Lesbók Morgunblaðsins - 29.09.2007, Qupperneq 1
Laugardagur 29. 9. 2007
81. árg.
lesbók
KÖLTFYRIRBÆRIÐ KAFKA
HAMSKIPTIN VORU FRUMSÝND Í ÞJÓÐLEIKHÚSINU Í VIKUNNI
OG AF ÞVÍ TILEFNI LEITUM VIÐ UPPI VOFU KAFKA >> 12
Ný tegund af tónlist, ólík því sem á undan hefur farið, sannkallað tímamótaverk » 7
Ráðgátan um Olgu Tsékovu
Hin unga og fagra Olga
Tsékova átti ekkert nema
demantshring þegar hún
fór frá Moskvu 1920.
Leið hennar lá til
Þýskalands og þar sló
hún í gegn á hvíta tjald-
inu og varð uppáhalds-
leikkona Hitlers – en um
leið starfaði hún fyrir
leyniþjónustu
Sovétríkjanna
Mögnuð bók eftir hinn
geysivinsæla
Antony Beevor
holar@simnet.is
Reuters
Al Gore hefur skrifað ádeilurit um Bandaríki Bush, The Assault on Reason. Jón Baldvin Hannibalsson segir afdráttarlausa skoðun sína á viðfangsefni bókarinnar og bókinni sjálfri. »4
Hljómsveitin Múm hefur verið til í tæp tíu ár..Hún hefur nú sent frá sér fjórðu plötuna.Nafn plötunnar er undarlegt: Go go smearthe poison ivy. En tónlistin er undursam-
leg.
Þegar fyrsta plata hljómsveitarinnar kom út var sagt
að hún spilaði „óskilgreinanlega raftónlist“. Allir voru
hins vegar sammála um að þar væri á ferð afbragðs
frumraun. Á næstu tveimur plötum bættist meiri söng-
ur við einfaldar og brothættar laglínur sem einkennt
höfðu þá fyrstu. Gagnrýnendur voru jafn ánægðir. Á
nýja diskinum hefur þróunin haldið áfram, tónheimur
Múm er einhvern veginn fyllri, laglínan sterkari, dans-
takturinn ákveðnari, söngurinn þroskaðri og hljóm-
sveitin notar meira hefðbundin hljóðfæri.
Það sem gerir tónlist Múm áhugaverða er þó eftir
sem áður mjög áheyrilegar lagasmíðar. Þeim hefur
verið lýst sem rómantískum, krúttlegum, draum-
kenndum og þetta á sennilega allt saman við enn þá að
einhverju leyti en á þessari plötu kvikna líka marmel-
aðieldar og froskar springa, og fólk dansar á bak við
augnlokin og það dansar rhubarbidoo og sektarstein-
um er kastað. Í þessari tónlist er ekki beinlínis sól, það
er stundum dumbungur og stundum ýrir úr lofti. Þeir
sem kunna við sig í fárviðri ættu að leita annað. Allir
hinir nái sér í eintak.
Marmelaðieldar
MENNINGARVITINN
Eftir Þröst Helgason
vitinn.blog.is