Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.2007, Blaðsíða 13
ákveðið fjall eða einhvern ákveðinn atburð.
Merkingin verður til í samspili áhorfandans og
verksins.“
Í verkum sínum vinnur Katrín mikið með
tengsl minninga og frásagna. Á sýningunum
Minni í Hafnarborg sumarið 2004 og Heimþrá í
Listasafni Ísafjarðar árið 2005 mátti sjá ljós-
myndir sem byggðar voru á óljósum minninga-
brotum úr lífi hennar sjálfar en vöktu um leið
minningar í brjósti áhorfanda. Blúndugardínur
í íslenskri sveit, hlykkjóttur vegur í evrópsku
landslagi, hvít blóm á sænskum skógarbotni,
blaut gangstéttarhella og barnsfótur sem klýfur
vatnsborð í sundlaug og afmyndast stundar-
korn. Augnablik sem kallar fram stundar-
hræðslu. Sá hversdagslegi háski sem einkennir
ljósmyndir Katrínar kom sérlega vel fram á
þessum sýningum. Ég horfi á ljósmyndir henn-
ar og upplifi augnablik fegurðarinnar en skynja
um leið hið framandlega. Þetta er augnablik
fegurðar og háska, augnablik sem býður upp á
nýja túlkun á veruleikanum. Fljótandi merking.
Grenimelur Myndin er á sýningu Katrínar Af þessum heimi sem stendur yfir í Listasafni ASÍ.
Höfundur er menningarfræðingur.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 13