Morgunblaðið - 20.01.2007, Side 48
48 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Kristján RafnVignir Þórar-
insson, sem ævin-
lega var nefndur
Stjáni Þór, fæddist
í Hrauni í Keldudal
í Dýrafirði hinn 6.
maí 1931. Hann lést
á öldrunardeild
Fjórðungssjúkra-
hússins á Ísafirði
að kvöldi 12. jan-
úar síðastliðins.
Foreldrar hans
voru hjónin Þór-
arinn Ágúst Vagns-
son f. á Hallsteinsnesi í Gufu-
dalshreppi 1893, d. 1976 og
Sigríður Guðrún Mikaelsdóttir f.
á Móum í Keldudal 1893, d.
1971. Systkini Kristjáns eru
Unnur, f. 1919 d. 2003, Jóhann,
f. 1920, d. 1920, Valdemar, f.
1921, d. 2003, Pétur Kristinn, f.
1922, d. 1999, Aðalheiður Guð-
munda, f. 1923, d. 1999, Elías
Mikael Vagn, f. 1926, d.
1988,Vilborg Jórunn, f. 1928, d.
1988, tvíburar: Rafn, f. 1929 og
andvana fæddur drengur, Ing-
ólfur Garðar, f. 1933.
Hinn 29. desember 1956
kvæntist Kristján Huldu Frið-
bertsdóttur frá Suðureyri við
Súgandafjörð. Foreldrar hennar
voru Friðbert G. Guðmundsson
og Jóna Reynhildur Magn-
úsdóttir. Saman eiga Kristján og
Hulda sjö börn, þau eru: 1) Guð-
mundur Magnús, kona hans er
Hjördís Guðmundsdóttir og eiga
þau þrjá syni og sex barnabörn.
2) Ólafur Benoný. 3) Barði, kona
hans er Matthildur Björk Gests-
dóttir og eiga þau tvær dætur 4)
Friðbert Jón, kona hans er Ásta
Guðríður Kristinsdóttir og eiga
þau fjögur börn og fjögur barna-
börn. 5) Birkir,
kona hans er Hild-
ur Hilmarsdóttir og
á hann sex börn og
tvö barnabörn. 6)
Valdís Bára, hún á
eina dóttur. 7) Haf-
liði Þór, kona hans
er Alda Alberts-
dóttir og á hann
þrjú börn. Fyrir
átti Hulda Martein
Einar Viktorsson
sem Kristján gekk í
föðurstað. Kona
hans er Sigríður
Magnea Gestsdóttir og eiga þau
tvö börn.
Kristján ólst upp í Hrauni, fór
ungur að vinna eins og tíðkast
um hans kynslóð, mest var hann
við sjómennsku, meðal annars á
Guðmundi, Júní, Flosa, Fjölni og
síðast á togaranum Framnesi,
öllum frá Þingeyri. Einnig var
Kristján í vegavinnu á sumrin,
ók vörubíl og olíubíl fyrir K.D.,
var umboðsmaður flugfélagsins
Vængja og umboðsmaður Bruna-
bótafélags Íslands. Síðasta starf
Kristjáns fólst í afleysingum við
flugvallagæslu, ýmist á Þingeyr-
arflugvelli, Holtsflugvelli og Pat-
reksfjarðarflugvelli og hafði
hann mikla ánægju af þeim
störfum.
Kristján og Hulda stofnuðu
heimili á Húsatúni í Haukadal
haustið 1955 og bjuggu þar til
haustsins 1966, þegar þau fluttu
inn á Þingeyri, í hús sem þau
höfðu byggt þar. Kristján hefur
búið á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Ísafirði síðustu þrjú árin sökum
veikinda.
Kristján verður jarðsunginn
frá Þingeyrarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Elsku afi, það er alltaf sárt að
kveðja en ég er þó óvenju sátt við
að hugsa að þú sért aftur komin til
fullrar heilsu, minnið komið, ef-
laust ertu mjög hamingjusamur og
endurfundir við alla skemmtilegir.
Ekki er verra að vera núna í stöðu
til að sjá alla ættfræðina og geta
stúderað hana betur, því þannig
man ég eftir þér, vinna í tölvunni
og rekja ættir nýrra einstaklinga
sem tengdust inn í fjölskylduna.
Minningarnar eru margar og
minnisstæðust eru jólin, hvort sem
þau snérust um grýlu eða bara
fjölskylduna. Jólin voru alltaf sér-
stök og haldin í faðmi fjölskyld-
unnar, það virtist vera mikilvæg-
ast. Þó það sé nokkuð langt síðan
ég heimsótti þig varst þú ofarlega
í huganum og minningarnar munu
bæta upp þann tíma sem ég fór á
mis við, en ég vildi frekar muna
þig hamingjusaman heima á eyr-
inni en týndan í hugarheimi Alz-
heimersins.
Ég lifi’ í Jesú nafni,
í Jesú nafni’ eg dey,
þó heilsa’ og líf mér hafni,
hræðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt,
í Kristí krafti’ eg segi:
Kom þú sæll, þá þú vilt.
(Hallgrímur Pétursson.)
Elsku afi, vertu sæll.
Guðrún Ásta
Kristján Rafn Vignir
Þórarinsson
Hinn 28. desember
síðastliðinn lést Júníus
Guðnason, verkstjóri
hjá Sandgerðisbæ.
Ágætur vinnufélagi og starfsmað-
ur er fallinn frá langt um aldur fram
aðeins sextíu og þriggja ára gamall.
Rétt er að þakka góðum dreng fyrir
aðkomu hans að málefnum bæjar-
félagsins, fyrir störf hans að viðhaldi
eigna og fyrir aðrar verklegar fram-
kvæmdir. Í rúm fjörutíu og þrjú ár
lagði hann fram sína starfskrafta í
þágu bæjarfélagsins. Júníus vann í
áhaldahúsi bæjarfélagsins alla tíð og
verður honum seint þökkuð góð
meðferð hans á fjármunum bæjar-
félagsins og er þá átt við tæki sem og
allan búnað sem honum var falin um-
sjón og eftirlit með. Júníus gegndi
einnig öðrum trúnaðarstörfum fyrir
bæjarfélagið og var m.a. varaslökk-
viliðsstjóri bæjarfélagsins til margra
ára. Slökkviliðsstjórastarfið getur
oft og tíðum verið vandmeðfarið við
erfiðar aðstæður. Fyrir þessi störf
viljum við einnig þakka Júníusi enda
fór þar traustur maður.
Júníus var góður drengur. Í góðra
vina hópi áttum við því láni að fagna
að kynnast einstökum frásagnar-
hæfileikum Júníusar. Hann átti það
til að segja sögur af hrakförum og
uppeldisárum sínum á ferskan og
skemmtilegan hátt. Slíkar stundir
eru í dag eftirminnilegar.
Fáir búa við það lán að lífið sé að-
eins slétt og fellt og án áfalla. Þau
hjón Regína og Júníus eignuðust
fjögur börn, eina stúlku og þrjá
drengi. Einn dreng sinn misstu þau
Júníus Guðnason
✝ Júníus Guðna-son fæddist í Ár-
nessýslu 13. júní
1943. Hann varð
bráðkvaddur á
heimili sínu 28. des-
ember síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá safn-
aðarheimilinu í
Sandgerði 5. janúar.
með sviplegum hætti
fyrir rétt um tíu árum
síðan.
Á nýársdagsmorg-
un 1997 þegar framtíð-
in virtist blasa við öll-
um landsmönnum til
sjávar og sveita, og ný
fyrirheit voru við sér-
hvert fótmál, kom
sorgarfrétt svo yfir-
þyrmandi að bæjarbú-
ar gátu varla rætt
saman enda bæjar-
félagið nánast lamað
af sorg. Fáar fréttir
hafa vakið eins mikinn óhug í brjóst-
um bæjarbúa og var fjölskylda Júní-
usar í mörg ár að jafna sig eftir þann
atburð. Á nýliðnu ári rifjaðist upp
umrædd sorgarfrétt þegar bæjar-
félagið varð fyrir miklum missi við
skyndilegt fráfall ungra drengja í
blóma lífsins. Á slíkum stundum
vaknar samfélagið til meðvitundar
um nauðsyn þess að leggja rækt við
gott mannlíf og góðar samveru-
stundir.
Júníus hafði nýverið gengist undir
aðgerð og var að ná fyrra þreki.
Fráfall Júníusar kom því öllum að
óvörum.
Júníus hefur lokið sínum störfum
sem einkenndust af trúmennsku fyr-
ir bæjarfélagið og hann var vakandi
yfir allri velferð sinnar fjölskyldu.
Fyrir hönd bæjarstjórnar viljum við
undirritaðir þakka samfylgdina um
leið og við færum fjölskyldu Júníus-
ar Guðnasonar samúðarkveðjur frá
starfsmönnum og íbúum Sandgerð-
isbæjar. Guð styrki ykkur á erfiðum
tímum.
Blessuð sé minning hans.
Sigurður Valur Ásbjarnarson,
Óskar Gunnarsson,
Ólafur Þór Ólafsson.
Í dag verður til moldar borinn
góðvinur minn Júníus Guðnason sem
ég hefi þekkt í áratugi og starfað
með lengi. Þegar ég hitti Júníus rétt
fyrir jól í Áhaldahúsi Sandgerðis-
bæjar, en þar hafði Júníus starfað í
yfir 40 ár, grunaði mig ekki að þetta
yrði í síðasta skiptið sem við mynd-
um hittast, en svona er lífið, við vit-
um aldrei hver er næst kallaður yfir
móðuna miklu. Það er margs að
minnast úr samstarfi okkar Júníusar
sem hófst í björgunarsveitinni Sig-
urvon og síðar í Slökkviliði Sand-
gerðis en þar hafði hann starfað í 43
ár og var varaslökkviliðsstjóri í yfir
30 ár. Í Áhaldahúsi Sandgerðisbæjar
starfaði hann lengi á vinnuvélum og
þótti vera einstaklega fær að leysa
allskonar vandamál hvort sem þau
voru lítil, stór eða flókin, enda var
hann vinnusamur og féll aldrei verk
úr hendi. Hann var jafnvígur á að
smíða úr járni eða tré enda laghent-
ur og vandvirkur. Júníus hafði öðlast
mikla þekkingu á öllum veitukerfum
í Sandgerði enda hafði hann víða lagt
hönd á í gegnum árin.
Það var ávallt gaman að koma við
á kaffistofunni í Áhaldahúsinu og
ræða málin. Júníus hafði oft frá
mörgu skemmtilegu að segja og er
mér minnisstæð ferð sem við fórum
fyrir um tveim árum, fimm saman,
ég, Sigurður Valur bæjarstjóri,
Diddi í Nesjum, sem lést á síðasta
ári, Kalli í Klöpp og Júníus.
Ferðin var einskonar söguferð þar
sem við sögðum sögur frá fyrri tíð af
mönnum sem settu svip á mannlífið.
Ekið var víða um Suðurlandið, þegar
við nálguðumst Selfoss fór Júníus að
segja allskonar sögur af lífshlaupi
sínu sem unglingur á Selfossi, það
var ógleymanlegt að hlusta á hvað
þessi dagfarsprúði maður hafði frá
mörgu skemmtilegu að segja frá sín-
um yngri árum, en eftir situr minn-
ingin um ógleymanlega dagsferð þar
sem hláturinn ómaði lengi dags. En
nú er ferð Júníusar á enda, það hefur
verið mér mikil gæfa að hafa fengið
að starfa með Júníusi í áratugi.
Slökkviliðsmenn í Sandgerði kveðja
nú góðan félaga sem var nýhættur í
liðinu.
Megi Guð geyma minninguna um
góðan félaga. Samúðarkveðjur sendi
ég Regínu, börnum og skyldmenn-
um.
Reynir Sveinsson.
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐINU hefur borist eft-
irfarandi yfirlýsing frá Öryrkja-
bandalagi Íslands:
„Í ljósi umræðu um niðurstöður
könnunar um langvarandi kynferð-
islegt ofbeldi gegn heyrnarlausum
vill ÖBÍ vekja athygli á því að inn-
lendar og erlendar rannsóknir sýna
að fatlaðir eigi meira á hættu að
verða fórnarlömb slíks ofbeldis en
aðrir hópar samfélagsins. Það á sér-
staklega við um þá sem vegna fötl-
unar sinnar eiga erfitt með að tjá
hugsanir sínar og tilfinningar með
skýrum og skilmerkilegum hætti. Það
er mjög brýnt að slík mál séu upplýst,
fórnarlömbum ofbeldisins veittur öfl-
ugur stuðningur og lærdómur dreg-
inn af atburðunum. ÖBÍ leggur
áherslu á að opinberir aðilar vinni ná-
ið með hagsmunasamtökum heyrn-
arlausra að viðbragðaáætlun sem og
að aðgerðum til að fyrirbyggja að slík
ofbeldisverk geti endurtekið sig
gagnvart heyrnarlausu fólki. Einnig
hafi hið opinbera náið samráð við
önnur hagsmunasamtök fatlaðs fólks
sem eru í áhættuhópum vegna kyn-
ferðislegs ofbeldis.“
Lærdómur
verði dreginn
af atburðum
LÖGREGLAN í Borgarnesi lýsir
eftir vitnum að umferðarslysinu
sem varð við Munaðarnes föstudag-
inn 12. janúar skammt frá bænum
Grafarkoti. Þar rákust saman jeppi
og flutningabíll með þeim afleið-
ingum að ökumaður jeppans slas-
aðist alvarlega og liggur enn á
gjörgæsludeild Landspítalans. Þeir
sem geta gefið upplýsingar um slys-
ið eru beðnir að hringja í lögregl-
una í Borgarnesi í síma 433-7612.
Lýst eftir vitnum
HEKLA frumsýnir um helgina nýjan
Pajero – aflmesta lúxusjeppa sem
Mitsubishi Motors hefur framleitt.
Gerð bílsins og tæknibúnaður hafa
tekið stökkbreytingum fram á við,
sem birtist ekki aðeins í betri akst-
urseiginleikum, heldur einnig í
auknu öryggi, meiri þægindum,
virkari afköstum og einstökum
aukabúnaði, segir í frétt frá Heklu.
Meðal búnaðar sem hægt er að fá í
nýjum Pajero er DVD spilari og inn-
byggt leiðsögukerfi, 800W Rockford
hljóðkerfi og bakkmyndavél.
Sýningin verður í húsakynnum
Heklu, Laugavegi 174 og hjá sölu-
umboðum Heklu í Reykjanesbæ og á
Selfossi kl. 10–16 í dag, laugardag,
og kl. 12–16 á morgun, sunnudag.
Hekla frum-
sýnir Mitsub-
ishi Pajero
VINNUEFTIRLITIÐ heldur ráð-
stefnu um áhættumat og forvarnir á
vinnustöðum þriðjudaginn 23. janúar
nk., kl. 13–16 á Grand Hóteli, Reykja-
vík.
Á ráðstefnunni verða kynnt ákvæði
nýrrar reglugerðar nr. 920/2006 um
skipulag og framkvæmd vinnuvernd-
arstarfs á vinnustöðum. Samkvæmt
reglugerðinni ber atvinnurekanda að
gera skriflega áætlun um öryggi og
heilbrigði á vinnustað sem á að marka
stefnu varðandi aðbúnað, holl-
ustuhætti og öryggi á vinnustaðnum í
samráði við öryggisverði og örygg-
istrúnaðarmenn eða aðra fulltrúa
starfsmanna. Áætlunin skal m.a. fela í
sér:
Mat á áhættu í starfi með tilliti til
öryggis og heilsu starfsmanna, svo-
kallað áhættumat.
Áætlun um heilsuvernd og for-
varnir sem byggir á áhættumatinu.
Ráðstefnan verður opnuð af Magn-
úsi Stefánssyni félagsmálaráðherra
en í kjölfarið mun Þórunn Sveins-
dóttir, deildarstjóri hjá Vinnueftirlit-
inu, kynna nýmæli reglugerðarinnar.
Þá munu Joseph Zoghbi, öryggis- og
umhverfisstjóri Bechtel á Reyð-
arfirði, Guðjón Guðmundsson, inn-
kaupastjóri Sláturfélags Suðurlands
á Hvolsvelli, og Guðmundur Þór
Gunnarsson, verkefnastjóri Mjólk-
ursamsölunnar á Selfossi, kynna
reynslu fyrirtækjanna af áhættumati
og forvörnum á vinnustað.
Í ráðstefnulok verða pallborðs-
umræður með þátttöku fulltrúa
stjórnmálamanna, atvinnurekenda og
launþega. Stjórnandi pallborðs verð-
ur Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri
Vinnueftirlitsins.
Ráðstefnustjóri verður Guðjón
Ólafur Jónsson, alþingismaður og
stjórnarformaður Vinnueftirlitsins.
Aðgangur að ráðstefnunni er
ókeypis.
Ráðstefna um áhættumat
og forvarnir á vinnustöðum
✝
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför
INGIBJARGAR ÞÓRHALLSDÓTTUR
frá Sauðadalsá.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðis-
stofnunarinnar á Hvammstanga fyrir hlýja og góða
umönnun sl. eitt og hálft ár.
Elín Þormóðsdóttir, Þórður Skúlason,
Þóra Þormóðsdóttir, Heimir Ágústsson,
Eggert Óskar Þormóðsson, Arndís Helland,
Guðbjörg Erna Þormóðsdóttir,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna
andláts móður okkar,
ÁSLAUGAR STEFÁNSDÓTTUR
frá Mörk,
er lést sunnudaginn 24. desember.
Þökkum einnig öllum þeim er hjálpuðu okkur og
studdu á einn eða annan hátt.
Börn hinnar látnu.