Morgunblaðið - 18.02.2007, Blaðsíða 20
20 B SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Raðauglýsingar 569 1100
Til sölu
Kvóti til sölu
50 tn. veiddur þorskkvóti í krókakerfiinu til
sölu. Verðtilboð sendist á auglýsingadeild Mbl.
eða á box@mbl.is merkt: “Kvóti-19545.
Hárgreiðslustofa
í eigin húsnæði
Höfum fengið til sölu þekkta hárgreiðslustofu í
mjög góðu 75 fm mikið endurnýjuðu húsnæði.
Miklir möguleikar á að auka tekjur fyrir réttan
aðila. Selst með húsnæði eða sitt í hvoru lagi.
Frábært tækifæri.
Nánari upplýsingar veitir:
Fasteignamarkaðurinn ehf.,
Óðinsgötu 4, s. 570 4500.
Tilboð óskast í Stofnhænsnahús
í Dalvíkurbyggð
14030 - Fossabrún 6a og b í Dalvíkurbyggð:
Um er að ræða stálgrindarhús, talið vera 1.059,1
m² samkv. FMR, byggt árið 1986 og húsnæði
byggt úr steinsteypu og timbri árið 2002, talið
vera 674.0 m² samkv. FMR ásamt tilheyrandi
leigulóðarréttindum.
Brunabótamat er 119.900.000 kr. og fasteignamat
er 51.120.000 kr. Húseignin verður til sýnis í
samráði við Jón Þórðarson í síma 660 9617 og
Ríkiskaup, Borgartúni 7, 105 Reykjavík í síma
530 1400.
Tilboðseyðublöð liggja frammi á sama stað ásamt
reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðu-
blaði.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum, Borgartúni 7,
Reykjavík fyrir kl. 10.00 þann 28. febrúar 2007 þar
sem þau verða opnuð í viðurvist bjóðenda er þess
óska.
Tilboð óskast í íbúðarhúsnæði
á Sléttuvegi 17, Reykjavík
Eldri borgarar
- 55 ára og eldri
14163 Íbúð á 3. hæð með glæsilegu útsýni.
Stærð íbúðar samkv. FMR er talin vera 90,2 m².
Húsið er byggt árið 1992.
Sú kvöð er á að íbúðina má aðeins selja þeim sem
eru 55 ára og eldri og í íbúðinni mega ekki aðrir
búa en þeir og makar svo og uppkomin börn
þeirra, án samþykkis hússtjórnar.
Íbúðin er til sýnis í samráði við Ríkiskaup, Borgar-
túni 7, 105 Reykjavík í síma 530 1400.
Tilboðseyðublöð liggja frammi á sama stað ásamt
reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðu-
blaði.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 11.00
þann 7. mars 2007 þar sem þau verða opnuð í
viðurvist bjóðenda er þess óska.
Tilboð óskast í einbýlishús
á Ólafsvegi 40, Ólafsfirði
14210 - Einbýlishús á Ólafsvegi 40,
Ólafsfirði, Fjallabyggð:
Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum
ásamt bílskúr, stærð húsnæðisins samkv. FMR er
talin vera 166,1 m², húsið er byggt úr steinsteypu
og timbri árið 1981. Bílskúrinn er talinn vera 40,4
m² samkv. FMR byggður árið 1994. Brunabótamat
húsnæðisins er 29.630.000 kr. og fasteigna- og
lóðamat er 12.540.000 kr.
Húseignin er til sýnis í samráði við sýsluskrifstof-
una á Ólafsfirði í síma 460 3932 og Ríkiskaup,
Borgartúni 7, 105 Reykjavík í síma 530 1400. Til-
boðseyðublöð liggja frammi á sama stað ásamt
reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðu-
blaði.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 10.00
þann 13. mars 2007 þar sem þau verða opnuð í
viðurvist bjóðenda er þess óska.
Styrkir
Styrkur til tónlistarnáms
Söngmenntasjóður Marinós Péturssonar veitir
á þessu ári íslenskum söngvurum styrki til
tónlistarnáms erlendis. Einn eða fleiri styrkir
verða veittir.
Umsóknir með upplýsingum um námsferil og
framtíðaráform sendist fyrir 10. mars nk. til:
Söngmenntasjóður Marinós Péturssonar,
b.t. Haukur Björnsson,
Flyðrugranda 8-A2,
107 Reykjavík.
Umsóknum fylgi hljóðritanir og/eða önnur
gögn sem sýna hæfni umsækjenda. Endurnýja
skal eldri umsóknir.
Styrkir til háskólanáms
Styrkir til háskólanáms á Tævan. Ráðuneyti
menntamála á Tævan hefur tilkynnt að það
bjóði fram styrk handa Íslendingi til BA-, MA-
eða doktorsnáms á Tævan. Styrkurinn er til allt
að 5 ára, þar af 1 ár til náms í kínversku.
Styrktímabilið er frá 1. september 2007. Einnig
eru boðnir fram 2 styrkir til náms í kínversku
við háskóla á Tævan námsárið 2007-2008, þ.e.
frá 1. september 2007 til 31. ágúst 2008.
Styrkirnir nema 25.000 NT á mánuði (jafnvirði
um 50.000 ísl. kr.).
Umsóknum skal skila til menntamálaráðu-
neytis á sérstökum umsóknareyðublöðum,
ásamt tilskildum fylgigögnum, fyrir 13. mars
2007.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð eru
fáanleg í menntamálaráðuneytinu.
Menntamálaráðuneyti, 16. febrúar 2007.
menntamalaraduneyti.is
Nýsköpunarsjóður
námsmanna
auglýsir eftir styrkumsóknum fyrir
sumarið 2007
Nýsköpunarsjóður námsmanna var stofnaður
til þess að útvega áhugasömum nemendum
sumarvinnu við krefjandi rannsóknarverkefni.
Umsóknarfrestur rennur út 10. mars nk.
Sækja skal um styrk á heimasíðu sjóðsins
www.nsn.is þar sem allar frekari upplýsingar
er að finna.
Nýsköpunarsjóður námsmanna,
veffang: www.nsn.is,
netfang: nyskopun@hi.is,
sími 570 0888, bréfsími 570 0890.
Alþjóðlegir
friðarstyrkir
Rótarýhreyfingarinnar
2008-2010
Rótarýsjóðurinn, ROTARY FOUNDATION,
sem rekinn er af Alþjóða Rótarýhreyfingunni,
mun veita allt að 70 styrki til tveggja ára meist-
aranáms skólaárin 2008-2010. Styrkirnir verða
veittir til náms og rannsókna sem tengjast al-
þjóðasamstarfi og eflingu friðar í heiminum og
eru ætlaðir fólki sem þegar hefur reynslu af
alþjóðastarfi auk þess að hafa lokið fyrstu
háskólagráðu.
Í þessu skyni hefur Rótarýsjóðurinn komið á
samvinnu við sjö virta háskóla:
Universidad del Salvador, Argentínu
University of Queensland, Ástralíu
Duke University & University of North
Carolina, USA
University of California-Berkeley, USA
University of Bradford, Englandi
Sciences Po, Frakklandi
International Christian University, Japan
Styrkirnir, sem eiga að standa undir tveggja ára
námskostnaði, eru alþjóðlegir samkeppnis-
styrkir. Rótarýhreyfingin á Íslandi má senda
eina umsókn. Val íslenska umsækjandans fer
fram eftir ítarleg viðtöl og könnun á námsferli
og störfum. Makar, afkomendur og makar af-
komenda lifandi Rótarýfélaga geta ekki sótt um
styrkinn. Fimm Íslendingar hafa fengið friðar-
styrki frá því þeir voru fyrst veittir árið 2002.
Nánari upplýsingar um námið, háskólana og
umsóknarskilmála er að finna á heimasíðu
Rotary International: rotary.org/foundation/
educational (Rotary Centers for International
Studies). Einnig má nálgast upplýsingar á skrif-
stofu Rótarýumdæmisins. Sími 568 2233.
Þeir sem hafa hug á að sækja um styrk
eru beðnir um að senda ítarlegt æviágrip
og lýsingu á markmiði með framhalds-
námi fyrir 30. mars til Skrifstofu Rótarý-
umdæmisins, Suðurlandsbraut 54,
108 Reykjavík, merkt: ,,Friðarstyrkur”.