Morgunblaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007 25
LANDIÐ
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri
-hágæðaheimilistæki
Sími 588 0200 | www.eirvik.is
EIRVÍK OPNAR
NÝJA VERSLUN Á AKUREYRI
Glæsileiki. Gæði.
Verið velkomin
Laugardaginn 20. janúar opnar Eirvík nýja og
glæsilega verslun að Baldursnesi 6 á Akureyri.
Verið velkomin í Eirvík og kynnið ykkur mikið
úrval heimilistækja í hæðsta gæðaflokki.
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Opið í dag
frá kl. 10:00 -15:00
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
HÓPUR áhugafólks um bætta um-
ferðarmenningu á Suðurnesjum hef-
ur hrint af stað átaki sem á að vera
liður í baráttunni gegn því sem nefnt
er ofbeldi í umferðinni. „Hingað og
ekki lengra“ er yfirskrift átaksins.
Fram kom á blaðamannafundi
áhugahópsins í gær að á árunum
2003 til 2005 voru banaslys og slys
með meiðslum 40–75% fleiri meðal
Suðurnesjamanna en íbúa höfuð-
borgarsvæðisins, samkvæmt saman-
tekt Umferðarstofu. Þar er litið til
lögheimilis þeirra sem aðild eiga að
slysum en ekki slysstaðar og ekki er
tekið tillit til fjölda ekinna kílómetra.
Hjálmar Árnason alþingismaður,
forsvarsmaður hópsins, sagði að þótt
menn þekktu ekki ástæðuna fyrir
þessum tölum sýndu þær að þarna
væri verk að vinna.
Hjálmar segir að samfélagið á
Suðurnesjum standi að átakinu og
ætlunin sé að virkja almenning til
þátttöku. Vonast hópurinn til að
Suðurnesjamenn, allir sem einn,
leggi sitt af mörkum með tillitssemi,
aðgát og nærgætni við náungann og
samborgarana. Þannig aukist lífs-
gæði Suðurnesjamanna á götum úti.
Lögreglan verður sýnilegri
Fram kom á fundinum að hin sam-
einaða lögregla á Suðurnesjum væri
að undirbúa aukið umferðareftirlit.
Ellisif Tinna Víðisdóttir, fulltrúi lög-
reglustjórans, sagði að á næstunni
yrði skipulag lögreglunnar staðfest
og áætlanir lögreglunnar kynntar.
Hún sagði ljóst að það svigrúm sem
sameining lögreglunnar og breytt
verkefni á Keflavíkurflugvelli sköp-
uðu yrði nýtt í þessum tilgangi.
Nefndi hún að von væri á fleiri lög-
reglubifreiðum og að komið yrði upp
einhvers konar hverfisstöðvum í
sveitarfélögunum þannig að eftirlit
lögreglunnar yrði sýnilegra. Fram
kom að íbúar gætu tilkynnt um
háskaakstur í netfang lögreglunnar,
logreglan@bc.is.
Kynnt voru samningsdrög sem
Ökukennarafélag Íslands hefur látið
gera og er ætlað að vera sáttmáli
milli foreldra og ungmenna sem
ljúka ökuprófi um áframhaldandi
þjálfun ungmennanna. Þar er tekið á
ýmsum mikilvægum málum sem
stuðlað geta að öruggari akstri.
Fulltrúi ND kynnti Saga-ökurit-
ann og fram kom meðal annars að
foreldrar gætu fengið slíkan búnað
leigðan til að fylgjast með akstri
barna sinna við upphaf ökuferilsins.
Hjálmar Árnason heiðraði sér-
staklega tvær konur fyrir framtak í
umferðarmálum. Áróra Gústafsdótt-
ir lét taka bílinn af syni sínum eftir
að hún frétti af ofsaakstri hans, og
Tinna Guðrún Víðisdóttir sigraði í
ökukeppni VÍS þar sem Saga-öku-
mælar voru notaðir.
Vilja virkja almenning
í nýju umferðarátaki
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Heiður Hjálmar Árnason afhenti Tinnu Guðrúnu Lúðvíksdóttur og Áróru
Gústafsdóttur blóm en þær voru heiðursgestir við upphaf umferðarátaks.
Í HNOTSKURN
»Lögreglan á Suðurnesjummun auka eftirlit sitt.
Fleiri lögreglumenn verða á
ferðinni á Reykjanesbraut og í
bæjunum.
Sauðárkrókur | Styrkir úr minning-
arsjóði Jóns Björnssonar, tónskálds
og kórstjóra frá Hafsteinsstöðum,
voru nýlega afhentir nemendum í
Tónlistarskóla Skagafjarðar.
Ákveðið var að skipta viðurkenn-
ingunni á milli þriggja mjög efni-
legra nemenda. Við afhendingu
styrkjanna kom fram í máli skóla-
stjóra Tónlistarskólans, Sveins Sig-
urbjörnssonar, að þessir nemendur
hefðu skarað framúr og oft komið
fram á vegum skólans.
Þeir nemendur sem að þessu
sinni hlutu viðurkenningu voru
listagyðjurnar Anna Karítas Ingv-
arsdóttir, nemandi í flautu- og pí-
anóleik, Ragnheiður Silja Jóns-
dóttir, nemandi í fiðluleik, og
Sunna Dís Bjarnadóttir, nemandi í
harmonikku- og píanóleik. Anna er
á 15. ári, Ragnheiður verður 18 ára
á þessu ári og Sunna 16 ára.
Tekjur af hljómdiski
Fyrir fjórum árum, er liðin voru
100 ár frá fæðingu Jóns, stofnuðu
aðstandendur hans minningarsjóð-
inn í tengslum við útgáfu á hljóm-
diski sem gefinn var út. Hafði Eiður
Guðvinsson, systursonur lista-
mannsins, forgöngu um útgáfuna
og afhenti styrkina að þessu sinni.
Með dyggri aðstoð Stefáns Gísla-
sonar kórstjóra var safnað saman á
diskinn nokkrum af lögum Jóns,
sem þá voru til í ýmsum upptökum
og flutningi margra listamanna.
Andvirði af sölu hljómdisksins
skyldi síðan renna til ungra og efni-
legra skagfirskra tónlistarnem-
enda sem stefndu á frekara nám í
list sinni, og var það nú í þriðja
sinn, sem styrkir voru veittir.
Að sögn Eiðs hafa viðtökur við
hljómdiskinum verið langt framar
vonum. Vildi hann koma á framfæri
þakklæti fyrir þær og taldi ekki úti-
lokað að fleiri styrkir yrðu veittir
úr sjóðnum.
Safnað fyrir fiðlukaupum
Styrkþegar hafa allir stundað
tónlistarnám við skólann í nokkur
ár, Anna Karitas og Sunna Dís þó
lengst, þar sem þær byrjuðu fimm
og sex ára gamlar. Ragnheiður
Silja var orðin 12 ára er hún hóf
nám í fiðluleik en segist hafa náð
ágætum tökum á hljóðfærið á
skömmum tíma. Allar lýstu þær yf-
ir ánægju með styrkinn, er Morg-
unblaðið ræddi við þær, og Ragn-
heiður sagðist ætla að nota hann til
kaupa á nýrri fiðlu sem hún væri að
safna sér fyrir. Þær segjast allar
hafa áhuga á frekara tónlistarnámi,
enda ekki langt í að þær geti lokið
burtfararprófi. Þær Önnu og
Sunnu munar ekki um að læra á tvö
hljóðfæri í einu og segjast ekki geta
gert upp á milli þeirra, spurðar
hvort hljóðfærið sé skemmtilegra.
Sunna hefur frá upphafi numið við
tónlistarskólann á Hofsósi en Anna
og Ragnheiður stunda námið á
Sauðárkróki.
Til stendur að haldnir verði tón-
leikar með þeim nemendum sem
fengið hafa styrk úr sjóðnum en
dagsetningar hafa ekki verið
ákveðnar.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Styrkir Við úthlutun, Sveinn Sigurbjörnsson, Anna Karítas Invarsdóttir,
Sunna Dís Bjarnadóttir, Ragnheiður Silja Jónsdóttir og Eiður Guðvinsson.
Þrjár efnilegar
listagyðjur styrktar
Bolungarvík | Kven-
félagið Brautin í Bol-
ungarvík varð 95 ára
á dögunum. Af því til-
efni voru gjafir af-
hentar á aðalfundi fé-
lagsins.
Hólskirkju í Bol-
ungarvík var færð
peningagjöf að upp-
hæð 100 þúsund kr.
og Sjúkrastofnun Bol-
ungarvíkur var af-
hentur hjólastóll til
nota fyrir vistmenn
stofnunarinnar.
Miðað við aðstæður
og þá samkeppni sem
almennt félagsstarf
glímir við í dag má
segja að Kvenfélagið
Brautin hafi staðið
þá glímu vel af sér og
félagskonur haldið
uppi metnaðarfullu
félagsstarfi. Kvenfélagið Brautin hef-
ur frá stofnun verið kjölfestan í fé-
lagsstarfi í bæjarfélaginu og lagt
mörgum góðum málum lið á löngum
og farsælum starfstíma þess.
Eitt af árlegum verkefnum félags-
ins er árshátíð eldri borgara sem að
þessu sinni verður 24. febrúar n.k. en
að auki eru framundan hjá félaginu
fjáröflunarverkefni eins og blómasala
fyrir sumardaginn fyrsta og fleira.
Öllum ágóða af fjáröflunarverkefnum
félagskvenna er varið til góðra sam-
félagsverka.
Sólveig Sigurðardóttir er formaður
félagsins og með henni í stjórn eru
Guðrún Jóhannsdóttir og Guðlaug
Elíasdóttir.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Gjöf Stjórnarkonur afhenda gjöf til Sjúkrastofn-
unar Bolungarvíkur, fv. Guðrún Jóhannsdóttir,
Guðlaug Elíasdóttir, Hulda Karlsdóttir hjúkr-
unarforstjóri og Sólveig Sigurðardóttir.
Kvenfélagskonur
styðja góð málefni
SUÐURNES