Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.2007, Page 5
rössuð í nýlendunni að hætti foreldra sinna.
Spænska konan Inmaculada frá Bilbao býr í
kúlulaga strákofa með bambusþaki. Hún segir
Beneficio frábæran stað fyrir börn. „Við hjónin
komum hingað fyrir sex árum síðan og eign-
uðumst öll okkar börn í nýlendunni. Við erum
að þróa samfélagið hérna meira og meira fyrir
og í kringum börnin, koma á ákveðnu kerfi. Hér
eru haldnar sérstakar hátíðir fyrir þau, vorhá-
tíð og fleira, og þegar barn á afmæli hér þá taka
allir þátt, allir hjálpast að við að baka og sam-
félagið hér snýst að miklu leyti um börnin.“
Umhverfisvæn hreinlætisaðstaða?
Í miðri nýlendunni tekur á móti mönnum stórt
heimatilbúið skilti þar sem stendur skrifað
stórum stöfum: „Welcome Home.“ Hér eru
auglýsingar af ýmsu tagi: tilkynningar um líf-
rænt ræktað grænmeti til sölu, fyrirlestra og
námskeið sem haldin eru í nýlendunni, byrjend-
anámskeið í shamanisma, fyrirlestur um búdd-
isma, framhaldsnámskeið í permakúltur o.s.frv.
og efst á skiltinu er stórt plakat frá Regnboga-
fjölskyldunni: „Við erum regnbogafólkið sem
hefur í hávegum ástina og ljósið“. Á einum stað
er svo aðvörun með voveiflegri upphrópun:
„Shit-alert!“ Flugur hafa borið með sér óhrein-
indi og valdið sýkingum meðal einhverra í ný-
lendunni. Menn eru beðnir um að huga að úr-
gangi sínum og hylja hann vel með laufblöðum.
– Hvernig er með hreinlætisaðstöðu á staðn-
um?
Fyrir svörum verður þýska konan María sem
býr ein með ellefu ára dóttur sinni í ind-
íánatjaldi.
„Þá farið þið bara á staðinn þar sem stendur
„shit-pit“ og þar er kamar. Annars eru flestir
sem búa hér með sinn eigin „shit-pit“ og svo má
labba bara eitthvað út í náttúruna og grafa litla
holu.“
– Hvað með baðaðstöðu?
„Sjálf fer ég í heita uppsprettu sem er nálægt
Granada af því ég er á bíl en sumir hérna taka
vatn úr ánni og þvo sér þannig. Sumir eru með
venjuleg baðker sem þeir setja eld undir og
þeir taka svo vatn úr ánni og hita það þannig.
Við notum ekki mikla sápu hér, sápa er ekki góð
fyrir náttúruna og trén. Ég var búin að vita um
þennan stað lengi. Ég kom fyrst í mörg ár sem
ferðamaður til Spánar á veturna og dvaldi hér í
lengri eða skemmri tíma, fór svo til baka til
Þýskalands á sumrin. En svo kom ég hingað og
mér leist vel á staðinn og hugsaði sem svo að
þetta væri góður staður til að dvelja á, svo ég
ákvað bara að vera áfram.“
Lifað létt
Hipparnir skipuleggja sameiginlega máltíð í
samkomutjaldi staðarins á hverju kvöldi fyrir
þá sem vilja. Þar hittast þeir og borða saman,
biðja saman og spjalla, þar eru barðar bumbur
og maríjúana látið ganga. „Við erum búin að
bera fram um tvö hundruð þúsund máltíðir hér
ókeypis á þessum fimmtán árum sem við höfum
verið hér,“ segir Perúmaðurinn Edgar sem er
einn af fyrstu íbúum nýlendunnar og einn að-
altalsmaður íbúa. „Þannig að ef þú átt ekki fyrir
mat þá kemur maturinn til þín. Og ef þú hefur
ekkert að reykja, þá kemur tóbakið til þín. Svo
skjótum við skjólshúsi yfir þá sem ekki eiga þak
yfir höfuðið. Við erum eins og ein stór fjöl-
skylda og þeir sem eru nýir hér verða strax
hluti af samfélaginu.“
Flestir í nýlendunni tilheyra Regnbogafjöl-
skyldunni sem eru alþjóðleg samtök fólks sem
hefur það að markmiði „að friður og ást ríki á
þessari jörð“. Þjóðverjinn Walter býr einn í
litlu bláu tjaldi í gróðursælli laut. Hann segir
það vera stefnu regnbogamanna að „lifa létt,“
og hafa eins lítil áhrif á jörðina og hægt er. „Það
er okkar trú að þetta sé það eina sem geti
bjargað jörðinni úr því sem komið er. Við rækt-
um okkar eigið grænmeti og ávexti og erum að
miklu leyti sjálfbær, þannig viljum við lifa og
leggja okkar af mörkum.“ Walter er búinn að
vera á flakki síðan hann man eftir sér, faðir
hans var byggingaverkfræðingur og fjöl-
skyldan ferðaðist landa á milli. „Ég þekki ekki
annað,“ segir hann. „Við vorum aldrei nema tvö
ár á hverjum stað. Ég tók sjálfur upp á að
flakka um heiminn þegar ég fór að heiman.
Þetta er gott líf …“
Endurvinnsla úr ruslatunnum
Nýlendan er sögð búa yfir miklum krafti og
margir leita þangað í von um lækningu á hinum
og þessum kvillum. Töluvert er um að þar losi
menn sig við áfengi og/eða önnur fíkniefni, en
er nýlendan kannski eins konar meðferð-
arstofnun?
„Það má kannski segja að við séum öll eins
konar flóttamenn,“ segir Edgar, en hann starf-
ar sem heilari í nýlendunni. „Ég er t.d. um-
hverfisflóttamaður. Svo er hér fólk sem er
kannski að flýja foreldra sína, nútímasamfélög
o.s.frv. Við erum hér í sterkum tengslum við
jörðina og jörðin hefur lækningamátt. Öll erum
við eins og lifandi stjörnur, pósítíf og negatíf at-
óm. Fólk í borgum hefur ekkert jarðsamband.
Og þegar við tölum um að verða heil þá getum
við ekki bara talað um geðheilsuna og lík-
amlegu heilsuna sem aðskilda hluti. Við verðum
að tala um almenna heilsu og það verður að fást
alhliða lækning en ekki bara lækning á ein-
hverju einstöku atriði. Og við verðum að hafa
jarðsamband til þess að vera heil.“
Edgar segir helsta vandamál nútímaþjóð-
félaga vera neyslu. „Við verðum að hætta þess-
ari neyslu. Fólk kaupir og kaupir, hendir og
hendir. Nú er jörðin að gera uppreisn gegn
þessu. Það sjá allir núna. Við verðum að fara að
hætta.“
Hann segir að margir í nýlendunni stundi
„endurvinnslu“ (þ.e. leiti í ruslatunnum eftir
mat eða einhverju nýtilegu), sem sé ein leið
þeirra til að lifa af, en endurvinnslan sé líka
hugsjón hjá þeim.
„Mér er sama í hvaða fjárhagsstöðu fólk er,
mér finnst að við þurfum öll að endurvinna.
Ekki kannski af nauðsyn fyrir okkur sjálf, eða
mannkynið, heldur fyrir jörðina. Jörðin var
hérna á undan okkur og hún verður líka til eftir
okkar dag. Við eigum að bera virðingu fyrir
henni og það er okkar skylda að bjarga henni.“
Edgar er háskólagenginn og rak fyrirtæki á
sínum tíma í Boston þar sem hann ólst upp.
Hann segist einn góðan veðurdag hafa gefist
upp á lífinu sem hann lifði þá og horfið til ein-
faldari lifnaðarhátta. „Ég var hundrað þrjátíu
og fimm kíló á þessum tíma, ríkur, feitur, amer-
ískur bisnessmaður. Og óhamingjusamur. Nú
lifi ég á eins litlu og ég get dag frá degi og
krefst ekki mikils. Ég gæti ekki hugsað mér
betra líf.“
Allir eru velkomnir
Hippanýlendan Beneficio verður öllum opin þar
til íbúafjöldinn nær 500 manns. Samkvæmt
skilgreiningum Sameinuðu þjóðanna er „Eco-
village“ 300-500 manna þorp og með þann
fjölda er ekki þörf á hefðbundnu samfélags-
formi. „Við þurfum því ekki bæjarstjóra eða
neitt slíkt en nú eru hér um tvö hundruð og
fimmtíu manns,“ segir Edgar. „En við höfum
hér samt allt sem þarf til að komast af og sem
samfélög hafa, það er hjúkrunarkona sem býr
hér, ljósmóðir, sálfræðingur, ekki læknir að
vísu en náttúrulæknir. Svo hér munu dyrnar
vera opnar þar til fólksfjöldinn nær 500 manns
og þá munum við loka og takmarka fjölda gesta.
Ef menn vilja koma og búa hér eftir það verða
þeir að setja nafnið sitt á biðlista.“
Börn og barnabörn hippakynslóðarinnar
virðast lifa góðu lífi í Beneficio. Enn eru laus
pláss fyrir þá sem kunna að hafa áhuga. Ný-
lendan gæti hentað vel þeim sem vilja breyta
um lífsstíl, taka sér frí frá önnum nútímasam-
félags eða sannreyna hvernig það er að lifa á
nánast engu úti í náttúrunni. Nánari upplýs-
ingar um Beneficio er hægt að nálgast á heim-
síðu nýlendunnar, http://icdb.org/
show.php?r=beneficio.
Kvöldvaka Kvöld fyrir framan eldinn.
Sjálfala Börnin ganga að mestu sjálfala í hippanýlendunni.
Heimilislegt Hipparnir láta fara vel um sig í tjöldum.
Höfundur er rithöfundur.
Ljósmynd/Yvonne
Ljósmynd/Yvonne
Ljósmynd/Yvonne
Ljósmynd/Yvonne
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 5