Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.2007, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.2007, Blaðsíða 4
Eftir Sigrúnu Sigurðardóttur sigruns@lhi.is H öll reist úr timbri. Lítill strákur situr á rós- óttum púða inni í sínu eigin húsi sem heldur hvorki vatni né vindi. Það næðir um hann. Vindurinn smýgur inn þar sem veggurinn er óþéttur. Hann gægist út um glufu milli tveggja fjala. Fyrir utan stendur hávaxinn maður og virðir fyrir sér kofann. Hann sér hvernig spýt- urnar mynda óreiðukennda heild. Honum verður starsýnt á göt og glufur á óþéttum veggnum. Blá- og grámálaður stiginn sem er áfastur kofanum veldur honum heilabrotum. Endamörk hans virðast óljós. Honum er ekki ljóst hvort stiginn endar á þaki kofans eða hvort hann gefur fyrirheit um að byggingunni sé ekki lokið. Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari opnaði í gær, föstudaginn 31. ágúst, sýninguna Aftur í Listasafni Reykjanesbæjar í Duushúsum. Á sýningunni eru ljósmyndir sem hann tók í Keflavík fyrr á þessu ári. Þar má sjá myndir af pólskum leigjendum í verbúðinni Röst við Hrannargötu, Helgu Kristínu Sverrisdóttur 13 ára, Vatnsnesvita og kirkjugarðinum, svo að fáein dæmi séu nefnd. Þar eru einnig tvær ljós- myndir af litríkum kofum á smíðavelli sem starfræktur hefur verið á gamla malarvell- inum. Einar Falur bendir mér á að þessar tvær ljósmyndir séu í hans huga einskonar tákn- myndir fyrir sýninguna í heild. Kofarnir eru litríkir en þó brotakenndir. Líkt og minningar okkar. Með ljósmyndasýningunni Aftur snýr Einar Falur aftur til bernskuslóða sinna. Hann raðar saman minningabrotum, fer á þá staði sem einhverra hluta vegna lifa enn í minning- unni, myndar hús og fólk sem var hluti af hans daglega lífi fyrir þrjátíu árum og leyfir bæði umhverfi og hlutum að koma sér á óvart, vekja upp minningar sem einhverra hluta vegna hafa legið í gleymsku. „Í ljósmyndunum mætast mínar persónulegu minningar og veruleikinn eins og hann er í raun og veru. Minningarnar eru bæði brotakenndar og óáreiðanlegar og eru þannig algjör andstæða við þá ljós- myndatækni sem ég nota í þessum myndum. Myndirnar eru allar teknar á stóra litfilmu sem fangar hvert smáatriði. Þetta eru í raun tveir heimar sem mætast, hinn huglægi heim- ur minninganna og hinn hlutlægi veruleiki sem ljósmyndin fangar. Sýningin fjallar um nún- inginn milli þessara tveggja heima, þess hug- læga og hins hlutlæga. Þessir tveir heimar endurspegla hvor annan en þeir falla ekki full- komlega hvor að öðrum. Það næðir um þá. Þannig skapast rými fyrir nýja merkingu. Á sýningunni eru nokkrar ljósmyndir sem teknar eru í gamla gagnfræðaskólanum. Einar Falur staldrar við eina þeirra sem sýnir skápa nemenda í skólanum. Sumir eru galopnir, aðrir opnir í hálfa gátt og enn aðrir lokaðir. Einn skápurinn er málaður blár. Hann er lokaður og læstur. „Sýningin er tilraun til að opna þennan heim bernskunnar, þennan heim sem hefur verið lokaður af,“ segir hann. „Ég sný aftur á bernskuslóðirnar og reyni að opna þennan heim minninganna bæði fyrir sjálfum mér og öðrum. Ég vil leyfa öðrum að gægjast inn í þennan heim en það er þó algjörlega á valdi hvers og eins áhorfanda að gefa ljósmynd- unum innihald og merkingu.“ Ljósmyndin sem umræðuvettvangur Þrátt fyrir að viðfangsefnið sé persónulegt fjallar sýningin að hluta til um möguleika ljós- myndarinnar á að vera hlutlægur miðill. „Ljós- myndavélin sjálf er hlutlaus miðill. Hins vegar er ekki hægt að taka hlutlausa mynd. Það felst alltaf ákveðin afstaða í því að taka ljósmynd. Bara það hvernig þú rammar myndina inn fel- ur í sér afstöðu. Á þessari sýningu reyndi ég að sýna þann veruleika sem blasti við mér á eins hlutlausan hátt og mögulegt var jafnvel þó að staðurinn, húsin, fólkið eða hlutirnir sem ég var að mynda hefðu djúpstæð og tilfinn- ingaþrungin áhrif á mig á sama tíma. Ljósmyndin rammar inn ákveðna þætti veruleikans og birtir okkur afmarkaða hluta úr flæði tímans og smáatriði sem augað fær ef til vill ekki greint í því mikla magni sjónrænna áreita sem það verður stöðugt fyrir. Þannig getur ljósmyndin fengið okkur til að skoða veruleikann á nýjan hátt, dregið athygli okkar að smáatriðum og óvæntum sjónarhornum. Með þessum hætti beinir ljósmyndin athygli okkar að misbrestunum í skynjun okkar. En getur ljósmyndin í raun og veru birt okkur hlutlausa mynd af veruleikanum? Þetta er flókin spurning sem er hægt að svara bæði neitandi og játandi. „Þegar ég vann að þessum ljósmyndum reyndi ég iðulega að stilla ljós- myndavélinni upp á eins hlutlausan hátt og hægt var,“ segir Einar Falur. „Ég sá til þess að ljósmyndin gengi upp hvað varðar form og byggingu en forðaðist að öðru leyti að hafa áhrif á niðurstöðuna. Þetta er svipað og þegar ég tek myndir af landslagi. Þá forðast ég að „dramatísera“ það sem ég sé heldur leitast ég eingöngu við að skrásetja það sem fyrir augu ber. Ég reyni ekki að skapa dramatík með því að leggjast á magann og hafa fjólubeð í for- grunni eða mynda landslag eingöngu þegar morgunsólin varpar geislum sínum á fjalls- tinda. Ég vil nota ljósmyndavélina til að skrá- setja veruleikann eins og hann er í raun og veru, og eins og fólk upplifir hann.“ Fullkomið hlutleysi virðist þó vera utan seil- ingar. Einar Falur fellst á það. Engu að síður er viðleitnin til að fanga hið fullkomna hlutleysi mikilvæg. Hún gerir möguleika og mörk ljós- myndatækninnar að viðfangsefni sínu. Að bera virðingu fyrir takmörkum ljósmyndarinnar er ekki síður mikilvægt en að átta sig á mögu- leikum hennar. Einar Falur starfar jöfnum höndum við heimildaljósmyndun, blaðaljósmyndun og list- ræna ljósmyndun og í verkum hans eru skilin milli þessara tegunda ljósmynda oft óljós. Hann er því vanur að nálgast ljósmyndina út frá ólíkum forsendum. Að hans mati getur krafan um hlutleysi einmitt snúist upp í and- stæðu sína þegar kemur að blaðaljósmyndun. „Það er mikilvægt að átta sig á því að þó að ljósmyndavélin sjálf sé hlutlaust skráning- artæki er ekki hægt að taka hlutlausa mynd. Myndavélin ákveður aldrei neitt. Það er ein- hver vitund á bakvið hverja mynd, einhver per- sóna sem ákveður hvað er þess virði að skrá- setja. Það felst alltaf ákveðin afstaða í því að taka mynd. Það er til dæmis ekki hægt að taka hlutlausa mynd á Alþingi eða á blaðamanna- fundi. Ég held að þessi krafa um hlutleysi blaðaljósmyndarinnar sé dálítið varhugaverð. Hún kemur í veg fyrir að ljósmyndarinn geti notið sín sem frásagnaraðili. Góður ljósmynd- ari hefur ekki síður áhugaverða sögu að segja en blaðamaðurinn. Það vantar enn mikið upp á það hér á landi að fólk átti sig á möguleika ljós- myndarinnar til að vera umræðuvettvangur.“ Hið afgerandi augnablik þar sem hugur, hjarta og auga verða eitt Í starfi sínu sem myndstjóri Morgunblaðsins hefur Einar Falur reynt að birta reglulega myndafrásagnir í anda þess sem kallað hefur verið meðvituð húmanísk ljósmyndun. Sjálfur hefur hann ferðast víða, meðal annars til Ind- lands, Kína og Bólivíu til að ljósmynda það sem fyrir augu ber og setja saman ljósmyndafrá- sögn sem veitir öðrum innsýn í framandi sam- félög. Svarthvítar ljósmyndir hans frá Indlandi eru sláandi. Viðfangsefnið er átakanlegt. Formbyggingin er vandlega úthugsuð og hið afgerandi augnablik sem er einskonar skurð- punktur frásagnarinnar, er það sem gerir það að verkum að ljósmyndir Einars Fals standast fyllilega samanburð við það besta sem gerist í heimildaljósmyndun í dag. Svarthvítar ljósmyndafrásagnir hafa ein- „Ég vil nota ljósmyndavélina til að skrásetja veruleikann eins og hann er í raun og veru, og eins og fólk upplifir hann,“ segir Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari en í gær var opnuð sýning á myndum hans í Listasafni Reykjanesbæjar í Duushúsum. Myndirnar eru allar teknar í Keflavík á þessu ári en Einar Falur ólst þar upp. Meðvituð vísun í lista- söguna finnst mér mjög áhuga- verð og skap- andi. Þegar ég fer á vettvang og tek mynd fer ég með þúsundir mynda með mér í huganum og allt í einu þegar ég sé ákveðið sjónar- horn þá banka þær upp á. Ekki póstmódernísk ken – heldur póstmódernísk staðreynd » 4 LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ lesbók

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.