfa lengi á myndina til að átta sig á því hvað hann væri að horfa á. Stundum þarf að horfa lengi á hlutina til að sjá þá í nýju ljósi.“ Í nýjustu myndaröð sinni af afmörkuðu landslagi sem við horfum á út um glugga vinnur Katrín einnig með blekkingu sjónarinnar. „Ég vinn mikið með sjónarhorn og þá ekki síst hið blekkjandi sjónarhorn. Fólk er oft lengi að átta sig á því hvað er að gerast í myndunum mínum og finnst það óþægilegt. Fyrstu spurningarnar sem ég fæ eru alltaf: „Hvað er þetta? Hvar er þetta? Hver er þetta?“ Fólk hefur mikla þörf fyrir að tengja ljósmyndir við ákveðna staði, persónur og augnablik í veruleikanum. En á sama tíma loka þessar staðreyndir dálítið fyrir persónulega túlkun áhorfandans. Ef fólk sér eitthvað út úr þessu þá er það mjög jákvætt, jafnvel þó að enginn sjái það sama eða upplifi það sama þegar hann horfir á myndirnar. Ljós- myndirnar mínar fjalla ekki um eitthvert Fegurð og háski Katrín Elvarsdóttir „Það skortir skilning á ljósmyndinni sem listmiðli á Íslandi og umræðan um viðfangsefni ljósmyndara er oft einhæf,“ segir Katrín. LJÓSMYNDIN á í flóknu sambandi við veru- leikann sem hún bæði miðlar og endurskapar á sama augnabliki. Hún felur því í sér ótal möguleika á að fjalla um þann veruleika sem var, er og gæti verið og skapa eitthvað nýtt. Umræða um ljósmyndun á Íslandi snýst oftar en ekki um tæknibyltingar eða heimildagildi. Að þessu leyti má segja að umræðan sé helst til einhæf og skorti mjög á skilning á listrænu gildi ljósmyndarinnar og stöðu hennar í sam- tímalist. Með það að markmiði að efla sam- tímaljósmyndun á Íslandi og stuðla að aukn- um skilningi og fjöbreyttari umræðu um ljósmyndun hafa íslenskir samtímaljósmynd- arar stofnað með sér félagsskap. Næsta sum- ar verða þeir með samsýningu í Ljósmynda- safni Íslands í Þjóðminjasafninu en í sumar og haust vinna þeir að ólíkum verkefnum. Fyrirhugaðar eru að minnsta kosti fjórar einkasýningar hjá meðlimum hópsins og tvær bækur eru í burðarliðnum. Á næstu mán- uðum munu birtast í Lesbók viðtöl við ís- lenska samtímaljósmyndara sem eiga með verkum sínum í áhugaverðum samræðum við listheiminn og samtíma sinn. »Ég áttaði mig þó smám saman á því að listrænt frelsi tískuljósmyndara er ekki eins mikið og ég ímyndaði mér. Þegar maður er farinn að nálg- ast þennan „alvöru“ tískuheim og farinn að starfa með stórum hönnuðum eða fyrir stærstu tímaritin eru önnur lögmál sem gilda. Bias 2 Úr myndaröð Katrínar frá árninu 2004. „Ég er ekki að leita eftir skerpu eða öðru slíku heldur er ég að fanga stemningu, miðla hugmyndum og búa til frásögn.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.