Lesbók Morgunblaðsins - 29.09.2007, Blaðsíða 9
unum, bæði á
d að það sé
a góða tækni-
með ljós-
ð gera lítið úr
l geta verið
i er það vit-
andi heldur
ð þú hefur
á École
Montpellier ár-
nale Supér-
kklandi. Loka-
Kárahnjúka-
ée-listasafns-
undanförn-
ast reGener-
tion var að
líkleg til þess
r. Pétri var
sem taka
hópsins hefur
pans, Banda-
ljósmyndum
-útgáfunni ár-
fnið hefur Pét-
eríeigendur og
í sem höfðu
eration og þar
st Camara
ði góðu sam-
fi aldrei
ni þá ákvað ég
þetta gallerí og
r næstkom-
m við gallerí-
a frá samn-
a selur og
r var opnuð í
g á verkum
umbreytingu
svæðinu. „Síð-
ustu tvö árin hef ég verið að velta því fyrir mér
hvernig ég geti fjallað um það hvernig verið er að
breyta borgarlandslaginu. Það hefur átt sér stað
gífurleg uppbygging í borginni en að sama skapi lítil
umræða um það hvaða áhrif þessi uppbygging hefur
á náttúruna á höfuðborgarsvæðinu. Ljósmyndirnar
sem ég sýni í Turpentine fjalla allar um þessa um-
hverfingu, það er að segja um það hvernig náttúr-
unni er breytt í umhverfi.“
Í Umhverfingu vinnur Pétur áfram með þá hug-
mynd sem hefur verið undirliggjandi í Kárahnjúka-
verkefninu. Nýju myndirnar einkennast þó enn frek-
ar af leik með form og liti en þær eldri. „Ég hef verið
undir miklum áhrifum frá Wassily Kandinsky að
undanförnu og langaði að ná fram meiri abstraksjón
og óróleika. Draga fram fegurðina sem býr í óreið-
unni. Ólíkt Kárahnjúkamyndunum sem allar eru
teknar í „hlutlausri birtu, þ.e.a.s. þegar sólin er á
bakvið þykka skýjahulu, þá eru ljósmyndirnar í Um-
hverfingu myndaðar í sólskini síðla dags. Á stöku
mynd má jafnvel sjá blóðrauðan himin. „Hér er ég að
vinna með hugmyndina um það hvernig við erum al-
in upp til að horfa á landslag. Það er þessi íslenska
sólarlagshefð sem mótar hugmyndir okkar um fal-
legt landslag. Mig langaði að stilla þessu upp og sýna
skurði, rör, pípur, og almennt rask mannsins á nátt-
úrunni í blóðrauðu sólarlagi. Þannig er rómantíkinni
teflt gegn raunveruleikanum.“
Hugmyndafræði getur verið hamlandi
Pétur segist gjarnan sækja sér innblástur og hug-
myndir í verk heimspekinga, rithöfunda og skálda.
Aðflutt landslag dregur þannig nafn sitt af sam-
nefndu ljóði eftir Svein Yngva Egilsson og hugtakið
Umhverfing er dregið af samnefndri bók Páls Skúla-
sonar um náttúruna og umgengni mannsins við
hana. „Ég sæki mér hugmyndir víða en varast engu
að síður að sökkva mér ofan í einstakar heimspeki-
eða fræðikenningar. Ég les bara nóg til að geta nýtt
mér það. Þrátt fyrir að kenningar geti verið mjög
mikill áhrifavaldur fyrir listamenn og þá geta þær
einnig verið heftandi á listræna sköpun. Heimspeki
og kenningar geta verið listamönnum nauðsynlegar
og jafnvel skilið á milli listrænnar sköpunar og
skreytilistar – en engu að síður þarf að varast að
listamenn fari ekki að líta á listina sem myndskreyt-
ingu við kenningar fræðimanna.“ Pétur segist hafa
persónulega reynslu af því hvernig kenningar geti í
raun virkað heftandi. „Um tíma vann ég mjög mikið
með portrett og sökkti mér þá ofan í kenningar
franska heimspekingsins Emmanuel Levinas. Það
endaði með því að ég hætti að geta tekið portrett-
myndir. Hugmyndafræðin setti of miklar hömlur á
mig.“ Pétur segist þó ekki vera búinn að segja skilið
við portrettið. „Ég á eftir að fara aftur í portrettið,
það er ekki spurning. Ég er bara að leita leiða til að
vinna portrettið á nýjan hátt. Ég hef ekki enn fundið
réttu leiðina, þar er að segja þá leið sem er rétt fyrir
mig.“
Samhljómur í óreiðunni
Pétur hefur ýmislegt á prjónunum á næstunni. Auk
þeirra sýninga sem þegar hafa verið upptaldar í
Reykjavík og á Spáni stendur yfir sýning með verk-
um hans í Suður-Frakklandi og í febrúar næstkom-
andi tekur hann þátt í samsýningu í Brussel. Að-
spurður segir hann að það gangi ágætlega upp að
vera búsettur á Íslandi en halda tengslum við list-
heiminn erlendis. „Í gegnum tíðina hefur verið svolít-
ið erfitt fyrir ljósmyndara sem vilja vinna með ljós-
myndina sem listgrein að starfa á Íslandi. Það er eins
og fólk átti sig ekki alveg á möguleikum ljósmynd-
arinnar. Það skortir mjög gagnrýna umræðu um
ljósmyndir, og auðvitað kennslu. Samanborið við það
sem gengur og gerist í bæði Evrópu og Bandaríkj-
unum er myndrænt uppeldi mjög takmarkað á Ís-
landi. Það vantar einnig tilfinnanlega að boðið sé upp
á nám í ljósmyndun á háskólastigi. Ég held að það
myndi breyta miklu.“ Pétur segist þó finna fyrir mikl-
um áhuga á ljósmyndun. „Ég held að þetta sé allt á
réttri leið. Það virðist vera mikil vakning í gangi.
Hann bætir því við að sú vakning eigi sér þó ekki stað
í gegnum netsamfélagið. „Ég er mjög gagnrýninn á
þá umræðu sem þrífst á Netinu þar sem áhugaljós-
myndarar keppast við að sýna eigin myndir og hrósa
hver öðrum, jafnvel þó að það hafi litlar forsendur til
að setja sig í dómarasæti. Þar vantar alveg gagnrýna
umræðu.“
Við ræðum einnig um möguleika ljósmyndara á að
koma list sinni á framfæri hér á landi á listasöfnum og
í galleríum. Pétur telur að það sé í raun ekki erfitt
fyrir ljósmyndara að fá að sýna. „Það virðist vera
mikil vakning í gangi í listheiminum. Myndlistarmenn
eru farnir að sýna ljósmyndinni meiri áhuga og ég er
ekki frá því að verk Ólafs Elíassonar hafi haft þar
töluvert að segja, að minnsta kosti hér á landi.“ Hann
bætir því við að það sem gerir ljósmyndurum helst
erfitt fyrir hér á landi sé sjóðakerfið. „Það er mjög
dýrt að setja upp ljósmyndasýningu og hefur verið lít-
ill skilningur á því, en kannski er það að breytast.
Kannski er fólk að átta sig á því hvað þetta kostar.“
Pétur bætir því við að að þessu leyti sé mun auðveld-
ara að starfa sem ljósmyndari í Frakklandi. „Þar er
meiri skilningur, fleiri sjóðir og hærri upphæðir.“ Það
er þó fyrst og fremst hin skapandi umræða um ljós-
myndir sem hann segist sakna. Hann leggur áherslu
á mikilvægi þess fyrir íslenska ljósmyndara að taka
þátt í samstarfsverkefnum erlendis og láta til sín taka
í alþjóðlegri umræðu um ljósmyndir. Það er á stefnu-
skránni hjá honum sjálfum að fara til norðvesturhér-
aða Rússlands og vinna þar um tíma. Árið 2003 dvaldi
Pétur í listamannaíbúð í Pétursborg og vann þá að
verkefni sem gekk út á að mynda hús. „Ég hef ekki
enn náð tökum á því en hef komist nær markmiðinu,“
segir hann og sýnir mér ljósmyndir af byggingum,
sem sumar eru teknar í Rússlandi en aðrar hér á Ís-
landi. Í þeim greini ég það sem áður hefur verið
fjallað um, samspil manns og náttúru, en nú í nýju
ljósi. Fullkominn samhljómur í fullkominni óreiðu lita
og forma. Þangað erum við komin.
ag
Morgunblaðið/Kristinn
Höfundur er menningarfræðingur.
Ljósmynd/Pétur Thomsen
Aðflutt landslag Þessi mynd er hluti af verkefninu Aðflutt landslag.
m eitthvað sem skiptir máli, og í besta falli fá fólk til að spyrja sig gagnrýninna spurninga.“
Ljósmynd/Pétur Thomsen
Umhverfing Mynd á sýningunni Umhverfing.
Ljósmynd/Pétur Thomsen
Umhverfing Mynd á sýningunni Umhverfing.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2007 9
Orðabrellur
Einstök bók með
bráðsnjöllum
þrautum sem fá
okkur til þess að
gefa íslenskri
tungu betri gaum
en ella, spá og
spekúlera í
merkingu orða og
orðasambanda og
beita hugmynda-
flugi og kímni við
lausn þeirra.
holar@simnet.is