Morgunblaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007 19
G O Ð A S T E I N N
- héraðsrit Rangæinga
Goðasteinn, árgangur 2006, fæst hjá Laufafelli Hellu, Bláfelli Hvolsvelli,
Söluskálanum Landvegamótum, Bókakaffi, Austurvegi 22 á Selfossi,
sími 482 3074 og Bókabúðinni Hamraborg, Hamraborg 5, Kópavogi,
sími 554 0877.
Eldri árganga má nálgast hjá Fannberg á Hellu, sími 487 5228.
Héraðsnefnd Rangæinga
Aðalfundur Ferðamálasamtaka Íslands
verður haldinn á Hótel Ísafirði 25.-26. janúar 2007
Dagskrá fundarins
Fimmtudagur 25. janúar
12.30 Hótel Ísafjörður - Afhending fundargagna
13.00 Aðalfundur Ferðamálasamtaka Íslands
Setning - Pétur Rafnsson, formaður
13.10 Ávarp Sturlu Böðvarssonar,
samgönguráðherra
13.25 Skipað í fastanefndir aðalfundar:
Kjörnefnd-Kjörbréfanefnd-Fjárhagsnefnd.
13.30 Erindi: Uppbygging Markaðsstofu Vestfjarða
Jón Páll Hreinsson, framkvæmdarstjóri
13.45 Erindi: Sameinaðir kraftar koma okkur lengra,
stefnumótun og miðlun upplýsinga.
Stefán Stefánsson, formaður Ferðamálasam
taka Austurlands og Sævar Örn Sævarsson,
vefráðgjafi og verkefnastjóri hjá IGM.
14.20 Umræður og fyrirspurnir
15.00 Kaffihlé
15.30 Aðalfundarstörf samkvæmt lögum FSÍ
19.00 Móttaka í boði bæjarstjórnar
20.00 Kvöldverður og kvöldvaka
Veislustjóri Guðmundur M. Kristjánsson,
hafnarstjóri Ísafjarðarbæjar.
Föstudagur 26. nóvember
09.00 Kynnisferð
Ferðaþjónusta á svæðinu kynnt
Flug til Reykjavíkur
Fundarstjóri er Ingi Þór Ágústsson, bæjarfulltrúi
Skráning á fundinn er í síma 898-6635 eða petur@icetourist.is
Bókun herbergja á Hótel Ísafirði er á hotelisafjordur.is eða í síma 456-4111.
Bókun flugs til Ísafjarðar á aðalfund FSÍ: Hópadeild Flugfélags Íslands í síma
570-3075 virka daga frá kl 9-16 eða hjá hopadeild@flugfelag.is
Stjórn FSÍ
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
STJÓRNARHERINN á Srí Lanka
náði yfirráðum yfir bænum Vakarai,
einu helsta vígi Tamíl Tígranna á
austurströnd eyjarinnar, í áhlaupi í
gær. Allt að 15.000 tamílar voru tald-
ir hafast við í flóttamannabúðum
skammt frá bænum þegar uppreisn-
armenn voru hraktir á flótta og hafa
hjálparstofnanir lýst yfir áhyggjum
af öryggi þessa fólks. Fregnir hafa
borist af því að fólkið hafi þegar flúið
en það hefur enn ekki fengist stað-
fest.
Harðir bardagar hafa geisað á
svæðinu á síðustu vikum og hafa
talsmenn hersins sakað Tígrana um
að nota flóttafólkið sem „skildi“ í
átökunum. Talsmenn Sameinuðu
þjóðanna og ýmis hjálparsamtök
höfðu skorað á Tígrana að hleypa
flóttafólkinu, sem upphaflega var
35.000 talsins, frá svæðinu, sem hef-
ur verið mikilvæg samgönguæð upp-
reisnarmanna til norðurs.
Talsmenn hersins áætluðu í gær
að minnst 331 uppreisnarmaður og
45 hermenn hefðu fallið í bardögun-
um í austurhlutanum síðustu daga.
Aðeins eru um þrjár vikur liðnar
frá því að Sarath Fonseka yfirhers-
höfðingi lýsti því yfir, að hann hygð-
ist „hreinsa“ austurhlutann, þar sem
ýmis þjóðarbrot eru búsett, af vopn-
uðum uppreisnarmönnum Tígranna.
Atburðir gærdagsins eru mikið
áfall fyrir Tígrana sem voru einnig
hraktir frá vígi sínu í Sampur, norð-
ar á austurströndinni, í september-
byrjun á nýliðnu ári. Víglínan hefur
því verið að breytast og saka Tígr-
arnir herinn um að taka yfir stór,
samfelld svæði þeirra eins og þau
voru skilgreint í ákvæðum vopna-
hléssamkomulagsins frá 2002.
Hálf milljón á vergangi
Ef marka má reynsluna af átök-
unum í fyrra, róstusamasta árinu frá
2002, munu Tígrarnir svara með
hefndaraðgerðum, líkt og þeir gerðu
í október eftir misheppnað áhlaup
hersins norður á Jaffna. Má fastlega
búast við, að herinn sé á varðbergi
gegn sjálfsmorðsárásum.
Eins og fyrr segir er óttast um
þúsundir Tamíla sem hafast við í ná-
grenni Vakarai, en að sögn Þorfinns
Ómarssonar, talsmanns norrænu
eftirlitssveitanna, SLMM, á Srí
Lanka er of snemmt að segja til um
hvort allir þurfi að yfirgefa svæðið.
„Það er ljóst að vandi þessa fólks
verður ekki leystur með aðgerðum
hersins,“ sagði Þorfinnur. „Sam-
kvæmt nýrri skýrslu hafa 213.000
nýir flóttamenn bæst í hópinn á síð-
ustu níu mánuðum. Þetta þýðir að
fjöldi flóttamanna í landinu er kom-
inn yfir hálfa milljón.“
Tígrarnir á flótta
Herinn á Srí Lanka hrekur uppreisnarmenn frá Vakarai
AP
Framsókn Hermenn hvílast eftir að hafa tekið yfir búðir Tígranna í Mad-
urakavi fyrr í vikunni. Gagnger endurskoðunarvinna fer nú fram hjá yf-
irmönnum SLMM sem munu senda lið til svæðisskrifstofanna í næstu viku.
Fréttir í tölvupósti
Lundúnum. AFP. | Ruth Turner, mik-
ilvægur tengiliður bresku stjórnar-
innar við Verkamannaflokkinn, var í
gærmorgun handtekin á heimili sínu
í Lundúnum, í tengslum við rann-
sókn lögreglunnar á meintri fjár-
málaspillingu innan flokks Tonys
Blairs forsætisráðherra.
Verkamannaflokkurinn hefur ver-
ið sakaður um að láta aðalstignir í
staðinn fyrir fé í kosningasjóði
flokksins. Turner var yfirheyrð í
tengslum við þessar ásakanir, vegna
grunsemda um að hún hefði staðið í
vegi fyrir framgangi réttvísinnar.
Blair brást skjótt við tíðindunum
og sagðist hafa „fullkomið“ traust á
Turner, sem væri „heiðarleg mann-
eksja“, sem hann hefði mikið álit á.
Alls hefur breska lögreglan yfir-
heyrt um 90 manns í tengslum við
málið, sem vindur sífellt upp á sig. Á
hinn bóginn hafa
aðeins þrír verið
handteknir fram
að þessu, Lord
Levy, helsti fjár-
öflunarmaður
Verkamanna-
flokksins, Des
Smith, sem unnið
hefur að mennta-
málum innan
stjórnarinnar og Sir Christopher
Evans, sem látið hefur fé af hendi
rakna í sjóði flokksins. Enginn hefur
enn verið ákærður.
Grunsemdir um yfirhylmingu
Turner var látin laus gegn trygg-
ingu en hún var fyrst handtekin og
svo sleppt án ákæru vegna málsins í
september. Hún þarf að mæta aftur
til yfirheyrslna.
Rannsóknin hófst eftir að í ljós
kom að Verkamannaflokkurinn hafði
þegið háar „lánagreiðslur“ frá fjár-
sterkum aðilum fyrir þingkosning-
arnar 2005 og að mörgum þessara
aðila hefði verið veitt aðalstign.
Hún hefur síðan tengt anga sína
um breska stjórnkerfið og allir
helstu flokkarnir flækst í málið með
einum eða öðrum hætti. Eins og
breska ríkisútvarpið, BBC, rifjaði
upp á vefsíðu sinni í gær var búist við
að Scotland Yard myndi skila af sér
skýrslu um málið í þessum mánuði.
Talsmaður lögreglunnar hafi hins
vegar upplýst, að vegna atburða
gærdagsins sé frekari rannsókna
þörf. Að sögn breska blaðsins The
Times, leiðir handtakan til vanga-
veltna um hvort Scotland Yard sé að
útvíkka rannsókna til að kanna hvort
reynt hafi verið að hylma yfir málið.
Ráðgjafi Blairs grunaður
um að hindra réttvísina
Ruth Turner