Morgunblaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007 57
dægradvöl
1. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5 4. d4 Rf6
5. Rf3 e6 6. Be3 cxd4 7. cxd4 Bb4+ 8.
Rc3 O-O 9. Bd3 b6 10. O-O Bxc3 11.
bxc3 Ba6 12. Bxa6 Rxa6 13. Re5 Rb8
14. c4 Db7 15. a4 Rc6 16. f4 Hfd8 17.
Df3 Hac8 18. Had1 Ra5 19. De2 Rd7
20. Dh5 Rf6 21. De2 Rd7 22. Dh5 Rf8
23. c5 f6 24. Rg4 Dd5 25. f5 Rc4 26. Bh6
exf5 27. Hxf5 Df7 28. Dh3 Hxc5 29.
Bxg7 Dxg7 30. Rxf6+ Kh8 31. Rh5
De7 32. Hxf8+ Dxf8 33. Hf1 Dxf1+ 34.
Kxf1 Hxd4 35. De6
Staðan kom upp á lokuðu alþjóðlegu
móti í Reggio Emilia á Ítalíu. Ítalski al-
þjóðlegi meistarinn Luca Shytaj (2441)
hafði svart gegn landa sínum a Fe-
derico Manca (2425). 35... Hf5+! og
hvítur gafst upp enda verður hann mát
ef hann víkur kóngnum undan eða tap-
ar drottningunni eftir 36. Dxf5 Re3+.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Reykjavíkurmótið.
Norður
♠Á
♥6532
♦6
♣DG108642
Vestur Austur
♠G86 ♠109742
♥97 ♥Á4
♦D9543 ♦Á72
♣ÁK9 ♣753
Suður
♠KD53
♥KDG108
♦KG108
♣--
Suður spilar 6♥! Það er alltaf saga
til næsta bæjar þegar slemma vinnst
þar sem vörnin á þrjá ása. Norður gaf
og passaði í byrjun og suður vakti á
einu hjarta. Keppendur nota sagnmiða
og norður dró upp tvö lauf. Eða svo
hélt hann, en í reynd hafði miðinn með
„tveimur tíglum“ flækst með. Suður
samþykkti tígulinn með „splinter“
stökki í fjögur lauf og norður reyndi að
bjarga málunum með fjórum hjörtum,
en suður tók þá sögn sem fyrirstöðu og
keyrði í sex tígla. Norður breytti í sex
hjörtu og var með afsökunarræðuna í
smíðum þegar vestur lagði niður lauf-
kónginn. Sagnhafi trompaði, tók
spaðaás, stakk lauf, henti tígli í spaða-
kóng og spilaði hjartakóng. Fram-
haldið tók enga stund – hjartað féll 2–2
og laufið fríaðist: 1430 í NS og norður
beið með ræðuna.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 samfleyttur, 8
lélega spilið, 9 fjalls-
topps, 10 spil, 11 fiskur,
13 líffærið, 15 hættulega,
18 ledda, 21 hreysi, 22
veður, 23 hinn, 24 sam-
bland.
Lóðrétt | 2 líkamshlutar,
3 kona, 4 hljóðfærið, 5
alda, 6 draug, 7 espið, 12
skán, 14 smágerð sletta,
15 vitur, 16 hyggur, 17
ræktuð lönd, 18 fram-
endi, 19 þekktu, 20 siga.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kafli, 4 gusta, 7 rætin, 8 urðar, 9 arð, 11 aura,
13 hríð, 14 fimar, 15 stál, 17 ólga, 20 gró, 22 ormur, 23
lætin, 24 tunga, 25 asnar.
Lóðrétt: 1 karfa, 2 fótur, 3 inna, 4 gauð, 5 siður, 6 afræð,
10 rómar, 12 afl, 13 hró, 15 skott, 16 álman, 18 lotan, 19
arnar, 20 gróa, 21 ólma.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
1 Eggert Magnússon og félagar íWst Ham fengu tiginn gest í
heimsókn á Upton Park. Það var And-
rew prins. Hvernig tengist hann kon-
ungsfjölskyldunni?
2 Stjórnarskrárnefnd hefur veriðað störfum undanfarið. Hver er
formaður nefndarinnar?
3 Stefnt er að útgáfu Listasögu Ís-lands árið 2009. Hver er ritstjóri
verksins?
4 Beðið er með eftirvæntingu láns-hæfismats erlends matsfyr-
irtækis á ríkissjóði. Hvaða fyrirtæki
er þetta?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Danski herinn hefur fært Landhelg-
isgæslunni gjöf. Í hverju er hún fólgin?
Svar: Vopnum. 2. Halldór B. Runólfsson
hefur verið ráðinn forstöðumaður Lista-
safns Íslands. Hver var fyrirrennari hans?
Svar: Ólafur Kvaran. 3. Félag kvenna í at-
vinnurekstri afhenti árlega viðurkenningar
sínar til kvenna sem þykja skara framúr í
viðskiptum og atvinnurekstri. Hver hlaut
aðalviðurkenninguna að þessu sinni?
Svar: Halla Tómasdóttir.4. Forest Whita-
ker fékk Golden Globe verðlaunin fyrir túlk-
un sína á Idi Amin. Í hvaða íslenskri kvik-
mynd lék hann og hver leikstýrði? Svar:
Little Trip To Heaven sem Baltasar leik-
stýrði.
Spurt er…
ritstjorn@mbl.is
ANDI rökkurmyndahefðarinnar eða
film noir svífur yfir vötnum í Svörtu
dalíunni (The Black Dahlia), nýjustu
kvikmynd Brians De Palma sem
byggð er á samnefndri skáldsögu
glæpasagnahöfundarins James
Ellroys. Bókin sem um ræðir er sú
fyrsta sem Ellroy skrifaði í svoköll-
uðum LA-kvartett, en hann telur
m.a. LA Confidential sem rataði
einnig á hvíta tjaldið í vel heppnaðri
aðlögun Curtis Hansons árið 1997.
Við gerð Svörtu dalíunnar stendur
Brian De Palma frammi fyrir áþekk-
um vanda og Curtis Hanson við gerð
LA Confidential, en hann felst í því
að vinna kvikmyndahandrit úr gríð-
arlega flókinni og efnismikilli skáld-
sögu þar sem dregin er upp mynd af
spillingu og flóknum valdatengslum
í glæpa- og draumaborginni Los
Angeles. En á meðan Hanson fór þá
leið að einbeita sér að ákveðnum
þætti og tilteknum persónum í
skáldsögu Ellroys reynir handrits-
höfundur Svörtu dalíunnar að halda
utan um snúnara og umfangsmeira
samhengi en kvikmyndafléttan ræð-
ur við. Því steypist myndin niður í
hið afkáralega þegar komið er fram
yfir miðbik hennar og fléttan tekur
að afhjúpast með þvinguðum útskýr-
ingum og stirðbusalegum tilþrifum.
Það kom fáum á óvart að Brian De
Palma skyldi velja skáldsöguna
Svörtu dalíuna sem kvikmyndaefni,
en hún er spunnin í kringum myrkt
og óhugnanlegt morðmál, sem átti
sér í raun og veru stað í Los Angeles
árið 1947. Ung leikkona, Betty
Short, var pyntuð og myrt og fannst
limlest lík hennar á akri í einu af
skuggahverfum borgarinnar. Morð-
málið var aldrei upplýst, en varð að
þeim mun stærra fjölmiðlamáli, og í
bók sinni spinnur James Ellroy sína
eigin skálduðu útgáfu af morðmálinu
og tengslum þess við spillingu í
Hollywood og LA. Í kvikmyndaút-
gáfu sögunnar verður morðið að
sögumiðju sem illa tekst að tengja
fléttuna við, en þar segir af tveimur
rannsóknarlögreglumönnum, þeim
Bucky Bleichert (Josh Hartnett) og
Lee Blanchard (Aaron Eckhart).
Lee er á góðri leið með að láta spill-
inguna í kringum lögregluna heltaka
sig og verður Bucky sífellt nánari
Kay (Scarlett Johansson), eiginkonu
Lees, fyrir vikið. Þó svo að skáld-
saga James Ellroys eigi sér stað á
fimmta áratugnum (þegar noir-
hefðin stóð sem hæst) er skáld-
skapur hans ekki beinlínis skrifaður
inn í þá hefð. Sú ákvörðun Brians De
Palma að segja söguna í stílfærðum
anda noir-hefðarinnar verður því yf-
irborðskennd, enda nægja tíð-
arandabúningar, skarpir skuggar og
brúnleitir litir ekki til þess að fá
stirðbusalega sögufléttuna til að
virka. Í anda noir-hefðarinnar er
sögupersónan Madeleine (Hilary
Swank) þróuð í þá átt að vera nokk-
urs konar tálkvendi, en sú persóna
gengur engan veginn upp. Rothögg-
ið er hins vegar dauflegur leikurinn
þar sem enginn leikaranna finnur
sig í þeim tíðaranda sem leitast er
við að skapa, nema ef vera skyldu
Aaron Eckhart framan af og Josh
Hartnett sem stendur sig ágætlega í
fremur hlutlausri túlkun sinni á
þversagnakenndri aðalsögupersón-
unni.
Yfirborðskennd rökkurmynd
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó og Smárabíó
Leikstjórn: Brian De Palma. Aðal-
hlutverk: Josh Hartnett, Scarlett Joh-
ansson, Aaron Eckhart, Hilary Swank og
Mira Kirshner. Bandaríkin, 121 mín.
Svarta dalían (The Black Dahlia)
Photographer: Rolf Konow, SMPSP
Rökkur Svarta dalían er nýjasta mynd leikstjórans Brians de Palma.
Heiða Jóhannsdóttir