Morgunblaðið - 28.04.2007, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
SUÐURNES
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | „Þetta er eig-
inlega sögulegur atburður. Brass-
sveit, bara skipuð stelpum,“ sagði
Harpa Jóhannsdóttir básúnuleikari
í samtali við Morgunblaðið en hún
hélt utan nýlega ásamt 9 öðrum
málmblásturshljóðfæraleikurum til
að spila með Björk í Bandaríkj-
unum. Hún sagðist ekki alveg gera
sér grein fyrir hversu stórt æv-
intýri þetta yrði og fannst það enn
hálf óraunverulegt.
Saga Hörpu Jóhannsdóttur í
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar er
að mörgu leyti nokkuð sérstök, að-
allega fyrir þær sakir að það er
mikið til tónlistarkennara hennar
til margra ára, Karen Sturlaugs-
son, að þakka að hún er enn að.
„Ég byrjaði að læra á trompet
þegar ég var í 4. bekk. Þegar kom
að unglingsárunum og gelgjan var
tekin við missti ég áhugann á
trompetinum. Ég var alveg ákveð-
in í að hætta náminu en þá sagði
Karen að það vantaði svo barí-
tonhornleikara í lúðrasveitina sem
hún stjórnaði. Hún vildi greinilega
ekki missa mig. Hún lánaði mér
hljóðfæri yfir helgi, áhuginn rauk
upp og ég hélt tónlistarnáminu
áfram,“ sagði Harpa í samtali við
blaðamann og þó hún ætti enn eft-
ir að skipta um hljóðfæri hélt hún
sig við málmblásturshljóðfærin.
Nokkrum árum seinna vantaði
Karenu básúnuleikara í Léttsveit
tónlistarskólans, sem hún stýrði
einnig og til að kveikja áhuga
Hörpu enn á ný lánaði hún henni
básúnu yfir sumar. Harpa lauk
miðstigi bæði á barítónhorn og
básúnu vorið 2005 en hefur nú ein-
skorðað tónlistarnám sitt við bás-
únuna. „Ég er núna á framhalds-
stigi, á sennilega tvo vetur eftir og
stefni að því að halda áfram þegar
þessu ævintýri lýkur.“
Tímasetningin gat
ekki verið betri
Sú staðreynd að Björk skyldi
velja 10 stúlkna brasssveit til að
spila með sér á tónleikaferðalagi
um heiminn, til að kynna nýjustu
plötuna sína, gefur til kynna að
slíkur blásaradesett þyki sér-
stakur. Blaðamaður spyr Hörpu
hvort það þyki merkilegt að stúlk-
ur skuli spila á brasshljóðfæri.
„Það er kannski ekkert merki-
legt, en það er óalgengt að stelpur
velji sér þessi hljóðfæri. Heim-
urinn í kringum þessa tegund
hljóðfæra er mikill strákaheimur
og ég hef mestmegnis spilað með
strákum í gegnum tíðina,“ sagði
Harpa. Þessi nýja reynsla er því
áhugaverð en Harpa sagði þær all-
ar þekkjast úr hinum ýmsum
hljómsveitum, svo sem Sinfón-
íuhljómsveit unga fólksins, Lúðra-
sveit æskulýðsins og Blásarasveit
Reykjavíkur.
– En hvernig vildi til að Björk
hafði samband við þig?
„Ég var búin að heyra frá Kar-
enu að Björk væri með nýtt þema
á þessari plötu, brass, og vildi 10
stelpur á aldrinum 20–30 ára. Ein-
hver hefur sjálfsagt látið vita af
mér því viku seinna var hringt í
mig.“ Harpa sagðist ekki hafa
þurft að hugsa sig tvisvar um og
lítur á þetta sem mikið ævintýri,
en ekki síst tækifæri. „Þessi
reynsla verður góð fyrir fer-
ilskrána en auðvitað verður þetta
mikil vinna. Ég geri mér reyndar
ekki alveg grein fyrir því hversu
stórt þetta verður.“ Harpa sagði
einnig að tímasetningin gæti ekki
hafa verið betri fyrir sig. Hún út-
skrifaðist úr Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja um síðustu áramót, sinnti
tímabundið forfallakennslu í Holta-
skóla og sagðist einungis hafa
þurft að sleppa nokkrum nám-
skeiðum í Tónlistarskóla Reykja-
nesbæjar. Hver fórnar ekki slíku
fyrir tækifæri lífsins og svo er allt
eins víst að stúlkurnar 10 eigi eftir
að fá mikla athygli og e.t.v. fleiri
tækifæri í kjölfarið. „Ég hef til
dæmis oft heyrt að plötufyrirtæki í
Bretlandi séu að leita að brass-
stelpum, þannig að maður veit
aldrei,“ sagði Harpa Jóhannsdóttir
og rauk á vit ævintýranna.
Harpa Jóhannsdóttir leikur í stúlkna-brasssveit á tónleikaferðalagi Bjarkar
Mér finnst þetta allt svo
óraunverulegt ennþá
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Tónlist Brassstelpan Harpa Jóhannsdóttir hefur lært á málmblásturshljóð-
færi í 10 ár og uppsker nú tækifæri lífsins í heimsreisu með Björk. Tromp-
etinn og barítonhornið hafa vikið fyrir básúnunni sem Harpa heldur hér á.
Í HNOTSKURN
»Harpa lauk miðstigi bæði ábarítonhorn og básúnu
vorið 2005 en hefur nú ein-
skorðað tónlistarnám sitt við
básúnuna
»Ég hef til dæmis oft heyrtað plötufyrirtæki í Bret-
landi séu að leita að brass-
stelpum, þannig að maður veit
aldrei.
»Heimurinn í kringumþessa tegund hljóðfæra er
mikill strákaheimur og ég hef
mestmegnis spilað með
strákum í gegnum tíðina.
HÁSKÓLINN á Akureyri fær á
þessu ári 100 milljónir króna til að
hefja framkvæmdir við fjórða áfanga
byggingarinnar á Sólborg. Þorgerð-
ur Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra tilkynnti þessa
ákvörðun ríkisstjórninnar við athöfn
í skólanum í gær.
Á sömu samkomu voru undirrit-
aðar samstarfsyfirlýsingar um efl-
ingu menntunar í orkumálum milli
forráðamanna Orkuskólans á Akur-
eyri (RES) og þriggja mennta- og
rannsóknastofnana; Háskóla Ís-
lands, Háskólans á Akureyri og Ís-
lenskra orkurannsókna, ÍSOR.
Heildarkostnaður við byggingu
fjórða áfanga húsnæðisins á Sólborg,
ásamt lóðaframkvæmdum, er áætl-
aður um 700 milljónir króna og
stefnt er að því að verkinu verði lokið
á þremur árum. Í ávarpi sem Þor-
gerður Katrín flutti á fundinum
sagði hún m.a. að bygging þessa
áfanga væri mikilvægur liður í þeirri
áætlun stjórnvalda og Háskólans á
Akureyri að öll aðstaða fyrir kennslu
og rannsóknir verði byggð upp í hús-
næði á háskólasvæðinu á Akureyri.
„Með því að ljúka fjórða áfanga
skapast sá möguleiki að flytja nær
alla starfsemi háskólans úr Þingvall-
astræti yfir á Sólborg og eru þannig
verulegar líkur á að kennsla í kenn-
aradeild komist fyrir í húsnæði há-
skólans á háskólasvæðinu.“
Í lok ávarpsins afhenti Þorgerður
Katrín Guðmundi Heiðari Frí-
mannssyni, staðgengli rektors, leik-
fangagröfu sem tákn um að hefja að-
gerðir sem allra fyrst! Að því loknu
afhjúpaði hún teikningar af bygging-
aráfanganum sem um ræðir og
hannaður hefur verið af Glámu-Kím.
Alls er um að ræða rúmlega 2000
fermetra byggingu með fyrirlestrar-
sölum, kennslurýmum og svokölluð-
um fjölnotarýmum.
Orkuskólinn
Samningarnir sem áður voru
nefndir fela í sér að Orkuskólinn geti
nýtt aðstöðu, starfsmenn og upplýs-
ingar hjá þessum stofnunum, sem
tengjast allar starfsvettvangi hins
nýja Orkuskóla.
Orkuskólanum hefur verið valið
enska nafnið RES The School for
Renewable Energy Science. RES
hefur byggt upp yfirgripsmikið sam-
starfsnet háskóla og rannsókna-
stofnana í Evrópu og Norður-Amer-
íku. Skólinn mun leggja áherslu á
meistaranám og rannsóknir á sviði
orkufræða.
100 milljónir til nýbyggingar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Orkumál Þorgerður Katrín menntamálaráðherra sem vottaði samningana, doktor Björn Gunnarsson f.h. Orku-
skólans, Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Guðmundur H. Frímannsson og Ingibjörg Kaldal f.h. ISOR.
Viltu hefjast handa? Guðmundur Heiðar Frímannsson, staðgengill rekt-
ors, tekur við leikfangagröfu að gjöf frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.
Samstarf um efl-
ingu menntunar
í orkumálum
GUÐSÞJÓNUSTA í 19. aldar sið
verður í Minjasafnskirkjunni á
morgun, sunnudag, kl. 14 og er
samkoman hluti af kirkjulistaviku.
Prestur verður sr. Óskar Hafsteinn
Óskarsson.
Minjasafnskirkjan á Akureyri er
fyrrum sóknarkirkja á Svalbarði á
Svalbarðsströnd. Hún var byggð
árið 1846 og yfirsmiður var Þor-
steinn Daníesson frá Skipalóni,
kunnur kirkjusmiður á sínum tíma.
Sönghópurinn Hymnodia syngur
sálma frá 19. öld undir stjórn Ey-
þórs Inga Jónssonar organista og
til að nálgast andblæ þessa tíma
enn frekar verða notaðir íslenskir
búningar og prestur skrýðist göml-
um messuklæðum. Kirkjugestir eru
hvattir til að koma í íslenskum bún-
ingum ef þess er kostur.
Kirkjulistavika hefst í dag kl. 15
með opnun samsýningar í Ketilhús-
inu. Vegna þess að þetta er 10.
kirkjulistavika var þeim listamönn-
um sem sýnt hafa á þessari hátíð í
gegnum árin boðið að taka þátt í
samsýningu. Á sýningunni verða
verk eftir 15 konur.
Messað í
19. aldar sið
VORTÓNLEIKAR söngdeildar
Tónlistarskóla Eyjafjarðar verða á
morgun, sunnudag, kl. 20:30 í
Laugarborg. Söngkennari er Þur-
íður Baldursdóttir og meðleikari er
Daníel Þorsteinsson píanóleikari.
Vortónleikar
FUNDUR um íslenska strandmenn-
ingu, stöðu hennar og framtíð,
verður haldinn í Amtsbókasafninu
á morgun, sunnudag. Dagskrá er
fjölbreytt og aðgangur ókeypis og
öllum opinn.
Strandmenning