Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.2007, Qupperneq 9
leggst yfir borgina; þetta er hið glaðbeitta
frelsi til að búa til auð og eyðileggja hann,
frelsi til að mynda hópa morðingja og strá-
drepa óvinina, frelsi til að sprengja hús í loft
upp og leggja borgir í eyði, það er frelsið með
þúsundum blóðugra handa sem eru að kveikja
í heiminum í hinsta sinn.
En allt þetta er enginn spádómur; skáld-
sagnahöfundar eru ekki spámenn; heimsend-
irinn í Hinsta andvarpi márans er samtíð okk-
ar, einn möguleika hennar sem situr fyrir
okkur í fylgsni sínu, sem fylgist með okkur,
sem er þarna.
Fyndinn skortur
á fyndni
Með hegðun sinni varpar Fávitinn hjá Dostoj-
evskí ljósi á ýmsar tegundir hláturs sem eiga
ekkert skylt við fyndni.
O
rðabókin skilgreinir hlátur sem
viðbrögð „við einhverju
skemmtilegu eða fyndnu“. En
er það rétt? Með því að leita
fanga í Fávitanum eftir Dostoj-
evskí mætti búa til heilmikið
safnrit ólíkra tegunda hláturs. Svo undarlegt
sem það kann að hljóma, þá hafa persónurnar
í bókum hans sem mest hlæja ekki mesta
skopskynið, þvert á móti hafa einmitt þær
ekkert skopskyn. Hópur ungs fólks kemur út
af sveitasetri og er á leiðinni í gönguferð; með-
al þeirra eru þrjár stúlkur sem „hlógu svo að
orðagjálfrinu í Evgení Pavlovits að hann fór
loks að gruna þær um að hlusta jafnvel ekki
lengur á það sem hann var að segja“. Sá grun-
ur „varð til þess að hann skellti skyndilega
uppúr“. Mjög vel athugað: fyrst hlátur í hópi
ungra stúlkna sem hlógu og gleymdu því hvers
vegna þær voru að hlæja og héldu áfram að
hlæja án neinnar ástæðu; síðan hlátur (og sá
er afar sjaldgæfur, afar dýrmætur) í Evení
Pavlovits sem áttar sig á því að hláturinn í
ungu stúlkunum er algerlega laus við að vera
sprottinn af fyndni, og andspænis þessum
fyndna skorti á fyndni fer hann að skellihlæja.
Það er í gönguferð í þessum sama garði sem
Aglæja bendir Myshkín á grænan bekk og
segir að þarna komi hún alltaf og tylli sér um
sjöleytið á morgnana þegar allir eru enn í
fastasvefni. Um kvöldið er haldið upp á afmæli
Myshkíns; samkomunni, sem var átakamikil og
erfið, lýkur ekki fyrr en liðið er langt á nótt; í
stað þess að fara að sofa fer Myshkín yfir sig
spenntur út úr húsinu og eigrar fram og til
baka um garðinn; þar sér hann aftur græna
bekkinn sem Aglæja hafði bent honum á; þeg-
ar hann sest þar rekur hann „skyndilega upp
hrossahlátur“; þessi hlátur er greinilega ekki
sprottinn af einhverju skemmtilegu eða
fyndnu; raunar staðfestir næsta setning þetta:
„hann var stöðugt angistarfullur“. Hann situr
þarna áfram og sofnar. Síðan vaknar hann við
„glaðlegan og frísklegan“ hlátur. „Aglæja var
þarna fyrir framan hann skellihlæjandi ... hún
hló hneyksluð.“ Þessi hlátur er því ekki heldur
sprottinn af einhverju skemmtilegu eða
fyndnu; Aglæja er hneyksluð á því að Myshkín
skuli vera svo smekklaus að sofa meðan hann
beið hennar; hún hlær til að vekja hann; til að
láta hann vita að hann sé fáránlegur; hún er
að vanda um fyrir honum með alvarlegum
hlátri.
Mér kemur í hug annar hlátur sem ekki er
sprottinn af neinu fyndnu; þegar ég stundaði
nám við kvikmyndaháskólann í Prag sá ég
hvernig aðrir nemendur í kringum mig ólm-
uðust og hlógu; meðal þeirra var Alois D.,
ungur maður sem hafði mikinn áhuga á ljóð-
list, elskulegur, aðeins of sjálfhverfur og und-
arlega til baka. Hann galopnaði munninn, gaf
frá sér afar há hljóð og baðaði út öllum öng-
um: hann var semsagt að hlæja. En hann hló
ekki á sama hátt og hinir: hlátur hans var eins
og einhvers konar afrit innan um frumrit.
Ástæðan fyrir því að ég er ekki búinn að
gleyma þessu minningabroti er sú að á þessum
tíma varð ég fyrir aldeilis spánýrri reynslu: ég
varð þarna vitni að því að maður sem hafði ná-
kvæmlega ekkert skopskyn hló og hló aðeins
til að vera eins og hinir, svona eins og njósnari
sem klæðist einkennisbúningi erlends hers til
að skera sig ekki úr hópnum.
Kannski er það Alois D. að þakka að kafli úr
Söngum Maldoror hafði djúpstæð áhrif á mig
á þessum sama tíma: forviða tekur Maldoror
eftir því dag einn að fólk hlær. Hann skilur
ekki hvað þessi undarlega gretta þýðir og
langar að vera eins og hinir, tekur því hníf og
sker út úr munnvikunum á sér.
Ég sit fyrir framan sjónvarpsskjáinn; þátt-
urinn sem þar er verið að sýna er mjög há-
vaðasamur, þarna er sjónvarpsfólk, leikarar,
stjörnur, rithöfundar, söngvarar, fyrirsætur,
þingmenn, ráðherrar, eiginkonur ráðherra og
öll bregðast þau við af minnsta tilefni með því
að galopna munninn, mynda ógnarhávaða og
baða út öllum öngum; með öðrum orðum, þau
hlæja. Og ég sé Evgení Pavlovits fyrir mér
þar sem hann mætir skyndilega í þeirra hóp
og sér þennan hlátur sem ekki er sprottinn af
neinu fyndnu; fyrst í stað er hann skelfingu
lostinn, síðan jafnar hann sig á hræðslunni og
loks verður þessi skortur á fyndni til þess „að
hann skellir skyndilega uppúr“. Þá slappaði
hláturfólkið, sem stundarkorni áður hafði horft
á hann tortryggið, af og býður hann velkominn
í heim þeirra, heim ófyndna hlátursins, þar
sem við erum dæmd til að búa.
© Milan Kundera
Friðrik Rafnsson þýddi.
sspeki skáldsögunnar
Milan Kundera er skáldsagnahöfundur, tékk-
neskur að uppruna, búsettur í París. Nýjasta bók
hans er ritgerðasafnið Tjöldin (JPV, 2006), en ein
þekktasta skáldsasga hans, Brandarinn, er vænt-
anleg á íslensku í haust. Þessar þrjár greinar birt-
ust í bókakálfi franska dagblaðsins Le Monde
föstudaginn 25. maí síðastliðinn og eru birtar hér
með góðfúslegu leyfi höfundar.
ndera grein fyrir hugmyndum sínum um sögu evrópsku skáldsögunnar, kafar ofan í verk höfunda
ur viðtölum hvernig hans eigin skáldsögur hafa orðið til. Bókin er nýkomin út hjá Máli og menn-
utans, sem nefnist Samtal um list skáldsögunnar. mynd í upplýsingar
Fjodor Dostojevskí „Með
því að leita fanga í Fávit-
anum eftir Dostojevskí mætti
búa til heilmikið safnrit
ólíkra tegunda hláturs.“
Salman Rushdie „Heims-
endirinn í Hinsta andvarpi
márans er samtíð okkar, einn
möguleika hennar sem sitja
fyrir okkur í fylgsni sínu,
sem fylgist með okkur, sem
er þarna.“
Gabriel Garcia Marquez
„Þegar ég las Hundrað ára
einsemd enn og aftur fékk ég
undarlega hugmynd: aðal-
persónurnar í miklum skáld-
sögum eru barnlausar.“
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 9